Morgunblaðið - 09.07.2000, Qupperneq 21
MORGtJNBLAÐIÐ
StJNNUDAGUR 9.JÚLÍ 2000 21
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurður Pálsson varsvo
vinsamlegur að leyfa Ijós-
myndara Morgunblaðsins
að mynda sigmeð nýfædd-
an son sinn þegar þessi
grein varí vinnslu.
IÍÓUUi' fOi Ol'liU lil fióðiiUj ii'ortof-5
Tekur qildi mæður feður sameigin- legt
1. jan. 2001 3 mán. 1 mán. 3 mán.
1. jan. 2002 3 mán. 2 mán. 3 mán.
1. jan. 2003 3 mán. 3 mán. 3 mán.
íiýit •jíoWfiluíyíiíkoiiuiftÞj í fvoOiiUj-irodoIi ooiii toluir -jiMi iini iKooIu óuiniót
Foreldri í 50-100 % starfi 80% af meðaltali heildarlauna, þó aldrei lægri upphæð en 74. 867 kr. á mán.
Foreldri í 25-49 % starfi 80% af meðaltali heildariauna, þó aldrei lægri upphæð en 54.021 kr. á mán.
Foreldri utan vinnumarkaðar 33.157 kr. á mán.
Foreldri í fullu námi 74.867 kr. á mán.
taka atvinnulífsins, segir um þetta að hann telji það ríflegt fyrir starfsmann að
fá greitt áttatíu prósent af fullum launum í fæðingarorlofi. „Að mínu mati hlýt-
ur sú greiðsla að fara mjög nærri því að bæta að fullu þann tekjumissi sem fólk
verður fyrir í fæðingarorlofi," segir hann og bætir því við til útskýringar að það
sé augljóst að menn hafi af því kostnað að sækja vinnu, kostnað sem ekki sé
fyrir hendi þegar menn séu í orlofi. Til að mynda kostnað við bamagæslu eða
kostnað sem hljótist af skorti á sveigjanleika. „Þannig að ef menn njóta hundr-
að prósent brúttólauna í fæðingarorlofi eru menn augljóslega famir að hafa
beinan fjárhagslegan hag að því að vera í orlofinu," segir hann.
Aukin réttindi þungaðra kvenna
Það eru ekki bara nýtt greiðslufyrirkomulag og fjölgun mánaða í fæðingar-
orlofi sem koma til framkvæmda um næstu áramót heldur taka einnig í gildi
ákvæði í fæðingarorlofslögunum sem snúa að auknum sveigjanleika í fæðing-
arorlofi og bættum réttindum þungaðra kvenna og kvenna sem nýlega hafa al-
ið barn eða era með barn á brjósti.
Sé fyrst litið á sveigjanleikann í orlofinu eiga foreldrar þess kost frá og með
áramótum að taka fæðingarorlofið á fleiri tímabilum en einu eða jafnvel í hluta-
starfi að fengnu samþykki vinnuveitanda. Þó er kveðið á um í lögunum að móð-
irin skuli vera í fæðingarorlofi að minnsta kosti fyrstu tvær vikurnar eftir fæð-
ingu bams.
„Þessi sveigjanleiki er háður samkomulagi við vinnuveitanda sem er gert að
leitast við að koma til móts við óskir starfsmanns um tilhögun fæðingarorlofs,“
segir í athugasemdum með framvarpinu um fæðingarorlof og jafnframt tekið
fram að með þessu fyrirkomulagi sé reynt að auðvelda útivinnandi foreldram,
bæði mæðrum og feðrum, að samræma þær skyldur sem þeim era lagðar á
herðar í starfi og fjölskyldulífi. Sjái vinnuveitandi sér ekki fært að koma til
móts við óskir starfsmanns ber honum að hafa samband við starfsmanninn.
Skulu þeir síðan reyna að koma sér saman um aðra tilhögun sem báðir geta
sætt sig við, að þvi er fram kemur í athugasemdum framvarpsins. Þó má sam-
kvæmt lögunum aldrei taka fæðingarorlof skemur en viku í senn.
Þegar litið er á aukin réttindi þungaðra kvenna og kvenna með nýfædd böm
er í lögunum kveðið á um að ef öryggi og heilbrigði þungaðrar konu, konu sem
nýlega hefur alið barn eða konu sem er með barn á brjósti er í hættu sam-
kvæmt sérstöku mati, eins og það er orðað í lögunum, skal vinnuveitandi gera
nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja öryggi konunnar með því að breyta
tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma hennar. „Ef því verður ekki við
komið af tæknilegum eða öðram gildum ástæðum skal vinnuveitandi fela kon-
unni önnur verkefni en að öðrum kosti veita henni leyfi frá störfum í svo langan
tíma sem nauðsynlegt er til að vernda öryggi hennar og heilbrigði,11 segir í lög-
unum. Þar er jafnframt tekið fram að þær breytingar sem teljist nauðsynlegar
á vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma sloili ekki hafa áhrif á launakjör hennar til
hækkunar eða önnur starfstengd réttindi.
Ekki kom tilgreina að hafa foreldraorlofið launað
Lögin um fæðingar- og foreldraorlof kváðu ekki einungis á um breytingar á
fæðingarorlofi landsmanna heldur vora einnig með lagabálknum kynnt, eins
og nafnið ber með sér, til sögunnar
ný réttindi, þ.e. réttindi foreldra til
töku á svonefndu foreldraorlofi.
Akvæði laganna sem heimiluðu þau
réttindi komu strax til framkvæmda í
vor og hafa því samkvæmt þeim allir
foreldrar bama, sem fædd era, ætt-
leidd eða tekin í varanlegt fóstur 1.
janúar 1998 og síðar nú rétt á að taka
allt að 13 vikna orlof frá vinnu til að
annast bam sitt en rétturinn fellur
niður er barnið nær átta ára aldri. Að
sögn Berglindar Ásgeirsdóttur,
ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðu-
neytinu, er dagsetningin 1. janúar
1998 miðuð við þann tíma sem
Evróputilskipun um foreldraorlof
átti að taka gildi í löndum Evrópska
efnahagssvæðisins. Hvort foreldri
um sig á sjálfstæðan rétt til foreldra-
orlofs sem er ekki framseljanlegur.
Ekki er gert ráð fyrir því í lögun-
um að starfsmaður haldi launum á
meðan á foreldraorlofinu stendm- en
á móti er lögð áhersla á að ráðningar-
samband haldist á milli vinnuveít-
anda og starfsmanns á þeim tíma
sem orlofið stendur yfir. I lögunum
er með öðram orðum kveðið á um að
óheimilt sé að segja starfsmanni upp
vegna þess að hann hefur tilkynnt um
fyrirhugað foreldraorlof og ennfrem-
ur að hann eigi rétt á að hverfa aftur
að starfi sínu að loknu foreldraorlof-
inu. „Sé þess ekki kostur skal hann
eiga rétt á sambærilegu starfi hjá
vinnuveitanda í samræmi við ráðn-
ingarsamning," segir í lögunum. Þá
segir að þau réttindi sem starfsmað-
ur hafi þegar áunnið sér eða sé að
ávinna sér á upphafsdegi foreldraor-
lofs skulu haldast óbreytt til loka or-
lofsins. „Við lok orlofsins skulu þessi
réttindi gilda, sem og breytingar sem
kunna að hafa orðið á grandvelli laga
eða kjarasamninga."
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að það hafi vissulega ver-
ið rætt meðal þeirra sem undir-
bjuggu framvarpið hvort greiða ætti
starfsmönnum laun í foreldraorlofi
en bendir á að það hafi ekki komið til
greina af sinni hálfu að leggja það til.
Með orlofinu væri fyrst og fremst
verið að bæta réttindi starfsmanna.
„Mér þykir þó sennilegt að það verði
settur einhver þrýstingur á það
seinna meir frá t.d. verkalýðshreyf-
ingunni að foreldraorlofið verði laun-
að.“
Orlofíð vinsælt á hinum
Norðuriöndunum
Þegar litið er á skipulag foreldra-
orlofsins kemur fram í lögunum að
foreldri skuli eiga rétt á að taka for-
eldraorlofíð í einu lagi en með sam-
komulagi við vinnuveitanda er starfs-
manni þó heimilt að haga orlofinu
með öðram hætti, til dæmis þannig
að orlofið skiptist niður á fleiri tíma-
bil og/eða það verði tekið samhliða
minnkuðu starfshlutfalli. Starfsmað-
ur öðlast rétt til foreldraorlofs eftir
að hafa starfað samfellt í sex mánuði
hjá sama vinnuveitanda og skal sá
síðarnefndi leitast við að koma til
móts við óskir starfsmanns um til-
högun orlofsins.
„Starfsmaður sem hyggst nýta sér
rétt til foreldraorlofs skal tilkynna
það vinnuveitanda eins fljótt og kost-
ur er og í síðasta lagi sex vikum fyrir
fyrirhugaðan upphafsdag orlofs,“
segir í lögunum en þess jafnframt
getið að geti vinnuveitandi ekki fallist
á óskir starfsmanns um tilhögun for-
eldraorlofs skuli hann að höfðu sam-
ráði við starfsmann tilkynna um aðra
tilhögun. „Frestun er eingöngu heim-
il þegar fyrir hendi era sérstakar að-
stæður í rekstri fyrirtækis/stofnunar
sem gera slíkt nauðsynlegt. Svo er
t.d. ef um er að ræða árstíðabundin
störf, ef ekki tekst að finna hæfan
staðgengil, ef umtalsverður hluti
starfsmanna sækir um foreldraorlof
á sama tíma eða viðkomandi starfs-
maður gegnir lykilhlutverki í æðstu
stjóm fyrirtækis eða stofnunar," seg-
ir í lögunum. Vinnuveitanda er þó
aldrei heimilt að fresta orlofi lengur
en í sex mánuði frá þeim tíma sem
foreldraorlof átti að hefjast sam-
kvæmt óskum starfsmanns nema
með samþykki hans. Verði ákvörðun
vinnuveitanda um frestun foreldraor-
lofs til þess að starfsmaður nær ekki
að ljúka foreldraorlofi áður en bam
hans nær átta ára aldri framlengist
sá tími sem heimilt er að taka for-
eldraorlof á til þess dags er barn nær
níuáraaldri.
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneyt-
isstjóri í félagsmálaráðuneytinu og
formaður nefndar þeirra sem samdi
fæðingar- og foreldraorlofslögin,
segir að foreldraorlofið hafi notið
mikilla vinsælda á hinum Norður-
löndunum en þar hafa foreldrar haft
rétt á töku orlofsins um nokkurt
skeið. „Foreldrar þar hafa talið að
það skipti þá miklu máh að hafa
þennan rétt þótt hann sé ekki launað-
ur,“ segir hún og bendir á að reynslan
sé sú að fólk nýti sér orlofið með því
að taka það viku og viku í senn í stað
þess að taka það í heilu lagi. Til að
mynda sé það gjaman notað á haust-
in þegar börn byrji í skóla eða leik-
skóla og einnig oft þegar vetrarfrí
skólanna standi yfir.
Munu feður nýta
sérorlofið?
Ingólfur V. Gíslason, starfsmaður
karlanefndar Jafnréttisráðs, segir
aðspurður að hann efist ekki um að
feður muni nýta sér sjálfstæðan rétt
feðra til töku fæðingarorlofs. „Ef það
tekst að dreifa boðskapnum þá hef ég
ekki nokkra trú á öðra en að allir feð-
ur komi til með að nýta sér orlofið í
þrjá mánuði," segir hann og kveðst
byggja þessa skoðun sína á skoðana-
könnun sem hafi verið gerði fyrir
nokkram áram um afstöðu karla til
fæðingarorlofs. í henni hafi komið
fram að yfir áttatíu prósent karla
myndu nýta sér þriggja mánaða fæð-
ingarorlof að öllu eða einhverju leyti
ef það skerti ekki möguleika móður.
„í öðra lagi,“ segir hann, „hefur það
einfaldlega sýnt sig bæði hér á landi
og erlendis að þegar feður hafa feng-
ið aukna möguleika á því að vera með
bömunum hafa þeir nýtt sér þá. Því
má reyndar bæta við að það kemur
alltaf jafn mikið á óvart þegar feður
nýta sér slík réttindi og það kemur
mér alltaf jafn mikið á óvart að það
skuli koma á óvart.“
Ingólfur bendir á að ein af megin-
hindranum feðra í að nýta sér fæð-
ingarorlof hafi verið peningaleysi en
nú hafi það verið bætt með tryggingu
fyrir áttatíu prósenta greiðslu af
heildarlaunum í orlofinu.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segist eins og
Ingólfur ekki hafa neina trú á öðra en
að feður muni nýta sér réttinn til töku
fæðingarorlofs og það í stóram stíl.
„Ég er í engum vafa um að feður
muni taka fæðingarorlof í stóram
stíl,“ ítrekar hann en segir líklegt að
það muni ekki gerast á einu bretti
heldur taka einhvern tíma. „Við höf-
um séð það með önnur réttindi sem
mönnum hafa verið tryggð til dæmis í
kjarasamningum að það hafi tekið
jafnvel fimm til sjö ár frá því réttindi
vora veitt og þar til menn fóra að
nýta sér þau að veralegu leyti. En svo
þegar það gerist að menn fara að
nýta sér þessi réttindi líður ekki á
löngu þar til sú notkun nær almennri
útbreiðslu.“ Bætir Ari því við að at-
vinnurekendur telji að rýmkun á
réttinum til töku fæðingarorlofs geti
dregið úr vinnuaflsframboði um
0,7%. Þau áhrif gætu jafnvel orðið
meiri komi fólk til með að nýta sér
foreldraorlofið. Hann á þó ekld von á
því að notkun á foreldraorlofinu verði
almenn þar sem ekki sé um launað
orlof að ræða.
Ingólfur er sama sinnis en hann
segir aðspurður að það dragi áreiðan-
lega úr notkun foreldraorlofsins að
það skuli vera án bóta. „En hins veg-
ar kemur þar á móti að foreldraorlof-
ið má taka í skömmtum þar til barnið
nær átta ára aldri. Mér þykir því lík-
legt að menn taki kannski viku eða
hálfan mánuð í einu til dæmis á með-
an þeir era að aðlaga börn í skóla eða
leikskóla eða á sumrin þegar starf
skólanna liggur niðri.“
Ingólfur segir þó að það muni held-
ur ekki koma sér á óvart þótt mæður
myndu nýta sér foreldraorlofið í
beinu framhaldi af fæðingarorlofinu.
„Ég er þó ekki viss um að það sé
skynsamleg ráðstöfun vegna þess að
það þýðir að karlmenn þurfa við það
að hafa meiri tekjur þar sem konan
er lengur frá vinnumarkaðnum.“
Ingólfur telur að síðustu að það sé
afar brýnt að fylgst verði með því
hvernig foreldrar koma til með að
nýta sér fæðingar- og foreldraorlofið.
Til dæmis verði það kannað hvers
vegna foreldrar nýti sér þessi rétt-
indi og þá hvaða skoðun þeir hafi á
þeim svo dæmi séu tekin. En hvers
vegna telur hann mikilvægt að fylgst
verði með töku fæðingar- og for-
eldraorlofsins með þessum hætti!
„Jú, vegna þess að það er verið að
koma þessum réttindum á í ákveðn-
um tilgangi, þ.e. í þeim tilgangi að
jafna stöðu kynjanna á vinnumark-
aði, gagnvart börnum og á heimilinu.
Við verðum því að vita hvort þetta
lukkast." Þess má að síðustu geta að
Guðný Eydal, lektor í félagsráðgjöf
við Háskóla Islands, hefur hlotið
styrk frá Rannsóknarráði íslands og
Háskóla Islands til þess að að gera
könnun í haust meðal foreldra bama
sem hafa náð þriggja ára aldri um
ýmsa þætti m.a. hvemig umönnun
barnanna er skipt milli foreldranna.
Slík rannsókn, segir Guðný, gerir
mögulegt að meta áhrif umræddra
lagabreytinga á íslenskar fjölskyldur
með því að endurtaka hana að nokkr-
um áram liðnum.
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur
árangur!“
„Loksins kom krem þar sem virknin
finnst þegar það er borið á húðina og
jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli
eindregið með Silhouette fyrir konur á
öllum aldri og eftir barnsburð er það al-
veg nauðsynlegt.
Nýja Body Scrubið er kærkomin
viðbót og tvöfaldar virkni Silhouette-
kremsins á húðina.“
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland