Morgunblaðið - 09.07.2000, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 15
FLF enn mjög sterk tök.
Keizo Obuchi forsætisráðherra
veiktist skyndilega í byrjun apríl og
lést síðan í maí. Var ákveðið að
halda opinbera útför Obuchi í byrj-
un júní og kosningar síðar í þeim
mánuði en áður en Obuchi veiktist
hafði verið talið líklegast að kosn-
ingar færu fram í haust. Er ekki
laust við að sá grunur hafí læðst að
mönnum að kosningadagurinn hafi
verið ákveðinn með það í huga að
notfæra sér samúð almennings til að
auka fylgi stærsta stjórnarflokks-
ins, ekki síst þar sem kosningadag-
urinn var afmælisdagur hins ný-
látna forsætisráðherra. í júní,
stuttu fyrir kosningarnar, létust síð-
an tveir aðrir af helstu framámönn-
um flokksins, Seiroku Kajiyama,
fyrrverandi aðalritari flokksins, og
Noboru Takeshita, fyrrverandi for-
sætisráðherra og einn valdamesti
stjórnmálamaður síðustu ái-atuga í
Japan. Takeshita var leiðtogi sterk-
ustu klíkunnar innan FLF. Obuchi
tók við forystu hópsins árið 1992 en
þrátt fyrir það hafa áhrif Takeshita
verið mikil. Hann kom sjálfur
nokkrum af helstu stjórnmálamönn-
um Japans til hæstu metorða auk
þess að hafa mjög gott lag á að
koma á pólitísku samkomulagi við
stjórnarandstöðuna á bak við tjöld-
in. Til marks um áhrif hans má
nefna að þar til í apríl íhuguðu
frammámenn flokksins alvarlega að
láta Takeshita bjóða sig fram þrátt
fyrir að hann væri búinn að vera á
sjúkrahúsi í heilt ár og hefði ekki
sést á meðal almennings á þeim
tíma. Höfðu aðrir leiðtogar flokks-
ins séð um að heimsækja kjördæmi
hans með reglulegu millibili á með-
an á sjúkrahúsvist hans stóð.
Þingsæti „erfðagripir“
Ekki er að sjá að lát þessara
áhrifaríku stjórnmálamanna hafi
haft mikil áhrif á gengi flokksins í
kosningunum en fjölmiðlar gerðu
því skóna að nú væru að verða mikil
kynslóðaskipti í stjórnmálum lands-
ins og von á breytingum. Meðan lit-
ið er svo á að þingsæti séu nánast
erfðagripur ákveðinna fjölskyldna
eru hinsvegar ekki miklar líkur á
stórfelldum umskiptum. Flokkurinn
var ekki lengi að finna „erfingja" í
sæti þessara þingmanna. Tuttugu
og sex ára gömul dóttir Obuchi, Yu-
ko Obuchi, bauð sig fram í kjör-
dæmi föður síns, jafn gömul og
hann var þegar hann var fyrst kos-
inn til þings sem þótti mjög við
hæfi. í kjördæmi Kajiyama bauð
sonur hans, Hiroshi Kajiyama, sig
fram og Wataru Takeshita fór fram
í kjördæmi bróður síns. Fengu allir
þessir nýju frambjóðendur yfir-
burða kosningu án þess að þeir
hefðu mikla reynslu af stjórnmálum
eða að mikið væri vitað um stjórn-
málaskoðanir þeirra. Er nú svo
komið að 174 þingmenn, eða um
25% teljast til annarrar eða þriðju
kynslóðar stjórnmálamanna.
Þing kom saman 4. júlí til að
kjósa forsætisráðherra og fór þar
eins og við var búist, Mori hlaut
góða kosningu. Að þessu sögðu
mætti ætla að Mori ætti eftir að
sitja í stóli forsætisráðherra um
nokkra hríð. Framundan er hins-
vegar G-8 fundurinn, fundur helstu
iðnríkja heims, sem Japan heldur í
Okinawa 21. júlí. Japanir telja að ef
hann heppnist vel muni hann hafa
mikil og góð áhrif á stöðu landsins á
alþjóðavettvangi. Mori hefur hins-
vegar verið gagnrýndur fyrir að vita
lítið um utanríkismál auk þess sem
honum hættir mjög til að tala af sér
og er ekki laust við að margir séu
taugastrekktir yfir fundinum. En
hvort sem Mori tekst að komast
stórslysalaust frá fundinum eða
ekki er líklegt að hann verði látinn
víkja fljótlega. Það hefur einkennt
mjög ríkisstjórnir FLF að forsætis-
ráðherrann er ekki alltaf valdamest-
ur heldur er honum stjórnað af
mönnum bak við tjöldin. Innan FLF
er nú nóg af keppinautum sem vilja
fá að komast að völdum. Tækifærið
gæti komið fljótlega því kosningar
til efri deildar verða haldnar næsta
sumar og vill forysta FLF þá að öll-
um líkindum forðast aðrar eins deil-
ur um hæfni forsætisráðherrans.
Því er líklegt að aðal átökin fram-
undan verði ekki milli stjórnar og
stjórnarandstöðu heldur innan FLF
um það hver fær að setjast í for-
sætisráðherrastólinn.
Við breytum uppáhaldsljósmyndinni
þinni ífallega krosssaumsmynd
❖ Handunnið ❖ Verð 75.000 kr.
❖ Stærðir um 20 x 20 sm ❖ Afhendingartími um 4 mán.
Ef þú hefur áhuga sendu þá Ijósmyndina þína til:
❖ APARTADO DE CORREOS NO. 323 ❖
08080 Barcelona, Spánn.
Mundu að skrifa nafn þitt og heimilisfang svo við getum sent þér myndina
þegar hún er tilbúin.
Nýjar vörur
Verðdæmi:________________
Jakkar frá kr. 4.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 1.500
Kvartbuxur kr. 2.500
Stuttbuxur og
bermudabuxur frá kr.1.900
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
Mýkingarefni sálarinnar
APÓTEKIÐ SUÐURSTRÖND
Kynning
morgun
frá kl. 14-17
llmkjarnaolíur, nuddolíur.freyðibað,
sturtusápa, augnmaski og andlitsúði frá
KELSOK&RUSSELL
AROMATHERAPY
Apótekið Suðurströnd
S. 561 4600
‘Bréf tííÚftöfam
Ágœti Ríófari.
Heimsklúbburinn þakkar undirtektir þínar og staðfestingu á þátttöku í heimsreisunni til
íftjó de Janeiro 15.-23. ofct. 2000.
AUGLÝSING
Ferðin hefur hlotið verðskuldaða athygli, enda um stórviðburð að rœða í íslenskri ferðasögu, því að aldrei hefur
verið flogið í einum áfanga, og aldrei í íslenskri flugvél áður á þessari leið, og aldrei jafnstór hópur farið í
heimsreisu áður frá íslandi. Áfangastaðurinn RÍÓ er heldur ekkert venjulegur, svo framandi og spennandi að
farþegar byrja strax að upplifa ferðina sem œvintýri eða reifarakennda spennusögu. Enn riður Heimsklúbburinn-
Príma á vaðið með ferðanýjungar handa tslendingum, og hefur verið ifararbroddi í 20 ár. Sumum þótti fifldjarft
að ráðast í breiðþotuflug til CAPE TOWN, Suður-Afríku um síðustu páska, en ferðin fylltist og er almennt rómuð
af þeim, sem tóku þátt í henni, enda heppnaðist hún með ágætum. Ríóferðin er jafnframt 20 ára afmælisferð
jyrirtœkisins. Heimsklúbbnum er ánœgja að því að tilkynna, að staðfestar pantanir til Río eru orðnar 4Ó0, og
aðeins dagaspursmál, hvenær hún fyllist alveg. Til ferðarinnar hefur verið samið um bestu flugvélargerð sem völ
er á hjá ATLANTA, Boeing 747-300, sem tekur 30 ntanns í betri sœti á viðskiptafarrými fyrir aðeins kr. 39 þús.
aukagjald, auk 440 á almennu farrými, þar sem miklu rýmra er milli sæta en tíókast í leiguflugi. Vandað er til
veitinga, þjónustu og skemmtunar á leiðinni, svo að tíminn líður fljótt. Hugmyndin um morgunkaffi heima hjá sér
en kvöldverð í Río hinn 15. október er því í fullu gildi. Bæði þægindin og verðgildið er óumdeilt, enda hefur verið
bent á, að jafnvel á viðskiptafarrými er fargjaldið lægra hlutfallslega en ferð innanbæjar með strætisvagni! Búið
er á ágætum hótelum með vali á 3*-5* eftir óskum farþega, og morgunverður innifalinn. Til að tryggja betri
þjónustu og afstýra töfum og bið, var ákveðið að dreifa farþegum á 6 gististaði, sem eru þó allir á sama svœði í
„besta horninu á Ríó“, og stutt á frœgustu strendur heimsins, Copacabana og Ipanema og hið orðlagða næturlíf.
íslendingar eiga því kost á félagsskap af löndum sínum, en njóta þó sérkenna og dásemda staðarins, án þess að
hafa á tilfinningunni að vera í neinni "þjóðarnýlendu."
Ráðgert er, að 10 íslendingar annist fararstjórn, þjónustu og leiðsögn í kynnisferðum, til að tryggja jyllstu ánægju
af ferðunum og ferðinni í heild, þar af einn búsettur í Ríó í áratug. Allt þetta krefst mikils undirbúnings og
tilkostnaðar, og er því vænst fyllstu þátttöku í þeirri skipulögðu dagskrá, sem í boði er. Lýsing á ferðunum jylgir
hér með á sérblaði, sem jafnframt er pöntunarlisti þinn, og þess óskað að þú fyllir hann út og skilir inn til
skrifstofunnar eða sendir á faxi eða ípósti fyrir 20. júlí nk. og greiðir jafnframt af Visakorti þínu viðbótargreiðslu
við staðfestingargjald að upphæð kr. 25.000. Lokagreiðsla ásamt andvirði kynnisferða fari fram eigi síðar en
14. sept. nk. með heimild til Heimsklúbbsins til að skuldfæra skv. reikningi eftirstöðvar fargjalds með undirskrift
þinni og kortanúmeri. Gerið ekki ráð fvrir að geta keypt kvnnisferðir síðar.
Athugið að vegabréf sé gilt í 6 mánuði eftir heimkomudag. og svnið við uppgjör ferðar.
Gejin verður út sérprentuð áætlun um tilhögun ferðarinnar frá degi til dags Fundur verður haldinn með
þátttakendum í Háskólabíói viku fyrir brottför, laugard. 7. okt. kl. 14.00. Æskilegt er að allir sæki þann fund og
fái góðar ráðleggingar varðandi ævintýraferðina. Visakortið gildir almennt í Brasilíu, gjaldmiðill landsins heitir
Real, en 1 US$ er jafngildi 1.80 BRL, þ.e. Brasilian Real, eða jafngildi Ikr.43.30. Hraðbankar eru víða, en annars
best að skipta Bandaríkjadölum. Gisting á góðum hótelum er dýr, en almennt verðlag, rnatur og drykkur á lágu
verði. Veður er bjart og sólríkt á þessum tíma, dagshiti ca. 25-30°C. Engar bólusetningar eru taldar nauðsynlegar.
Fólk klœðist létt og djarft í Ríó.
Herbergjalistar hafa þegar verið sendir hótelum. Allur farangur veröur sérmerktur fyrir hvert hótel og með
farangursnúmeri Prímu. Skilvísi farþega er okkur hvatning til að halda upphaflega auglýstu verði ferðarinnar.
Með Heimsklúbbskveðju og bestu óskum. Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri.
Qóðaferð! Qóða sí^emmtun í %jó
íPantanir: simi
5620400
5 linur
Útnefnd í alþjóðasamtökin
EXCELLENCE IN TRAVEL
NETWORK, fyrir frábærar ferðir
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.ís, neimasiða: http://www.heimsklubbur.is