Morgunblaðið - 09.07.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.07.2000, Blaðsíða 1
155. TBL. 88. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Konur í Portadown á leið heim eftir innkaup dagsins. Hersveitir eru í mikilli viðbragðsstöðu vegna ofbeldisað- gerða við Drumcree á N-írlandi undanfarna daga. Mikill viðbúnaður við Drumcree Portadown. Morgunblaðið. LIÐSMENN breska hersins voru í gærmorgun að leggja lokahönd á við- búnað sinn við Drumcree-kirkju í bænum Portadown á Norður-írlandi en reiknað er með að í odda skerist þar í dag vegna ákvörðunar yfirvalda að banna göngu Óraníureglunnar í gegnum hverfi kaþólskra í nágrenn- inu. Allar tilraunir til að miðla málum í deilunni hafa reynst árangurslausar og áttu menn von á því að meðlimir Óraníureglunnar kæmu mótmælum sínum vegna bannsins kröftuglega á framfæri í dag, og jafnvel að til átaka kæmi. Allt var rólegt í Portadown á föstu- dagskvöld en á laugardagskvöld átti að halda brennu í einu hverfa bæjar- ins og voru öiyggissveitimar við öllu búnar þess vegna. Ganga Óraníureglunnar hefst í miðbæ Portadown kl. 10 í dag, sunnu- dag, og halda Óraníumenn sem leið liggur upp að Drumcree-kirkju þar sem hlýtt verður á messu. Að því loknu höfðu þeir hugsað sér að halda göngu sinni áfram niður Garvaghy- veginn, þar sem búa nánast eingöngu kaþólikkar, en ljóst er að af því verður ekki því öryggissveitimar hafa komið fyrir víggirtum vegg og standa her- menn gráir fyrir jámum við vegginn og hyggjast vama Óraníumönnum vegar líkt og undanfarin þrjú ár. Hafa hermenn m.a. plægt upp tún sem stendur kirkjunnar megin við víggarðinn til að gera mótmælendum erfitt fyrir að standa fyrir óeirðum og gaddavír hefur einnig verið komið fyrir til að vama mönnum vegar. Þá sáust hersveitir æfa viðbrögð við áhlaupi um hádegisbil í gær. Eins og undanfarin sex ár hefur mikil deila staðið um þessa göngu Ór- aníumanna en íbúar Garvaghy-vegar- ins hafa komið þeim skilaboðum á framfæri að þeir vilji ekki að Óraníu- menn gangi fylktu liði í gegnum hverfi þeirra. Var það niðurstaða sér- stakrar göngunefndar bresku stjóm- arinnar að Óraníureglan yrði að hlíta þessum vilja íbúanna, Óraníumönn- um og mótmælendum á Norður-ír- landi almennt til mikillar óánægju en þeir telja brotið á rétti sínum til að halda 1 heiðri forna siði sína og venjur. Pauls Watsons ekki óskað í Færeyjum Þórshöfn. Morgunblaðið. „PAULS Watsons er ekki óskað í Færeyjum. Hann fær ekki land- vistarleyfi í nokkra Norðurland- anna án sérstakrar undanþágu. Og hana fær hann ekki frá okkur,“ sagði lögreglustjóri Færeyja, á föstudag eftir að flaggskip Sea Shepherd-samtakanna, Ocean Warrior, kom til eyjanna til að hindra grindhvaladráp en skipið mun halda sig þar í sumar. Vilja Færeyingar koma í veg fyrir árekstra og segja hvalfangarar að Færeyingar megi ekki láta slíkt eftir honum. Atök séu hans ær og kýr en slíkt „viljum við fyrir alla muni koma í veg fyrir“. Fylgjast lögregluyfirvöld og danska land- helgisgæslan grannt með ferðum Watsons. Eldflaugatilraun Bandaríkja- manna mistókst AP Eldflaug bandaríska hersins var skotið á loft frá Vanderberg-herstöð flugflotans í Kalíforn- íu um klukkan 4, aðfaranótt laugardags, að ís- lenskum tíma. Washington. AP, AFP, Reuters ELDFLAUGATIL- RAUN sú sem Banda- ríkjastjórn stóð að í gær mistókst er vam- arflaug náði ekki að granda eldflaug sem skotið hafði verið á loft frá Vanderberg-her- stöð bandaríska flug- flotans í Kalífomíu. Til- raunarinnar hafði verið beðið með eftirvænt- ingu víða enda voru nið- urstöður hennar taldar verða vísbending um það hvort Bandaríkja- stjóm léti verða af framkvæmdum við hið umdeilda eldflauga- vamakerfi sem fyrirhugað er að reisa. Embættismenn vamarmálai-áðu- neytis Bandaríkjanna sögðu í gær að flugskeyti, sem leitar uppi óvinaeld- flaugar og var áfast vamarflauginni hefði ekki náð að losna frá henni, eins og til stóð, og því hefði eldflaugin get- að haldið áfram að skotmariá sínu ó- áreitt. „Við komumst ekki í veg fyrir eldflaugina eins og við bjuggumst við í kvöld,“ sagði Ronald Kadish, undir- hershöfðingi í bandaríska flughem- um, við fréttamenn aðfaranótt laugar- dags. „Við erum vonsviknir yfir því.“ Mistökin era talin vera mikið áfall fyrir hörðustu stuðningsmenn eld- flaugavamaáætlunar Bandaríkjahers en í vikunni sem leið höfðu fyrirætlan- ir ríkisstjómar Bills Clintons Banda- ríkjaforseta verið harðlega gagn- rýndar af sumum stuðningsmönnum stjómarinnar sem og andstæðingum hennar sem segja að áætlunin muni aldrei geta virkað. Clinton mun taka um það ákvörðun síðar á árinu hvort haldið verði áfram á sömu braut, að undangengnu mati vamarmálaráðu- neytisins á meginforsendum slíks kerfis, þ.m.t. tilrauninni í gær. Vladimír Yakolev, hershöfðingi í rússneska hemum sem ákaft hefur gagnrýnt fyrirætlanir Bandaríkja- manna, sagði í viðtali við AP í gær að niðurstöður tilraunarinnar sýndu að áætlanir Bandaríkjastjómar gætu ekki virkað. „Samkvæmt núverandi hönnun getur eldflaugavarnakerfið ekki varið bandarískt landsvæði og tilraunir til að reisa slíkt kerfi munu verða innantómur og tilgangslaus fjáraustur." Pútín ávarpar rússneska þingið Sterkt o g miðstýrt ríki eina vonin Moskvu. Reuters. VLADIMÍR Pútín, forseti Rúss- lands, ávarpaði í fyrsta sinn báðar deildir rússneska þingsins í gær og lagði áherslu á að sterkt og miðstýrt ríki væri eina færa leiðin til að koma Rússlandi úr þeim þrengingum sem hafa hrjáð landið á undanförnum ár- um. Hét hann „nýjum sáttmála“ við aðþrengda rússneska þjóð og sagðist mundu gera allt sem í hans valdi stæði til að kollvarpa „einræði skuggaviðskiptanna" sem plagað hafa landsmenn undanfarin misseri. „Aðeins sterkt ríki - eða skilvirkt ef fólki mislíkar orðið sterkt - og lýð- ræðislegt ríki getur varið lýðræðis- leg réttindi þegnanna,“ sagði Pútín. Þá sagði Pútín í ávarpi sínu að Rússum væri óðum að fækka og lagði hann mikla áherslu á þá vá. Sagði hann þingmönnum að Rússum hefði fækkað um 750.000 árlega síð- ustu ár og að þeirri þróun yrði að snúa við. „Ef þetta heldur svo fram sem horfir er sjálfur lífvænleiki þjóð- arinnar í hættu,“ sagði Pútín í ávarpi sínu. Mæltist ávarp Pútíns afar vel fyrir meðal þingmanna sem á áram áður skutu háðsglósum að Borís Jeltsín, fyrirrennara Pútíns í starfi, við sama tækifæri. „Þegar Jeltsín tók til máls lá hálfur salurinn í hlátri,“ sagði Vasilý Shandýbin, varaformaður kommúnistaflokksins í gær. „Nú, í fyrsta sinn, lagði ég í raun við hlustir."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.