Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 56

Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 56
VlÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR Á HEIMSMÆLIKVARÐA <Q> NÝHERJI S: 569 7700 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍms69UOO, SÍMBRÉF569 USl, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII SUNNUDAGUR 9. JULI 2000 VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK. Fjárhund- ar leika .listir sínar ÞARNA er skoski fjárhundurinn Snerpa á ferð. Hún heldur kindun- um, sem henni hefur verið falin um- sjón með, saman í þéttum hópi og rekur þær til og frá samkvæmt skipunum. Þegar Snerpa leggst niður staðnæmast kindurnar en halda þétt hópinn, reiðubúnar til að hlaupa næst þegar Snerpa stekkur af stað. Snerpa er ein margra hunda sem taka þátt í sýningu Vestur- landsdeildar Smalahundafélags Is- lands á skoskum fjárhundum. Fjár- hundasýningin er hluti af landbúnaðarsýningunni Bú 2000 í Laugardal og leika skosku fjár- vJiundarnir listir sínar á túni við hlið Laugardafshallar á klukku- stundarfresti yfir daginn. Morgunblaðið/Kristinn * 1 Góð veiði Grímsey Grímsey. Morgfunblaðið. MJÖG góð veiði hefur verið hjá sjó- mönnum í Grímsey nú síðustu daga að sögn Gunnars Hannessonar, skipstjóra á Sæbjörgu EA 184, og eru menn að fá allt að þrjú til fjögur tonn á smæstu bátana. Veiðin er góð bæði á færi og línu. Veiðin fór rólega af stað í byrjun en hefur vaxið mikið. Aðallega eru menn að físka í kring- um eyna og norður að Kolbeinsey. Að sögn Gunnars er hann ánægð- ur með aflann en öðru máli gegni með selinn. Hann segir hann vera algera plágu hér á Norðurlandinu á vorin og fara versnandi. „Selurinn kemur eftir fengitímann alveg glor- hungraður og er hér í um mánuð. Hann bítur á kviðinn, sýgur lifrina og eyðileggur fískinn. Við höfum reynt að færa netin en hann finnur þau alltaf aftur og aftur,“ sagði Gunnar. Hann bætti því við að nauð- synlegt væri að yfírvöld færu að gera eitthvað í þessu máli. Affoll húsbréfa hafa aukist úr 9% í 14% AFFÖLL á húsbréfum hafa aukist talsvert það sem af er mánuðinum og voru afföll á nýjasta flokki hús- bréfa, sem mest viðskipti eru með, 14,34% á fóstudaginn. Fyrir mánuði námu afföllin 9,04%. Guðmundur Bjamason, framkvæmdastjóri Ibúðalánasjóðs, sagði að þessi miklu afföll endurspegluðu hátt vaxtastig í landinu. Þrátt fyrir mikil affoll hefur lítið dregið úr umsóknum um hús- bréf. Miklar sveiflur hafa orðið á ávöxt- unarkröfu húsbréfa að undanförnu. Afföllin jukust hratt í maí og fóru þá Mikil afföll sögð endurspegla hátt vaxtastig í landinu Geysir gýs enn EKKI virðist ætla að draga úr virkni á Geysissvæðinu í Hauka- dal og enn gýs Geysir, að sögn Más Sigurðssonar, áhugamanns um Geysissvæðið. Nýir hverir eru enn að koma í ljós að sögn Más. Geysir skvettir úr sér með um 8 tíma millibili og Strokkur gýs hærra og oftar en hann á vanda til. Undir þetta tek- ur Þórir Sigurðsson í Haukadal, en hann hefur einnig fylgst með breytingunum á svæðinu. Eins og flestum er kunnugt jókst virkni á hverasvæðinu í Haukadal mikið í kjölfar Suður- landsskjálftanna. Þórir segir breytingarnar þó ekki allar á þann veginn. Lækkað hafi í nokkrum hverum á svæðinu og virkni þeirra minnkað, þótt heildarvirkni svæðisins sé vissulega meiri en áður. Ferðamönnum var talin stafa hætta af Geysi ef hann gysi skyndilega. Því var rauf sem gerð hafði verið fyrir alllöngu í skál Geysis stífluð með torfi og sandpokum til að draga úr gos- virkni. Geysir gýs þó enn. hæst í nærri 20%. Affóllin minnkuðu í lok mánaðarins og í byrjun júní voru þau komin í 9%. Affóllin jukust aftur eftir að Seðlabankinn tilkynnti hækkun vaxta 16. júní sl. og á föstu- daginn náðu afföllin nýju hámarki þegar þau fóru upp fyrir 14%. „Meðan stjórnvöld eru að hækka vexti í landinu er þess vart að vænta að ávöxtunarkrafa húsbréfa lækki. Þetta er því í takt við það sem er að gerast á markaðinum. 14% afföll eru meira en við viljum sjá. Við teljum að við þessar aðstæður sé óraunhæft að gera ráð fyrir að afföllin fari niður í núll, en við teldum að það væri kannski hægt að sætta sig við 6-8% afföll eins og aðstæðurnar eru,“ sagði Guðmundur. Ibúðalánasjóður ætlar að kaupa húsbréf fyrir 6 milljarða Guðmundur sagði að íbúðalána- sjóður ætti erfitt með að hafa mikil áhrif á markaðinn. Það hefði þó ver- ið ákveðið að sjóðurinn keypti hús- bréf á markaðinum í þeim tilgangi að draga úr spennu. Hann hefði keypt húsbréf fyrir 500 milljónir í júní, en hann hefði verið búinn að kaupa fyrir 1,3 milljarða fyrr á ár- inu. íbúðalánasjóður áformaði að kaupa húsbréf fyrir samtals um 6 milljarða á árinu, en markaðsaðilar hefðu ráðlagt sjóðnum að dreifa þessum kaupum yfir árið. Um síð- ustu mánaðamót tóku Landsbankinn og Búnaðarbankinn við viðskipta- vakt með húsbréf, en Guðmundur sagði að þess væri ekki að vænta að sú breyting yrði til að snöggar breytingar yrðu ó markaðinum. Guðmundur sagði að um 750 um- sóknir um húsbréfalán hefðu borist í júní, en að meðaltali bærust um 800 umsóknir á mánuði. Venjulega dreg- ur úr umsóknum yfir sumarmánuð- ina. Heildarviðskipti með húsbréf á Verðbréfaþingi íslands námu 590 milljónum á föstudaginn og 1.672 % ÁVÖXTUN HÚSBRÉFA 98/2 milljónum alla vikuna. Talsvert dró úr viðskiptum með húsbréf í maí þegar affóllin voru sem mest og voru viðskiptin t.d. ekki nema 400 milljón- ir í vikunni þegar afföllin fóru upp undir 20%. Guðrún Árnadóttir, formaður Fé- lags fasteignasala, sagði að þessi miklu afföll á húsbréfum hefðu haft þau áhrif að dregið hefði úr fast- eignaviðskiptum. Hún sagði afföllin endurspegla vaxtastigið í landinu. Afföll segðu einfaldlega til um hvaða kröfu fjárfestar gerðu um ávöxtun. Húsbréf bera 5,1% vexti en kjör- vextir á almennum skuldabréfalán- um eru á bilinu 12-13%. Elsta ljósmyndin af Islandi á sýningu ®BÚNAÐARBANKINN Tmatur bomU 170 tr FYRSTU ljósmyndir sem teknar voru á íslandi, á árinu 1845, eru á sýningu sem opnuð var um helgina í Hafnarborg. Myndirnar eru svokall- aðar sólmyndir, teknar með hinni fyrstu daguerro-aðferð af franska Ijósmyndaranum Des Cloizeaux og hafa varðveist í Musée des arts et métiers du C.N.A.M. í París sem lánaði frummyndirnar hingað. Þetta eru að sjálfsögðu mjög dýr- mætar myndir og sendiboðinn sem sérstaklega kom með þær hingað var djúpt snortinn yfir að geta nú komið með myndirnar til Islands 150 árum eftir að þær voru hér teknar. Þessar tvær fyrstu myndir sem teknar voru utandyra á koparplötur af Reykjavík og skipalæginu eru á sýningu á ijósmyndum sem franskir ljósmyndarar tóku hér á landi á ár- unum 1845-1900, hluti þeirra feng- inn að láni úr frönskum söfnum og hluti úr Þjóðminjasafni íslands. Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur, sem búsett er í Frakklandi, hefur í mörg ár gert leit að slíkum ljós- myndum í frönskum söfnum, og gef- ur nú að líta fjölda þeirra, sem aldrei hafa sést hér fyrr, á sýningunni í Hafnarborg, sem er á vegum Hafn- arborgar og Þjóðminjasafns í tilefni þess að Reykjavík er menningar- borg Evrópu árið 2000. Hafa frönsku söfnin lánað hluta af þessum fundnu myndum af því tilefni. Samtímis kemur út á vegum JPV- forlagsins vegleg myndabók eftir Æsu Sigurjónsdóttur með öllum myndunum og lesmáli á íslensku og frönsku undh nafninu Island í sjón- máli, franskir ljósmyndarar á Is- landi 1845-1900. ■ ísland/bls 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.