Morgunblaðið - 09.07.2000, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Eins og
í Tívólí
Sjáumst í úrslitunum," kölluðu
þeir á milli sín, hollensku og
frönsku áhorfendumir eftir leik lið-
anna í riðlakeppni Evrópukeppninn-
ar. Þeir vissu að úrslit leiksins skiptu
litlu máli og voru um leið sannfærðir
um að lið þeirra væru þau bestu í
keppninni. Ekki varð þeim að ósk
sinni að fá „draumaúrslitaleikinn" en
hins vegar má kannski segja að
franskir og hollenskir áhorfendur
hafi keppt til úrslita um titilinn
„bestu áhorfendumir“, Frakkamir
stórskemmtilegir með fjölmenna
lúðrasveit klædda í gervi Ástríks,
Steinríks og félaga í fararbroddi en
Hollendingarnir höfðu þó vinninginn
í fjölda og óheftri gleði enda á heima-
velli. Margir tóku sér frí frá vinnu á
leikdögum og vom barir orðnir þétt-
setnir strax á hádegi. Virðulegir
bissnesskallar vippuðu sér úr jökk-
unum og reyndust hafa komið í bún-
ingnum í vinnuna undir skyrtunni og
bindinu. Seint verður sagt að hinn
skærappelsínuguli einkennislitur
Hollendinga sé fallegur en áberandi
er hann óneitanlega og tignarlegt að
sjá tugir þúsunda „oranje“, hinna
appelsínugulu, saman komna. Marg-
ir í „opinberri“ Nike peysu landsliðs-
ins en enn fleiri í heimatilbúnum
klæðum, vinnugöllum og endur-
skinsjökkum með skrautlega hatta á
höfði, vinsælastir þeirra stórsniðugir
hattar í líki getnaðarvarnarinnar
góðu, smokksins. Frumleikinn í
vamingi sem var til sölu var mikill,
Euro 2000 nærbuxur og nælon-
sokkabuxur, leikföng af öllu tagi,
bindisnælur og jafnvel brúðarkjólar
fyrir þá sem vildu halda „oranje"
brúðkaup.
Hollendingar vora líka ánægðir
með sjálfa sig og keppnina, skipulag
allt með besta móti og áhugi lands-
manna gífurlegur en 80% Hollend-
inga fylgdust með leikjum liðsins í
sjónvarpi. Grobbið gekk svo langt að
75% Hollendinga töldu sína eigin
áhorfendur þá bestu í keppninni
samkvæmt skoðanakönnun hoi-
lenska dagblaðisins Telegraaf, Danir
komu næstir með 11% atkvæða en
aðrir komust vart á blað. Norðmenn
og Svíar vora áberandi og vinsælir
meðal heimamanna enda eyðslusam-
ir mjög. Þjóðverjar voru óvenju auð-
mjúkir enda landslið þeirra sjaldan
eða aldrei verið eins lélegt og sást
það best á því að landsliðstreyjur
þýskra vora til sölu á hálfvirði strax í
fyrstu viku keppninnar en hreyfðust
ekkert þrátt fyrir það. „Ég gaf
nokkrar peysur í gær sem kaupauka
fyrir þá sem versluðu mikið,“ sagði
Einar Logi Yignisson
var á EM í knattspyrnu
1 Niðurlöndum og var
álíka spenntur og þegar
hann fór í Tívólí sem
krakki. Það voru hins
vegar ekki eins margir
verðir þar og heldur
auðveldara að komast í
leiktækin...
kaupmaður í sportvörabúð við mig
þegar ég var að hlæja að verðinu á
þýsku peysunum. „Mér þótti ekki
leiðinlegt að segja fólki að það skyldi
ekki vera að þakka mér neitt rosa-
lega fyrir, ég gæti hvort sem er ekki
losnað við þær!“
Skyrtur Englendinga hreyfðust
líka lítið enda fóra enskir áhorfendur
með veggjum í Amsterdam eftir
óspektir landa sinna í Belgíu og þeir
einu sem sáust í ensku landsliðs-
peysunni eða peysum enskra félags-
liða vora Norðurlandabúar og Jap-
anir! Þurftu þeir að þola fremur
fjandsamleg viðbrögð frá aðdáend-
um annarra liða, í besta falli hristu
menn hausinn þegar þeir gengu
fram hjá þeim. En enskir máttu eiga
það að þeir skildu sneiðina og venju-
legir enskir áhorfendur, sem era ein-
hverjir þeir bestu í heimi, vora fjöl-
mennir á flestum leikjanna og til
fyrirmyndar í alla staði. Var augljóst
á máli þeirra sem ég ræddi við að
þeim sárnaði mjög að bullumar
skyldu enn einu sinni verða Eng-
landi til skammar.
Vinsælustu skyrturnar í keppnini
vora þær ítölsku og vora stúlkur af
öllum þjóðum einkar hrifnar af þeim.
Vora ítölsku landsliðspeysurnar viða
uppseldar þegar leið á keppnina.
Belgarnir fáskiptnir
Niðurlönd eru auðyfirfarin og
minni fjarlægðir milli leikstaða held-
ur en í mörgu landinu sem keppnin
hefur áður verið haldin í. Áhyggjur
manna af því að halda keppnina í
tveimur löndum reyndust fullkom-
lega ástæðulausar og samvinna land-
anna var mjög góð. Þó var talsverður
bragarmunur á keppninni landanna í
millum, Hollendingar hafa miklu
meiri áhuga á fótbolta og borgir og
bæir skryttir mjög á meðan Belgar
sýndu keppninni nokkuð fálæti og
vildu lítið af öllu umstanginu vita.
Var t.a.m. iðulega erfitt að fá upp-
lýsingar hjá Belgum um leiðir á
leikvangana og merkingar allar lé-
legar. Ofan á þetta bættust svo
hroðalegar hrakfarir belgíska
landsliðsins og var þá fokið í flest
skjól. Meira plássi var eytt í fjölmiðl-
um um löggæslu og óeirðir enskra
bullna en fótboltann sjálfan og há-
punktur keppninnar fyrir marga að
Englendingar skyldu falla úr keppni
því annars hefðu þeir mætt Itölum á
Leikvelli Baldvins konungs í Brass-
el, sem áður hét Heysel og var vett-
vangur einhvers hryggilegasta at-
burðar knattspyrnusögunnar er
Liverpool og Juventus mættust í úr-
slitaleik Evrópukeppni meistaraliða
1985 og 39 ítalskir aðdáendur létu líf-
ið.
Mikil gæsia
Áhorfendur. Það era þeir sem allt
þetta snýst á endanum um. Án hins
gríðarlega fjölda knattspyrnuaðdá-
enda í heiminum er ekki víst að Zid-
ane og Del Piero, Figo og Kluivert
myndu nenna að sparka í tuðra dag-
inn út og inn bara sér til skemmtun-
ar. Nýliðin Evrópukeppni sló öll
fyrri met hvað varðar sjónvarps-
áhorf og allvel fór um þá sem lögðu
leið sína á leikvanga landanna
tveggja. Fyrir utan skrílslæti enskra
áhorfenda fór allt vel fram en áhorf-
endur hafa oft verið fleiri. Bæði eru
vellirnir sem leikið var á margir
fremur litlir og eins er æ erfiðara
fyrir knattspyrnuaðdáendur að nálg-
ast miða sökum strangrar gæslu sem
ætlað er að koma í veg fyrir að fót-
boltabullur heimsins af andstæðum
fylkingum lendi saman hlið við hlið
innan um friðsamt fólk. Hin stranga
gæsla nálgaðist oft að vera hreinlega
hlægileg, sérstaklega I Belgíu. Virt-
ist engu skipta þótt þjóðir þekktar af
spakmennsku einni saman væru að
leiða saman hesta sina, Belgar vildu
hafa vaðið fyrir neðan sig og gull-
tryggja að allt færí vel fram. Ekki er
laust við að þessi stranga gæsla hafi
farið í taugarnar á aðdáendum sem
lögðu leið sína á vellina þótt vissu-
lega sýndu menn skilmng a nauðsyn
öflugrar löggæslu. í Bragge, þar
sem undirritaður fór að sjá leik
Frakka og Spánverja, var belgíska
lögreglan búin að girða af nokkurra
kílómetra radíus í kringum leikvang-
inn, sem vel að merkja er í miðju
íbúðahverfi. Var sumsé búið að loka
fleiri þúsund manns inni í hverfinu
en sumir létu sér vel líka og sátu í
görðum sínum og fylgdust með
áhorfendum streyma fram hjá.
Flestir heldu sig hins vegar víðs
fjarri, einn íbúinn sem var á leiðinni í
bíltúr þegar okkur bar að garði sagði
að þetta væri svo vitlaust að það væri
eiginlega ekki hægt að horfa upp á
þetta enda ætlaði hann ekki að gera
það lengur!
Miðaskipti algeng
UEFA, Knattspyrnusamband
Evrópu, gerði venjulegu fólki eins
erfitt fyrir og mögulegt var með að
nálgast miða, áherslan er mikil á
öryggið, sem er gott, en því miður
fylgir auknum vinsældum knatt-
spyrnunnar ákveðið sinnuleysi
knattspyrnuyfirvalda gagnvart al-
mennum áhorfendum. Dapurlegt
var að sjá auð sæti á leikvöngunum
sem margir hefðu gjarnan viljað
fylla ef kostur hefði verið. Fólk gat
að vísu sótt um á netinu en það skil-
aði fáum miklum árangri. Flestir
fengu miða í gegnum knattspymu-
samband lands síns en flestum þátt-
tökulandanna var einungis úthlutað
einhverju magni af viti á sína leiki og
því var erfitt fyrir fólk sem vildi
skipuleggja almennilega ferð og sjá
nokkra leiki að koma öllu heim og
saman. Þeir sem hins vegar létu slag
standa og drifu sig á staðinn komust
að því að það var nákvæmlega ekk-
ert mál að fá miða á svarta markað-
inum og það meira að segja á nánast
nafnvirði, stundum jafnvel minna!
Málið var að vegna þess hversu erfitt
var að fá miða höfðu menn keypt
miða á alla þá leiki sem þeir gátu en
höfðu kannski engan áhuga á að fara
á. Miðaskipti milli áhorfenda vora al-
geng og svartamarkaðsbraskararnir
stóðu fæstir undir nafni sem slíkir,
heldur vora bara venjulegir knatt-
spyrnuaðdáendur að reyna að bjarga
sér. Bullumar hefðu sumsé getað
reddað sér sem fyrri daginn og „fæl-
ingai-mátturinn" af kerfinu flókna
hélt einkum í burtu sönnum aðdá-
endum sem nenntu ekki að standa í
öllu veseninu.
Þefr sem létu sig hafa það fengu
hins vegar mikið fyrir sinn snúð, frá-
bæran fótbolta, glæsilega velli, ynd-
islega áhorfendur og nálægð við
hálfguði sem maður hefur kannski
aldrei tækifæri til að sjá aftur. Svo er
líka svo rosalega langt til Japan og
Suður-Kóreu þar sem HM verður
haldið eftir 2 ár... Þannig að fyrir þá
sem ekki nenna hinum megin á
hnöttinn er það Portúgal næst eftir 4
ár. Vonandi verður það jafn frábær
keppni en það verður erfitt fyrir
Portúgala að feta í fótspor þeirra
Niðurlendinga sem skiluðu einhverri
bestu keppni sem haldin hefur verið.
Skjóttu■ á -úrsWtin
■
Þú getur skotiö á úrslit leikjanna í hverri umferð. Vikulega
verða dregnir út símar frá Símanum-GSIVI ásamt GSM Frelsi
og miðum á leikina ( Landssímadeildinni. I lokaumferðinni
verður svo dreginn út óvæntur og glæsilegur vinningur.
LANDSSIMADEILDIN
mbl.is
Hlíðarendi
Valur - KA
í kvöld kl. 20
Valsmenn!
Stöndum saman og styöjum okkar félag
Áfram Valur!