Morgunblaðið - 30.05.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 39
Eftir draum
TÖNLIST
Safnaðarsalur Akur-
eyrarkirkj u
TÓNLEIKAR
Nicole Vala lék tvær einleikssvítur
fyrir hlé, þá fjórðu í Es-dúr eftir
Johann Sebastian Bach og síðan
svítu eftir spænska tónskáldið
Gaspar Cassadó (1897-1966), sem
hann samdi 1926 og heitir einfald-
lega Svíta fyrir selló. Eftir hlé léku
Nicole Vala og Ámi Heimir Sónötu
fyrir selló og píanó f F-dúr eftir
Johannes Brahms. Föstudags-
kvöldið 26. maí.
ÞAÐ sýnir bæði hug og metnað að
leika tvær einleikssvítur á sömu tón-
leikum. Vissulega eru svíturnar
gjörólíkar og fulltrúar tveggja ólíkra
stflheima. Eigi að síður gera þessar
einleikssvítur miklar kröfur til flytj-
anda og einnig áheyrenda. Sú aðferð
tónskálda og tónlistarmanna að
setja saman stutta dansa í syrpu sem
nefnd er svíta má rekja allt til 14.
aldar . Blómaskeið þessa forms var
þó barokktíminn, sem eins og fleiri
tónlistarhættir þess tíma risu hæst
með JS Bach. í sínum sóx sellósvít-
um notar hann hefðbundna þýska
niðurröðun. Með þáttunum: prelúdía
(forleikur), allemande (þýskur dans í
tvískiptum takti), courante (fransk-
ur dans í þrískiptum takti), sarab-
ande (spænskur dans í tvískiptum)
og gigue (hraður þrískiptur). A milli
5. og 6. dansins var breytilegt hvaða
dansar voru notaðir, en í þessari
svítu semur Bach á þeim stað dans-
ana bourrée I og II, sem fluttir eru í
eins konar A-B-A formi. Nú er Nic-
ole Vala búin að ljúka þeirri göngu á
sellóbrautinni að vera efnileg, því
hún hefur með námi sínu náð þeim
áfanga að vera góður sellóleikari og
hafa flest það til brunns að bera að
geta unnið sig til metorða. Hún hóf
nóm sex ára gömul hjá Oliver Kent-
ish við Tónlistarskólann á Akureyri
og er nú langt komin í mastersnámi í
sellóleik hjá sellóleikaranum Yeesun
Kim í Bandaríkjunum. Frá upphafi
tónleikanna lék hún geislandi vel.
Hún var þó full áköf í byrjun prelúd-
íunnar og langir tónar á mótum
hendinga fengu ekki að lifa nógu
lengi í „loftinu“. Ekki ólíklegt að lítil
endurómun salarins hafi ráðið
óþreyjunni, þvi þegar leið á þáttinn
og það sem eftir lifði af tónleikunum
náði hún að gefa löngum tónum nátt-
úrulegan blæ, fegurð og nauðsynlegt
líf. Vandinn við að túlka slíka ein-
leikssvítu er að láta hvem þátt njóta
sinna sérkenna í hljóðfalli, tónblæ og
hendingarmótun, en samt verður
maður að skynja samhengið milli
þáttanna og að þeir séu hluti af
skemmtigöngu um undraheim þar
sem upphaf og niðurlag haldast í
hendur.
Nicole Völu tókst að taka mig með
í þessa ferð frá upphafi til loka.
Eftirminnanlegasta útsýnið birti
hún í saraböndunni með hrífandi
söng á sellóið í fallegum laglínum
Bachs. Spænski sellósnillingurinn
og tónskáldið Gaspar Cassadó, sem
lærði hjá Casals, valdi sinni svítu allt
aðra braut en Bach. Hann byrjar á
að kynna hið litríka tónsvið sellósins
með prelúdíuþætti, eins og Bach, og
gefur eins og Bach sellóleikaranum
gott tækifæri til að kynna vald sitt á
hljóðfærinu. En suðræn undiralda
nær smátt og smátt meiri yfirtökum
í tónahafinu og í öðmm þættinum,
Sardana, stíga öldurnar fjömgan
dans. I upphafi þess þáttar getur að
heyra söng í hárri legu sellósins, eins
konar undanfara þess að danshljóm-
sveit, túlkuð af einu sellói, taki völd-
in. Miklar andstæður i styrkleika,
hraða og blæ vom vel dregnar fram
af Nicole Völu. Lokaþátturinn, Int-
ermezzo e danza finale, hefst á
áhrifamiklum skiptum milli langra
strokinna tóna, plokkaðra strengja
(pizzicato) og syngjandi laglína.
Danshljóðfallið og habanerataktur-
inn verða áberandi. Einnig er ein-
kennandi hvernig viss harka og
mýkt skiptast á tónum.
Þetta verk er mjög kunnáttusam-
lega samið og var einstaklega áhrifa-
mikið i flutningi Nicole Völu. Eftir
, Sýning á verkum
Astu Sigurðarddttur
KVENNA-
SÖGUSAFN ís-
lands minnist
Ástu Sigurðar-
dóttur með opn-
un sýningar á
verkum hennar í
Þjóðarbókhlöðu
annaðkvöld,
miðvikudags-
kvöld, kl. 20.
Við opnunina
flytur Kristín
Rósa Armanns-
dóttir bókmenntafræðingur fyrir-
lestur um Ástu og Steinunn Olína
Námskeið
Listasmiðju
barna
NÁMSKEIÐ Listasmiðju barna
hefjast í júní. Þar verður kennsla í
leiklist, myndlist og tónlist, ætluð
börnum á aldrinum 9-11 ára.
Kennarar eru Arnþrúður Ingólfs-
dóttir, tónlist, Ilmur Kristjánsdóttir,
leiklist, og Darri Lorenzen myndlist.
Farið verður með börnin í könn-
unarferðir, vinnustofur myndlistar-
manna heimsóttar, heimurinn bak
við leiksviðið kannaður og farið verð-
ur á hljómsveitaræfingu. Þá koma
ýmsir gestir í heimsókn. Námskeið-
inu mun ljúka með „kynningu" á því
sem börnin hafa verið að fást við.
Námskeiðin fara fram í æfingasal
íslensku óperunnar.
Þorsteinsdóttir leikkona les smá-
sögu eftir hana.
Asta Sigurðardóttir var fjölhæfur
listamaður. Hún er kunnust fyrir
smásögur sínar en var einnig hæfi-
leikarík myndlistarkona. í ár eru lið-
in sjötíu ár frá fæðingu Ástu en hún
fæddist 1. aprfl árið 1930 og lést 21.
desember 1971.
Á sýningunni eru meðal annars
nokkur málverka Ástu og dúkristur.
Þá verða einnig til sýnis mannspil
sem hún teiknaði á árunum 1960-
1963. Fyrirmyndir spilanna eru
þjóðsagnapersónur, forynjur og
galdramenn.
Nýjar bækur
• ÓÐFLUGA, barnabók með vísum
eftir Þórarin Eldjárn og myndum
Sigrúnar Eldjárn er komin út í nýrri
útgáfu.
Óðfluga var fyrst gefin út 1991.
í fréttatilkynningu segir m.a. „Óð-
íluga er einstæð ljóðabók sem leiftr-
ar af fjöri og hugmyndaauðgi. Bfl-
arnir eru sófasett á hjólum, tjáið
rennur í tundrið og hvippurinn fer út
um hvappinn. Kýrin skýra Klara
klórar sér um hupp og óð fluga nálg-
ast óðfluga."
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er 32 bls., prentuð hjá
Nprhaven í Danmörku. Umbrot og
kápuhönnun annaðist Björg Vil-
hjálmsdóttir. Verð 1.980 kr.
Ásta
Sigurðardóttir
Hlífðarlaust
raunsæi
hlé bættist henni heldur betur liðs-
auki, þegar Árni Heimir Ingólfsson
kom og lék hið kröfuharða og vanda-
sama hlutverk sem Brahms lagði
píanistum á hendur í F-dúr sónötu
sinni fyrir selló og píanó.
Árni er í doktorsnámi í tónlist við
Harvard-háskólann og hefur áður
lokið einleikaraprófi í píanóleik frá
píanókennaranum Lydia Frumkin.
Brahms átti sér fáa ofjarla í píanó-
leik og tónsmíðum á sínum tíma.
Þann 28. október 1853 ritaði Schu-
mann grein í timarit sitt, Neue
Zeitschrift fur Musik í Leipzig, og
lofaði Brahms sem meistara meist-
aranna, hvort sem var á sviði tón-
smíða eða píanóleiks. Talið er að
slíkt lof hafi jafnvel skaðað orðstír
Brahms á þeim tíma vegna tor-
tryggni kolleganna. Eitt er víst að
hver tónn í F-dúr sónötunni stað-
festir orð Schumanns, enda er
Brahms fyrir löngu kominn á þann
sögulega stall sem þar er lýst. Verk-
ið ber sterkt svipmót brahmskra
verka. Mikil spenna og dramatík
skapast vegna árekstra milli áhersla
í tví- og þrískiptum takti. Píanóið er
allan tímann í veigamiklu hlutverki
og í öðrum þætti er það nánast í ein-
leikshlutverki Þar kemur sellóið oft
með áhugaverða pizzicatolaglínur.
Arni Heimir lék verkið af glæsibrag,
en hefði gert enn betur með að láta
rólegri söngva syngja enn meir og
njóta þess sjálfur. Endir annars
þáttar með selló-pizzicato er ein-
stakur. Mikil átök eiga sér stað í
lokaþáttunum tveimur. í þeim þriðja
falla holskeflur stórsjávar en loka-
þátturinn er ljóðrænni, lýrískari,
jafnvel þá fara öldurnar að vagga og
hníga i mýkri dansi! I lokin var hríf-
andi flutningi Nicole Völu og Árna
Heimis fagnað með löngu lófaklappi.
Vel fór á því að draumatónleikum
lyki með leik þeirra á söng Faureé,
Eftir draum (Apré un réve), sem
aukalagi.
Jón Hlöðver Áskelsson
BÆKLR
Ljóð
RADDIR DAGSINS
eftir Erlend Jónsson, Smáragil.
2000 - 64 bls.
LITIR segja okkur margt um
huga fólks. Sumum skáldum eru
þeir hugleiknir. Þau nota þá mark-
visst og litróf þeirra er allajafnan
einhvers konar sam-
svörun tilfinningaskala.
Ekki veit ég hversu
mikið mark á að taka á
litanotkun Erlends
Jónssonar í bók hans
Raddir dagsins. Sann-
ast sagna er svarti litur-
inn nokkuð ráðandi í
þeirri bók þótt merking-
arleg skírskotun hans
geti verið margræð. En
í bókinni er samt all-
nokkuð myrkur og sú
kennd er þar býsna ríkj-
andi að komið sé að leið-
arlokum. Skáldið lítur
yfir farinn veg og eins
og gerist og gengur er
lífið sett öðrum megin á
vogaskálina en hinum megin eru svo
draumamir frá upphafi vegferðar og
þá er ekki víst að vogin sé í jafnvægi.
Mörg kvæðin einkennast af úr-
drætti og afhelgun ævivegarins og
eru ekki alveg laus við kaldhæðni.
Maðurinn er svo sem ekki tilveran
sjálf. En Erlendur kemst svo að orði
í einu kvæða sinna að hann sé mað-
urinn „sem varpar skugga á veginn /
og hverfur síðan“. Á öðrum stað
kemst skáldið svo að orði að „Svart
kaffi, skuldabréf / og vonbrigði á
vinnustað fylgi árunum mörgu. Jafn-
vel ástin er framandlegur draumur:
Hvar eru, hver ertu?
Þúernóttogdraumur.
Þú ert skuggi þess
semáttiaðverða
enaldreivarð
-falinbakviðárogöld
Bók Erlends er í þremur hlutum.
í fyrsta hlutanum eru
tilvistarlegar vanga-
veltur sem þessar en
raunar fjallar hún um
margt annað en þessa
lífssýn. I öðrum hluta
sækir hann föng til
bernskuminninga í
opnum kvæðum sem
skírskota með formi
sínu og efni til fjórða
áratugarins. Hér eru
á ferðinni frásagnar-
kvæði sem draga upp
eftirminnilegar mann-
lífsmyndir. Síðasti
hlutinn er síðan ortur
í minningu nokkurra
listamanna og skálda.
Raddir dagsins er
því nokkuð fjölskrúðug flóra radda.
I henni er meitlaður skáldskapur
sem einkennist af dálítið myrkri og
kalsakenndri lífssýn. Ævivegurinn
er skoðaður af óvægnu raunsæi. Hér
er vandað til verka þótt sjálfum finn-
ist mér hlífðarleysið á stundum full-
mikið.
Skafti Þ. Halldórsson
Erlendur
Jónsson
IV £
Sprensitllbod I
Rýmum fyrir
Inýjum
vörum.
Skatthol
Vcrö áður: 38.000.
COLONY
Vörur fyrir vandláta
Síðumúla 34
(Homið á Síðumúla og Fellsmúla)
Simi: 568 7500 -
863 2317 - 863 2319
Opnunartími:
virka daga 11:00 - 18:00
helgar 11:00- 15:00
Mjös slæsilesir
útskornir speslar.
Leðurhússösn
Góður afsláttur.
Frönsk
Sveitahússösn
Gamli
aldamótastílinn