Morgunblaðið - 30.05.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 35
Handan
áþreifan-
leikans
MYNDLIST
Listasafn islands
MYNDBÖND, HLJÓÐLIST
& TÖLVULIST 20 LISTA-
MENN & MYNDBÖND
EFTIR MEIR EN 30 AÐRA
Steina Vasulka, Myndbönd, Veflist.
Til 18. júní. @. Til 25. júní.
SÝNING Listasafns íslands á
stafrænni list - en „Nýr heimur -
Stafrænar sýnir“ er heiti sýningar-
innar - er metnaðarfull tilraun til að
kynna á breiðum granni þær nýj-
ungar sem gert hafa vart við_ sig 1
tæknilist undanfarna áratugi. Ég fæ
ekki betur séð en stofnuninni farnist
vel í þessari framraun sinni. Það er
ekki auðvelt að halda úti sjálfstæð-
um samsýningum í hverjum sal
Listasafnsins þannig að allt virki
hnökralaust.
Eftir hinni merkilegu sýningaskrá
að dæma - einnota sérútgáfa DV í
dagblaðsformi sem hefur þann einn
kost að vera ókeypis - eru sýninga-
stjórar framtaksins þrír og er þá
ótalin Steina Vasulka með snilldar-
verk sitt „Myndhvörf ‘ í þriðja sal, og
Finnbogi Pétursson með innleiddan
veðrahaminn af þaki Listasafnsins,
umbreyttan í stafræn tölvuboð og
magnaðan að hluta til í stóra salnum
líkt og jarðhræringadranur.
Safninu er með öðrum orðum
skipt niður í svæði þar sem ólíkum
stjómstöðvum er komið fyrir og
gestir geta prófað sig áfram frá einni
tölvu til annarrar. I stærsta salnum
hafa galdramennirnir frá margmiðl-
unarfyrirtækinu Oz hreiðrað um sig í
samvinnu við Art.is, en ásamt þess-
um tveim aðilum koma hugbúnaðar-
íyrirtækin Gagarín og Zoom að
tæknilegri útfærslu tölvumyndanna,
en tæknifyrirtækin Thule og Verði
ljós sjá um alla hljóðvinnslu. Atið eða
@, eins og sýningin í stóra salnum
heitir, er samvinnuverkefni ellefu
kunnra listamanna. Auk Asmundar
Asmundssonar, Finnboga Péturs-
sonar, Haraldar Jónssonar, Omars
Stefánssonar og Þorvaldar Þor-
steinssonar, hvílir útfærslan á herð-
um M.Y. Studio - Katrínar Péturs-
dóttur og Michael Young - og
Gjörningaklúbbsins - Dóra ísleifs-
dóttur, Eirúnar Sigurðardóttur, Jóní
Jónsdóttur og Sigrúnar Hrólfsdótt-
ur.
Það er ekki auðvelt að greina
framlag hvers listamanns fyrir sig.
Hugmyndir Umberto Eco að nýj-
ar miðaldir séu upp runnar þekkja
víst flestir, en spyrji hann hver teikn
þeirra séu í listinni hlýtur svarið að
vera afturhvarf til dómkirkjunnar,
þar sem allir listamenn sameinuðu
krafta sína til dýrðar almættinu. Nú
heitir þetta almætti að vísu tækni en
andrúmsloftið er ekki ósvipað. Sýn-
ingargestir standa í hálfrökkrinu og
skaka til músinni meðan hreyfí-
myndir birtast á þili og breytast eftir
því sem áhorfandinn verður leiknari
í ratleiknum. Ef marka má and-
aktina í salnum þá eru þessar skjá-
myndir altaristöflur samtímans.
Samlíkingin er ef til vill ekki svo
langsótt, því uppsetning Atsins í
stórasal Listasafnsins er býsna
musterisleg. Tvær minni „hliðarkap-
ellur“ með litlum tölvuskjám standa
þeim til boða sem vilja leika sér i ein-
rúmi.
Eins og þær stöllurnar í Gjörn-
ingaklúbbnum, Eii'ún og Sigrún,
gefa til kynna í sýningaskránni reyn-
ir töluvert á þolinmæði hins sjálf-
hverfa listamanns. Hann stendur allt
í einu frammi fyrir þeirri kvöð að
vinna með hópi kollega að einhverju
samvinnudæmi sem hann stjórnar
aðeins að litlu leyti. Þótt vissulega
megi þekkja ákveðin höfundarein-
kenni er ekki alltaf auðvelt að skynja
hvar einn listamaður byrjar og ann-
ar tekur við. Það er eins og í miða-
ldakirkjunum þar sem verk renna
saman og oft reynist erfitt að greina
milli byggingar, innréttinga og
ski'eytingar.
Tjarnarsalurinn - fjórði salurinn -
er ekki ólíkur stóra salnum.
Þar er sýningin Orb.is á vegum
Braga Halldórssonar, en ásamt hon-
um eiga Baldur Helgason, Egill
Sæbjörnsson, Gunnar Magnús And-
résson, Hlynur Helgason, Kristrán
Gunnarsdóttir, María Pétursdóttir
og Þórir Karl Bragason verk af ýms-
um stærðum og gerðum. Líkt og á
neðri hæðinni skipta músin og bend-
illinn miklu máli. Líkt og almenning-
ur M.Y. Studio, þar sem teiknað vél-
menni ferðast um eldfjallalandslag
og steypir sér svo niður gíga þannig
að upp kemur ný sýn, geta gestir
Orb.is flakkað í raunverulegri Ijós-
mynd líkt og væra þeir í reiðhjóla-
porti - hjá Agli - eða í gömlu kofa-
ræksni - hjá Braga - eða bara á
Miklubrautinni - hjá Hlyni Hallssyni
- uns örin bendir þeim á stað til að
breyta um mynd og kanna veraleik-
ann á skjánum út frá öðru og nær-
tækara sjónarhorni.
Gagnvirkni stafrænu verkanna á
Atinu og Orb.is hlýtur að vera gest-
um kærkomið tækifæri til að viðra í
sér barnið og fara á flakk í framandi
landslagi með ófyrirséðum veraleik
handan við hornið. Um leið boða öll
þessi verk nýja tæknibyltingu í
myndlistinni með ótal, óvæntum
möguleikum og útúrdúram. Tíminn
er hin nýja vídd sem bætist við rým-
ið, og hreyfingin hið nýja myndmál.
Áhorfandinn fær að ráða ferðinni,
svo sem þegar hann velur sér svip-
brigði á Maríu Pétursdóttur með því
að hreyfa músina. Hvert þessi list
stefnir er enn á huldu, en möguleik-
arnir era þarna, margbrotnir og
ótæmandi. Eitt liggur þó í loftinu og
það er að áherslumar á komandi öld
verða allt aðrar en þær sem við
þekkjum frá öldinni sem senn er á
enda.
I þriðja salnum - á efri hæðinni -
tekur svo við sérsýning Steinu Vas-
ulka, „Myndhvörf“, sérlega pöntuð í
tilefni af heildarsýningunni. Þetta
makalausa verk er engu líkt í hrynj-
andi sinni. Niu risastórar varpmynd-
ir líða hægt fram með sama mynd-
efninu frá ólíku sjónarhorni.
Kjai'ninn era hrossastóð og sjávar-
föll, sem skiptast á að lita allan salinn
með hjálp forrits sem les myndirnar
línu fyi-ir línu og umbreytir þeim
með myndhvörfum.
Abstraksjónin læðist inn í raun-
sæjar upptökurnar og snýr þeim upp
í heillandi litaspil sem líður áfram
eins og tónverk. Mörg sjónarhorn
umhverfast í einu líkt og gerist í
margradda hljómkviðu. Sjaldan hef-
ur Steinu tekist eins vel til með
myndbreytingar sínar. Umskiptin
eru svo mjúk og eðlileg að strófurnar
minna á málverk sem skafið er á
staðnum meðan litirnir eru ennþá
óþornaðir. Það er ekki óvarlega sagt
að „Myndhvörf ‘ Steinu séu í ætt við
abstraktmyndir Gerhard Richter,
nema hvað þær hreyfast í stað þess
að standa kyrrar.
Vanti gesti nánari tengsl við höf-
undarverk þessa brautryðjanda al-
þjóðlegrar myndbandalistar er til-
valið að nálgast yfirlit á ellefu
verkum hennar í litla salnum á jarð-
hæð Listasafnsins, en þar era stöð-
ugar sýningar á myndböndum gegn-
um tíðina eftir flesta helstu boðbera
þessarar liðlega þrítugu listgreinar.
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfss
Úr dómkirkju nútímans. Gestir stýra stórum varpmyndum í salarkynnum Listasafns íslands.
Sunnudaginn 4. júní geta gestir
haldið í könnunarleiðangur um list
Steinu og séð margt af því sem hún
hefur afrekað á undanfomum tut-
tugu og fimm áram. Það er einstakt
tækifæri til að kynnast verkum eins
fremsta listamanns okkar og þess
eina sem telst til brautryðjenda á
sviði alþjóðlegrar myndbandalistar.
„Nýr heimur - Stafrænar sýnir“
er að flestu leyti vel heppnuð, vel til
fundin og heillandi sýning, sem gefur
prýðilega innsýn í þróun tæknilegrar
listar á undanförnum áratugum. Það
er tilvalið að taka með börn og ungl-
inga, einkum ef maður er ekki alltof
sleipur í notkun gagnvirks stýribún-
aðar og hittir ekki á réttu holurnar.
En eins og áður sagði er sýningar-
skráin rýr, sem því miður er ekki
undantekning hér á landi heldur
sorgleg regla.
Halldór Björn Runólfsson
Acpyl pottar
Úrvalið er hjá okkur
Fyrir sumarbústaði,
heimahús, sundstaði og hótel.
Uppsettir í sýningarsal okkar
0PIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 21
JlikMETRO
Skeifan 7 • Sími 525 0800
r
V
Miele er
Benzinn í þvottahúsinu
MIClG
Þvottavél
- handþvottakerfi fyrir uil og silki
viktar þvottinn og reiknar út sápunotkun
íslenskt stjórnborð á vélinni
Lífstíðarábyrgð á uppfærslu þvottakerfa
/■ !vs*ele
afmæli
I tilefni af 100 ára
afmæli Miele hafa Eirvik
og Miele ákveðið að efna til
happadrættis. í verðlaun er
hinn glæsilegi Mercedes-
iz A-lína ftr tíl /»pprá kaupondo MnltMmitistækií. BeilZ A“lin3 frS RdBSI .
löXX)
Miele
EIRVIK
j
i
.S.uðurlandsbraut ?()..-.1Q8 Reykiavík.r Sími 588 Q2Q.Q,-www.eirvjk.fe