Morgunblaðið - 23.05.2000, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 63
N aglbítar
færa sig á
aðra hæð
Morgunblaðið/Kristinn
„Naglbítar hafa óvenju gott næmi fyrir melódíum, hæfileiki sem skapar
þeim þó nokkra sérstöðu innan íslensks dægurlagaheims."
MYNDBONP
Máttur von-
arinnar
Jakob Lygari
(Jakob the Liar)
Drama
Leikstjóri: Peter Kassovitz. Hand-
rit: P. Kassovitz og Diedier Decoin.
Aðalhlutverk: Robin Williams, Alan
Arkin, Hannah Taylor Gordon og
Armin Mueller-Stahl. (115 mín)
Bandaríkin, 1999. Skífan. Bönnuð
innan 12 ára.
SEGJA má að Jakob lygari feti að
nokkru leyti í fótspor ítölsku verð:
launamyndarinnar Lífið er fallegt. I
báðum tilvikum
reyna þekktir gam-
anleikarar fyrir sér
í kvikmyndum sem
segja frá örlögum
gyðinga í skugga
þriðja rflrisins en
erfitt er að að
ímynda sér grín-
snauðara viðfangs-
efni. Hér er þó ekki
um einfalda eftirlíkingu að ræða þar
sem myndin byggist á skáldsögu eft-
ir Jurek Becker. Þar segir frá Jakobi
sem ásamt þúsundum annarra er
haldið nauðugum í gyðingagettóinu í
Varsjá. Fyrir tilviljun heyrir Jakob
útvarpsútsendingu sem greinir frá
yfirvofandi ósigri Þjóðverja. Með því
að greina frá þessum fréttum og
finna upp fleiri í kjölfarið blæs Jakob
nýrri von í brjóst íbúanna. Robin
Williams stendur sig vel í titilhlut-
verkinu, enda sterkur leikari þegar
hann beislar væmnina. Þá er um-
hverfi gyðingagettósins endurskap-
að með verulegu listfengi og óhugn-
aðinum sem fylgdi lífinu í þessari
eyðimörk mannsandans vel lýst.
Akveðnir þættir myndarinnar ganga
þó síður upp, en á heildina litið er hér
á ferðinni mynd sem leynir á sér.
Furðuleg
samsuða
Hárbeitt bros
(Razor Blade Smile)___
Vampírnmynd
★ */2
Leikstjórn og handrit: Jake West.
Aðalhlutverk: Eileen Daley, Christ-
opher Adamson og Kevin Howarth.
(98 mín.) Bretland, 1998. Skífan.
Bönnuð innan 16 ára.
ÞAÐ vantar ekki metnaðinn hjá
hinum nýbakaða leikstjóra og hand-
ritshöfundi þessarar bresku vamp-
írumyndar. Tekist
er á við hefðina af
miklum móð og
fiéttuð úr því saga
sem spannar einn-
ar og hálfrar aldar
tilveru vampírunn-
ar Lilith Silver. Til
að stytta sér stund-
ir í eilífðinni og afla
sér fæðu hefur Lil-
ith gerst leigumorðingi. I framhaldi
af því kemst hún í kast við skugga-
verur af eigin ættmeiði. Það er erfitt
að koma orðum að þeim hrærigraut
stórhugs og fúsks sem þessi mynd
er. Lilith segir sögu sína í endurliti í
anda „Interview with the Vampire“
og gömul vampíruspeki er vegin og
metin. En áður en maður veit af hef-
ur hin rómantíska vampíra um-
breyst í leðurklæddan leigumorð-
ingja með alvæpni. Kroppum og
bólsenum er óspart beitt til að
krydda söguna sem og blóðugum
byssubardögum. Tæknilega séð er
myndin jafnframt ódýr og tökuað;
ferðir víða hinar sjoppulegustu. í
einstaka tilfellum bera tilraunir til
stílfærslu þó tilætlaðan árangur. Já,
þessi kvikmynd er mjög furðuleg í
lélegheitum sínum.
TONLIST
Geisladiskur
Vögguvísur fyrir skugga-
prins
Vögguvísur fyrir skuggaprins, önn-
ur breiðskífa 200.000 naglbíta.
Sveitina skipa Villi (gítar, söngur
o.fl.), Kári (bassi, söngur o.fl.) og
Axel (trommur, forritun o.fl.). For-
ritun og þess háttar var í höndum
Haffa og Þorvaldar og Samúel J.
Samúelsson spilaði á lúður í „Lítil
börn“. Upptökumenn voru Axel
Árnason, Hafþór Guðmundsson,
Ivar Ragnarsson og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson. 53,15 mín.
Sproti gefur út.
ÞAÐ hefur aldrei verið lenska að
tala um Akureyri sem tónlistarbæ,
líkt og tíðkast hefur með smærri
pláss eins og Keflavík og Húsavík.
En í þau skipti sem hljómsveitir
þaðan hafa látið að sér kveða hafa
þær jafnan vakið athygli fyrir
hversu fullbúnar og þroskaðar þær
hafa verið; nefna má sveitir eins og
BARA-flokkinn, Ópíum og þá sveit
sem er til umfjöllunar hér, 200.000
naglbíta.
Nagbítarnir höfnuðu í þriðja sæti
Músíktilrauna fyrir margt löngu,
árið 1995, en þá höfðu þeir verið
starfandi í tvö ár. Þá sungu þeir á
ensku og kættu áhorfendur með
gáskafullri en um leið öruggii sviðs-
framkomu. Vilhelm, söngspíra og
gítarleikari, var og valinn söngvari
tilraunanna. Tveimur árum síðar
kom út hinn fjörugi söngur, „Hæð í
húsi“ á safnplötunni Spírum og fékk
töluverða útvarpsspilun. Fyrsta
breiðskífan, „Neondýrin", kom svo
út fyrir jólin 1998 og nokkur laga
þaðan fengu einnig að glymja í við-
tækjum. Það var auðsjáanlegt á of-
urmelódísku popprokki laga eins og
„Brjótum það sem brotnar“ og
„Neðanjarðar" að töluvert væri
spunnið í þessa norðanpilta.
Þessi frumburður innihélt mikið
af hröðu og melódísku rokki, með
sterkum tilvísunum í pönk og
nýbylgju fyrri tíma. Á nýju plötunni
hafa Naglbítarnir slípað sig nokkuð
til, dregið úr blindri keyrslu og lög-
in þ.a.l. nokkuð margræðari. Nagl-
bítamir voru óhræddir við að fara
óvæntar hjáleiðir á fyrri plötunni og
þeirri tilraunastarfsemi er viðhaldið
hér og hún reyndar aukin að
nokkru. Stílaflökt er því talsvert og
sum laganna stinga þægilega í stúf
við hið „hefðbundna" naglbítarokk.
Naglbítar hafa óvenju gott næmi
Þvottavélar
fyrir vélahluti
Jákó sf.
sími 564 1819
fyrir melódíum, hæfileiki sem skap-
ar þeim þó nokkra sérstöðu innan
íslensks dægurlagaheims. í viðlög-
um fara þeir á flug og góðar radd-
anir gefa lögunum aukið vægi. Það
er reyndar undarlegt hvað sam-
tímarokksveitir gera lítið af því að
radda nú til dags en sú íþrótt var
viðtekin venja í árdaga poppsins.
Söngur Naglbíta er góður, umluk-
inn hlýjum og persónulegum blæ.
Vert er að geta textasmíðarinnar en
viðfangsefnin eru oftar en ekki
dökk og dimm. Margir textanna
fjalla á nýstárlegan hátt um dauð-
ann og hans fylgifiska. Góðu heilli
detta þeir þó aldrei niður í volæði
og eymd enda standa þess háttar
hlutir fjarri anda Naglbítanna. Það
sem er hvað mest heillandi við
200.000 naglbíta er hvað þeir eru
skemmtileg hljómsveit. Á tónleik-
um er svo mikið um gleði og gaman
hjá sveitinni að það er hreint og
beint smitandi. Það er greinilegt að
piltar hafa mjög gaman af því sem
þeir eru að gera og meðlimir hafa
spilað sig vel saman í gegnum árin
og sveitin er þétt. Spilagleði og
ástríðufull einlægni er poppiðkun
jafnan til framdráttar og heildar-
svipur plötunnar er góður og af
henni stafa jákvæðir og heilnæmir
straumar. Stundum er reyndar eins
og Naglbítar kunni sér ekki al-
mennilega hóf, svo gaman hafa þeir
af þessu öllu saman. Hröð lög eins
og „Dans“ og „200.000 naglbítar",
sem er eins og sameiginlegt teiti
hjá Botnleðju og Geirfuglunum, eru
t.d. lítt innblásinn og hefðu alveg
eins mátt missa sín þó að það hafi
greinilega verið gaman að spila þau.
Það að Naglbítar láti allt vaða á
þennan hátt hefur þó fleiri kosti en
galla. Lög eins „Lítill fugl“, „Nótt“
og „Lítil börn“ eru dásamlegir
undanvillingar, sköpunargleðinni
hleypt á skeið með góðum árangri.
En það er þó í lögum eins og „Toks-
ík Állah“, „Bless kex“ og þá sér-
staklega titillaginu, „Vögguvísur
fyrir skuggaprins", sem Naglbítar
skína hvað skærast. Vel samin lög
sem búa yfir góðum og grípandi en
umfram allt fallegum melódíum.,
200.000 naglbítar eru laglegt og vel
ilmandi blóm í fremur risjóttum ís-
lenskum rokkgarði en það á enn eft-
ir að springa út að fullu. Hið stór-
fenglega titillag plötunnar gefur til
kynna mátt og megin Naglbítanna
sem þeir eiga vonandi eftir að færa
sér í nyt að fullu í nánustu framtíð.
„Vögguvísur fyrir skuggaprins" er
því vel heppnuð varða á hingað til
gifturíkri leið.
Arnar Eggert Thoroddsen
Viðskiptavinir FBA athugið!
Afgreiðsla FBA er flutt að Kirkjusandi
þriðju hæð.
Símanúmer er óbreytt 580 5000.
Starfsfólk FBA
FBA er hluti af (slandsbanka-FBA hf.
Heiða Jóhannsdóttir