Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 33
ERLENT
Vladimír Piítín, forseti Rússlands, fundar með fulltrúum Evrópusambandsins
Rætt um nánari efna-
hagsleg og pólitísk tengsl
Antonio Guterres, forsætisráðherra Portúgals, ávarpar fréttamenn í
Moskvu. Vladímír Pútín Rússlandsforseti stendur til hægri við Guterres
en á milli þeirra má sjá Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands.
Pútín heitir því
að refsa lögbrjot-
um í Tsjetsjníu
Moskva. AFP, Reuters.
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, sagði í gær að góð tengsl
Rússa við Evrópusambandið væru
eitt af helstu forgangsatriðum ríkis-
stjórnar hans. Pútín lét svo um mælt
að loknum fundi sínum með fulltrú-
um ESB sem haldinn var í Moskvu í
gær. Fundurinn er álitinn vera til
marks um batnandi samskipti Rúss-
lands og ESB en þau urðu mjög stirð
í vetur vegna óánægju Evrópuríkja
með stríðsrekstur Rússa í Tsjetsj-
níu.
Þrír af æðstu yfirmönnum ESB,
Javier Solana, sérlegur fulltrúi sam-
bandsins í utanríkismálum, Antonio
Guterres, forsætisráðherra Portú-
gals, sem fer með forystu í leiðtoga-
ráðinu um þessar mundir, og Rom-
ano Prodi, forseti framkvæmda-
stjórnar ESB, komu til Moskvu á
sunnudag og funduðu með rússnesk-
um ráðamönnum í gær. Prodi sagði í
gær að Rússar þyrftu að gera meira
til að laða að erlendar fjárfestingar í
landinu, m.a. með því að bæta skatta-
lög og vernd eignaréttar. Hann
hvatti stjórnvöld einnig til að heimila
að ítarleg og óháð rannsókn á meint-
um mannréttindabrotum rússneskra
hermanna í Tsjetsjníu færi fram.
„Eg er sannfærður um að við erum
nú að hefja nýtt tímabil samvinnu
milli okkar,“ sagði Prodi á sameigin-
legum fréttamannafundi með Pútín í
gær. Hann sagði einnig að bætt efna-
hagsástand i Rússlandi, minni verð-
bólga og aðhald í ríkisfjármálum
gætu skapað skilyrði fyrir auknum
viðskiptum milli Rússa og ESB.
Um 40% af utanríkisverslun
Rússa er við ríki ESB og sagði Prodi
að sú tala ætti eftir að hækka í u.þ.b.
60% efth' að ríki Mið- og Austur-
Evrópu gengju í sambandið. Prodi
sagði að Rússland ætti eftir að hagn-
ast á því að ný ríki gengju inn í ESB
því með því yrði til sameiginlegur
markaður með yfir 500 milljónir
neytenda.
Óttast að missa markaðssvæði
Rússar hafa látið í ljós áhyggjur af
því að með aðild Austur-Evrópuríkja
að ESB muni þeir missa hefðbundna
markaði fyrir vörur sínar. Solana
sagði í gær í samtali við rússneska
fréttastofu að hann væri þess fullviss
að lausn fyndist sem allir aðilar gætu
fallist á. „Óþægindin sem fylgja því
fyrir Rússa að þessi ríki myndi efna-
hagsleg tengsl vestur á bóginn, þ.á
m. Eystrasaltsríkin, er hægt að
minnka með samstarfi milli ESB og
Rússlands," sagði Solana. „Eg er
viss um að þegar til lengri tíma er lit-
ið, muni Rússar njóta góðs af stækk-
un ESB. Hún mun valda því að ör-
yggi og stöðugleiki mun ríkja á
stærra svæði í álfunni en áður og
mun skapa ný tækfæri til viðskipta
og fjárfestinga."
Pútín sagði að fundurinn hefði ver-
ið mjög „gagnlegur, heiðarlegur og
árangursríkur". Hann undirstrikaði
að Rússum væri nauðsyn á nánum
efnahagslegum tengslum við ESB til
að stuðla að uppbyggingu og fram-
forum í landinu. „Rússland var, er og
verður evrópskt land vegna stað-
setningar sinnar, menningar og
efnahagslegra tengsla," sagði Pútín.
Hann hét því einnig að Rússar
myndu refsa öllum þeim sem gerst
hefðu sekir um lögbrot í Tsjetsjníu,
einnig ef um væri að ræða rússneska
hermenn. Ónefndur embættismaður
ESB hafði eftir Pútín í gær að u.þ.b.
100 rannsóknarmenn á vegum rúss-
neska hersins væru nú að kanna
ásakanir um mannréttindabrot í
héraðinu.
Pútín hét því að rússnesk yfirvöld
myndu vinna með fjölþjóðasamtök-
um og blaðamönnum til þess að bæta
upplýsingastreymi um ástandið í
Tsjetsjníu. En hann lagði ríka
áherslu á að ekkert gæti komið í veg
fyrir þann ásetning Rússa að koma á
reglu í héraðinu. „Við höfum aldrei
ætlað okkur að gera íbúa Tsjetsjníu
að þrælum en við erum algerlega
andvígir hverri þeirri kenningu um
mannréttindi sem reynt er að nota til
að við náum markmiði okkar.“
Prodi ítrekaði ósk ESB um að frið-
arviðræður yi'ðu hafnar milli Tsjetsj-
ena og Rússa. „Við trúum því enn að
ekki verði unnt að binda endi á átök-
in í Tsjetsjníu án viðræðna, hversu
erfiðar og flóknar þær kunna að
verða,“ sagði Prodi.
Aðildarríki ESB samþykktu í
mars vægar refsiaðgerðir gegn
Rússum, í mótmælaskyni við stríðið í
Tsjetsjníu. Meðal annars var leyfður
innflutningur stáls frá Rússlandi
minnkaður um 12% og hætt við að
veita Rússum tæknilega aðstoð. Síð-
ustu vikur virðist þó sem bæði
Evrópuríki og Bandaríkin hafi viljað
slaka á þeirri spennu sem upp var
komin í samskiptum þeirra við
Rússland.
Nánari samvinna
í öryggismálum
Guterres forsætisráðherra Portú-
gals sagði við fréttamenn að Rúss-
land og ESB stefndu að nánari sam-
vinnu á sviði öryggismála, einkum í
tengslum við Balkanskagann. Sam-
kvæmt yfirlýsingu eftir viðræðu-
fundinn í gær hefur Putin áhuga á að
kynna sér áætlanir ESB um sameig-
inlegan herafla. En Guterres sagði
að tryggja yrði þátttöku Bandaríkj-
anna í mögulegu nánara samstarfi
ESB og Rússlands á sviði varnar-
mála.
Pútín mun hitta Bill Clinton
Bandaríkjaforseta um næstu helgi
og er þess vænst að afvopnunarmál
muni bera hæst í viðræðum leiðtog-
anna.
Reuters
Reyndi að
klífa Ever-
est 14 ára
TILRAUN Temba Chhiring, fjórtán
ára drengs, til að verða yngstur
þeirra sem klifið hafa Everest-fjall
mistókst í siðustu viku er hann átti
einungis um 20 metra eftir á tindinn.
Chhiring, sem fór um svonefnd Hill-
ary-þrep var kominn í 8.828 metra
hæð er fingur hans kól og mun hann
að sögn lækna missa fjóra fingur.
„Eg tók af mér hanskana til að
binda skóreimarnar og þetta hefur
valdið kalinu," sagði Chhiring og
kvaðst ekki hafa vitað að sér væri
ekki óhætt að taka af sér hanskana í
þessari hæð. Þá sagði Chhiring að
hann væri mun vonsviknari yfir því
að komast ekki á tindinn en að missa
fingurna og kvaðst áforma að reyna
við Everest-tind síðar.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Þingflokkur Samfylkingarinnar
á ferð um Vestfirði
Þriðjudaginn 30. og miðvikudaginn 31. maí
verða þingmenn Samfylkingarinnar
á ferð um Vestfirði
Á þriðjudaginn verða fyrirtæki á ísafirði heimsótt og
m. a. komið við í skipasmíðastöðinni, tónlist-
arskólanum, kaffi- og menningarhúsi unga
fólksins, Póls, vélsmiðjunni 3X og
Stúdíó Dan.
Kl. 20.00 er opinn þingflokks-
fundur á Hótel ísafirði. Allt
stuðningsfólk velkomið.
Á miðvikudag verður farið til
Bolungarvíkur og m. a. fundað með
bæjarstjórn Bolungarvíkur. Þegar komið er
aftur til Isafjarðar er m. a. farið í Edin-
borgarhúsið, Sushi verksmiðjuna Sindraberg og fundað
með bæjarstjórn Isafjarðar.
Þingflokkur Samfylkingarinnar.
Samfylkingin
Ef þér leiðist farðu þá
þangað sem veðrið
hentar fötunum
Elkhom stuttbuxur
Léttar stuttbuxur úr 100% bómull með stórum vösum sem
hægt er að geyma mikið í. Kr. 3.990.-
►Columbia
Sportswear Company* jjjj^ "J" fj
ÆFINCAR - ÚTIVIST - BÓMULL
-------- Skeifunni 19 - S. 568 1717-
Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 14