Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 54
J>4 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Ertu ekki óviljandi að gefa fólki rangar upplýsingar, Tómas? NOKKRAR stað- reyndir vegna tveggja greina skrifaðra af Tómasi Jónssyni um auglýsingar Flugfé- lagsins Go. Tómas heldur því fram að ekki sé eina ein- ustu ferð hægt að fá ‘ með Flugfélaginu Go til London á kr. 10.000,00, þess vegna sé auglýsing þess röng. Þessa fullyrðingu byggir Tómas á því, eins og hann segir orð- rétt: „að þrátt fyrir margra daga leit á vef- síðu Go ílugfélagsins var ekki hægt að fmna eina einustu ferð til Lontion fyrir 10 þúsund kr“. Niðurstaða Tómasar er röng. í stað þess að eyða dögum í leit að ferð á vefsíðu félagsins þarf Tómas ekki að eyða nema nokkrum mínút- um í símtal I síma 0044 1279 666 388 sem er símanúmer Go flugfélagsins í Jfcondun og panta sér far á kr. 10 þús- und til London á þeim tíma, sem flugfélagið ætlar að halda þessu flugi úti, að minnsta kosti var þessi kostur enn fyrir hendi í gærmorgun, 24. maí, eftir lestur greinar Tómasar, og að sjálfsögðu gildir þar eins og annars staðar - fyrstir koma, fyrstir fá. Það er nefnilega mikill munur á því að flestar ferðirnar séu uppseldar og að allar ferðimar séu uppseld- ar. Meðan enn er hægt að fá far með flugfélag- inu Go á umræddu verði engin ástæða hjá flugfélaginu til að hætta að auglýsa það. Að málið sé í rannsókn hjá Samkeppnisstofn- un er enginn úrskurð- ur um að auglýsingin sé röng. Hið rétta væri að bíða úrskurðar Samkeppnisstofnunar. Tómas heldur því fram að Islend- ingum hafi aðeins verið selt innan við 10% fargjalda til og frá London á 10 þúsund kr. en að lofað hafi verið af talsmanni félagsins að helmingur fargjaldanna yrði seldur á þessu verði. Það verður manni hulin ráð- gáta við lestur greinar Tómasar hvernig hann fær þetta út, eftir nið- urstöðum hans að dæma hafa þá lið- lega 7.000 íslendingar keypt sér far með Go til London, og er það vel ef rétt er, og mun þá vonandi ýta undir stjórnendur flugfélagsins að halda Flug Liðstyrkur með til- komu flugfélagsins Go, segir Jón Aðalbjörn Bjarnason, finnst mér beri að þakka en ekki vanþakka. þessu flugi áfram og skapa þannig Islendingum möguleika á að fljúga frá og til landsins og áfram víðar um veröld á sanngjarnara verði en boðið hefir verið upp á fram til þessa. Hvaðan Tómas fær þessar upplýs- ingar um fjölda þeirra íslendinga, sem pantað hafa sér far með Go til London og heim aftur, kemur aftur á móti ekki fram í grein Tómasar og hefði svo sannalega verið æskilegra að hann birti þær upplýsingar til staðfestingar á útreikningum sínum, en það gerir hann ekki. Veit ég því ekkert frekar en aðrir um hver sá fjöldi Islendinga er sem hefir keypt sér far á lægsta gjaldi og hver fjöldi þeirra er sem hefir keypt sér far á næstlægsta verði sem er þó mjög lágt miðað við það, sem við höfum átt við að búa fram til þessa, eða kr. 14.000,00. Tómasi finnst það máli sínu til framdráttar að málið sé nú í athugun hjá Samkeppnisstofnun og talar þar um sérkennileg vinnubrögð Go, ekki veit ég hvort hann kærði málið þang- að, en hafi hann gert það þá hefir hann gert það á röngum forsendum. Það getur hann sjálfur sannreynt með því að hætta netfangaleitinni og notað þá gamaldags aðferð að hringja og hreinlega pantað sér far eins og áður segir. Mín reynsla af flugfélaginu Go er sú að pantir þú far með flugfélaginu færðu innan þriggja til fjögurra daga skriflega staðfestingu á að þú eigir pantað sæti í viðkomandi vél, þetta er það sama, sem við eigum að venj- ast. Aðeins að verðið með flugfélag- inu Go er miklu lægra en okkur hefir áður boðist. T.d. kostar far fram og til baka til Mílanó frá Reykjavík um London kr. 18.814,00 hafirðu verið nógu snemma í því til að ná 10 þús- und króna fargjaldinu hjá Go og eru þá flugvallarskattar innifaldir í verð- inu. Hafir þú verið of seinn til að ná lægsta verði hækkar verðið um kr. 4.000,00 eða í kr. 22.814,00. A sama tíma er lægsta almennt flugfar, sem boðið er upp á, svokallað Apex fargjald kr. 37.335,00 m/skött- Jón Aðalbjörn Bjarnason um á mann eða kr. 74.670,00 fyrir tvo einstaklinga, t.d. hjón, sem ætla að eyða sumarfríinu á Italíu eða um tvöfalt hærra en með flugfélaginu Go. Breytist þó um kr. 4000,00 á mann hafir þú orðið of seinn til að ná lægsta fargjaldinu til London, en þá fer fargjaldið í kr. 45.628,00 fyrir hjón og er þá munurinn samt sem áður kr. 29.042,00, sem það kostar meira að fljúga á þessu svokallaða Apex gjaldi heldur en með flugfélag- inu Go. Sama er að segja ef pantaður er bílaleigubíll hjá Go, innan þriggja til fjögurra daga berst þér skrifleg staðfesting á pöntun þinni og að við- komandi bifreið muni bíða þín á um- sömdum flugvelli, þetta er líka það sama og við eigum að venjast. Aðeins að verðið er mikið lægra en okkur hefir áður boðist. Það er því tvímælalaus ávinningur fyrir okkur íslendinga að undirtektir við tilboð flugfélagsins Go verði sem mestar og bestar, sem gæti e.t.v. orðið þess valdandi að flugfélagið Go myndi halda uppi flugsamgöngum til landsins allan ársins hring. Ferðaskrifstofan Samvinnuferðir Landsýn, ásamt nokkrum öðrum, hefur undanfarin ár riðið á vaðið með að reyna að rjúfa skarð í þann átt- hagamúr, sem við höfum mátt búa við, og þannig auðveldað okkur ferðalög til annarra landa og eiga þeir aðilar þakkir skilið. Nú bætist þeim liðstyrkur með tilkomu flugfé- lagsins Go og hann finnst mér að beri að þakka en ekki að vanþakka og síst af öllu að ófrægja viðkomandi aðila með röngum upplýsingum. Höfundur er (jósmyndari. Svefnhverfí í miðbænum REYKJAVIK án at- hafnalífs yrði að sönnu dauður bær. Það er ekki veðursældin sem dregur fólk að bænum, svo mikið er víst. At- hafnalífið er lika fljótt að færa sig til ef sam- göngurversna. Reykja- vík hefur haft af að státa tveimur megin- stoðum beggja vegna Kvosarinnar, höfninni flugvellinum. Höfnin hefur breyst frá því að vera lífæð landsins og er núna óðum að verða hluti miðbæjarins. Flugvöllurinn liggur undir ámæli fyrir að vera til óþurftar. Miðbærinn er enda að glata hlut- verki sínu og verslun og athafnalíf að flytjast þangað sem samgöngur eru betri, inn með Sundum, í Kringlu- mýri og aðra útnára gamla borgar- landsins. Það er eðlilegur hluti af vexti borgarinnar. Ef við tækjum hins vegar á því að fylla upp í hafnir Reykjavíkur til að vinna byggingar- land er hætt við því að fljótlega sæj- um við fólkið líka flytja eitthvert ann- ^i.ð. Það er náttúrulega ekki til umræðu. Þess vegna er furðulegt að rætt sé um að flytja flugvöllinn eða að sneiða hann niður í frumeindir sínar. Margir halda að með upplýsinga- byltingu verði á sjálfkrafa hátt vega- lengdir að engu, að það verði alveg jafn gott að velja sér starfsstöð á ísa- firði eða Egilsstöðum og í Reykjavík. Reynsl- an er fjarri þessu. Það kostar ennþá peninga að brúa vegalengdir. Meðal fyrstu áhrifa upplýsingabyltingar- innar er mikil aukning í póstkröfuverslun, sem er kölluð netverslun, því pöntunin fer fram á netinu. Þá á einungis eftir að flytja vöruna. Afleiðingin er að stjömur hins nýja efna- hags eru ekki bara upp- lýsingafyrirtæki, held- ur fremur gamaldags flutningafyrirtæki og póstþjónustur. Mikilvægi allra sam- gönguleiða hefur alls ekki minnkað með þessari byltingu, heldur þvert á móti aukast flutningar með skipum, bílum og flugvélum. Draumur nokkurra smáborgara í vesturbænum og Þingholtunum er sá að geta losnað við flugumferð og byggja í staðinn svefnhverfi í Vatns- mýrinni. Þau hafa sennilega gert sér grein fyrir að það þarf að færa nokk- uð sterk rök fyrir því að kippa svo vendilega fótunum undan störfum annars fólks. Þau halda því fram að flugvöllurinn sé svo hættulegur að hann verði að víkja. Þetta heitir að snúa hlutum á hvolf. Ekkert byggt svæði í höfuð- borginni, hvorki svefnhverfi né at- hafnahverfi er jafnlaust við slys og flugvöllurinn. Sveinn Ólafsson Hann er hávaðasamur, hann tekur pláss en hann er ekki hættulegur. Það er 60 ára reynsla fyrir því. Allt tal um hugsanlega hættu er grátleg rangfærsla og horfir framhjá þeim slysum sem gerast á nærliggjandi umferðargötunum í hverri viku. Eg vil ekki halda því fram að slys geti ekki gerst, en ég neita að snúa hlut- unum á hvolf. Flug er hættuminnsti samgöngumáti á Islandi. Þeir hekt- arar sem flugvöllurinn þekur í Vatns- mýrinni er öruggur vinnustaður fjölda fólks. Almenn umferð í hverf- unum í kring er bæði hættulegri og meira heilsuspillandi en flugvöllur- inn getur nokkum tímann orðið. Það eru ekki einungis störf þessa fólks sem hverfa burt ef flugvöllur- inn flytur, heldur allmikil þjónusta við stærstu bæina úti á landi. Þeir eru, þökk sé staðsetningu flugvallar- ins, í klukkutíma fjarlægð frá mið- bænum, sem hefur notið þess undan- Reykjavíkurflugvöllur Flug er hættuminnsti ------------------7--- samgöngumáti á Is- landi, segir Sveinn Ólafsson. Þeir hektarar sem flugvöllurinn þekur í Vatnsmýrinni er öruggur vinnustaður fjölda fólks. farin 60 ár. Einhveijum kann að þykja annarlegt að tala um klukku- tíma fjarlægð, en það er viðurkennt að borgir hafa athafnasvið sem nem- ur um það bil þeirri vegalengd sem hægt er að komast á klukkutíma. í borgum Evrópu hefur þessi vega- lengd lengst í hlutfalli við hraða jám- brauta og bíla. Á íslandi er þessi vegalengd lögð að baki í bílum og flugvélum. Það væri að sönnu gott ef við gæt- um fundið þægilegri leiðir til að koma okkur á milli staða en bíla og flugvélar. Á meðan það breytist ekki verðum við að láta þessa sam- göngumáta vinna með okkur en ekki á móti. Höfundúr er upplýsingafræðingur í framhaidsnámi við Strathclyde Business School tGlasgow. Hvenær sprmg- ur blaðran? NÚ HEYRAST raddir um mikla þenslu í þjóðfélaginu. Því verði að draga úr opinberum fram- kvæmdum og hækka vexti til að slá á þensl- una svo að verðbólga fari ekki af stað. Frá mínum bæjardyrum séð er málið einfalt. Verðbólgan er farin af stað. Blaðran er að springa. Vaxtahækk- anir nú til að styrkja krónuna, sem er óeðli- lega sterk íýrir gagn- vart Evrópugjaldeyri mun aðeins gera hvell- inn enn hærri og hættulegri og veg- ur nú hart að útflutningsstarfsem- inni. Hvað er í raun að gerast? Jú, sterk króna lækkar verð á innflutt- um vörum sem er óeðlilega hag- stætt og er því mikið flutt inn. En vöruverðið lækkar ekki í verslunum við þetta, heldur hefur farið hækk- andi vegna fákeppni og mikillar kaupgetu í skjóli mikillar skulda- söfnunar almennings sem er keyrð- ur áfram í kaupæði með taumlausu bjartsýnistali ráðamanna. Tekjur ríkisins af kaupæðinu hafa farið fram úr öllu velsæmi. Einhver sagði að ríkissjóður væri fjandi hress vegna þess að efnahagslífið væri svo fársjúkt. Getur verið að þetta minni á ástand sjúklings sem líður þeim mun verr sem bakteríurnar eru sprækari? Umframtekjur ríkis- sjóðs hafa að vísu eitthvað verið notaðar til að greiða skuldir en einnig til fjárfestinga sem bætir lofti í blöðruna. Hvað verður svo um lækkun vöruverðs sem ætti að leiða af því að gjaldeyririnn er seldur fyrir tombóluverð? Hún hverfur í milli- liðina, sem nú eru kallaðir „alvöru fjárfestar". Þeir nota umframgróð- ann til að kaupa hlutabréf, sem aft- ur styrkir krónuna, sem lækkar innflutningsverðið, svo þeir geti keypt ennþá fleiri bréf sem síðan styrkir krónuna o.s.frv. Og almenn- ingur og útflutningsfyrirtækin safna skuldum. Hætta er á, að öll þessi hringavitleysa leggi útflutningsat- vinnugi-einar í rúst. Viðskiptahallinn eykst dag frá degi og á sama tíma bólgnar ríkissjóð- ur og skuldir ríkissjóðs minnka en skuldir þjóðarinnar ekki (lang- tímaskuldirnar erlend- is hafa slegið glæsilegt Islandsmet), heldur hefur orðið millifærsla á skuldum frá ríki til almennings. Að mati ríkisstjórnarinnar skiptir þetta ekki máli því þegar blaðran Efnahagsmál Hætta er á, að öll þessi hringavitleysa, segir Halldór Bjarnason, leggi útflutnings- atvinnugreinar í rúst. springur fer ríkið ekki á hausinn heldur almenningur. Og þegar það gerist geta „alvöru fjárfestar" kom- ið og keypt upp eignir þeirra sem liggja í valnum með þeim peningum sem þeir eru að koma úr landi þessa dagana því fjárfestar eru farnir að fjárfesta erlendis meðan krónan er svona sterk. Þegar þeir eru búnir að koma sér þar vel fyrir þá springur blaðran. „Alvöru fjár- festarnir“ sem keyptu gjaldeyrinn á tombóluprís selja nú gjaldeyrinn aftur fyrir fullt verð. Gróði fjárfestanna, sem fyrst og fremst stafar frá innfluttningi og kvótasölu, er að lokum notaður til að kaupa ríkisfyrirtæki þannig að almenningur á ekki neitt, eignir rík- isins og fjármagnið er komið á fáar hendur og Islendingar hafa náð langþráðu takmai'ki sínu og búa í alvöru bananalýðveldi. Höfundur er framkvœmdastjóri Safaríferða. Halldór Bjamason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.