Morgunblaðið - 09.07.2000, Síða 20
20 SUNN UilAUUK 9. JIJU 5JUUU
MUKUUNKliAiJUJ
Fyrsta skrefió í átt aö jöfnum rétti mæöra og
feöra til töku fæðingarorlofs verðurtekið um
áramótin en þá öðlastfeður sjálfstæðan
rétttil fæðingarorlofs í einn mánuð. Tveimur
árum síöar hafa þeir öólast þriggja mánaða
sjáifstæóan rétttil orlofsins eins og mæöur.
Arna Schram rekur efni nýrra fæðingar- og
foreldraorlofslaga og ræðir við nokkra aðila
um réttindin sem þau veita.
MW EÐ lögunum mn fæðingar- og foreldraorlof,
sem Alþingi samþykkti í maí sL, er að mati margra
stigið stórt skref í átt til jafnréttis kynjanna, hvort
sem er á vinnumarkaði eða á heimilinu. Þegar
frumvarpið var til meðferðar á Aiþingi náðist um
það víðtæk samstaða meðal þingmanna, hvar í
flokki sem þeir stóðu, og í sameiginlegu nefndar-
áliti félagsmálanefndar Alþingis, segir m.a., að með
lögfestingu &umvaipsins verði konum og körlum
sköpuð sömu tækifæri tii að sinna bæði fjölskyldu og starfi utan heimilis. Sá
hluti laganna sem snýr að fæðingarorlofi er einkum talinn mikilvægur hvað
þetta varðar en rétturinn til foreldraorlofs, sem er nýr hér á landi, er einnig
álitinn þýðingarmikill.
Akvæði laganna um foreldraorlof eru þegar gengin í gildi, eins og nánar
verður vikið að síðar, en þau heimila foreldrum, sem eiga böm fædd eftir 1.
janúar 1998, að taka þrettán vikna launalaust leyfi frá vinnu til að sinna bami
eða bömum sínum. Akvæði laganna um fæðingarorlof öðlast hins vegar ekki
gildi fyrr en um næstu áramót, þ.e. flest ákvæði laganna taka gildi þá því gert
er ráð fyrir því að aukin réttindi feðra til fæðingarorlofs komi til framkvæmda í
þremur áföngum fram til ársins 2003. Að þeim tíma liðnum eiga karlar og kon-
ur jafnan rétt til fæðingarorlofs. Þrír mánuður verða bundnir móður, þrír föð-
ur og þá þrjá sem eftir era geta foreldrar skipt milli sín að vild.
Einhverjir hafa orðið til að gagnrýna þá skipan að skipting mánaðanna á
milli foreldra verði lögbundin en í fyrrgreindu áliti félagsmálanefndar Alþingis
er sú ráðstöfun talin nauðsynleg um ákveðinn tíma til að festa megi réttindi
karla í sessi. Telur nefndin þó brýnt að lögin verði endurskoðuð með þessi at-
riði í huga þegar þau hafa að fullu öðlast gildi árið 2003.
En víkjum nánar að einstökum atriðum laganna og byrjum á þeim ákvæðum
sem snúa að fæðingarorlofinu. Fyrstu ákvæðin um fæðingarorlof taka gildi
hinn 1. janúar nk. en þá öðlast foreldrar samanlagt rétt á sjö mánaða orlofi við
fæðingu bams. Feður öðlast með öðram orðum sjálfstæðan rétt til töku orlofs-
ins í einn mánuð, en auk þess munu mæður eiga sjálfstæðan rétt til þriggja
mánaða orlofs og foreldrar til samans eiga rétt á þremur mánuðum, sem annað
foreldrið getur tekið í heild eða foreldrar skipt með sér. Með sjálfstæðum rétti
er átt við að viðkomandi foreldri er ekki heimilt að framselja þann rétt sinn. Ef
sá réttur er ekki nýttur fellur hann niður. Sérstök undanþága á banni við fram-
sali á fæðingarorlofi er þó gerð í lögunum um foreldra- og fæðingarorlof en það
á við þegar annað foreldrið andast áður en barn nær 18 mánaða aldri. Að sögn
Berglindar Ásgeirsdóttur, ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu, hefur
mikið verið hringt í ráðuneytið og spurt um gildistöku ákvæðanna. Segir hún í
því sambandi að það sé ekki hægt að semja um það hvenær nýju réttindin taka
gildi. „Það verður að draga tímamörkin einhvers staðar og þau miðast við ára-
mótin,“ ítrekar hún.
Annað skrefið í þeim tilgangi að jafna rétt foreldra til töku fæðingarorlofs er
tekið hinn 1. janúar árið 2002 en þá öðlast feður tveggja mánaða sjálfstæðan
rétt til orlofsins og hinn 1. janúar árið 2003 er þriðja og síðasta skrefið tekið
þegar feður öðlast rétt á þriggja mánaða fæðingarorlofi. Þar með hafa þeir
sjálfstæðan rétt til þriggja mánaða
fæðingarorlofs eins og mæður. Rétt-
ur til fæðingarorlofs fellur niður þeg-
ar barnið nær átján mánaða aldri.
Um áramótin ganga einnig í gildi
ný ákvæði um greiðslufyrirkomulag í
fæðingarorlofi, samkvæmt lögunum
um fæðingar- og foreldraorlof, en frá
og með þeim tíma nýtur starfsmaður
í fæðingarorlofi mánaðarlegra
greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði
sem nema 80% af meðaltali heildar-
launa miðað við tólf mánaða samfellt
tímabil er lýkur tveimur mánuðum
fyrir upphafsdag fæðingarorlofs.
Kveðið er á um í lögunum að
greiðslur til foreldris í 50-100% starfi
skulu þó aldrei vera lægri en 74.867
kr. á mánuði og greiðslur til foreldris
í 25-49% starfi skulu aldrei vera
lægri en sem nemur 54.021 kr. á mán-
uði. Er með þessu verið að tryggja að
foreldrar í fæðingarorlofi öðlist ekki,
með nýju reglunum, lakari réttindi
en þeir hafa samkvæmt núgildandi
kerfi. Tryggt er í lögunum að
lágmarksgreiðslumar verði endur-
skoðaðar við afgreiðslu fjárlaga ár
hvert með tilliti til þróunar launa,
verðlags og efnahagsmála.
í þessu sambandi ber að taka fram
að foreldrar utan vinnumarkaðar og
foreldrar í fullu námi koma ekki til
með að bera skarðan hlut frá borði
eftir að nýju reglumar taka gildi. í
lögunum er kveðið á um að fæðingar-
styrkur til fyrmefnda hópsins verði
33.157 kr. á mánuði frá og með næstu
áramótun en það er sama fjárhæð og
hópurinn fær samkvæmt núgildandi
kerfi og þá er kveðið á um að fæðing-
arstyrkur til síðamefnda hópsins
verði 74.867 kr. á mánuði en það er
líka sama upphæð og sá hópur fær
samkvæmt núgildandi kerfi.
Þess má geta að á meðan á fæðing-
arorlofinu stendur nýtur starfsmað-
ur starfstengdra réttinda svo sem
réttar til orlofstöku og lengingar or-
lofs samkvæmt kjarasamingum,
starfsaldurshækkana, veikindarétt-
ar, uppsagnarfrests og réttar til at-
vinnuleysisbóta.
Miklar breytingar frá
núverandi kerfí
Eins og mörgum er eflaust kunn-
ugt eru réttindi launafólks í fæðing-
arorlofi misjöfn samkvæmt núgild-
andi kerfi. Allar konur eiga það þó
sameiginlegt að eiga rétt á orlofi í sex
mánuði og karlar á orlofi í tvær vikur.
Greiðslur í orlofi era á hinn bóginn
ólíkar og oriofið sjálft misjafnlega
sveigjanlegt. Foreldrar sem starfa
samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna hjá ríki og sveit-
arfélögum njóta fullra launagreiðslna
frá vinnuveitanda íyrstu þrjá mánuð-
ina en grunnlauna síðustu þijá mán-
uðina. Auk þess hafa þeir heimild til
að dreifa oriofinu yfir lengra tímabil
eða allt að einu ári. Foreldrar á al-
mennum vinnumarkaði fá hins vegar
ákveðna mánaðargreiðslu frá Trygg-
ingastofnun ríkisins í orlofinu sem
tekur mið af vinnustundafjölda liðins
árs en mest getur sú greiðsla orðið
um 75 þúsund krónur á mánuði. Þá
njóta þeir ekki sambærilegra rétt-
inda og hinir fyrmefndu hvað varðar
sveigjanleika í töku orlofsins. Því er
ljóst að nýtt greiðslufyrirkomulag í
fæðingarorlofi sem kemur til fram-
kvæmda um áramótin er töluvert frá-
brugðið því sem nú er í gildi.
Til að annast greiðslur til foreldra í
fæðingarorlofi samkvæmt nýju
greiðslufyrirkomulaginu er í lögum
um fæðingar- og foreldraorlof kveðið
á um nýjan sjóð, svonefndan Fæðing-
arorlofssjóð, sem getið var um hér að
framan. Sá sjóður var stofnaður
skömmu eftir að lögin um foreldra-
og fæðingarorlof vora samþykkt á
Alþingi í vor og er fjármagnaður með
tryggingagjöldum sem samkvæmt
lögum um tryggingagjald nr. 113/
1990 er það gjald sem launagreiðend-
ur inna af hendi af m.a. greiddum
vinnulaunum. Tryggingagjaldið er
samsett af tveimur gjöldum, almennu
tryggingagjaldi annars vegar og at-
vinnutryggingagjaldi hins vegar sem
rennur í Atvinnuleysistryggingasjóð.
Almenna tryggingagjaldið hefur ver-
ið 3,99% af gjaldstofni en atvinnu-
tryggingagjaldið 1,15% af gjaldstofni
en í vor vora samþykktar breytingar
á lögum um tryggingagjald sem mið-
uðust að því að lækka trygginga-
gjaldið til Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs úr 1,15% af gjaldstofni niður í
0,8% af gjaldstofni. Almenna trygg-
ingagjaldið var hins vegar hækkað
sem svaraði þessari lækkun á at-
vinnutryggingagjaldinu og er þeirri
hækkun ætlað að standa straum að
útgjöldum í Fæðingarorlofssjóð. Var
í athugasemdum með frumvarpinu til
fæðingar- og foreldraorlofs vakin at-
hygli á því að tekjuafgangur Atvinnu-
leysistryggingasjóðs hafi verið vera-
legur síðastliðin tvö ár og talið að
þessar breytingar á fyrirkomulagi
greiðslna í fæðingarorloli myndu því
ekki leiða til hækkunar á trygginga-
gjaldi því sem fyrirtæki greiða. Ari
Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, hefur þó haldið því
fram að líklega þurfi að hækka trygg-
ingagjaldið um 0,84% þegar lögin um
'J
fæðingarorlofið verði komin að fullu
til fi-amkvæmda árið 2003. „Aukin
réttindi til fólks sem atvinnulífið á að
standa straum af fela í sér auknar
álögur á atvinnulífið," segir hann og
kveður atvinnurekendur hafa metið
það svo að þegar lögin um fæðingar-
orlofið væri komið að fullu til fram-
kvæmda yrði árlegur viðbótarkostn-
aður allra launagreiðenda vegna
þeirra réttinda um 2,5 milljarðar
króna eða sem svaraði um 0,84%
hækkun á tryggingagjaldi.
Gert er ráð fyrir því í lögunum að
foreldri sæki um greiðslu í fæðingar-
orlofi til Tryggingastofnunar ríkisins
sex vikum fyrir áætlaðan fæðingar-
dag bamsins en vilji kona hefja fæð-
ingarorlof fyrir áætlaðan fæðingar-
dag ber henni að tilkynna það
Tryggingastofnun þremur vikum
fyrir fyrirhugaðan upphafsdag fæð-
ingarorlofs. Utreikningar á greiðsl-
um til foreldris í fæðingarorlofi bygg-
ist á upplýsingum sem
Tryggingastofnun ríkisins aflar um
tekjur starfsmanns úr staðgreiðslu-
skrá og tryggingagjaldsskrá skattyf-
irvalda.
Er ástæða til að bæta upp þau
20% sem á vantar?
Fram hefur komið í fjölmiðlum að
stjóm Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur sé að skoða hvort
sjúkrasjóður félagsins geti greitt fé-
lagsmönnum þau 20% sem á vantar
eftir að nýju lögin um fæðingarorlof
hafa tekið gildi þannig að félagsmenn
fái 100% laun greidd í orloftnu en
ekki hefur heyrst í öðram stéttarfé-
lögum hvað þetta varðar og þá hvort
þau hyggist fylgja í kjölfarið. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra segir
inntur eftir því hvers vegna það hafi
verið ákveðið að greiða foreldrum í
fæðingarorlofi 80% af fullum launum
í stað annarrar prósentu að það hafi
verið samkomulagsatriði. „Mönnum
þótti að það lægi í augum uppi að það
væri spamaður að þurfa ekki að
sækja vinnu utan heimilis. Það væri
eðlilegt að það væri eitthvað ódýrara
og niðurstaðan var þessi tala. Það
liggja náttúralega ekki neinar vís-
indalegar rannsóknir að baki henni.“
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Sam-
TJy íiJsysji)] ujjj f ”Jí)jjjíJ3jj'jj,Jsjs
Jsjjjjsj iJJ Íj’iijjjJsysjjjJiliJ ijjjj jJijSjjj íij,2jjjj£)Í: íjjj íiJsysaDJ
ilJJJ SUS3Jllj‘ÍlL>JJJi>j! ÍJllfil iB^U* iiíjyi) rJJJllJ
Flykkjast
feður