Morgunblaðið - 30.05.2000, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 2000 TlU '
FÓLK í FRÉTTUM
MYNDASAGA
VIKUNNAR
Vantar býflugur
Hasarblaðið Blek, sjötta tölublað.
Höfundar eru Þorsteinn S. Guð-
jónsson, Paradi, Jón Ingiberg Jón-
steinsson, Zlatko Milenkovic, Ómar
Örn Hauksson, Jan Pozok, Eyrún
Edda Hjörleifsdóttir, Kjartan Arn-
órsson og Kristín Hauksdóttir.
Fæst víða í bókabúðum, Hinu hús-
inu og myndasöguversluninni Nex-
us VI. Heimasíða Bleks: http://
members.xoom.com/blekcomics
Á HÁSLÉTTU íslenska bók-
menntalífsins era aðeins örfá mynda-
sögublóm. Þetta eru bleksvört blóm
sem eiga afar erfitt með að fanga at-
hygli vegfarenda, sem sjá lituðu
blómin frekar, og gera sér því sjaldn-
ast ferð til að skoða þau betur. Það
vantar einfaldlega einhvem miðil
sem sér um að dreifa fræjum þessara
blóma betur. Starf býflugunnar er
nauðsynlegt til að dreifa vel góðum
hlutum þrátt fyrir að hún sé óþolandi
kvildndi og eins er með fjölmiðlana.
íslensk myndasöguútgáfa er svo
sannarlega ekki í blóma og það eina
sem heldur henni lifandi í dag er út-
gáfa blaðanna Blek og „Gisp!“. ís-
lenskar bókaútgáfur hafa hingað til
verið meira fyrir það að gefa út þýdd-
ar bækur á borð við Sval og Val,
Tinna og Viggó. Nýjasta útgáfufé-
lagið, Nordic Comics, hefur hingað
til aðallega gefið út þýddar mynda-
sögur frá Frakklandi en hefur þó
dreift verkum Sigurðar Brynjólfs-
sonar, safnriti um Bísa og Krimma,
og hefur á stefnuskrá sinni að gefa út
fleiri alíslenskar myndasögur. Húrra
fyrir því!
Hitt Húsið og áhugamannahópur-
inn Blek hefur í tæp fjögur ár staðið
fyrir útgáfu „Hasarblaðsins Bleks“
þar sem íslenskir teiknarar og
myndasöguhöíúndar hafa fengið
tækifæri til að koma verkum sínum á
framfæri. Blaðið kemur út með
óreglulegu millibili, eða bara þegar
nægt efni hefur safnast saman.
Áhugamannahópurinn Blek er opinn
öllum þeim sem hafa áhuga á mynda-
sögugerð og er með aðsetur í Hinu
húsinu.
í blaðinu eru tvær framhaldssög-
ur, sem vonandi ná einhverntímann
að koma út í heild í einu blaði, og sjö
aðrar örsögur. Einnig er að finna í
blaðinu viðtöl við myndasöguhöfunda
og Búa Kristjánsson, útgáfustjóra
Nordic Comics.
Allar sögumar eiga það sameigin-
legt að það er sami aðih sem semur
sögurnar og teiknar þær. Þetta er
líklega stærsti galli blaðsins vegna
þess að það skín greinilega í gegn að
yfirleitt er meira lagt í teikningarnar
en sögugerðina. Besta dæmið er sag-
an „Endurfundir“ eftir Kanada-
manninn Paradi.
SkemmtUegasta sagan er „Hinn
blákaldi veruleiki“ eftir Eyrúnu
Eddu Hjörleifsdóttur, þar sem
stærstu spumingu mann-
kynsins; „Er líf eftir dauð-
ann?“, er svarað. Sagan er víst
búin að Uggja í skrifborðs-
skúffunni eitthvað fyrir
fmmsýningu „Matrix“-mynd-
arinnar, en hugmyndafræðin
er það svipuð að óneitanlega
hefði útgáfa myndasögunnar
verið heppilegri á undan
myndinni. Teikningar Eyrún-
ar em mjög smekklegar og
vonandi finnur hún sér ein-
hvem frítíma í framtíðinni tU
að gera fleiri sögur.
Blek er mjög þarft framtak í ís-
lenskri bókmenntaútgáfu þar sem
ungir teiknimyndasöguteiknarar og
höfundar geta stigið sín fyrstu skref
og eftir það er bara að stíga skrefi
lengra; fá menn sem ekki kunna að
teikna en em með afbragðshug-
myndir í kolUnum til samstarfs og
gera lengri og bitastæðari sögur í
einu stóm hefti eða bók.
Birgir Örn Steinarsson
tír myndasögu Eyrúnar Eddu Hjör-
leifsdóttur, „Hinn blákaldi veruleiki".
Robbie til bj argar
Ráðagóði Robbie breiðir út faðminn
fyrir bágstadda.
DÁÐ ADREN GURINN
og Islandsvinurinn
Robbie Williams er
ekki af baki dottinn þó
lítið hafi heyrst af tón-
listarsköpun hans upp
á síðkastið. Þessi fyrr-
verandi meðlimur tán-
ingasveitarinnar Take
That hefur nefnilega
fundið góðgerðarbein-
ið í sér.
Robbie segist lengi
hafa gengið með þann
draum í maganum að
stofna eigin góðgerðar-
samtök til styrktar þeim sem eiga
um sárt að binda og nú hefur sá
draumur ræst. Söngvarinn sællegi
vonast til að fleiri auðmenn sjái sér
fært að gefa til sjóðsins svo hann
megi vaxa og veita vegsemd mikla.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
sinn sem Robbie er svo ölmusugóð-
ur, hann vann ötullega við hjálpar-
störf á flóðasvæðunum í Mozamb-
ique nú nýlega og í fyrra tók hann
þátt í bólusetningarátaki við mænu-
sótt á Sri Lanka. Góður drengur og
vænn það.
dans og veislur í allt sumar
dans.......... . vsislusalur til leigu J*
• brúöarvalsinn
• free style
• salsa&mambó
• bugg & tjútt
• opnar æfingar fyrir
keppnisdansara.
Sóknarsalurinn
• brúðakaup
• afmæli
• útskriftir
sími 5619797
dans smiðjan
Skipholt 50 a / 105 Reyk a>/ík / Sími 561 9797 / danssmidjamffsimnet.is
i
i.Jbb Kr.
Slönguhjól
tekur 70 metra
"í?#B94ai
485 kr.
Úðabyssa
Skráðu þig $
í vefklúbbinn
www.husa.is
Garðslanga
50m/l/2”
verð
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is