Morgunblaðið - 09.07.2000, Page 46

Morgunblaðið - 09.07.2000, Page 46
46 SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Mikið framundan hjá Magus-framleiðslu Morgunblaðið/Ásdís Margrét Jónasdóttir er handritshöfundur Haf- meyja á háum hælum og þátta um gosið í Heimaey sem nú eru í undirbúningi. Hafmeyjar og Heimaeyj argos Fyrr á árinu voru sýndir á Stöð 2 athyglis- verðir þættir um þorskastríðið. Margrét Jónasdóttir sagnfræðingur er einn aðstand- enda Magus-framleiðslu sem stóð að gerð þáttanna. Hún sagði Skarphéðni Guð- mundssyni frá næstu tveimur verkefnum; frásögnum eiginkvenna sjómanna og þeirra sem upplifðu gosið í Heimaey 1973. „VLÐ VORUM bæði undrandi og ánægð með viðtökumar við þorska- stríðsþáttunum," segir Margrét og hellir hvítri mjólkinni út í kaffiboll- ann og síðan bleksvörtu kaffinu úr þrýstikönnu svo úr varð þessi líka gimilegi brúni litur - sá sem einmitt er kenndur við umræddan drykkinn heita og ljúffenga. „Skoðanakannan- ir sýna að alveg ótrúlegur áhugi hafi verið fyrir þáttunum ekki síst meðal ungs fólks sem hingað til hefur verið sakað um að kæra sig kollótt um sögu okkar og fortíð, en um 25% á aldrinum 16-25 ára sáu þættina," bætir hún við. „Þættirnir vom sýndir í læstri dagskrá en samt mældist allt upp í 50% áhorf á landsvísu og er þá ekki einungis átt við áskrifendur Stöðvar 2. Þessi sterku viðbrögð hafa vitanlega gefið okkur byr undir báða 1 vængi og hvatt okkur til þess að halda ótrauð áfram á svipaðri h'nu.“ MiðasalaS. 5552222 The Hammer of Thor A mythological action-comedy Fös 14/7 kl. 20 Laus sæti Sýningartími 50 mínútur. Ath. síðasta sýning. I.EIKFELAG ISI ANDS ’H'astAÍjNM 552 3000 THRILLER sýnt af NFVI frumsýning fös. 7/7 kl. 20.30 nokkur sæti laus fös. 14/7 kl. 20.30 laus sæti lau. 15/7 kl. 20.30 laus sæti fös. 21/7 kl. 20.30 laus sæti Ath. Einungis þessar 4 sýningar 530 3O3O BJÖRNINN — Hádegisleikhús ___ með stuðningi Simans jflfJA fim. 13/7 kl. 12 IJ/ltV fös 14/7 |(|. 12 Miðasalan er opin frá kl. 12-18 I Loftkastalanum og frá kl. 11-17 I Iðnó. Á báðum stöðum er opið fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar sýning er. Miðar óskast sóttir f viðkomandi leikhús. (Loftkastalinn/lðnó). Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu. Mynd um eiginkonur sjómanna Við gerð þorskastríðsþáttanna varð til kveikjan að annarri heimild- armynd sem nú er á lokastigi. Þar er á ferð 52 mínútna þáttur sem ber vinnuheitið Hafmeyjar á háum hæl- um og geymir frásagnir fimm eigin- kvenna sjómanna frá fímm löndum, Noregi, Kanada, Englandi, Japan og íslandi. „Það var fyrir um ári sem ég var að leggja drög að doktorsritgerð minni í Hull á milli þess sem við vorum að mynda fyrir þorskastríðsþættina," skýrir Margrét. „Þar sem ég var búin að afgreiða sjálfa sjómennina í mastersritgerð minni þá hafði ég áhuga á að gera doktorsritgerð sem kynnti sjónarmið eiginkvenna þeirra og bama á sama hátt og áður, þ.e. með því að taka viðtöl. Þessar konur eru hjarta samfélags á borð við Hull og þær upplifa hnignun útgerðarinn- ar á allt annan máta en sjálfir sjó- mennimir. Þeir voru hetjurnar, fyr- irvinnan og þær ráku heimilið og sáu um öll mál fjölskyldunnar í landi. En síðan þegar halla fór undan fæti í út- gerðinni komu eiginmennirnir í land atvinnulausir, með brostið sjálf- straust og eiginkonan varð allt í einu að fara að sjá fjölskyldunni farborða. Slík þróun hefur vitanlega djúpstæð áhrif á samfélagið. Ut frá þessum vangaveltum mín- um ákváðum við hjá Magus í sam- vinnu við Stöð 2 að gera þátt um kon- ur sjómanna frá fimm löndum til þess að kynnast þeim betur, hvemig það er að vera gift manni sem er að heiman 320 daga á ári. Jafnframt höfðum við áhuga á að komast að raun um hvort þessar fimm konur ættu eitthvað sammerkt burtséð frá menningammhverfi og þjóðemi og hvemig líf þeirra hefur breyst í tím- ans rás. Tvær kvennanna era á sjö- tugsaldri og búa í samfélagi þar sem fiskveiðar hafa dregist mjög saman. Þær horfa því aðallega til fortíðar- innar og rifja upp þær miklu svipt- ingar sem hafa orðið. Ein er á fimm- tugsaldri en tvær era ungar eiginkonur sjómanna á frystitogur- um, nútímakonur sem em sjálfar úti á atvinnumarkaðinum. Þessi breidd gerir viðhorf kvennanna og frásagnir áhugaverðari. Við reynum síðan að flétta frá- sagnimar saman og setja þær í víð- ara samhengi en lögðum þó ríka áherslu á að frásagnir hverrar og Eiginkonur sjómanna frá þremur löndum: Þórunn Rúnarsdóttir býr í Vestmannaeyjum, Mineko Sugimoto býr í Hagi í Japan og Gven Corkum býr í Nova Scotia í Kanada. einnar fengju að njóta sín sem best óáreittar.“ Þessar konur eru algjörir töffarar Leitaðistu við að fá svar við ein- hverjum spumingum ? „Já, ég gerði ráð fyrir að þessar konur hefðu svipuð persónuein- kenni," segir Margrét, „en þær reyndust mjög ólíkar. Það voru samt nokkur einkenni sem sameinuðu þær eins og tii dæmis að þær em allar mjög kraftmiklar og einfaldlega al- gjörir töffarar. Þær sem voru það ekki þegar þær giftust em það í dag. Okkur, sem stóðu að þættinum, finnst þessar konur ekki síður hetjur en eiginmenn þeirra sem eru á hafi úti. Konan sem er heima þarf að takast á við áhyggjur hins daglega amsturs, sjá um sálarheill fjölskyldunnar, fjárhaginn, uppeldið og að rækta samskipti við vini og vandamenn. Eg fór ekki af stað með fyrirfram gefnar forsendur því ég gat lítið undirbúið rannsóknina þar sem lítið er til skrifað um eiginkonur togara- sjómanna í þessum löndum sem við heimsóttum." Hvernig valdirðu konurnar? „Ég var ekkert að leita sérstak- lega eftir konum sem ættu eitthvað sameiginlegt," svarar Margrét. „Ég var ekki heldur að leita að bestu sög- unum heldur kannski frekar réttu persónuleikunum sem rímuðu saman og gætu borið þáttinn. Ég lét síðan viðmælendurna ráða ferðinni um hvað rætt var um og var alls ekkert að reyna að fiska upp úr þeim eitt- hvað krassandi." Hvaða áhrif heldurðu að myndin eigieftir að hafa á fólk? „Ég er ekki frá því að konur af ýmsum stigum þjóðfélagsins eigi eftir að hnippa í eiginmenn sína og segja að svona sé þetta einnig hjá sér,“ segir Margrét. „Myndin fjallar um venjulegt líf kvenna, tiifinningar þeirra og þrái- þannig að hún ætti að hafa allvíða skírskotun." Hvenær og hvar verður myndin svosýnd? „Hún verður sýnd seinna á árinu á Stöð 2,“ svarar Margrét. Margrét segir að í upphafi hafi verið ákveðið í samráði við íslenska útvarpsfélagið að markaðssetja verkefni Magusar erlendis. Þegar hefur verið samið við NRK í Noregi um kaup á þættinum Hafmeyjar á háum hælum og um- ræður em í gangi við nokkrar aðrar erlendar sjónvarpsstöðvar." Sögur af Heimaeyjargosi Þið eruð þegar farin að leggja drög að annairi heimildarmynd, er ekki svo? „Já, Magus er að leggja di-ög að fjögurra þátta röð um gosið í Heima- ey 1973 fyrir Stöð 2 og í góðri sam- vinnu við Vestmannaeyjabæ," svarar Margrét. „Markmiðið er að leggja áherslu á mannlega þáttinn fremur en hinn vísindalega, þ.e. hann verður líkt og hinar heimildarmyndirnar byggður á viðtölum við fólk sem upp- lifði gosið; Vestmannaeyinga, björg- unarfólk og aðra sem að málinu komu. Ég skrifa handritið sem fyrr og byija rannsóknarvinnuna í ágúst þegar ég fer til Eyja í tvo mánuði til að taka viðtöl og kynna mér efnið nánar en ég áætla alveg hálft ár í undirbúninginn.“ Þið ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Fyrst var það þorskastríðið og nú gosið í Heimaey. Hvers vegna varðþað fyrir valinu ? „Hefurðu einhvern tímann heyrt í eða séð þátt þar sem fólkið sem upp- lifði gosið hefur tjáð sig um reynslu sína og raunir?“ spyr hún blaðamann um hæl sem hugsar sig stuttlega um en svarar síðan neitandi. Hún segir hugmyndina annars hafa verið mót- aða í nánu samstarfi við dagskrár- stjóra Stöðvar 2: „Við munum sam- hengisins vegna koma inn á hinn vísindalega flöt en aðallega munu þættimir þó byggjast á viðtölum við íbúa Vestmannaeyja. Það hlýtur að vera áhugi fyrir því hver afdrif þeirra fjölskyldna sem flýja þurftu heimkynni sin urðu - þessa fólks sem allt í einu þurfti að finna sér nýtt heimili hvar sem er á landinu, fá sér nýja vinnu, börnin þurftu að byija í nýjum skólum eða dagvistun. Eigumar allar komnar undir hraun og enginn fékk leyfi til að fara út í eyju til að bjarga þó því sem bjargandi var.“ Hvernig haíið þið í hyggju að taka á efninu? „Áformin em að skipta því alveg eftir þáttunum," svarar Margrét. „Fyrsti þátturinn verður um nóttina sem gosið hófst, hvernig mönnum varð við og hvernig til tókst að forða þeim í land, annar kemur að björg- unaraðgerðunum, þriðji um líf flóttafólksins í landi, hvernig því leið og tókst að aðlaga sig breyttu um- hverfi eftir hinar skyndilegu svipt- ingar og fjórði og síðasti þátturinn fjallar um uppbygginguna í Vest- mannaeyjum en þar veltum við einn- ig upp spurningum eins og; hvers vegna sneri fólk aftur sem hafði misst hús sitt og aleigu? Hvernig leið því í eynni og hvernig fór það að því að byggja sér nýtt líf þar? Og þá munum við líka koma að þeim sem ekki sneru aftur sem var um þriðj- ungur fólksins. Hvers vegna sneri það ekki aftur?“ Hvernig heldurðu að fólk muni taka þér; heldm-ðu að fólk sé tilbúið að tala um þessar raunir? „Ég vona að nægur tími sé liðinn tO að fólk treysti sér til að tala um þessa atburði. Auðvitað vitum við ekki hvemig fólk mun taka okkur en við vonumst til þess að eiga gott sam- starf við Eyjamenn og aðra sem á einn eða annan hátt tengdust þessum óskaplegu náttúruhamfömm." Eru fleiri stórir atburðir í sögu 20. aldar sem Magus hyggst fjalla um með svipuðum hætti, þ.e. í gegnum upplifun þeirra sem komu við sögu? Margrét hlær við og viðurkennir fúslega að svo sé: „Við erum með nokkur verkefni í farvatninu sem jafnvel verður byrjað að undirbúa samfai-a gerð þáttanna um gosið í Heimaey en þau em komin of skammt á veg til að hægt sé að gefa upp viðfangsefnin."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.