Morgunblaðið - 09.07.2000, Page 27
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 27
Ahorfendabrekkan þéttsetin í Víðidalnum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Anne-Marie Martin, Elizabeth Sutton-Sommer og Friedhelm Summer skemmtu sér vel í áhorfendabrekkunni.
Margir sakna
tj aldbií ðalífsins
Gunnar Egilson og Jón Bergsson létu vel af landsmótinu.
ÁSA María Ásgeirsdóttir og Guðjón
Hrafn Sigurðsson sátu í brekkunni
ásamt Sigurði og Viktori, sonum sín-
um, og undu hag sínum vel þótt
brekkan væri reyndar fullbrött fyrir
barnavagna. Ása segir allar aðstæð-
ur til fyrirmyndar og henni leist vel á
að hafa landsmótið í Reykjavik. „Það
vantar samt tjaldbúðastemmning-
una, það skemmir svolítið fyrir,“
sagði Asa. Grettir frá Hólmi sem Ása
á keppti í B-flokki gæðinga og gekk
að sögn eigandans ágætlega þó ekki
kæmist hann í úrslit.
Saknar næturlífsins
í tjaldbúðunum
Félagai'nir Jón Bergsson og
Gunnar EgUson hafa sjálfsagt fellt
nokkra brekkudóma síðan þeir komu
á landsmótið. Gunnar var ánægður
með mótið. „Aðstaðan hérna er ein-
stök og sérstaklega fyrir knapa og
þá sem eru með hross héma. Hér
hefur greinilega ekkert verið til
sparað til að gera þetta sem vegleg-
ast og best. En auðvitað saknar mað-
ur næturlífsins sem fylgir tjaldbúða-
lífinu," sagði Gunnar og taldi
stuðning Reykjavíkurborgar vera til
fyrirmyndar og sagði að í honum
fælist viðurkenning á hestamennsk-
unni sem íþrótt. Jón tók undir þetta.
„Mér finnst Ingibjörg Sóh-ún hafa
stækkað mikið við að útvega þessa
aðstöðu hérna,“ sagði Jón. Báðir
töldu þeir hrossarækt fara batnandi
og erfitt að greina á milli bestu
hrossa enda bara nokkrar kommur
sem skildu á milli einkunna.
„Slæmt veður - góðir hestar“
Vinkonurnar Anne-Marie Martin
frá New York og Elizabeth Sutton-
Sommer frá Nýja-Sjálandi töldu
landsmótið fara vel af stað. Hestarn-
ir væru frábærir en veðrið mætti
kannski vera betra. Friedhelm
Summer frá Þýskalandi tók undir
þetta en bætti við að e.t.v. mættu
vera fjölbreyttari veitingastaðir á
landsmótinu. Elizabeth, Anne-Marie
og Friedhelm sátu í stórum hópi
hestamanna frá ýmsum löndum þótt
Þjóðverjar væru þar býsna áberandi
enda miklir áhugamenn um íslenska
hestinn.
Guðjón Hrafn Sigurðarson og Ása María Ásgeirsdóttir og synir þeirra
Sigurður og Viktor Máni fylgdust vel með sýningum á kynbótahrossum.
Lífið í
Latabæ
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Þeir félagar Tómas og Sigurður í athvarfinu í Latabæ við „Monthan-
ann“ sem þeim var færður að gjöf þegar þeir keyptu hesthúsið.
„MENN verða annaðhvort að vera í
þessu eða ekki og helst verður fjöl-
skyldan öll að taka þátt í þessu,“ seg-
ir Sigurður Jensson, einn af eigend-
um hesthúss við Faxaból á
Fákssvæðinu sem stundum er nefnt
Latibær. Hesthúsið er afar vel búið,
jafnt fyrir hestamenn sem hross. I
húsinu er pláss fyrir 22 hross en
tveir hestar eru í hverju hólfi. í hólf-
unum eru tvær vatnsskálar þannig
að hrossin þurfa ekki að slást um
vatn né mat. „Þetta eru náttúrlega
svítur,“ segir Sigurður. Ekki væsir
heldur um reiðmennina því kaffistof-
an í hesthúsinu er sérlega glæsileg,
með leðursófasetti, bar og sjón-
varpskrók.
Rígur í hestamennskunni
Sigurður segir góðan anda rikja á
landsmótinu. Það þykir sjálfsagt að
lána keppinautum sínum hesthúsin
en þegar út á völlinn er komið harðn-
ar samkeppnin. „Það er harka þegar
komið er inn á völlinn og það er ríg-
ur. Ef það er einhvers staðar rígur
þá er það í hestamennskunni,“
EIGNAMIÐIIMN
msEEs&ztESSSœS
uutém^
'SSHmStL
SíAiumila 1í I
ninmtniunmmwrtiHnmiH
Stóreignir óskast
Höfum verið beðnir um að útvega:
2.500-3.000 fm skrifstofubyggingu (atvinnuhúsnæði).
4.000-5.000 fm skrifstofubyggingu (atvinnuhúsnæði).
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veita Sverrir, Stefán Hrafn eða Óskar.
Neyðarkassinn er sérútbúinn
fyrir allar náttúruhamfarir.
Hann inniheldur allar þær
nauðsynjar sem þörf er á við
slíkar aðstæður.
Kassinn sem er viðurkenndur
af Kanadíska heilbrigðis-
kerfinu hefur reynst einstak-
lega vel í Norður-Ameríku.
Hægt er að sníða kassann að
þínum óskum, hvort sem er
við snjóflóða-, jarðskjálfta-
eða önnur svæði.
Heimiliskassinn
Kassar fyrir fjölskylduna.
Fyrirtækjakassinn
Fyrir 5, 10, 35, 100 og fleiri.
Allar upplýsingar og sala í síma
GJALDFRJÁLST ÞJÓNUSTUNÚMER
Heildarlausnir i áfaLLa-
og neyðartilfellum