Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 49
MINNINGAR
NANNA
BJÖRNSDÓTTIR
+ Nanna Björns-
dóttir meina-
tæknir fæddist í
Stóru-Gröf í Staf-
holtstungiim 2. mars
1931. Hún varð bráð-
kvödd 13. mai síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Kópavogskirkju 22.
maí.
Á langri lífsleið kem-
ur iðulega fyrir að and-
látstilkynningar koma
manni illa á óvart og
sektarkenndin kemm- í
kjölfarið fyrir að hafa ekki betur
ræktað dýrmæt fjölskyldu- og vin-
áttutengsl, sem voru
manni þó svo mikils
virði á fyrri árum.
Þannig varð mér inn-
anbrjósts er Dísa, eina
bróðurdóttir mín, til-
kynnti mér lát móður
sinnar, Nönnu Björns-
dóttur. Nanna átti
þessa dýrðarperlu, Dísu
frænku, og gaf okkur
þar með eina stúlku-
barnið inn í stóran
drengjahópinn í fjöl-
skyldunni. Nanna gift-
ist síðar Hjálmari Ólafs-
syni bæjarstjóra í
Kópavogi og urðu samskipti okkar, ef
nokkuð var, enn betri. Blessuð sé
minning hans. Við hjónin vorum flutt
á heimili okkar við Ægisíðu og bjó'
faðir minn, Pétur Sigurðsson, þá
ekkjumaður, í sama húsi og einnig
frændur sem yngdu okkur talsvert
upp. Hjálmar blessaður kom stund-
um í heimsókn með stóra bamahóp-
inn þeirra Nönnu, - Dísu, Dóru og
bræðurna fjóra - og höfðum við öll
mikla ánægju af þessum dýrmætu
samverustundum. Faðir minn og
Finnbogi, maðurinn minn, sem þá var
orðinn sjúklingur, nutu þess jafnvel
enn meira en við hin, því blessuð
bömin komu með sína bamslegu
gleði, sem var svo skemmtilega smit-
andi, inn á heimilið.
Með þessar dýrmætu samveru-
stundir í huga sendi ég þeim öllum nú
hughlýjar samúðarkveðjur og óska
þeim blessunar á ókomnum ámm. I
hugarheimi mínum eigum við gefandi
samleið framundan, hvert í annars
fylgd, þar til slokknar á mínu lífskerti.
María Pétursdóttir.
HERDIS ANNA
TÓMASDÓTTIR
+ Herdís Anna Tómasdóttir
fæddist, á Víghólsstöðum á
Fellsströnd í Dalasýslu 28. júlí
1931. Hún lést á Sólvangi í Hafn-
arfirði 7. maí síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá Staðarfells-
kirkju á Fellsströnd 20. maí.
Elsku Herdís Anna mín. Þakka
þér fyrir góð kynni. Það var gaman
að kynnast þér, þú varst svo góð við
mig á Reykjalundi fyrir 33 árum. Svo
týndi ég þér og hitti þig svo aftur á
Sólvangi. Þar var tengdamóðir mín;
hún starfaði þar og sagði mér frá
þér. Ég hef verið í sambandi við þig í
18 ár. Á Sólvangi kynntist þú góðu
fólki. Einnig kynntist þú fólki í Há-
túni 12 sem var þér gott. Þú komst
oft til okkar. Ég gleymi aldrei ferð-
inni okkar þegar ég fór með þér vest-
ur á Fellsströnd. Siggi fór með okk-
ur niður á BSÍ, þar tókum við rútuna
og þegar við komum í Búðardal
heyrðist í frænku þinni: „Er þetta
hún Anna?“ í því kom Sigurbjörg að
sækja okkur. Við vorum hjá þér í
nokkra daga og það var mjög gaman.
Auk þess fórum við á bæina í kring.
Við þökkuðum húsráðendum gest-
risnina og seinna á árinu komum við
Siggi með Rafni og syni til fólksins
og heilsuðum upp á það.
Guð styrki Ómar Önfjörð, elsku
Sigurbjörgu og Ásgeir föður hennar
og önnur skyldmenni þín.
Ykkar vinir,
Þórhalla Guðmundsdóttir og
Sigurður Guðmundsson.
Skilafrestur
minningar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er á
mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. í miðvikudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og laugar-
dagsblað þarf greinin að
berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birting-
ardag. Berist grein eftir að
skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna skila-
frests.
Erfisdrykkjur
Sími 562 0200
^TTTmiTITIMTT^I
t
Eiginmaður minn, faðir og fósturfaðir,
SIGURJÓN RUNÓLFSSON
frá Dýrfinnsstöðum,
Raftahlíð 59,
Sauðárkróki,
sem lést á Sjúkrahúsi Skagfirðinga laugar-
daginn 27. maí sl., verður jarðsunginn frá
Hofstaðakirkju í Skagafirði laugardaginn 3. júní
kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hofstí
Sigríður Guðrún Eiríksdóttir,
Anna María Sigurjónsdóttir,
Eiríkur Jónsson, Lena Jónsson Engström,
Guðbjörg Björnsdóttir, Jón V. Gíslason,
Gunnar Eiríksson,
Berglind Eygló Jónsdóttir,
Bjöm Þórður Jónsson.
t
Við þökkum af heilum hug öllum þeim, sem
auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
SVEINS HALLDÓRS SVEINSSONAR
skipasmiðs,
Nesgötu 27,
Neskaupstað.
Einnig sendum við laeknum og starfsfólki
Fjórðungssjúkrahúss Neskaupsstaðar innileg-
ar þakkir fyrir góða aðhlynningu.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Árnadóttir.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
V .............. ........— ■■■■■......................
Sverrir
Einarssott
úlfararstjóri,
sími 896 8242
Sverrir
Olsen
útfararstjóri.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐMUNDA GUÐBJÖRG
(Gúa) GUÐMUNDSDÓTTIR,
Vesturvegi 13,
Seyðisfirði,
sem andaðist mánudaginn 22. maí, verður
jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju miðviku-
daginn 31. maí kl. 14.00.
Gunnar Sigurbjörnsson,
Gerður Sigurbjörnsdóttir, Ingólfur Krsitjánsson,
Guðmundur Sigurbjörnsson, Ingibjörg Svanbergsdóttir,
Rúnar Sigurbjörnsson, Pálína Þorvaldsdóttir,
Jenný Sigurbjörnsdóttir, Þorgrímur Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir,
mágkona og amma,
ÓLAFÍA BJÖRG GUÐMANNSDÓTTIR,
Heiðarhvammi 9,
Keflavík,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 25. maí.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 2. júní kl. 11.00.
Örn Guðsteinsson, Sigurbjörg Stefánsdóttir,
Lilja Guðsteinsdóttir,
Hilmar Guðsteinsson, Kolbrún Valdimarsdóttir,
Sigríður Guðmannsdóttir, Vilhjálmur Þórhallsson,
Elín Guðmannsdóttír
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem studdu
okkur og styrktu, sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
NÖNNU BJÖRNSDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sunnu-
hlíðar.
Vigdfs Esradóttir, Einar Unnsteinsson,
Dóra Hjálmarsdóttir, Hrönn Kristjánsdóttir,
Björn Hjálmarsson, Herdís Haraldsdóttir,
Ólafur Hjálmarsson, Sesselja Kristjánsdóttir,
Eiríkur Hjálmarsson, Kristín Valsdóttir,
Helgi Hjálmarsson, Guðrún fsberg
og ömmubörnin.
SÓLSTEINAK við Nýbýlaveg, Kópavogi
Sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.