Morgunblaðið - 30.05.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000
Siðferði eða fordómar?
EF ég eða þú lesandi
góður erum ekki sam-
mála öllu sem samtök
samkynhneigðra
standa fyrir og tals-
menn þeirra eða höfum
einfaldlega aðrar skoð-
anir þá erum við kölluð
fordómafull og óum-
burðarlynd og jafnvel
tímaskekkja. Hver er
með dóma? Þeir sem
telja sig í „kúguðum“
minnihluta þjóðarinnar
eru hvað duglegastir
að dæma aðra og skort-
ir allt umburðarlyndi
gagnvart fólki sem er
ekld sömu skoðunar og
það. Ég held það væri nær að tala
um kúgaðan meirihluta. Af hverju
segi ég það? Jú, samkynhneigðir,
sem eru svo sannarlega „minni-
hluti“, hafa verið svo afskaplega
duglegir að tala sínu máli hvarvetna
í fjölmiðlum síðustu ár að það er á
við bestu markaðssetningu. Ef eitt-
hvað er sagt nógu oft fer fólk að trúa
því. Almenningur þorir ekki lengur
að hafa sínar skoðanir því enginn vill
fá á sig stimpilinn að vera fordóma-
fullur. Að mynda sér skoðun út frá
vanþekkingu kallast fordómar, en að
skoða hlutina vel og hafa góð rök
fyrir máli sínu er einfaldlega að vera
á annarri skoðun, og ekkert annað.
Málflutningur talsmanna samkyn-
hneigðra hefur verið á þeim nótun-
um að beina athyglinni frá rökræð-
unni að persónu þess sem rökræðir,
þ.e. að dæma þá sem hafa aðra af-
stöðu en þeir sjálflr. Að hafa skoðan-
ir á manneskjum fi-ekar en málefn-
um hefur einkennt skrif og ræður
þeirra og hafa þeir skotið langt yfir
Edda Sif
Sigurðardóttir
markið í þeim efnum
og hafa of margir þurft
að þola alvarlegar
ásakanir af þeirra
hálfu. Þeir sem eitt-
hvað hafa fylgst með
þessari umræðu vita
hvað ég er að tala um
og hljóta að vera sam-
mála mér í því að slíkt
getur varla talist mál-
efnalegt.
Það er með ólíkind-
um að þingmenn þessa
lands skuli allir að und-
anskildum einum hafa
greitt atkvæði með
stjúpættleiðingum
samkynhneigðra og
hunsað þar með allar rannsóknir
sem sýna fram á að það sé alls ekki
heppilegt fyrir börn að alast upp hjá
tveimur „foreldrum“ af sama kyni.
Hvað með umsagnir fagfólks, sem
sérhæfir sig í uppeldis- og fjöl-
skyldumálum, s.s. félagsfræðinga,
sálfræðinga o.fl.? Aðeins ein umsögn
fylgdi frumvarpinu og hún var frá
samtökum ’78, sem hvorki getur tal-
ist faglegt né hlutlaust. Þess má geta
að Svíar hafa frestað ákvarðanatöku
um sama mál þar til niðurstöður
hafa fengist úr sérstakri rannsókn á
þessum málum þar í landi.
Það virðist því sem þingmenn
okkar hafi tekið sínar ákvarðanir út
frá tilfinningalegu sjónarmiði og/eða
vegna þrýstings þeirra sem að frum-
varpinu stóðu, sem hlýtur að teljast
mjög svo óábyrgt. Ég held við verð-
um að passa okkur á því að opna ekki
dyr sem illmögulegt er að loka aftur.
Þetta hlýtur að koma okkur öllum
við og er ekki einkamál samkyn-
hneigðra þar sem þetta er spurning
Samkynhneigð
Það er eitt að rnnbera
það sem er öðruvísi,
segir Edda Sif Sigurð-
ardóttir, en annað að
samþykkja það og
leggja að jöfnu við það
sem eðlilegt er.
um siðferði en ekki hvort samkyn-
hneigðir séu hæfir uppalendur eða
ekki. Þeir eru það örugglega flestir,
eins og annað fólk, en lífsmáti þeirra
getur ekki talist heppilegur fyrir
böm að alast upp við. Spyrðu sjálfan
þig hvort þú hefðir viljað alast upp
við þær aðstæður að eiga foreldra af
sama kyni. Það er eitt að umbera
það sem er öðruvísi en annað að
samþykkja það og leggja það að
jöfnu við það sem er eðlilegt.
Barátta samkynhneigðra á íslandi
í dag fjallar ekki lengur um umburð-
arlyndi á lífsmáta þeirra heldur al-
gera viðurkenningu, sem er tvennt
ólíkt. Við - sem annt er um siðferðið
í þessu landi - hljótum að spyrna fót-
um við því að samþykkja allt jafnvel
þótt það sé í nafni frelsis og umburð-
arlyndis. Allt slíkt lítur vel út á yfir-
borðinu en kemur til með að vinda
upp á sig og bera miður góðan ávöxt.
Fyrst er það staðfest samvist, síðan
stjúpættleiðingar, þá frumættleið-
ingar, gervifrjóvganir o.s.frv.
Um leið og samkynhneigðir eru
orðnir viðurkenndir uppalendur
hlýtur samkynhneigð að vera ásætt-
anlegur valkostur í kynfræðslu allra
skóla og þeirra réttur að samkyn-
hneigð verði lagður að jöfnu við
gagnkynhneigð. Þá mun börnum
kennt að til að bæla ekki kynhneigð
sína verði þau að íhuga hver hneigð
þeirra sé og jafnvel að „prófa sig
áfram“. Sumir eru jú tvíkynhneigðir
og sú hneigð verður auðvitað að
blómstra í lífi þeirra svo þeir verði
hamingjusamir einstaklingar.
Ég held það sé kominn tími til að
fólk skoði þessi mál hlutlaust og
spyrji sjálft sig hvort þetta sé það
sem það vill því þetta er það sem
koma skal ef fram heldur sem horfir
og hvar á síðan að draga línuna?
Öll þau rök sem notuð eru til að
styðja hjónaband tveggja einstak-
linga af sama kyni má einnig nota til
að styðja fjölkvæni. Þegar vikið er
frá hinni hefðbundnu skilgreiningu á
hjónabandi tveggja einstaklinga,
karls og konu, eru í raun engin tak-
mörk fyrir því hvert leiða má rök-
semdafærsluna. Hvers vegna skyldu
ekki þrjár konur og einn karlmaður
mega ganga í hjónaband ef það er
vilji þeirra allra og þau elska
hvert annað. Fyrst „formúlan" ér*
ekki lengur einn karl og ein kona þá
getur hún’rétt eins verið tveir karlar
og tvær konur eða eitthvað annað.
Ef skilyrðin eru einungis þau, að við-
komandi einstaklingar elski hver
annan og vilji staðfesta samvist sína,
hvar eiga þá mörkin að vera, ef þau
miðast ekki lengur við einn karl og
eina konu?
Þessi mál eru langt frá því að vera
einföld eða þægileg og vekja óneit-
anlega upp margar spurningar um
siðferði ef maður skoðar þau á hlut-
lausan hátt og út frá fleiri en eii^.
sjónarhorni. Ég vil því hvetja þig
lesandi góður til að hugleiða þessi
mál vandlega. Þetta varðar okkur öll
og hafa skal í huga í öllu þessu tali
um mannréttindi að það að fá að hafa
skoðanir sem falla ekki öllum í geð
hlýtur að teljast mannréttindi sem
öðrum ber að virða.
Höfundur er hönnuður
og tveggja bama móðir.
Ársfundir LSR og LH
Ársfundur Lifeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga verður haldinn i dag, þriðjudaginn 30. maí á
Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38 og hefst hann kl. 15:00.
Á fundinum verður gerð grein fyrir skýrslu stjórnar, ársreikningum,
tryggingafræðiLegri úttekt, skuldbindingum launagreiðenda,
fjárfestingarstefnu o.fl.
ALlir launagreiðendur sem greiða iðgjald til LSR eða LH eiga rétt
til aó senda einn eða fleiri fulltrúa á ársfundinn og allir sjóðfélagar
eiga rétt til setu á ársfundinum.
V axandi
möguleikar
í vélfræði
NÚ fer að koma sá
tími að grunnskólanem-
endur um allt land fara
að taka ákvörðun um
framhaldsnám. Þessi
ákvörðun er orðin ein sú
mildlvægasta sem fólk
tekur á lífsleiðinni því
að þeir sem hafa ekki
góða menntun geta lent
í ei-fiðleikum í kröfu-
hörðu og tæknivæddu
atvinnulífi nútímans.
Framtíðin er
kröfuhörð
Kröfurnar sem at-
vinnulífið gerir til
menntunar eru alltaf að
aukast. Á næstu árum má búast við
að fólk sem hefur ekki aflað sér góðr-
ar menntunar verði æ meira utan-
Framhaldsnám
Eg vil hvetja þá sem eru
að huga að framhalds-
námi, segir Páll Valdi-
marsson, að kynna sér
vélfræðinám.
gátta í tæknivæddu atvinnulífi. Rétt
ákvörðun nú getur tryggt ungu fólki
öryggi og gefið því burði til að verða
virkir þátttakendur í tækniþjóðfélagi
framtíðarinnar.
Vélfræði er
góður kostur
Veruleg eftirspum er eftir tækni-
menntuðu fólki og góðir tekjumögu-
leikar. Eitt mest spennandi tækni-
námið sem nú er á boðstólnum er
vélfræði. Vélfræði er
kennd í Vélskóla ís-
lands í Reykjavík og í
Verkmenntaskólanum
á Akureyri til hæstu
réttindastiga og ýmsir
framhaldsskólar um allt
land kenna til lægri
stiga. Vélfi'æðinám er
hægt að hefja strax að
loknum grunnskóla og
getur það tekið á bilinu
1 til 5 ár, allt eftir því
hversu miklum réttind-
um er sóst eftir. Hæsta
stigið gefur nú sam-
bærileg réttindi við
stúdentspróf. Þeim sem
því ljúka eru flestir veg-
ir færir í framhaldsnámi.
Spennandi
möguleikar
Flestir setja vélfræði í samband við
skip og sjómennsku. Vissulega er stór
hluti vélfræðinga á sjó, en miklir
möguleikar eru einnig á fjölbreyttum
störfum í landi. Vélfræðingar geta í
flestum tilvikum gengið inn í störf
sem gefa svipaðar eða betri tekjur en
margt háskólanám. Til samanburðar
má nefna að erfitt er fyrir þá sem
ljúka hefðbundnu" stúdentsprófi úr
menntaskóla eða fjölbrautarskóla að
fá gott starf án þess að ljúka meira
framhaldsnámi. Með því að fara í vél-
fræði er bæði hægt að afla sér fjöl-
breyttra atvinnuréttinda og full-
nægja kröfum um undirbúning til
framhaldsnáms.
Ég vil hvetja þá sem eru að huga að
framhaldsnámi að kynna sér vél-
fræðinám. Það gæti komið skemmti-
lega á óvart!
Höfundur er prófessor
i' Verkfræðideild Háskólans.
Páll
Valdimarsson
Lífið er list!
GBC QUARTET
Tölvutaflan er bylting í
fundaformi og fjarsamskiptum
SKItll'STOIlA'ÖHll?
1. RSTVniDSSON HF.
Skipholti 33.105 Reykjavik. simi 533 3535
✓ Skráð er á töfluna
✓ Flutt í tölvuna
✓ Prentað út
✓ Sett upp á
✓ Sent i tölvupósti
✓ Hugbúnaöur og
tengingar fylgja
Lifeyrissjóður starfsmanna ríkisins - Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga.
Bankastræti 7 • Sfmi 510 6100
LANCOME
'Brún húc
á svipstun<
f FLASH
BRONZER
Wj^TREINr E-VÍTAMÍNI
gar harð\nrl$5r sjálfbrúnkandi vbrur i
íum, sem eru einstaklega auðveldar í
notkun og þorna á mettíma
l: Fullkomlega eðlilegur og jafn litur
Mjúk og geislandi húð
1 Ipash Bronzer Hydratíng Milk
Sksins eru
girnilegua
Munið glæsilegu Bonjour LANCÖME tilboðin
LANCÖME UM LAND ALLT
PARIS
REYKJAVÍK:
Árbæiarapótek, Glaaibær snyrtivöruverslun, Gullbrá Nóatúni, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi, Lyf og hellsa
Austurveri, Mist snyrtistofa/verslun Spönginni, Sara Bankastraeti. Sigurboginn Laugavegi, Snyrtimiðstöðin Lancome
snyrtistofa Kringlunni, Andorra Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg, Nesapótek, Fína Mosfellsbae.
LANDIÐ:
Amaró - Hjá Maríu Akureyri, Apótek Ólafsvfkur, Egilsstaðaapótek, Krisma Isafirði, Miðbaer Vestmannaeyjum,
Rangárapótek Hellu og Hvolsvelli, Sauðárkróksapótek, Lyf og Heilsa Selfossi, Siglufjarðarapótek Siglufirði.
Verslunin Perla, Akranesi.