Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ung stúlka hætt komin undir Hamrinum í Vestmannaeyjum
Bjargað úr
sjálflieldu
ofan við
þverhnípi
TÓLF ára stúlku, Svölu Jónsdótt-
ur, var bjargað úr sjálfheldu undir
Hamrinum í Vestmannaeyjum á
sunnudagskvöld. Hún hafði verið á
ferð með vinkonu sinni og runnið í
skriðu fram á brún þverhnípis, þar
sem hún lenti í sjálfheldu og varð
að bíða björgunar. Magnús Braga-
son seig í bergið eftir stúlkunni og
bjargaði henni úr prísundinni. Að
sögn Magnúsar var hann í bíltúr
um hálftíuleytið og varð þá var við
sjúkrabfl og fleiri bfla á veginum
fyrir ofan Hamarinn og fólk á
hlaupum fram og aftur. Hann fór
því á staðinn til að kynna sér að-
stæður.
„Ég sá að stúlkan stóð klofhallt í
skriðu á tveimur lausum steinum,
þannig að hún var í bráðri hættu
og þverhnípið beint fyrir framan."
Fjöldi manna var kominn á staðinn
og búið var að útvega reipi. Magn-
ús, sem er vanur úteyjamaður og
hefur oft sigið í björg þar, ákvað
þvi að binda um sig kaðalinn og
láta viðstadda slaka sér niður.
„Þannig að ég batt spottann ut-
Ljósmynd/Þorsteinn Gunnarsson
SVALA, önnur frá hægri, ásamt þeim sem stóðu að
björguninni. Frá vinstri: Thelma Tómasdóttir, Tómas
Jóhannesson, Anna Margrét Kristinsdóttir, sem var
með Svölu, Magnús Bragason sem seig eftir henni,
Svala Jónsdóttir og Þórður Hallgrímsson. Myndin til
hægri sýnir skriðuna þar sem Svala rann niður. Hún
gat stöðvað sig með því að skorða fæturna á tveimur
steinum. Efst stendur Magnús Bragason.
an um mig og þeir létu mig síga
niður skriðuna. Ég komst fram
fyrir stúlkuna og losaði mig og
batt hana og þeir hífðu okkur
upp.“
Að sögn Magnúsar var algjört
glapræði hjá stúlkunum að fara
þarna niður, því Hamarinn er
mjög hættulegur.
„Þetta er þriggja til fjögurra
metra skriða og þær hafa farið í
hana og ekki áttað sig á því hvað
þetta var laust og hvað var fram-
undan. Þú þarft ekki að renna
langt, eins og kom fyrir hana, til
að vera kominn alveg út á brún.
Þar var ekkert hald, bara lausir,
þyngri og stærri steinar sem þú
gast haldið í, en þeir gátu losnað
Iíka.“
Hann segir að menn sem fyrstir
komu að hafi brugðist rétt við með
því að reyna ekki að fara niður án
þess að vera í bandi, heldur bíða
og tala við stúlkuna til þess að hún
héldi ró sinni, en hún var orðin
mjög skelkuð að sögn Magnúsar.
Heimssýningin EXPO 2000 hefst í Hannover í Þýskalandi á fímmtudag
Gert ráð fyrir að 10% gesta
heimsæki íslenska skálann
Morgunblaðið/Sverrir
Halldór Ásgrímsson afhendir Ólafi Ásgeirssyni þjóðskjalaverði til varð-
veislu ferðatösku með þeim 80 þúsund mannamyndum sem varpað verð-
ur upp í sýningarskálanum í Hannover.
HEIMSSÝNINGIN EXPO 2000
verður formlega opnuð í Hannover í
Þýskalandi næstkomandi fimmtudag
og tekur ísland nú þátt í heimssýn-
ingu í fjórða sinn. Verkefnisstjóm um
þátttöku íslands á sýningunni kynnti
skipulag og starfsemi í íslenska sýn-
ingarskálanum á blaðamannafundi í
gær en á fundinum kom m.a. fram að
gert er ráð fyrir að um fjórar milljón-
ir manna heimsæki íslenska sýning-
arskálann meðan á sýningunni stend-
ur.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra opnar íslenska sýningarskál-
ann við hátíðlega athöfn á fimmtudag
en sýningin verður opin í fimm mán-
uði, frá 1. júní til 30. október. AIls
taka 178 ríki þátt í sýningunni og er
yfirskrift hennar maður, náttúra og
tækni. Kom fram í máli Halldórs í
gær að hann teldi þetta þema henta
okkur Islendingum afar vel.
Áætlaður fjöldi sýningargesta á
EXPO 2000 er um 40 milljónir manns
og sagði Halldór að gert væri ráð fyr-
ir að 10% gesta myndu heimsækja ís-
lenska skálann. Hann sagði að þátt-
taka í sýningunni væri Islendingum
afar mikilvæg enda væri Þýskaland
eitt af mMvægustu viðskiptalöndum
okkar íslendinga. Hann sagði jafn-
framt að þátttaka í EXPO væri eins
og landafundakynningin vestur í
Bandaríkjunum og fleiri nýleg verk-
efni gott tækifæri til að kynna land og
þjóð.
„Oll þessi verkefni eru liður íþví að
styrlqa ímynd Islands, kynna Island
á alþjóðlegum vettvangi, sækja fram
á þeim vettvangi því alþjóðasamstarf
verður okkur sífellt mikilvægara. Það
má segja að okkar velferð á næstu ár-
um og áratugum sé undir því komin
að vel takist til í öllu því starfi," sagði
Halldór í gær.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, kynnti á fundinum í gær þá dag-
skrá sem haldið verður úti í íslenska
sýningarskálanum á heimssýning-
unni. M.a. hefur íyrirtækið Gagarín
hannað sérstaka íslandskynningu
sem gestum gefst tækifæri til að
kynna sér í þar til gerðum margmiðl-
unarbásum, sýnt verður kynningar-
myndband um íslenskan sjávarútveg
og varpað verður upp myndum af 80
þúsund íslendingum.
Sérstök dagskrá í tilefni
þjóðardags íslands 30. ágúst
Loks má nefna að hinn 30. ágúst
verður sérstakur þjóðardagur Is-
lands á sýningunni og kynnti Guðríð-
ur Sigurðardóttir, ráðuneytisstjóri í
menntamálaráðuneytinu, í gær þá
menningardagskrá sem boðið verður
upp á við það tækifæri.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
hen’a sagði þátttöku í EXPO 2000
vissulega kostnaðarsamt verkefni, en
fram kom á fundinum í gær að kostn-
aður væri á bilinu 280-285 milljónir
króna. Menn vonuðust hins vegar til
þess að þátttaka í EXPO styrkti ís-
lenskt efnahagslíf og útflutning okkar
til Þýskalands og annarra landa, auk
þess sem vonir stæðu til að hún hefði
góð áhrif á íslenska ferðaþjónustu.
A
Urskurðaður
í gæsluvarð-
hald vegna
látinnar konu
MAÐUR á þrítugsaldri var úrskurð-
aður í 12 daga gæsluvarðhald á
sunnudag í tengslum við lát ungrar
konu, sem fannst fyrir utan fjölbýlis-
hús við Engihjalla í Kópavogi á laug-
ardagsmorgun.
Lögreglan í Kópavogi yfirheyrði
manninn í fyrrakvöld eftir að hann
var handtekinn í sama húsi og stúlk-
an fannst við og krafðist gæsluvarð-
halds yfir honum til 9. júní. Kópa-
vogslögreglan hefur yfirheyrt íbúa
hússins en vill ekki tjá sig frekar um
málið á þessu stigi og segir það enn í
rannsókn.
Hrafnar
valda
skaða í
æðarvarpi
HRAFNAR hafa valdið veru-
legum skaða í æðarvarpi í Húsa-
vík á Ströndum undanfarið í
kjölfar þess að flökkuernir hafa
flogið yfir æðarvarpið og fælt
æðarkollurnar af hreiðrunum.
Hrafninn hefur notað tæki-
færið og farið í hreiðrin og stolið
eggjunum og telur Matthías
Lýðsson, bóndi í Húsavík, að af
á fjórða hundrað hreiðrum séu
ekki nema innan við hundrað
eftir nú eftir aðgerðir hrafnsins.
Matthías sagði að 50-60
hrafnar hefðu gert sig heima-
komna í varpinu undanfama
daga og stolið eggjum undan
kollunum. Steininn hefði þó tek-
ið úr síðustu dagana þegar
flökkuemir hefðu verið á sveimi
á svæðinu, en þá hefði kollan
sópast af hreiðrunum og út á sjó
og hrafnarnh- í kjölfarið notað
tækifærið og rænt hreiðrin.
Samverkandi þættir
Matthías sagði að þarna væri
um samverkandi þætti í dýra-
ríkinu að ræða og afar erfitt við
þessu að gera. Eina ráðið væri
að reyna að verja varpið og
skjóta hrafninn, en hann væri
afar slóttugur og erfiður viður-
eignar og því mjög erfitt að
komast í skotfæri við hann.
Hann sagðist hafa boðið full-
trúum umhverfisráðuneytisins
að koma norður og sjá afleiðing-
amar af þessu samspili í náttúr-
unni, einfaldlega til þess að til
væri vitneskja hjá ráðuneytinu
um það hvernig vai-p liti út eftir
svona heimsóknir. Matthías
sagði að sú ákvörðun samfélags-
ins að friða örninn, sem hann
væri út af fyrir sig alveg sam-
þykkur, væri hemill á starfsemi
æðarbænda. Óumdeilanlegt
væri að þessi friðun ylli æðar-
bændum fjárhagstjóni fyrir ut-
an það tjón sem menn yrðu fyrir
við það að sjá margra ára starf
lagt í rúst á fáeinum dögum.
Blaðinu í dag
fylgir blað-
auki um Expo
2000, heims-
sýninguna
í Hannover
í Þýskalandi,
som hefst
næstkomandi
fimmtudag.
| Rúnar náði besta árangri íslendings
; i f imleikum á EM í Bremen/B16
%••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••<
• Kef Ivíkingar einir í efsta sæti þrátt
: fyrir jafntef li við Grindavík/B2