Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UM þúsund manns sóttu sameiginlega fjölskylduhá- tíð fyrir Arbæ og Breiðholt sem haldin var ofan við gömlu rafstöðina í Elliðaár- dal um helgina í samstarfi safnaðanna í hverfunum, ÍTR, íþróttafélaganna, skátafélaganna, kvenfélag, foreldrafélaga skóla og fé- lagsstarfsins í Gerðubergi. Séra Guðmundur Þorsteins- son dómprófastur prédik- aði við fjölskylduguðsþjón- ustu þar sem kirkju- og barnakórar safnaðanna sungu ásamt Gerðubergs- kórnum. Síðan hófst fjölbreytt skemmtidagskrá þar sem farið var í leiki og keppt í reiptogi, auk þess sem prestar safnaðanna kepptu í pokahlaupi. Einnig voru leiktæki og þrautabrautir á staðnum og hægt var að síga í klettum undir eftir- liti skáta. Síðan gæddu gestir sér á kaffi og veit- ingum af útigrilli. Morgunblaðið/Sverrir Árbæingar og Breiðhyltingar reyndu með sér í reiptogi á fjölskylduhátíðinni. Morgunolaðio/övernr Flestir kórar hverfanna sungu við (jölskylduguðsþjón- ustu. Fj ölskylduhá- tíð hverfanna HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Ovíst hvort vetrar- frí verða Reykjavík UMRÆÐUR síðastliðins vetrar um 170 lágmarks- kennsludaga í grunnskólum munu hafa nokkur áhrif á skóladagatöl grunnskóla Reykjavíkur næsta vetur en óvíst er hvort vetrarfrí verða, að sögn Gerðar G. Óskars- dóttur fræðslustjóra. Sam- eiginlegar jólaskemmtanh- í skólum verða sums staðar af- lagðar. Sérstakir foreldra- dagar þar sem kennsla fellur niður verða óvíða hafðir og margir einsetnir skólar munu boða foreldra til fundar að loknum skóladegi í stað þess að hafa sérstaka foreldra- daga. Samkvæmt grunnskólalög- um á lágmarksfjöldi kennslu- daga á tímabilinu 1. septem- ber til 1. júní að vera 170. Síðastliðinn vetur fór fjöldinn undh- 170 daga, víða í 168 daga, vegna vetrarfría, for- eldradaga eða prófadaga. Fyrir liggur úrskurður menntamálaráðuneytisins um að starfsdagar kennara teljist ekki til kennsludaga. Það geri hins vegar foreldra- dagar og prófa- og náms- matsdagar að því tilskildu að nemendur starfi þá daga í skólanum í svipaðan tíma og gert er ráð fyrir í stundaskrá. Jafnframt lítur ráðuneytið svo á að skólar hafi á starfs- tíma grunnskóla nokkurt svigrúm til að skipuleggja kennslu og annað skólastarf á skólaárinu að teknu tilliti til lágmarksréttinda nemenda til kennslu til þess að halda jólatrésskemmtanir og setja eða slíta skólahaldi án þess þó að sá kennsludagafjöldi sem nemendur eiga rétt á sé skertur. Gerður G. Óskarsdóttir, sagði í samtali við Morgun- blaðið að skólar væru nú að leggja fram drög að skóla- dagatali næsta vetrar en þá verða 175 „hvítir" dagar á dagatalinu og fimm þeirra eru fráteknir vegna starfs- daga kennara. Foreldraviðtöl í við- talstímum kennara? Hún sagði að sumh- skólar hefðu brugðist þannig við til að tryggja áskilinn lágmarks- kennsludagafjölda með því að hætta við að halda sameigin- legar jólatrésskemmtanir og láta nægja að hafa skemmtun í stofu fyrir hvern bekk sem hluta af venjulegum skóla- degi. Einnig væri greinilegt að margir skólar hygðust hafa foreldraviðtöl að loknum skóladegi í stað þess að hafa sérstaka foreldradaga þar sem nemendur fá frí frá venjulegri kennslu. Gerður sagði að slíkt gæti þó reynst erfitt í tvísetnum skólum þar sem kennt væri til klukkan 17 á daginn. Morgunblaðið hefur upp- lýsingar um að í a.m.k. einum grunnskóla séu hugmyndir um að láta nægja að hafa for- eldraviðtöl í vikulegum við- talstímum umsjónarkennara en Gerður gat ekki staðfest það og sagði að þótt drög að skóladagatölum lægju fyrir frá öllum grunnskólum borg- arinnar væri gerð þeirra ekki lokið. Hús tímans - hús skáldsins við Stekkjarflöt? Mosfellsbær BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar hefur samþykkt að láta koma útilistaverkinu Hús tímans - hús skáldsins eftir Magnús Tómasson fyrir á Stekkjarflöt eða í nági'enni hennar. Verkið bar sigur úr býtum í verð- launasamkeppni sem menningarmála- nefnd Mosfellsbæjar efndi til. Heiti verksins vísar í titil á verki eft- ir Halldór Laxness, heiðursborgara Mosfellsbæjar. Verkið er sex metra hár turn reistur á grunnfleti, sem er merki Mosfellsbæjar. Upp af grunn- fletinum rís turn úr málmi sem minnir á gotneska boga og ef horft er á verkið ofan frá er merki bæjarins greinan- legt. Inni í turninum hangir stór steinn í keðju sem nemur við sexhyi-nt form sem stendur á grunnfletinum. Höfundurinn, Magnús Tómasson lagði til að verkið yrði reist á hring- torginu á mótum Þverholts og Vestur- landsvegar. Björn Þráinn Þórðarson, forstöðumaður fræðslu- og menningar- sviðs Mosfellsbæjar, sagði að staðsetn- ingin á hringtorginu hefði ekki náð fram að ganga, annars vegar vegna þess að Vegagerðin ætti hringtorgið og vegna öryggisatriða. Eins þætti mikil- vægt að staðsetja verkið þar sem fólk ætti greiða leið að því. Björn Þráinn sagði að þrátt fyrir samþykkt bæjarstjórnar væri stað- setningin ekki frágengin endanlega en Stekkjarflöt væri samkvæmt skipulagi staður sem mundi henta vel fyrir verk- ið og jafnvel fleiri listaverk. Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar var umhverfisdeild bæjarins falið að hafa samráð við listamanninn og skipu- lagshöfunda um staðsetningu verksins og leggja tillögu þar að lútandi fyrir menningarmálanefnd og skipulags- nefnd. Björn Þráinn sagði að þeirri vinnu væri ekki lokið. Til stóð að setja upp listaverkið í Varmárviku hinn 10.- Morgunblaðið/Jón Svavarsson Líkan af sex metra háu útilistaverki Magnúsar Tómassonar, Húsi tímans - húsi skáldsins. 17. júní en Björn Þráinn sagði að ekki gæti orðið af því en nú væri litið til af- mælisdags Mosfellsbæjar, 9. ágúst, í því sambandi. Búist við að borgaryfírvöld skipi nefnd til að fara yfir sameiningarmál Vals og Fjölnis Hlíðar/Grafarvogur * Iþróttafélögin senda frá sér viljayfírlýsingu um sameiningu á næstunni ÓFORMLEGAR sameiningarvið- ræður Vals og Fjölnis hafa staðið yfir í vetur en á næstu dögum er búist við því að félögin gefi út yfirlýsingu um að þau hafi fullan hug á því að sam- einast. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Steinunni Val- dísi ðskarsdóttur, formann Iþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, en hún sagði að í kjölfar yfirlýsingarinn- ar myndu borgaryfirvöld skipa nefnd, sem hefði það hlutverk að greiða fyrir sameiningunni. „Vals- svæðið hefur alla tíð verið mjög erfitt skipulagslega með tilliti til aðgengis og Valsmenn eru kannski að vakna upp við það núna að þegar Hring- brautin verði flutt muni þeir lokast enn frekar inni,“ sagði Steinunn Val- dís. „Ég átti fund með fulltrúum Vals í síðustu viku þar sem við fórum yfir þessi sameiningarmál og niðurstað- an af þeim fundi var sú að þeir kæmu með þessa yfirlýsingu. Það er ekki einfalt mál að sameina íþróttafélög. Það þarf að fara í gegn- um alls konar eignarmál, hvað á að verða um svæðin, hvað á að koma í staðinn, uppbyggingu o.s.frv. Hingað til höfum við rætt þetta allt óformlega en ég óskaði eftir því við félögin að áður en lengra yrði haldið myndu þau gefa út formlega viljayf- irlýsingu, því við förum ekki að setja af stað skipulagsvinnu og vinnu við mat á kostnaðinum án þess að það sé ljóst að þetta sé eitthvað sem menn ætli að stefna að.“ Steinunn Valdís sagði að í gegnum tíðina hefði það gefið besta raun að láta sérstaka nefnd halda utan um málið og fara í gegnum það með fé- lögunum. Það væri það vinnuferli sem borgin hefði farið eftir bæði við flutning Þróttar úr Sæviðarsundi í Laugardalinn og flutning Víkings úr Hæðargarði niður í Fossvog. Ágreiningur um eignaréttinn „Ég legg mikla áherslu á það að ef t.d: Valur fer frá Hlíðarenda að þá verði áfram einhver íþróttaaðstaða þar til að þjóna krökkunum í Hlíða- hverfi og þeim hópum sem hingað til hafa sótt æfingar þangað. Menn geta ekki bara flutt allt með sér því það er auðvitað fólk sem býr þarna og við þurfum að hugsa um það og bjóða krökkunum áfram upp á einhveija þjónustu. Það er ekki þar með sagt að borgin hyggist nýta allt svæðið sem íþróttasvæði." Aðspurð um það hvort KR-ingar hefðu falast eftir svæðinu við Hlíðarenda sagði Stein- unn Valdís að þeir hefðu ekki gert það formlega. Félögin hafa falast eftír stærra landsvæði Steinunn Valdís sagðist að ágrein- ingur væri uppi um eingarhald á Hlíðarendasvæðinu, en að borgar- lögmaður væri að skoða það ásamt lögmönnum Vals hvernig þeim mál- um væri háttað. Steinunn Valdís sagði að um leið og viljayfirlýsingin bærist frá félögunum myndu borgar- yfirvöld skipa nefndina og að hún myndi hefja störf strax. „Hún myndi væntanlega vinna í málinu í sumar, en í haust yrði farið í það af fullum krafti. Þetta tekur allt sinn tíma. Skipulagsþátturinn tekur tíma, það tekur tíma að meta eignim- ar og það þarf einnig að fara í gegn- um fjárhag félaganna áður en hægt er komast að einhverri niðurstöðu. Þetta er mjög flókið mál. Á Hlíðar- enda er fyrir hendi eitt stórt íþrótta- hús og íþróttavellir og það þarf að meta hversu mikið Valur hefui' lagt i þetta og hvað borgin getur fengið út úr nýtingu á svæðinu ef félagið flyt- ur. Ef starfsemi Vals verður flutt upp í Grafarvog þarf að taka ákvörð- un hvar hægt verður að koma henni fyrir. Einnig þarf að taka ákvörðun um verkaskiptingu á milli félaganna, þannig að það eru mjög margir þætt- ir sem koma til mats.“ Að sögn Steinunnar Valdísar er ekki búið að taka neina ákvörðun um það hvar í Grafarvoginum félögin myndu hafa starfsemi sína ef þau myndu sameinast. Hún sagði að það lægi ljóst fyrir að þau myndu nýta núverandi svæði Fjölnis við Dalhús, en að það væri ekki mjög stórt og því hefðu þau falast eftir öðrum svæðum. „Þetta eru mál sem lúta að skipu- lagsþættinum og skipulagslega á eft- ir að svara mörgum spurningum varðandi Grafarvoginn. Það á eftir að taka ákvörðun um hvort þau fá svæði við Gufunesverksmiðjuna eða við Spöngina, eða jafnvel við hliðina á Knattspyrnuhúsinu við Víkurveg." ÍR og Leiknir hafa sameinast Aðspurð um það hvort það væri stefna borgaryfirvalda að fækka íþróttafélögunum í borginni svaraði Steinunn Valdís: „Það er hagur okkar eins og félag- anna að þau verði færri, stærri og sterkari og geti þar með þjónað íbú- unum betur. Á síðustu árum höfum við auðvitað verið að gera miklar breytingar á starfsskipulagi íþrótta- félaganna í borginni. Við erum t.d. nýbúin að hafa milligöngu um sam- einingu ÍR og Leiknis í Breiðholti.“ Steinunn Valdís sagði að höfuð- stöðvar ÍR-Leiknis yrðu í Mjóddinni. „Síðan var gert samkomulag á milli borgarinnar og Leiknis um að við leystum til okkar gervigrasvöll- inn í Efra-Breiðholtinu. ÍTR mun reka þann völl en ÍR-Leiknir mun sameiginlega annast allt skipulag íþróttastarfs í báðum Breiðholts- hverfunum." Steinunn Valdís sagði að félögin hefðu óskað eftir því að unnið yrði að frekari uppbygginu í Mjóddinni, en að ekkert hefði verið ákveðið um það, enda væru flest íþróttafélög borgar- innar með slíkar óskir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.