Morgunblaðið - 30.05.2000, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Kiwanisklúbb-
••
urinn Olver af-
hendir gjafir
Blöndunartæki
Gamaldags blöndunartæki framleidd
bæði fyrir eldhús og baðherbergi.
Blöndunartæki fyrir handlaugar eru
framleidd með háum og lágum stút.
Yfirborðsáferðin erýmist króm, gull eða
króm/gull.
Röntgentæki á heilsugæsluna
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is
Þú getur valib um margar
hurbargerbir t.d. beyki,
furu, eik, birki og ask.
Nettoúe
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Samningur Leifturs við extra.is undirritaður af þeim Þorsteini Þorvaldssyni, formanni Leifturs, og Halli Þórð-
arsyni, forstjóra extra.is. Fyrir aftan þá, frá vinstri, eru Július Tryggvason, leikmaður Leifturs, Kristinn
Hreinsson, gjaldkeri Leifturs, Þorvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri extra.is, Þorsteinn Ásgeirsson, fram-
kvæmdasfjóri Leifturs, Jóhann Pálsson, stjórnarformaður extra.is, og Alexandre Da Silva, leikmaður Leifturs.
Leiftur semur við extraús
Ólafsfirði - Knattspymudeild Leift-
urs á Ólafsfirði og extra.is - Extra-
blaðið skrifuðu undir tveggja ára
samning á dögunum þar sem frá því
var gengið að extra.is verður aðal-
styrktaraðili liðsins. Undir samn-
inginn skrifuðu þeir Þorsteinn Þor-
valdsson, formaður knattspyrnu-
deildar Leifturs, og Hallur E.
Þórðarson, forstjóri extra.is.
Extra.is er nýtt fyrirtæki sem
gefur út Extrablaðið, en það er nýr
miðill, blað og vefur sem nær til
allra landsmanna. Blaðið kemur út,
12 sinnum á ári og verður því dreift
ókeypis inn á öll heimili landsins,
þ.e. 101.000 eintökum. Hvert eintak
verður tölusett og gildir sem
happdrættismiði, en tvisvar í
mánuði verða dregnir út vinningar
en á sex mánaða fresti verða
dregnir út stórir vinningar, t.d. bfll,
hjólhýsi eða sumarbústaður.
Þorsteinn Þorvaldsson vai-
ánægður með samninginn og séý-
Iega ánægður með nýja samstarfs-
aðilann. Hallur Þórðarson, forstjóri
extra.is, segir að þetta sé nýtttæki-
færi fyrir fyrirtæki sem sé að **
kynna sig á markaðnum. Því hafi
þeir valið þá leið að styrkja Leiftur
en um leið vekja athygli á eigin fyr-
irtæki.
VANTARÞIG ,
INNRETTINGUI
SUMARBUSTAÐINN?
Á litla tívolísvæðinu á sýningunni Vor í Eyjum.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Friform
HÁTÚNl 6A (í húsn. Fönix) SlMI: 552 4420
Þorlákshöfn - „Við byggjum" er
kjörorð kiwanismanna um allan
heim. I þessu kjörorði felst að
byggja upp betra mannlíf í heima-
byggð og helst vlðar. Þetta hafa
þeir kiwanismenn í Ölveri í Þor-
lákshöfn gert meðal annars með
því að styrkja líknar- og góðgerð-
armálefni í Þorlákshöfn og víðar. Á
aðalfundi klúbbsins, sem haldinn
var fyrir skömmu, afhentu þeir fé-
lagar Heilsugæslunni í Þorláks-
höfn eina og hálfa milljón króna
sem á að renna til kaupa á röntgen-
tækjum sem kosta um fimm millj-
ónir en þess er vænst að ríkissjóð-
ur greiði það sem á vantar. Við
sama tækifæri var björgunarsveit-
inni afhent GPS-staðsetningartæki
ásamt tilheyrandi kortum að and-
virði 170 þúsund krónur. Nýlega
afhentu þeir öllum sex ára börnum
í grunnskólunum í Þorlákshöfn og
Hveragerði reiðhjólahjálma og
veifur. Rúmlega fimmtíu börn
héldu glöð og reif heim með nýju
hjálmana sína. Alheimsverkefni
Kiwanishreyfingarinnar er að eyða
joðskorti í heiminum og hafa þeir
Ölversfélagar styrkt það verkefni
dyggilega. Auk alls þessa hafa
íþróttafélag fatlaðra og SOS
barnaþorp verið styrkt.
Nemandi í Grunnskólanum í
Þorlákshöfn hefur fengið viður-
kenningu fyrir góðan námsárangur
ensku í 10. bekk. .
Kiwanismenn afla peninga í
þessi verkefni með ýmsu móti, að-
alverkefnin eru þó jólatrjáa- og
flugeldasala. Kiwanisklúbburinn
Ölver varð 25 ára á síðastliðnu ári
og var þeim tímamótum fagnað
veglega á hátíð mikilli sem þeir
halda á hverju ári og nefnd er
„Gelluhátíð“ og dregur hún nafn
sitt af því að gellur voru aðal-
uppistaða í veislumatnum.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Á aðalfundi Kiwanisklúbbsins Ölvers í Þorlákshöfn afhenti forseti
klúbbsins, Halldór Sigurðsson (á miðri myndinni) Baldri Krisljánssyni,
formanni Heilsugæslu Þorlákshafnar, til vinstri, eina og hálfa milljón
upp í röntgentæki og Kjartani Þorvarðssyni, formanni björgunar-
sveitarinnar (til hægri) GPS-staðsetningartæki að andvirði 170 þúsund
króna.
ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR
Til afgrei&slu strax af lager e&a
me& a&eins 2-3 vlkna fyrirvara.
Sýningin Vor í Eyjum
Vestmannaejjar - Dagana
19. til 21. maí sl. stóð yfir
sýningin VOR í EYJUM
sem haldin er annað hvert
ár. Það er Handknattleiks-
deild IBV sem hefur alla
tíð haft veg og vanda af
sýningunni og óhætt að
segja að aldrei fyrr hafi
hún verið glæsilegri.
Alls sýndu um 40 aðilar
vöru og verk á sýningunni
og um 130 manns starfa
með einum eða öðrum
hætti að þessari mestu vör-
usýningu sem haldin er í
Vestmannaeyjum og er
aðstandendum og fyrir-
tækjum til mikils sóma og
hleypir miklu fjöri í bæjar-
lífið þá daga sem sýningin stendur,
ekki síst fyrir yngstu kynslóðina sem
fær heilt útisvæði fyrir sig þar sem
fyrirtækið Sprell hefur komið upp
vísi að tívólí austan við íþróttamið-
stöðina þar sem VOR í EYJUM er
haldið.
I viðtölum við sýnendur kom fram
mikil og almenn ánægja með sýning-
una sem vaxið hefur fiskur um hrygg
og fjöldi gesta er áætlaður 3-4000
manns. Sýnendum bar saman um að
enn vantaði nokkra aðila úr Eyjum til
að kynna sína þjónustu og ekki síst til
að kynna stofnanir og fyrirtæki.
Nefndu margir þar t.d. bæjar-
stofnanir eins og Rafveitu, skrifstofu
byggingafulltrúa, þar sem kjörið
væri að kynna deiliskipulag bæjarins,
margir nefndu fiskvinnslufyrirtækin
og fleiri þjónustustofnanir í bænum.
Sýningin var formlega opnuð að
viðstöddum boðsgestum föstudags-
kvöldið 19. maí kl. 20. Alla dagana var
boðið upp á fjölbreytta dagskrá á
Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson
Magnús Bragason og Eyþór Harðarson frá hand-
knattleiksráði ÍBV.
sviði, laugardag og sunnudag m.a.
tískusýningu, Hressó heilsurækt, þá
koma fram Leó Snær, Litla lúðra-
sveitin, Fjórir bjórar og Kór íslands-
banka, auk þess Sprell á útivista-
svæði.
Mikill undirbúningur
í sýningarbásunum má svo finna
flutningsaðila, Athafnaver fyrir ungt
fólk, Veisluþjónustu Gríms, Gallerí
Heimalist. Listaskóla Steinu, Merki-
kerti, bílasýningu, tölvukynningar,
heimilistæki, vefnaðarvörur, gjafa-
vörur, matvöru og margt fleira.
Húsey byggingavöruverslun hafði
alls 5 bása ogjiar sýndu ásamt Hús-
ey, GefjurvTspan, Húsasmiðjan,
Merkúr, Dynjandi og Sólarglugga-
tjöld. Aðspurður sagði Valtýr Þór,
einn eigenda Húseyjar, að hann og
hans fólk væri mjög ánægt með sýn-
inguna sem aldrei hefur verið betri.
Valtýr sagði þetta mikla töm og væri
undirbúningurinn langur, strangur
og kostaði mikið fé en taldi
þetta þó borga sig.
Davíð Gunnarsson eig-
andi Tölvunar í Vest-
mannaeyjum var ekki síð-
ur ánægður. Hann sagði að
sýningin lífgaði upp á bæj-
arlífið og kostnaðurinn
skilaði sér, en Davíð var
með fjóra bása ásamt
Nýherja, Tali, Tæknivali,
og Opnum kerfum. „Við
höfum verið með frá upp-
hafi og þetta er glæsilegt
framtak, umsvifin aukast
stöðugt og nú erum við 8
manns sem störfum að
sýningunni allan tímann og
við lentum í vandræðum
með að koma starfsmönn-
um samstarfsaðilanna fyrir vegna
þrengsla á hótelmarkaðinum í Eyjum
þessa helgi, en tugir starfsmanna
sýningarinnar gista á hótelum."
Davíð sagði þá vera með ýmsar nýj-
ungar, t.d. væru þeir tengdir nettölvu
Tölvunar með örbylgjusambandi og
væru með ýmsar uppakomur því
tengdar, beinar útsendingar af svið-
inu í gegnu Fjölvarpið og ýmislegt
fleira, þeir gætu til að mynda auð-
veldlega sent fótboltaleik út beint af
Hásteinsvelli. Davíð vildi koma á
framfæri þakklæti til Handknatt-
leiksdeildar IBV fyrir framtakið sem
væri frábært, góður vettvangur bæði
fyrir sýnendur og gesti.