Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 61

Morgunblaðið - 23.05.2000, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ I DAG ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 61 BRIDS líniNjón Guðmunilur I'áll Arnarson MÖRG áhugaverð spil komu upp á æfingu lands- liðsins í síðustu viku og verða nokkur þeirra skoð- uð í þættinum á næstu dögum. Við byrjum á úr- spilsþraut, þar sem um- ræðan snerist um það hvort til væri örugg vinn- ingsleið í fjórum hjörtum með bestu vörn. Vestur gefur; NS á hættu. Norður * G94 y 975 ♦ K864 + 1075 Vestur Austur ♦ K10653 *D2 *D3 vl02 ♦ D532 ♦Á1097 +KD +98642 Suður 4.Á87 yÁKG864 ♦ G +AG3 Spilað var á þremur borðum og á tveimur þeirra fóru NS í fjögur hjörtu eftir opnun vesturs á spaða og svar austurs á kröfugrandi. Útspilið var í báðum tilfellum laufkóng- ur, sem báðir sagnhafar tóku auðvitað strax og lögðu niður AK í trompi. Þetta er augljóslega hart geim, en spilið lítur þó mun betur út eftir þrjá fyrstu slagina. Nú þarf einhvern veginn að kom- ast hjá því að gefa tvo slagi á spaða og það verður ekki gert nema neyða vörnina til að hreyfa litinn fyrst eða spila út í tvöfalda eyðu. Til að byrja með er tígul- gosa spilað. Segjum að vestur leggi á og sagnhafi láti kónginn. Þá hefur vörnin betur ef austur spil- ar laufi og vestur kemur sér út á tígli. Sagnhafa vantar þá eina innkomu í borð til að trompa út tígul- inn áður en hann húrrar út spaðaás og meiri spaða. En ef austur spilar aftur tígli, trompar suður og spilar laufgosa. Þá neyðist vestur til að drepa og spila enn tígli. Síðan má nota innkomuna á lauftíu til að ljúka tígulhreinsuninni, og þá er sviðið sett fyrir inn- kastið í lokin. Vörnin hefur sem sagt betur ef sagnhafi stingur upp tígulkóng. Hins vegar er það óþarfi. Ef hann dúkkar, mun vestur senni- lega taka laufdrottningu og spila svo tígli. Suður trompar, tekur lauftíu og spilar síðan spaðaás og meiri spaða. Nú er tígul- kóngurinn hótun í borði, því austur verður augljós- lega að taka spaðaslaginn. Spilið vinnst þá. Ef vestur geymir lauf- drottningu og spilar tígli, svarar sagnhafi með lauf- gosa og þá verður hægt að hreinsa tígulinn alveg upp. Niðurstaðan er því sú að fjögur hjörtu vinnast á opnu borði. Pyrst hann kom með bein- ið til mín, skal ég veðja að hann er búinn að grafa mniskóna mína einhvers staðar. Arnaó heilla Q A ÁRA afmæli. í dag, uU þriðjudaginn 23. maí, er níræð Helga Ingi- björg Stefánsdóttir, Víf- ilsgötu 23, Reykjavík. Eiginmaður Helgu Ingi- bjargar, Friðrik Halldðrs- son loftskeytamaður, lést árið 1944. Helga Ingibjörg tekur á móti ættingjum og vinum í Víkingasal Hótels Loftleiða milli kl. 17 og 20 á afmælisdaginn. Gjafir eru afþakkaðar en þeim sem vildu gleðja hana er bent á að frumútgáfa Ijóða Friðriks Halldórssonar, eiginmanns Helgu Ingi- bjargar, kemur út á af- mælisdegi hennar. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj@mbl.- is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 20. apríl sl. í Selfoss- kirkju af sr. Halldóru Þórð- ardóttur Kristín Sveinsdótt- ir og Andrés Guðmundur Ólafsson. Heimili þeirra er að Birkivöllum 4, Selfossi. SKÁK Umsjón llelgi Áss Grétarsson Hvítur á leik MEÐFYLGJANDI staða kom upp á milli þýska stór- meistarans dr. Robert Hiibner, hvítt, (2620) og stórmeistarans frá Ukraníu/ Slóveníu Alexander Belj- avski (2640) á minningar- móti Borowski sem haldið var fyrir skömmu í Essen í Þýskalandi. Hin gamal- reynda kempa frá Þýska- landi kom auga á stórsnjalla hugmynd til að skapa tvö- falda hótun. 18.Db4H Þessi leikur lætur ekki mikið yfir sér en er engu að síður banabiti svarts þar sem nú hótar hvítur 19. Habl og 19. Bh7+. 18...bxa6 Svartur af- ræður að gefa skiptamun, en aðrir möguleikar voru ekki betri þar sem bæði eftir 18...He8 19.Habl He6 20. Hfel og 18...Hd819.Habl Hd6 20.Hfel hefur hvítur hartnær unnið tafl. 19.Bh7+! Kxh7 20.Dxf8 Bb7 21. Db4 og hvítur bar sigur úr býtum 20 leikjum síðar. Raddir framtíðar Hvað er eldur? Eldurinn gýs, hann er heitur og gulur. Það get- ur kviknaö í húsum og fólkið getur dáið og þarf að hringja á sjúkrabíl. Við verðum eldrauð í framan. Jón Dan, Kvlstaborg. LJOÐABROT GRÓTTUSTEMNING Hjá Gróttu svarrar sjórinn við sorfm þarasker. í útsynningum dimmar dnmur drynja í eyru mér. Þar fórust eitt sinn átján með allt í grænan sjó. Brimið svall við svörtusker. Sofðu, korríró. Oft heyrast óhljóð útvið Gróttusker. Á kvöldin stiginn kynjadans, kveðið og leikið sér. Pórbergur Pórðarson. STJÖRJVUSPA el'tir Frances llrake TVÍBURAR Þú þarft að hafa fyrir hlut- unum og ósérhlífni þinni er viðbnigðið. Þú átt auðvelt með að vinna aðra á þitt band. Hrútur (21. mars -19. apríl) Einhverjar sögur eru í gangi á vinnustað þínum. Láttu þær sem vind um eyru þjóta, haltu þig að þínu og þá mun þinn hlutur hvergi skerðast. Naut (20. apríl - 20. maí) Nú ættu áætlanir þínar að ganga upp, ef þú bara sýnir ögn af þolinmæði. Vertu ekki of veiðibráður, allt hefur sinn tíma og þú mun uppskera ríkulega. Tvíburar . (21. maí - 20. júní) Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. Því þarft þú að sýna mikla fýrirhyggju og ganga úr skugga um að allt sé eins og það á að vera. Krabbi (21. júní-22. júlí) Það er eitt og annað sem þú átt ógert heima fyrir og nú verður ekki lengur undan því vikist að ganga frá þeim mál- Ljón (23. júlí - 22. ágúst) m Láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur. Það er sjálfsagt að halda fast á sínum málum, en tillitssemi við aðra er sjálf- sögð en hroki ekki. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) (SmL Þú sérð nú fyrir endann á verkefni, sem þú hefur lengi unnið að. Það er í góðu lagi að gera sér glaðan dag, þegar málið er komið í höfn. V°g Ttt (23.sept.-22.okt.) Minningar úr fortíðinni skjóta upp kollinum með heimsókn gamals kunningja. Vertu sáttur við sjálfan þig og þær ákavrðanir sem þú tókst á sínum tíma. Sporðdreki ™ (23. okt. - 21. nóv.) Lestu vel alla skilmála áður en þú skrifar undir einhver skjöl. Það sem skiptir mestu máli er oft að finna í smáa letrinu.Gefðu þér góðan tíma. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) hU) Þú hefur lagt til hliðar ákveðna upphæð til sérstakra nota og verður hvað sem það kostar að standast freistingar til að nota hana í annað. Steingeit (22. des. -19. janúar) HÍ Þér gengur flest í haginn þessa dagana. En það er gott að vera við öllu búinn, því ver- aldargengið er valt. Sýndu öðrum drengskap og tillits- Vatnsberi , . (20. jan. - 18. febr.) Csnt Þú þarft að sætta þig við ákveðinn aga og mátt ekki gera þér það að reyna að komast hjá honum. Vertu þol- inmóður því þú hefur allt með þér. Fiskar ^ (19. feb. - 20. mars) Einhver vandræði kunna að verða á vegi þínum í dag. En láttu þau ekki slá þig út af laginu, haltu bara þínu striki og þá færist allt í samt iag aft- ur. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindaiegra staðreynda. TOTECTORS ÖRYGGISSSKÓR FYRIR SMIÐJUR ARVIK ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295 ^SPJ ÖRYGGIS- HJÁLMAR Gerið góð kaup afsláttur Aðalstræti 16, sími 551 9188 14 k gull Verð kr. 3.800 Stúdentastjarnan hálsmen eða prjónn Jón Slpunisson Skartgripdverzlun Laugavegi 5 - sími 551 3383 Léttu líf og lund Það naer enginn kjör- þyngd á augabragði. Hreyfing gerir gagn. Þú finnur fljótlega að úthaldið eykst og líkaminn styrkist. Lífið verður skemmtilegra ef þú hreyfir þig reglulega og borðar léttan, hollan og góðan mat, ávexti og grænmeti. Ekki ofgera þér. Settu þér raunhæf markmið með skemmtilegri hreyf- ingu. Rösk ganga í hálftíma á dag gerir mikið gagn. Njóttu fjölbreyttrar hreyfingar í góðum félagsskap. Sundlaugarferð með fjölskyldunni, hjólreiðatúr eða ærslaieikir með börnunum létta lund og auka samheldnina. Cöngum 2000 skref til móts við heilbrigði og hreysti 27. maí! Landlæknisembættið Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is 1 Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu www.iandlaeknir.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.