Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 43

Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ BRIDS llnisjón: Ouðmundur I'áll Arnarson SUÐUR á 25 punkta, en án tíguldrottningarinnar sem makker hans leggur í púkk- ið væri lítil von í þremur gröndum. En viðbót makk- ers gerir spilið ekki borð- leggjandi: Suður gefur; allir á hættu. Norður * 752 v 62 * D10963 * 753 Suður * ÁK8 v ÁKD ♦ KG4 + ÁG42 Vestur Norður Austur Suður 2lauf Pass 2 tíglar Pass 3grönd Pass Pass Pass Vestur kemur út með hjartagosa. Hvernig er best að spila? Þetta er einfalt ef vörnin tekur strax á tígulás, en ef ásinn er úti við þriðja eða fjórða spil verður dúkkað í tvígang, og þá fást ekki nema tveir slagir á litinn. Til hliðar eru sex slagir í háspilum, svo málið snýst um það að búa einn til í lauf- inu. Sem ætti að takast ef laufið er 3-3, en hvað með 4-2-leguna? Er þá einhver von? Norður + 752 y 62 ♦ D10963 + 753 Vestur Austur * G643 * D109 y G1097 y 8543 ♦ Á82 »75 + D9 * K1086 Suður ♦ ÁK8 y ÁKD ♦ KG4 + ÁG42 Til að byrja með ætti sagnhafi að spila smáu laufi að heiman. Hvort sem vörn- in kemur hjarta eða spaða til baka spilar sagnhafi næst tígulkóng og á slaginn. Þá leggur hann niður laufás- inn! Sem er lykilspilamenn- skan því þannig fellir hann háspil annað í vestur, eins og legan er. Síðan er tígul- gosinn yfirdrepinn (og auð- vitað dúkkar vestur). Inn- koman er svo notuð til að spila laufi að gosanum og þar kemur níundi slagurinn. Þetta er dæmigert vand- virknispil þar sem nauðsyn- legt var að „forvinna" lauf- litinn til að hægt væri að nýta tígulinnkomuna sem best. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara vii’ka daga og þriggja daga fyiúrvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reykjavík ÍDAG Hlutavelta Þessir duglegu krakkar söfnuðu 2.586 kr. til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Þau heita Ágúst Lofts- son og Kristín Margrét Jakobsdóttir. Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu 1.171 kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Þóra Katrín Gunnarsdóttir og Anna Kristín Einarsdóttir. skÆk Ilinsjón Ilelgi Áss Grétarsson Alexander Aljékín er sá heimsmeistari sem Garry Kasparov (2851) hefur einna helst tekið sér til fyrirmynd- ar. Fléttur og leiftrandi ímyndunarafl eru einkenni þeirra beggja ásamt þrosk- uðu stöðumati. Aljékín var svo ógæfusamur að andstæð- ingar hans vörðust hvergi nærri jafn vel og samtíðar- menn Kasparovs en það veldur erfiðleikum við að bera þessa miklu meistara saman. Staðan kom upp á risaatskákmóti Fu- jitsu-Siemens er lauk iyrir skömmu í Frankfurt í Þýskalandi. Stiga- hæsti skákmaður heims hafði hvítt gegn einum af hryggbrotnum áskorendum sín- um, Alexei Shirov (2751). 21.Bxg6! hxg6?! 21...£xg6 var leikur sem kom til greina þar sem eftir 22.Rxe6 Hxdl+ 23.Hxdl Kf7 er erfitt að sjá að hvítur hafi mikið meira úrað moða en jafntefli. 22.Rxe6! fxe6 23.Dxg6+ Kh8 24.Dxf6+ Kh7 25.Hhel Hxdl+ 26.Hxdl Dc5 27.g5 Hf8 27...DÍ8 hefði veitt harð- vítugri vöm þar sem eftir 28.g6+ Kg8 29.Dxe6+ Kg7 er sóknarkraftur hvíts minni en eins og skákin tefldist. 28.Dh6+ Kg8 29.Dxe6+ Kg7 30.Dh6+ Kg8 31.Dg6+ Kh8 32.Dh6+ Kg8 33.De6+ Kg7 34.Hd6! Be8 35.De7+! og svartur gafst upp enda tapar hann drottningunni eftir t.d. 35...HÍ7 36.Hg6+. UÖÐA B FÍOT EIR Jón Sigurðsson, forseti, standmynd, sem steypt er í eir, og stjarna, sem vökul á bládjúpum kvöldhimni skín. í sölnuðu grasinu þýtur hinn hvíslandi þeyr: Ó, þú, sem einn sólbjartan morgun varst hamingja mín. Ó, herra, sem sendir oss spámenn og spekingafans, og spanskgrænu heimsins þvoðir af volaðri sál. Eg hef legið á gægjum við ljóra hins nýríka manns, og látið mig dreyma hið fánýta veraldarprjál. Eitt þögult og dularfullt hús stendur andspænis oss, en enginn veit lengur til hvers það var forðum reist, og nafnlausir menn, eins og nýkeypt afsláttarhross, standa náttlangt á verði svo það geti sjálfu sér treyst. Og nóttin leggst yfir hið sorgmædda sjálfstæði vort. Úr saltabrauðsleik þessa heims er ég kominn til þín. Eg veit að mitt fegursta ljóð hefur annar ort, og aldrei framar mun dagurinn koma til mín. Jón Sigurðsson, forseti, standmynd, sem steypt er í eir, hér stöndum við saman, í myrkrinu - báðir tveir. Steinn Steinarr. SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 43 STJÖRJVUSPA eftir Frances llrake KRABBI Þú ert allur fyrir rannsóknir og athuganir á öllum sköp- uðum hlutum og átt til að vera stífur við aðra. Hrútur (21. mars -19. apríl) Hleýptu nú í þig kjarki og taktu til hendinni. Hálfnað er verk þá hafið er. Ljúktu þeim verkefnum, sem fyrir liggja áður en þú tekur að þér ný. Naut (20. apríl - 20. maí) Það gerist ekkert nema fólk tali saman. Brjóttu odd af of- læti þínu, hreinsaðu and- rúmsloftið og gakktu tii sátta við samstarfsmann þinn. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þótt aðrir kunni að hafa réttu svörin er óvíst hvort þeir hafi rétta afstöðu til mála. Hættu að reiða þig á aðra og farðu eftir eigin sam- vizku. Krabbi ^ (21. júní - 22. júlí) Þú mátt ekki lengur bara einblína á vinnuna, því nú er þér nauðsyn að einbeita þér að þínum innri manni. Holl hugleiðsla og bæn eru beztu ráðin. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) m Vertu nú stór og sýndu öðr- um vinskap, líka þeim, sem þér er Htið um gefið. Hrana- skapurinn hefur ekkert upp á sig en góðvildin sigrar allt og alla. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) iStfL. Varaðu þig á því að festast í einhverju leiðindafari. Brjóttu þér nýjar leiðir og bættu við menntun þína til að mæta nýjum áskorunum. V°g HTX (23.sept.-22.okt.) Þér vinnst ekki tími til þess að framkvæma allar þínar hugmyndir. Vinzaðu þær úr, sem þér finnast beztar, og einbeittu þér að því að hrinda þeim í framkvæmd. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Það er oft skammt öfganna á milli. Reyndu að finna skoð- unum þínum farsælan farveg og fylgdu þeim þar eftir, þótt meðalhófið sé vandratað. Bogmaður % ^ (22. nóv. - 21. des.) SCr Þótt þú eigir erfitt með að sætta þig við takmarkanir, sem starfi þínu eru settar, þá skaltu líta til þess að þær eru þér í hag. Steingeit „ (22. des. -19. janúar) 4K Nú er komið að því að þú þarft að leita til vina og vandamanna um aðstoð, ef þú ætlar að koma hugðarefni þínu í endanlegan búing. Vertu óhræddur. Vatnsberi f . (20. jan. - 18. febr.) Láttu sem minnst á því bera, hvað þú heldur um framtak samstarfsmanna þinna. Þeir munu á endanum komast að þvi að þú ert þeirra lykilmað- Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þótt þú hafir aldrei litið á sjálfan þig sem listamann, er ekki þar með sagt að þú getir ekki haft gaman og gott af því að stunda listsköpun. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Útsalan T, hefst á morqun Tiskuverslunin ° Smort Grímsbæ, s:t 588 8488 Flugulínur undirlínur taumar girni Grandagarði 2 | Reykjavík | sími 580 8500 J! Sumarferð Dómkirkjunnar Fimmtudaginn 13. júlí verður farin árleg ferð eldri borgara. Farið verður kl. 13 frá Safnaðarheimilinu í Lækiargötu 14a. Ekið verður að Skógum undir Eyjafjöllum þar sem drukkið verður kaffi, byggðasafn- ið skoðað og höfð helgistund í safnkirkj- unni. Innritun í ferðina verður í síma 5622755 kl. 10-12 á mánudag og þriðjudag. Gjald er kr. 800. 1965 vv 2000 c GLERAUGNABUDIN Hclrrxjut Krekller D 35% afmælisafsláttur af gleraugum í júlí Gleraugnabúðin, Laugavegi 36, s: 5511945. áTTÁPAN' Laugavegi 66, sími 552 5980,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.