Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Skýrar línur í A-flokki; Ormur númer eitt, Klakkur númer tvö og nýstimið Huginn þriðji. % .. j-U ..■•'•f 0-777-77 . ér ím '7 7 Tíu fyrir vilja og geðslag er nokkuð sem hestamenn eru ekki vanir en nú fékk Huginn þá eftirsóttu einkunn. Sigurbjörn Bárðarson sýndi klárinn af stakri prýði. Sigurvegararnir yfir níu í úrslitum Þórður Þorgeirsson og Filma frá Árbæ náðu vel saman og sigldu af ör- yggi í fyrsta sæti B-flokks. LÉTTUR og Ljúfur sigur hjá Ormi frá Dallandi í A-flokki og glæstur sigur Filmu frá Reykjavík í B-flokki var niðurstaðan í gæðingakeppni Fáks um helgina. Sigur Filmu var nokkuð óvæntui- ef mið er tekið af forkeppn- inni þar sem hún var í þriðja sæti og munaði kringum 0,20 stigum á henni og þeim Valíant frá Hreggstöðum og Djákna frá Litla-Dunhaga. En Magn- ús Arngrímsson, eigandi Filmu sem sat hana í forkeppninni, lagðist undir feld að lokinni forkeppni enn með keim af sigurbragði í munni eftir sig- urinn í Skautahöllinni í vetur. Magn- ús mat það svo að frami hryssunnar skipti meira máli en frami hans sem knapi og fann því gott tromp í erminni sem var Þórður Þorgeirsson sá snjalli knapi. Biðu menn með mikilli eftir- væntingu í fullnaðardómnum eftir að sjá þau saman Þórð og Filmu sem stóðu vel undir vonum. Þórður stýrði Filmu af öryggi í efsta sætið þótt ekki munaði miklu, voru með 8,72. Fannst mörgum sem á horfðu muna of litlu. Djákni og Sigurbjöm Bárðarson héldu öðru sætinu með 8,70 en Vali- ant og Hafliði Halldórsson féllu úr fyrsta sæti í þriðja með 8,68. í úrslitum komu yfirburðir Filmu og Þórðar glöggt í ljós, þau eru efst fyrir öll atriðin nema brokk þar sem Djákni er örlítið hærri. Með þessari írábæru frammistöðu rufu þau m'u múrinn er þau fengu 9,03 í einkunn og þar með má telja að Filma og Þórður séu mjög líkleg til að blanda sér í toppbaráttuna í keppni B-flokksgæð- inga á landsmótinu. Vildu ýmsir taka svo djúpt í árinni og segja að þama hefðu farið væntanlegir sigurvegarar en reynslan hefur sýnt að best er að fullyrða ekki of mikið. Magnús sagði í samtali við hesta- þáttinn að hann myndi sjálfur sjá um þjálfun Filmu til að byrja með en þeg- ar hægðist um hjá Þórði færi Filma austur fyrir fjall og hann myndi föndra við hana fram að landsmóti. Magnús gat þess að Þórður hefði far- ið þrisvar eða fjórum sinnum á bak henni fyrir fullnaðardóminn en hann væri ótrúlega fljótur að lesa út hross þannig að hann gæti riðið þeim til fullra afkasta án þess að tapa nokkru í fegurð og fasi. Létt hjá Orminum Leikurinn var frekar léttur hjá Ormi frá Dallandi í úrslitum A-flokks. í fullnaðardómi virtist sem Klakkur frá Búlandi og Vignir Jónasson ætl- uðu að veita þeim góða keppni en þeir vora með frábæra sýningu sem virtist í fljótu bragði séð vanmetin af dómur- um. í úrshtum tóku þeir félagar Ath Guðmundsson og Ormur af öll tví- mæli um það hvar sigurinn skyldi hafna og má mikið vera ef þeir eiga ekki eftir að hampa íyrstu verðlaun- um í A-flokkskeppni á öðram vett- vangi síðar í sumar. Meira og betra jafnvægi virðist komið á gangtegund- irnar hjá Ormi nú. Hann er ekki alveg eins glannalega hágengur og hann var og virðist það gefa honum meira öryggi. Má til dæmis nefna að skeið- takturinn hefur styrkst og rýmið jafnvel að aukast. Það kann kannski að hljóma undarlega en vera kann að Ormur hafi verið óþarflega hágengur þegar hæst lét. Næmi og fagmennska Gaman hefur verið að fylgjast með Klakki og Vigni þessi þrjú ár sem þeir hafa verið að aðlagast hvor öðram. Klakkur hefur langt í frá verið auð- veldur hestur og lengi vel þurfti Vign- ir að beita mjög sérkennilegu taum- haldi og ásetu við klárinn á skeiði svo dæmi sé tekið. Nú hyllfr undir að klárinn sé að verða fullunninn hjá Vigni og hefur hann unnið þar gott starf. Þar hefur næmi hans og sú fag- mennska sem hann hefur tileinkað sér skilað honum í það að vera orðinn einn af þeim allra fremstu í faginu. Huginn frá Haga og Sigurbjöm Bárðarson höfnuðu í þriðja sæti 1 úr- slitum eftir að hafa verið í íjórða sæti í bæði forkeppni og fullnaðardómi. Skilaði Huginn sem er aðeins sex vetra gamall frábærum dagsverkum þessa síðustu daga því verkefnin hafa verið ærin og í rauninni mikið afrek að hann skuli hafa haldið haus í gegn- um þetta allt. Líklega hefur hann far- ið upp undir tíu skeiðspretti og eng- inn þeirra bragðist sem segir mikið um góðan samstarfsfúsan og gefandi vilja. Óður frá Brún sem var í öðra sæti eftir forkeppni átti heldur dapr- an dag í úrslitum, skeiðið fór að stór- um hluta forgörðum auk þess sem Auðunn Kristjánsson var í vandræð- um með honum við brokkið. Höfnuðu þeir í neðsta sæti í úrslitum nú en koma tímar og koma ráð. Gæðingasveit Fáks verður að venju sterk á landsmótinu og verða einhverjir þeirra í baráttunni um toppsætin. Tíminn fram að móti er ör- lagaríkur því allt byggist þetta á að vera með hestana á toppnum á rétt- um tíma og þjálfa þá rétt að öðra leyti. Gæðinga- keppni Fáks A-flokkur gæðinga 1. Ormur frá Dallandi, eigandi Gunnar Dungal, knapi Atli Guðmundsson, 8,92/8,98/ 9,04 2. Klakkur frá Búlandi, eigandi og knapi Vignir Jónasson, 8,66/8,82/8,89 3. Huginn frá Haga, eigandi Ernir K. Snorrason, knapi Sigurbjörn Bárðarson, 8,57/ 8,68/8,66 4. Brynjar frá Árgerði, eigandi og knapi Sveinn Ragnarsson, /8,54/8,60 5. Stjarni frá Dalsmynni, eigandi og knapi Ragnar Hinriksson,/8,53/8,54 6. Lilja frá Litla-Kambi, knapi í forkeppni Vignir Jónasson, kn.: í úrslitum Sigurður V. Matthíasson, 8,47/8,57/8,52 7. Bylur frá Skáney, eigandi og knapi í for- keppni Sigurbjöm Bárðarson, kn.: í úrslitum Gylfi Gunnarsson, 8,59/8,69/8,51 8. Óður frá Brún, knapi Auðunn Kristjáns- _.gon, 8,77/8,55/7,96 B-flokkur gæðinga 1. Filma frá Árbæ, eigandi Magnús Arn- grímsson, knapi Þórður Þorgeirsson, 8,53/ 8,74/9,03 2. Djákni frá Dunhaga, eigandi og knapi Sig- urbjörn Bárðarson, 8,69/8,70/8,87 3. Valiant frá Heggsstöðum, eigandi og "Vknapi Hafliði Halldórsson, 8,72/8,68/8,82 4. Glúmur frá Reykjavík, knapi Ólafur Ás- geirsson, /8,47/8,57 5. Stóri-Rauður frá Hrútsholti, knapi Leó Arnarson, 8,51/8,51/8,50 6. Gyllir frá Efri-Brú, eigandi og knapi Sig- valdi Ægisson, 8,47/8,42/8,47 7. Bjarma frá Árbakka, knapi Róbert Peter- sen, 8,51/8,46/8,45 8. Brúnhildur frá Borg, eigandi og knapi Páll B. Hólmarsson, 8,46/8,50/8,43 Ungmenni 1. Matthías Ó. Barðason á Ljóra, 8,51/8,61 2. Árni B. Pálsson á Fjalari, 8,51/8,58 3. Jóna M. Ragnarsdóttir á Þór, 8,52/8,48 4. Þórann Kristjánsdóttir á Þræði, 8,32/8,29 5. Hrefna M. Ómarsdóttir á Hrafnari, 8,30/ 8 22 ’ 6. Viðar Ingólfsson á Silfra, 8,17/8,17 7. Pétur Ö. Sveinsson á Hrólfi, 8,19/8,10 8. Þórdís E. Gunnarsdóttir á Gyllingu, 8,41/0 Unglingar 1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Garpi, 8,72/8,66 2. Sigurþór Sigurðsson á Funa, 8,46/8,41 3. Unnur B. Vilhjálmsdóttir á Roða, 8,50/ 8,40 4. Þóra Matthíasdóttir á Gæfu, 8,49/8,32 5. Anna K. Kristinsdóttir á Kolgrímu, 8,31/ 8,21 6. Steinar T. Vilhjálmsson á Hrafni, 8,10/ 8,20 7. Signý Á. Guðmundsdóttir á Straumi, 8,30/ 8,11 8. Harpa Kristinsdóttir á Draupni, 8,10/7,96 Börn 1. Vigdís Matthíasdóttir á Gyðju7,8,40/8,58 2. Valdimar Bergstað, 8,27/8,43 3. Unnur G. Ásgeirsdóttir á Feldi, 8,35/8,40 4. Björn Ástmarsson á Kraka, 8,44/8,35 5. Sara Sigurbjömsdóttir á Húna, 8,62/8,31 6. ívar Ö. Hákonarson á Væng, 8,19/8,27 7. Jón Alojz á Ötli, 8,27/8,13 8. Kristín Magnúsdóttir á Kóng, 8,13/0 Tölt 1. flokkur 1. Sigurbjörn Bárðarson á Oddi frá Blöndu- ósi, 7,90 2. Gylfi Gunnarsson á Gyðju frá Hólabaki, 7,37 3. Sævar Haraldsson á Glóð frá Hömluholti, 6,98 4. Sigvaldi Ægisson á Gylli frá Efri-Brú, 6,77 5. Alexander Hrafnkelsson á Krapa frá Mið- hjáleigu, 6,53 6. Helgi L. Sigmarsson á Breka frá Stokks- eyri, 6,48 Tölt 2. flokkur 1. Hrafnhildur Guðmundsdóttir á Ögra frá Vindási, 6,58 2. Jón R. Jónsson á Gormi frá Grímsstöðum, 6,28 3. Guðjón G. Gíslason á Snúð frá Langholti, 6,28 4. Þóra Þrastardóttir á Gjóstu frá Brún, 6,07 5. Róbert Einarsson á Magna frá Búlandi, 5,58 6. Hannes Sigurjónsson á Gjafari, 5,45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.