Morgunblaðið - 09.07.2000, Side 12
12 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
f
Lax, sióbirt-
ingur,
Lax og urriði (sjdbirtingur) telj-
ast til laxfíska. Þessir fískar
klekjast í rennandi vatni og eru
þar sem seiði en ganga síðan til
sjávar eða í stöðuvötn.
Laxinn hrygnir í rennandi
vatni og binst uppeldisstöðvum
sínum sterkum böndum. Laxa-
seiðin ganga til sjávar eftir 2-5
ár þar sem þau dvelja næstu 1-3
árin. Laxinn er ránfískur og
urriði
stækkar ört í sjónum. Kyn-
þroska snýr hann aftur á upp-
eldisstöðvarnar og hrygnir.
Urriðar eru ýmist staðbundn-
ir og lifa í stöðuvötnum og ám
eða ganga til sjávar og kallast
þá sjóbirtingur. Þeir geta snúið
aftur í ferskvatn og gengið til
sjávar nokkrum sinnum áður en
þeir verða kynþroska og hrygna
þá yfirleitt í sinni heimaá.
Laxalús
Laxalús er krabbadýr og algengt
sníkjudýr á laxfískum. Lúsin
fínnst einungis á laxfískum í sjó,
en drepst fljótlega eftir að fískur-
inn gengur í ferskt vatn. Lúsin
verpir eggjum og úr þeim koma
lirfur. Frá einni laxalús geta kom-
ið 200-1.200 lirfur sem dreifast
um sjóinn. Lirfumar berast með
straumum eða synda um í allt að
þijár vikur þar til þær finna lax-
fisk og festa sig við hann. Þær
ganga í gegnum fjögur þroska-
st.ig án þess að hreyfa sig og lifa
Laxalýs á ýmsum ævistigum.
þá á Iíkamsvessum físksins. Á
næstu tveimur þroskastigum get-
ur lúsin hreyft sig til og lifir þá á
slími og roði fisksins. Bit þeirra
getur valdið sárum og sýkingum
og dregið fískinn til dauða.
Villtur lax er í út-
rýmingarh ættu
Morguntalaðið/Guöni Einarsson
Dr. James Butler með fisk sem rataði í gildru
hans í Dondonnell ánni.
Dr. James Butler
líffræöingur hefur
starfaö hjá Wester
Ross Fisheries
Trust frá stofnun
þessfyrirtæpum
fjórum árum.
/
IWester Ross starfa
sex fiskeldisfyrir-
tæki sem reka
klak- og seiðaeldis-
stöðvar og sjókvíar
á 17 stöðum. Þar eru alin
um 20 þúsund tonn af laxi.
Að sögn dr. Butlers er
ástandið fremur dapurlegt
í ánum í Wester Ross. I
sumum er engin veiði og
öðrum enginn villtur lax.
Þar af leiði að það komi
ekki lengur stangveiði-
menn; leiðsögumenn og
veiðiverðir atvinnulausir.
Hótel sem sérhæfðu sig í
móttöku veiðimanna reyna
nú að laða fólk í strand-
veislur og hafa tilboð fyrir
ellilífeyrisþega.
Stangveiðin var áður
mikilvægur atvinnuvegur
og segir dr. Butler að sam-
kvæmt könnun sem gerð
var 1994 hafi hver veiddur
fiskur, hvort heldur lax,
urriði eða sjóbirtingur,
skilað 100 pundum (11-12
þúsund krónur) inn í efna-
hagslíf héraðsins. Dr. But-
ler nefnir sem dæmi hótel
við Loch Maree. Aður fyrr
veiddust um 2.000 sjóbirt-
ingar þar á ári og voru átta
leiðsögumenn í fullri vinnu
yfir veiðitímann. Nú veið-
ast um 100 sjóbirtingar og
er einn leiðsögumaður í
hlutastarfi.
Slys undir yfirborðinu
Dr. Butler segir að
ástand laxastofna á svæð-
inu sé mjög alvarlegt og
hætt við útrýmingu þeirra.
Sjóbirtingurinn sé ekki í
útrýmingarhættu vegna
þess að alltaf verði urriða-
hrygnur sem hrygni og
viðhalda stofninum. Lax-
inn gangi hins vegar allur í
sjó og ef allir fiskamir týn-
ist í sjónum þá komi eng-
inn lax til baka. „Urriða-
stofninn er í góðu lagi, en
það verður ekki það sama
sagt um laxinn og sjóbirt-
inginn. Það bendir til þess
að vandamálið tengist haf-
inu,“ sagði dr. Butler. Nú
eru uppi áætlanir um að
ala seiði villtra laxa þar til
þau verða kynþroska og
sleppa síðan seiðum af
þessum náttúrulegu stofn-
um í árnar sem þau eru
ættuð úr. Dr. Butler segist
standa frammi fyrir þeim
vanda að í sumum ám sé
ekki lengur neinn fiskur til
að rækta undan. I þær
verði líklega flutt seiði
undan fiski úr nærliggj-
andi ám. Hann sagði að
þarna hefði orðið umhverf-
isslys. „Ef í hlut hefðu átt
tígrisdýr eða önnur land-
dýr í útrýmingarhættu,
sem fólk sér alla jafna, þá
hefði þetta verið kallað
umhverfisslys. En fiskam-
ir eru undir vatnsyfirborð-
inu og enginn sér þá,“
sagði dr. Butler. Fiskeldið
er pólitískt viðkvæmt mál
að hans sögn og ekki hjálp-
ar heldur að laxveiði hefur f
lengstum verið álitin yfir-
stéttariðja.
Einsleitir eldisfiskar
Margir óttast að eldis-
fiskai- sem sleppa parist
við villta fiska og valdi
þannig erfðamengun.
Eykst ekki hættan á því
þegar villti stofninn er fá-
liðaður og veikburða?
„Sé villti stofninn heil- [
brigður þá mundi erfða-
blöndunin gefa af sér van- fc
hæfari einstaklinga sem fj:
yrðu líklega undir í lífsbar-
áttunni. En, ef villti stofn-
inn á í vök að verjast, af
hvaða ástæðu sem er, þá
era meiri líkur á að blönd-
uðu fiskarnir hfi af. Vand-
inn við eldisfisk er að hann
rekur ættir sínar til mjög
fárra forfeðra. Það era s
ræktaðar milljónir fiska
undan fáeinum einstak-
lingum. Erfðafræðileg fjöl-
breytni er því lítil, þetta er
næstum því einræktun.
Það er ágætt upp að vissu
marki. En ef einhver
hörmung steðjar að í um-
hverfinu, til dæmis þurrk-
ur eða mjög kaldur vetur, -
eitthvað sem eldisfiskur-
inn ræður ekki við - þá ,
drepst hann líklega allur.
Villtu dýrin búa yfir |j
miklu meiri erfðafræði- jí
legri fjölbreytni og því
meiri líkur á að einhverjir
einstaklingar lifi af. Þann-
ig virkar náttúraval! Nú
hefur gengið svo á villtu
stofnana að þeir era ákaf-
lega berskjaldaðir gagn-
vart útrýmingu vegna eld-
isfiska."
Dr. Butler segir vand-
ann sem steðjar að laxfisk-
unum mai-gslunginn.
„Einn höfuðvandinn er
hækkandi hitastig í úthaf-
Loch Linnhe heldur sé fækkun full-
vaxinna fiska farin að draga úr nýlið-
un í öðram hlutum vestanverðra Há-
landa.
Leitað nýrra leiða
Samskipti fiskeldismanna og
þeirra sem bera hagsmuni villtu
fiskistofnanna fyrir bijósti hafa ekki
verið upp á það besta, að sögn dr.
Watts. Til þessa hafa þeir aðallega
talast við í fjölmiðlum. „Það hefur
meira einkennst af gagnkvæmum
ásökunum en leit að lausnum, menn
hafa reynt að forðast vandann. í árs-
byrjun 1999 áttum við fund með þá-
verandi fiskimálaráðherra, Sewell lá-
varði, og lögðum til að unnið yrði að
því að þeir sem ættu hagsmuna að
gæta vegna villtu laxfiskanna og fisk-
eldismenn hittust og leituðu lausna.
Nú hefur verið settur á laggimar
þríhliða starfshópur þar sem eiga
sæti fulltrúar fiskeldisgreinarinnar,
fulltrúar þeirra sem hafa hagsmuni
af villtum laxfiskum og bera velferð
þeirra fyrir brjósti, og fulltrúar
skosku heimastjómarinnar."
Dr. Watt segir að þessi starfshóp-
ur hafi komið með ýmsar tillögur,
m.a. að gerðir verði samningar um
stjómun svæða, þ.e. einstakra fjarða
og hluta strandlengjunnar. Einn af
meginþáttum slíkra samninga verði
ákvæði um fækkun laxalúsa í laxeld-
isstöðvunum. Sérstaklega áður en
seiðin ganga til sjávar úr ánum. Þess-
ir samningar um svæðisstjórnun
hafa aðallega verið á herðum stað-
bundinna fiskverndarfélaga, t.d.
LDFT. Dr. Watt leynir ekki áhyggj-
um sínum af því að allt þetta ferli sé
handaþvottur af hálfu skosku heima-
stjómarinnar. Hún forðist að axla
ábyrgð með því að taka sjálf á vand-
anum en ýti honum til staðbundinna
aðila - geri þetta að staðbundnum
vandamálum.
„Við reyndum að gera þeim það
ljóst að heimastjórnin yrði að vera
hluti af þessu ferli, því á endanum
hlýtur að verða krafist stefnubreyt-
ingar í málefnum fiskeldisins," segir
dr. Watt. Þrátt fyrir allt er ekkert
betra í boði um þessar mundir og því
reyna menn sitt besta til að ná ein-
hvers konar samkomulagi. Hann
segir að reynsla íra bendi til þess að
hægt sé að ná stjóm á laxalúsinni og
það leiði til bata fyrir villtu laxfisk-
ana.
Sloppnir fiskar á flækingi
LDFT og Lochaber Salmon Fish-
eries Board eiga nú í viðræðum við
tvö stór fiskeldisfyrirtæki um stjóm-
un á tveimur innfjörðum. Enn hefur
ekki verið komist að neinu samkomu-
lagi. A borðinu liggja tvö samnings-
uppköst, en dr. Watt treysti sér ekki
til að segja hvort nokkuð yrði af
samningum. „Eitt af því sem við vilj-
um er að Iaxalúsum, sem verpa síðla
vetrar og á vorin, verði eytt áður en
gönguseiðin fara til hafs. Það er stórt
verkefni og getur reynst erfitt fyrir
fiskeldisfyrirtækin að uppfylla. Við
viljum einnig fá að fara í laxeldis-
stöðvamar og fylgjast með ástandinu
í kvíunum, telja lýsnar á hinum ýmsu
árstímum. Eins viljum við fá að vita
af lyfjagjöf. Það er ákaflega mikil-
vægt að samkomulag náist um gagn-
kvæma upplýsingagjöf. Nú höfum
við engin ráð til að fylgjast með því
að staðið verði við samkomulag, sem
kann að verða gert, hvað þá að fram-
fylgja því. Þess vegna er svo mikil-
vægt að skoska heimastjómin eigi
beina aðild að samkomulaginu. Þeir
eru þeir einu sem geta beitt þvingun-
araðgerðum til að staðið verði við
samninga."
Aðspurður um fiska sem sleppa úr
eldisstöðvum sagði dr. Watt erfitt að
fá áreiðanlegar upplýsingar um
fjöldann. Oft skýli menn sér á bakvið
viðskiptaleynd og að þeir einu sem
eigi að vita hið sanna séu fiskeldis-
mennirnir sjálfir og skosk stjórnvöld.
„Við höfum komist að því að atriði á
borð við útbreiðslu sjúkdóma og
sloppna fiska era sveipuð leynd. Mín
persónulega skoðun er sú að það sé
rangt. Sjúkdómar og sloppnir fiskar
snerta villta fiskistofna og kemur því
verndarsamtökum og öðram at-
vinnugreinum við. Stangveiðar vora
mikilvæg atvinnugrein og þegar at-
hafnir eins skemma fyrir öðram
finnst mér fáránlegt að sveipa þær p
athafnir leynd.“
Önnur áhyggjuefni era möguleik- !
arnir á erfðamengun villtu stofn-
anna, eins að smitsjúkdómar breiðist
út. Dr. Watt segir að þau hjá LDFT
hafi til dæmis veitt eldislax smitaðan
af ISA-veiki.
Töluvert er um að sloppnir eldis-
fiskar flækist upp í árnar. „Við höfum
fundið eldislaxa í flestum ám í Loeha-
ber og þeir fjölga sér þar. Það eru te
heilmiklar upplýsingar til í Noregi
um hrygningu eldislaxa í laxám. Til LS
dæmis í ánni Vosso í Vestur-Noregi,
þar hafði eldisfiskur hreinlega yfir-
tekið ána. Yfir 80% af hrygningarhol-
unum í ánni vora frá eldishrygnum,"
segir dr. Watt. Hann nefnir laxveiðiá
í Lochaber þar sem allir stangar-
veiddir fiskar í fyrra vora eldisfiskar.
Þetta sé áhyggjuefni þegar litið sé til
afkomumöguleika náttúralegu stofn-
anna. Dr. Watt óttast að eldisfiskar ||,
parist við villta fiska og þannig tapist jf í
arfgerð stofna sem aðlagast hafa
staðbundnum aðstæðum.
Hann segir að til þessa hafi menn
fyrst og fremst fengist við einkennin,
í stað þess að ráðast að sjúkdóms-
valdinum. Nú era uppi hugmyndir
um að spoma við öfugþróuninni og
reyna að endurreisa lífríki ánna.
Áform era uppi um að safna seiðum,
þar sem þau fínnast, og ala í seiðaeld-
isstöðvum til kynþroska. Þannig g|
verður hægt að varðveita stað- j
bundna stofna og sleppa síðan af-
kvæmum þeirra í sínar uppranaár.