Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Málstofa Barnaheilla um unga gerendur kynferðislegs ofbeldis Mikilvægt að meðhöndla unga gerendur snemma Morgunblaðið/Þorkell Bragi Guðbrandsson ræddi um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á fundi Barnaheilla. ALLS hafa níu einstaklingar á aldr- inum 15-17 ára hlotið dóma fyrir kynferðisbrot á síðastliðnum tíu ár- um, að því er fram kom í erindi Jóns Friðriks Sigurðssonar, sálfræðings hjá Fangelsismálastofnun, á mál- stofu Barnaheilla í gær um meðferð ungra gerenda kynferðislegs ofbeld- is. I öllum tilfellum er um drengi að ræða, að sögn Jóns Friðriks, og af- plánuðu fimm þeirra fangelsisdóma vegna brotanna. Fram kom í máli Jóns Friðriks að einungis alvarlegustu málin kæmu til kasta lögreglu. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að ungir gerendur í kynferðisbrotum fengju meðferð við sitt hæfi. Margir þeirra hefðu sjálfir sætt misnotkun eða ofbeldi í æsku og í meðferð þeirra fælist mikilvæg for- vöm, ekki síst þegar það væri haft í huga að um helmingur fullorðinna kynferðisafbrotamanna byrjaði að bijóta af sér á unglingsaldri. Það mætti semsé ekki líta framhjá alvarleika kynferðisbrotanna þó að böm væm í gerendahlutverkinu, auk þess sem mun meiri líkur væra á því að hægt væri að stuðla að breyttri hegðan ef snemma væri tekið á mál- um. Ný rannsdkn sýnir að um 25% gerenda eru undir 18 ára aldri Á málstofunni í gær greindi Bragi Guðbrandsson, forstjóri Bama- vemdarstofu, frá bráðabirgðanið- urstöðum könnunar sem Guðjón Bjamason hefur unnið á vegum Barnaverndarstofu um öll kynferðis- brotamál gegn bömum sem bárast barnavemdamefndum í landinu á árabilinu 1995-1997. Fylgir Guðjón málunum eftir alla leið, þ.e. kannar þau mál sem bárust inn á borð lögreglu, sem fóra fyrir dómstóla, og einnig þau mál, sem duttu út áður en til kasta þessara að- ila kom, hvers vegna þau duttu út og hvemig þeim hefði lokið. Rannsókn- in tekur til tæplega 290 mála og er að mörgu leyti sambærileg rannsókn sem Bryndís Ósk Gestsdóttir, nemi í félagsráðgjöf, vann í Bamahúsi og greint var frá hér í Morgunblaðinu á miðvikudag. Rannsókn Guðjóns er hins vegar umfangsmeiri og verður ekki greint frá endanlegum niður- stöðum hennar fyrr en í haust. „Það sem er athyglisvert, og kem- ur í Ijós þegar farið er yfir gögnin, er að niðurstöðum í þessum tveimur könnunum ber nokkurn veginn sam- an,“ segir Bragi. „Það sem kemur í ljós í þessari umfangsmiklu athugun er að hlutfall gerenda, sem vitneskja liggur fyrir um og eru yngri en átján ára, er fjórðungur. Þ.e. fjórðungur gerendanna sjálfra, eða 25%, er á bamsaldri." Skv. rannsókn Bryndísar var þetta hlutfall 20% en Bragi segir muninn innan skekkjumarka, auk þess sem rannsóknirnar séu ekki að öllu leyti eins framkvæmdar. í erindi Braga í gær kom ennfremur fram að niðurstöður rannsóknarinnar, sem Guðjón Bjamason hefur unnið, sýndu að gerendur væra flestir á aldrinum 35-40 ára og að aldursmun- ur á gerendum og þolendum sé oftast um 25 ár, sem þýði að þolendur séu gjarnan í kringum tíu ára aldurinn. Bragi og Jón Friðrik lögðu báðir áherslu á mikilvægi þess að rann- saka og greina skilmerkilega þau kynferðisbrotamál sem upp kæmu. Varaði Bragi við því að ekki mætti fella alla gerendur undir sama hatt og skoða þyrfti öll mál vel og ræki- lega til að finna réttan farveg fyrir þau. Við þyrftum að geta lært af mis- tökum annarra í þessum efnum, og ef það nægði ekki þá þyrftum við að læra af okkar eigin mistökum. Skýr og fjölbreytileg meðferðar- úrræði yrðu að vera fyrir hendi og mikilvægt er einnig, að sögn Jóns Friðriks, að fylgja málum eftir með eftirliti, skráningu eða tilkynningar- skyldu af einhverjum toga. Á málstofunni í gær rakti Ólöf Ásta Farestveit reynslu sína af starfi sem dagskrárstjóri á Stuðlum. Hún lagði áherslu á að meðferð ungra gerenda fælist í því að laga brengl- aða siðferðiskennd þeirra, sem oft á tíðum væri tilkomin vegna þess að sjálfir hefðu gerendurnir verið þol- endur í æsku. Ennfremur kynnti Sveinbjörg Pálsdóttir samstarfs- verkefni nokkurra Evrópulanda um meðferð ungra gerenda kynferðis- legs ofbeldis. Fjölskylda Jósafats Hinrikssonar býðst til að gefa safn hans til Neskaupstaðar „Tækifæri sem aldrei kemur aftur“ EKKJA og börn Jósafats Hinriks- sonar hafa boðist til að gefa Sjó- minja- og smíðaminjasafn J. Hin- rikssonar til Neskaupstaðar. Samkomulag er um að Fjarða- byggð hafi fjögurra mánaða frest til að ákveða hvort hægt sé að þiggja gjöfina. Hugmyndir eru um að koma safninu fyrir I svokölluðu Hafnarhúsi 1 Neskaupstað. Hampiðjan keypti vélaverkstæði J. Hinrikssonar í lok siðasta árs og þarf safnið, sem Jósafat kom sér upp í húsnæði fyrirtækisins í Súð- arvogi 4, að víkja. Ólöf Hannesdótt- ir, ekkja Jósafats, og börn þeirra hafa áhuga á að safnið fari til Nes- kaupstaðar en þaðan eru Jósafat og Olöf. Haft var samband við bæj- aryfirvöld í byijun ársins. f apríl var siðan samþykkt í bæjarstjórn Fjarðabyggðar tillaga Magna Kristjánssonar, bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, um að kosin yrði þriggja manna nefnd til að vinna að málinu. Menningarverðmæti í smiðjunni „Áður en ég flutti þessa tillögu hafði ég samband við Qölskylduna og fann að mikill vilji var til að láta safnið hingað. Einnig skoðaði ég safnið, eins og ég hafði raunar oft gert áður, og sannfærðist enn bet- ur um að þetta væri tækifæri sem kæmi aldrei aftur. Ef við nýtum okkur ekki þetta góða boð er lík- legt að safnið tvístrist og sú hætta er enn fyrir hendi ef við stöndum okkur ekki,“ segir Magni um til- drög þess að hann fór að beita sér í málinu. Hann segir að skiptar skoðanir séu um það hversu mikilvægt safn- ið sé. Sjálfur segist hann ekki vera í neinum vafa. Hins vegar hafi söfn- unin gengið svo hratt fyrir sig hjá Jósafat heitnum að frekar beri að líta á munina sem efnivið en eigin- legt safn. Hann hafi unnið það af- rek að safna öllum þessum munum á sautján árum, frá því um 1980 til dánardægurs, árið 1997. „Hann út- bjó eftirlíkingu af smiðju sem faðir hans stofnaði hér í Neskaupstað 1923 og þar eru ýmis verkfæri og persónulegir munir föður hans. I smiðjunni felast einstök menning- arverðmæti og hún réttlætir ein og sér að safnið verði sett hér upp,“ segir Magni. I samkomulagi sem bæjaryfir- völd og gefendur hafa gert með sér felst að Fjarðabyggð hefur fjög- urra mánaða frest til að akveða hvort hægt sé að þiggja gjöfina. Safnið mun standa óbreytt þar til sú ákvörðun liggur fyrir. Sam- kvæmt samkomulaginu fylgja safn- inu munir sem eru í geymslum og á útisvæði. Eina kvöðin er að safnið verði sett upp í Neskaupstað innan tveggja til þriggja ára, með fullum sóma fyrir stofanda safnsins og gefendur. Hugmynd um Hafnarhúsið Magni segir að strax hafi komið til tals að fá Hafnarhúsið til afnota Morgunblaðið/Helgi Bjamason Á bak við Magna Kristjánsson bæjarfulltrúa sést Hafnarhúsið, en þar er hugmyndin að setja upp safn Jósafats Hinrikssonar. Smiðja Hinriks, föður Jósafats, var í þessu húsi sem enn stendur í Neskaupstað. fyrir safnið. Húsið er byggt á þriðja áratugnum, skömmu eftir að smiðja Hinriks var stofnsett. Þetta er tvflyft hús með risi, alls um 800 fermetrar að gólfflatarmáli. Húsið stendur við gamlar bryggjur og hefur þeim nokkuð verið haldið við. Húsið var byggft af Samcinuðu verslununum og hefur tengst mjög sögu útgerðar og fiskvinnslu á staðnum. Þar rak Samvinnufélag útgerðarmanna til dæmis lengi fiskvinnslu. Sfldarvinnslan hefur þar nú geymslur og viðgerðarað- stöðu fyrir plastkassa. Hafnarsjóð- ur Fjarðabyggðar á húsið og hefur því nokkuð verið haldið við. Magni telur að byggingin sé í aðalatriðum í lagi en ætlunin sé að fá fagmenn til að skoða hana nánar. Ljóst er þó að leggja þarf í verulegan kostnað við endurbætur á húsinu áður en safninu verður komið þar upp. Nefndin sem vinnur að safnamálinu hefur beint þeim tilmælum til hafn- arsjóðs og bæjaryfirvalda að fram fari mat á kostnaði við endurbætur á Hafnarhúsinu. Magni telur að stefna eigi að því að koma fljótlega upp ferðamanna- sýningu í Hafnarhúsinu og vinna síðar betur úr þeim fjölmörgu mun- um sem fylgja safninu. Þá hafa komið upp ýmsar hugmyndir um nýtingu hússins, til dæmis að setja þar upp kaffihús og jafnvel stór fiskabúr með þorski og fleiri teg- undum. Telur Magni að safnið og tengd starfsemi gæti haft verulegt aðdráttarafl fyrir ferðafólk. Hugmyndir eru uppi um að fá nokkra muni úr safninu lánaða og hafa til sýnis í Neskaupstað á sjó- mannadaginn. Morgunblaðið/BFH Veggteppi með fuglum sveitarinnar. Skólaslit í Reykjahlíð- arskóla Mývatnssveit - Skólaslit fóru fram sl. sunnudag að við- stöddu fjölmenni. Hólmfríður Guðmundsdóttir skólastjóri gerði grein fyrir starfseminni síðastliðinn vetur en 73 nem- endur stunduðu nám við skól- ann í fyrsta til tíunda bekk. Allir kennarar skólans era réttindakennarar. Hólmfríður sagði meðal annars: „Að kunna samskipti er mjög mikilvægt í samfélag- inu sem við búum í. I vetur hef ég oftar en áður orðið vör við að gestir sem koma í skól- ann hafa sérstaklega tekið eftir og haft orð á því hve nemendur era prúðir, glaðir og óþvingaðir. Mér hefur einnig fundist nemendur vera sér meðvitaðir um að ákvarð- anir era ekki teknar af einum og ekki á stundinni heldur á kennarafundum að vel athug- uðu máli. Mér finnst vænt um að nemendur kunna að virða þessi vinnubrögð því þau hafa verið mér og kennurunum affarasælust." Auk skólastjóra flutti Hildi- gunnur Káradóttir í Garði ávarp fyrir hönd nemenda. Sýning á vinnu nemenda var í aðalsal skólans og flestum kennslustofum og gaf þar á að líta hin fjölbreyttustu verkefni. Einkar athyglisvert var að skoða myndir og texta þemaverkefnis um endurnar á Mývatni, eggnytjar af þeim og ýmislegt sérstakt í fari þeirra, en á síðustu dögum skólastarfs fóru nemendur heim á marga bæi í sveitinni þar sem þeir tóku viðtöl við bændur, sem fræddu þá um endurnar, meðal annars hús- öndina og hreiðurgerð hennar í rjáfram gripahúsa. Þetta var einkar athyglisverður liður á sýningunni og mun sá hluti hennar verða til sýnis í upp- lýsingamiðstöð ferðamála sem starfrækt verður í húsnæði skólans yfir ferðamannatím- ann, líkt og undanfarin ár. Skólastjóri sagði í ræðu sinni: „Við búum á svæði sem er fuglaparadís á heimsmæli- kvarða, því eru gerðar meiri kröfur til okkar en almennt annarra þegar kemur að vitn- eskju um fugla og þá sérstak- lega endurnar. Við þurfum að reyna að standa undir þessum kröfurn." Það vekur athygli gesta sem koma í húsnæði skólans að sjá hversu umgengni öll og framkoma nemenda er þar til mikillar fyrirmyndar, enda er það almannarómur í sveitinni að skólastarf sé mjög farsælt í Reykjahlíðarskóla og sást það gjörla á mikilli og góðri aðsókn bæði foreldra og fjölda annarra gesta að sam- komunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.