Morgunblaðið - 30.05.2000, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hagfræðingur Seðiabankans segir að eignir íslensku lífeyrissjóðanna séu þær fjórðu mestu á EES
Munur á ávöxt-
un er of mikill
Már Guðmundsson hagfræðingur kynnti á
aðalfundi Landssambands lífeyrissjóða
nýja skýrslu um íslenska lífeyriskerfíð.
Hann segir kerfíð gott, en telur að of mikill
munur sé á ávöxtun lífeyrissjóðanna, en
hann var á bilinu 2-11% árið 1998.
MÁR Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabanka íslands, sagði á að-
alfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í
gær að óeðlilega mikill munur væri á
ávöxtun sameignarlífeyrissjóðanna,
en hann var á bilinu 2-11% árið 1998.
Takist ekki að draga úr þessum mun
sé hætta á spennu vegna þess að hf-
eyrisréttindin ráðist að stórum hluta
af ávöxtun sjóðanna.
Már samdi skýrslu um lífeyris-
sjóðakerfið árið 1995 og kom fram á
fundinum að þessi skýrsla hefði
breytt mjög mikið viðhorfum manna
til islenska lífeyrissjóðakerfisins. Áð-
ur hefði viðhorfið almennt verið nei-
kvætt, ekki síst til fjárhagsstöðu sjóð-
anna. Már hefði bent á að sjóðimir
ættu fyiir skuldbindingum sínum og
að þeir ættu eftir að styrkjast.
Már sagði í gær að þessi spá hefði
gengið eftir. Hann sagði ennfremur
að miklar breytingar hefðu orðið á líf-
eyriskerfinu. Búið væri að setja
rammalöggjöf um sjóðina og fijáls líf-
eyrisspamaður væri kominn til sög-
unnar.
Breytt viðhorf til sjóðanna
Már rifjaði upp þá miklu breytingu
sem hefði orðið á umræðu um sjóðina
á fáum ámm. Árið 1993 hefði í skýrslu
OECD um íslenska lífeyrissjóðakerf-
ið verið dregin upp dökk mynd af
framtíð þess, en þar segir: „Atv'innu-
tengdu lífeyrissjóðimir standast ekki
tryggingafræðilega þar sem iðgjalda-
hlutfalhnu hefur ekki verið breytt síð-
an þeir vora settir á fót. Til að skapa
tryggingafræðilegt jafnvægi þyrfti að
hækka iðgjöldin í 17% í almennu sjóð-
unum og 27% hjá sjóðum opinberra
starfsmanna og bankamanna (saman-
borið við 10% nú). Án þessara breyt-
inga stefnir í að eignir sjóðanna eyðist
hratt eftir 2010.“
Már sagði að þetta mat hefði á
þessum tíma verið rangt. Nú bendi
flest til þess að eignir lífeyrissjóðanna
nemi um einni og hálfri landsfram-
leiðslu um miðja öldina. Nú væri svo
komið að íslenska kerfið stæðist kröf-
ur Alþjóðabankans um þriggja stoða
kerfi, þ.e. opinbert grunnkerfi ellilíf-
eyris, hfeyriskerfi með skylduaðild og
fijálsan einstaklingsbundinn hfeyris-
spamað.
Már sagði að samanburður á lífeyr-
issjóðakerfi sem byggist á sjóðssöfn-
un og opinbera gegnumstreymiskerfi
sýndi að ávöxtun í gegnumstreymis-
kerfi hefði verið betri á sjötta ára-
tugnum þegar fólki hefði verið að
fjölga. Þetta hefði snúist við á síðustu
tveimur áratugum þar sem kerfi sem
byggðist á sjóðssöfnun hefði skilað
miklu betri ávöxtun. Lönd sem
byggðu á gegnumstreymiskerfi
stæðu nú frammi fyrir miklum vanda.
Hægt hefði á fólksfjölgun og hlutfall
aldraðra hækkaði stöðugt. I alþjóð-
legum samanburði stæði Island nokk-
uð vel. Þjóðin væri tiltölulega ung.
Fólk hæfi töku ellilífeyris seinna en
fólk í öðram löndum og atvinnuþátt-
taka væri óvíða meiri en á Islandi.
Már sagði að í alþjóðlegum saman-
burði væra eignir íslensku lífeyris-
sjóðanna í hlutfalli við landsfram-
leiðslu þær fjórðu mestu á Evrópska
efnahagssvæðinu. Aðeins lífeyrissjóð-
ir í Holland, Sviss og Bretlandi ættu
meiri eignir. Alþjóðlegur samanburð-
ur sýndi ennfremur að kostnaður við
íslenska lífeyrissjóðakerfið væri htilL
Eignir íslensku lífeyrissjóðanna
hafa aukist hratt frá 1980, en frá
1980-1999 tólffölduðust eignir sjóð-
anna á föstu verðlagi. Á síðustu tíu ár-
um hafa eignirnar rúmlega þrefaldast
sem felur í sér rúmlega 12% raun-
aukningu á áii.
25% af eign sjóðanna liggja
íhlutabréfum
I skýrslu Más, sem hann kynnti á
fundinum í gær, kemur fram að
eignasamsetning lífeyrissjóðanna
hefur breyst mikið á síðustu árum.
Árið 1990 námu hlutabréf 1,2% af
heildareign sjóðanna en 1999 nam
þetta hlutfall 25,8%. Lífeyrissjóðir
áttu engin erlend hlutabréf fyrir 10
áram, en 1999 vora 16,4% af eignum
sjóðanna erlend hlutabréf eða eign í
erlendum hlutabréfasjóðum. Á sama
tíma hefur dregið stórlega úr sjóðsfé-
lagalánum og hlutfahslega hefur
einnig dregið úr eign hfeyrissjóðanna
í húsbréfakerfinu, en hlutfallið var
40,7% árið 1995, en var 24,2% í fyrra.
Már lýsti á fundinum nokkram
áhyggjum af þeim mun sem er á
ávöxtun lífeyrissjóðanna, en ávöxtun
29 sameignarsjóða árið 1998 var á bil-
inu 2-11%. „Þetta er mikill munur.
Jafnvel þó að sleppt sé tveimur sjóð-
um sem höfðu óeðlilega lága ávöxtun
liggur munurinn á bilinu 5,5-11%.
Auðvitað getur ávöxtun einstakra
sjóða sveiflast töluvert milh ára og
mismunandi eignasamsetning getur
að einhveiju leyti skapað mun í ávöxt-
un einstök ár, þótt til lengdar sé hann
htíll. Það er hins vegar ijóst að verði
mikill munur á ávöxtun einsakra
sjóða viðvarandi mun það leiða til um-
talsverðs munar á því hvaða réttindi
einstakir sjóðir geta veitt að gefnu ið-
gjaldi. Það getur síðan skapað spennu
og erfiðleika fyrir lífeyrissjóðakerfið.
Það er því mikið í húfi að sjóðimir hafi
til lengdar ekki allt of mismunandi
ávöxtun. Allar forsendur ætti hins
vegar að vera til að draga úr þessum
mun með stækkun sjóða og meiri nýt-
ingu þekkingar við fjárfestingu, enda
eru fjárfestingakostir einstakra sjóða
í stóram dráttum þeir sömu,“ segir í
skýrslu Más. Hann bendir þó á að sé
horft til ársins 1998 sé ekkert sam-
band á mhli stærðar sjóða og ávöxt-
unar.
Fólk getur vænst þess að fá 60-
70% af meðallaunum í ellilífeyri
í skýrslu Más er vitnað th útreikn-
inga sem Guðmundur Guðmundsson
setti fram í Fjármálatíðindum árið
1998 um lífeyrisréttindi sjóðsfélaga.
Hann kemst að þeirri niðurstöðu að
miðað við 3,5% langtímaávöxtun og
1% framleiðniaukningu muni lífeyris-
sjóðimir geta skhað fólki sem fer á líf-
eyri 69 ára gamalt 62% af þeim með-
allaunum sem fólk á aldrinum 40-60
ára hefur. Th viðbótar megi gera ráð
fyrir að grannlífeyrir almannatrygg-
inga skhi fólki 10% tekjum th viðbót-
ar. Þessi tvö kerfi ættu því að geta
skhað fólki 60-70% af tekjum fuh-
starfandi fólks og það er mat Más að
það sé nokkuð góður árangur.
í skýrslu Más kemur fram að árið
1998 námu lífeyrisgreiðslur almanna-
tryggingakerfisins 19,1 mhljarði
króna eða 3,3% af landsframleiðslu.
Lífeyrisgreiðslur lífeyrissjóðanna
námu hins vegar 14,1 milljarði eða
2,4% af landsframleiðslu. Dregið hef-
ur saman með almannatryggingum
og lífeyrissjóðunum og Már segii’ að á
komandi áram fari sjóðimir fram úr
tryggingakerfinu. Árið 1998 var líf-
eyrisbyrði lífeyrissjóðanna 46%.
Vegna mikillar tekjuaukningar lífeyr-
issjóðanna á síðustu árarn hefur líf-
eyrisbyrðin lækkað, en hún var 54%
árið 1996.
Lífeyrissjóðirnir eiga 80
milljarða í húsbréfum
Á aðalfundi Landssambands Iífeyr-
issjóða var lögð fram íslensk þýðing á
reglum OECD um stjómskipan fyifr-
tækja og gerði Víglundur Þorsteins-
son grein fyrir þeim á fundinum.
Hann sagði að nauðsynlegt væri fyrir
hluthafa í íslenskum fyrirtækjum að
kynna sér þessar reglur og læra af
því sem væri að gerast erlendis á
þessu sviði. Á sumum sviðum þyrftu
stjórnendur íslenskra fyrirtækja að
taka sig á og nefndi hann sem dæmi
upplýsingagjöf um rekstur og íjár-
hagsstöðu fyrirtækja.
Þórir Hermannsson, stjómarfor-
maður Landssambands lífeyrissjóða,
gerði grein fyrir starfsemi sambands-
ins á árinu sem var fyrsta heila starfs-
árið í sögu þess. Hann sagði að í fram-
tíðinni væri nauðsynlegt að hækka
þak sem er á fjárfestingu lífeyrissjóða
erlendis, en það er 50% í dag. Best
væri að svipta algerlega hömlum af
fjárfestingum sjóðanna.
Þórir vék einnig að skuldabréfa-
markaðinum og sagði að ekki væri
hægt að kenna lífeyrissjóðunum um
ógöngur hans. Útgáfa húsbréfa hefði
aukist mjög mikið á síðasta ári eða
um 10 milljarða. Slíkt kallaði á hærri
vexti sem aftur ætti að slá á framboð.
Hann sagði að í lok mars hefðu lífeyr-
issjóðimir átt 80 mhljarða í húsbréf-
um og frá mars í fyrra til mars í ár
hefðu sjóðimir aukið húsbréfaeign
sína um 9 milljarða.
Á aðalfundinum varð sú breyting á
stjóm að Þórólfur Árnason, forstjóri
Tals, gaf ekki kost á sér, en í hans
stað var kosinn Friðbert Traustason,
formaður Sambands íslenskra banka-
manna.
Urval úr bókmenntum
18. aldar
Vpplýsingar
öldin
Orval ur
BÓKMEN.NTUM
18. AJ.DAR
Þetta er 750 btaðslðna
glæsileg bók sem geymir
fjölbreytt skrif eftir alla
helstu höfunda aldarinnar.
Falinn fjársjóður
íslenskra bókmennta!
Mál og menningi
malogmennlng.lsi
Laugavegi 18 • Siml 515 2500 • Síðumúla 7 • Simi 510 2500
Fyrsti fundur í
deilu sjómanna
SAMNINGANEFNDIR sjómanna
komu í gær á sína fyrstu fundi
með fulltrúum útvegsmanna eftir
að deilunni var vísað til ríkissátta-
semjara. Nýir fundir hafa verið
boðaðir næstkomandi föstudag.
Samninganefndir sjómanna era
fjórar, fyrir Sjómannasamband ís-
lands, Vélstjórafélag íslands, Far-
manna- og fiskimannasamband
Islands og Alþýðusamband Vest-
fjarða. Samtökin hafa ekki orðið
við þeirri ósk Samtaka atvinnu-
lífsins að mynda eina samninga-
nefnd.
Slitnaði upp úr
I gærmorgun slitnaði upp úr
viðræðum um virkjunarsamning
en Verkamannasamband Islands,
Samiðn og Rafiðnaðarsamband ís-
lands hafa boðað verkfall 13. júní.
Hugsanlegt var talið í gær að deil-
unni yrði vísað til ríkissáttasemj-
ara.
Landsvirkjun á aðild að virkjun-
arsamningnum. Fyrirtækið sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem
fram kemur að deilan sem nú er
uppi snúist aðeins um launakjör
við byggingarframkvæmdir við
Vatnsfellsvirkjun. Telur Lands-
virkjun eðlilegt að hún verði leyst
af Samtökum atvinnulífsins ásamt
verktökum og starfsmönnum
þeirra þar sem starfsmenn á virkj-
unarsvæðum séu ekki launþegar
Landsvirkjunar.
Mikið um
hrað- og
ölvunar-
akstur
UM helgina voru 39 ökumenn
stöðvaðir vegna hraðaksturs í
Reykjavík og 26 vegna ölvun-
araksturs. Ökumaður var
stöðvaður eftir að hafa ekið
bifreið sinni á 130 km hraða á
Breiðholtsbraut á föstudag.
Tveir voru stöðvaðir á Gullin-
brú, annar eftir að hafa
mælst á 130 km hraða og
hinn á 113 km hraða. Sex ára
stúlka hljóp í veg fyrir bifreið
á Njálsgötu á föstudag. Hún
hlaut minniháttar áverka en
var flutt á slysadeild.