Morgunblaðið - 26.08.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 26.08.2000, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Gulf Air útilokar „á þessari stundu“ að mistök hafí valdið flugslysinu á Barein Flugritar sendir til Evrópu eða Bandaríkjanna Hamad Ali, yfirflugstjóri á Airbus A320-flota Gulf Air, á fréttamanna- fundi í gær ásamt Sheikh Ahmed bin Saif al-Nehyan, framkvæmda- stjóra félagsins, og Saalim al-Salmi, aðstoðarmarkaðsstjóra þess. Manama í Barein. AP, AFP, Reuters. FLUGRITAR Airbus A320 þotu flugfélagsins Gulf Air, sem fórst í aðflugi á Barein í Persaflóa á mið- vikudagskvöld, verða sendir til Evrópu eða Bandaríkjanna til rann- sóknar og túlkunar, að því er fram- kvæmdastjóri félagsins sagði á fréttamannafundi í gær. Sheik Ahmed bin Saif al-Nahayan sagði ennfremur að hvorki flugritinn, sem geymir tækniupplýsingar um flugið, né hljóðritinn úr stjómklefa vélar- innar, hefðu verið opnaðir. Þotan var í aðflugi að flugvellin- um í Manama á Barein en steyptist í hafið og fórust allir sem með henni vora, 135 farþegar, flestir Egyptar, og átta manna áhöfn. Flugstjóri vél- arinnar tilkynnti ekki um nein vand- kvæði í aðfluginu og talaði með eðli- legri röddu fáeinum mínútum áður en vélin fórst, sagði Hamad Ali, yfir- flugstjóri Airbus 320-flota Gulf Air, á fréttamannafundinum í gær. „Enn sem komið er bendir allt til þess að ekkert hafi verið að. [Flug- stjórinn] hélt áfram að lækka flugið uns hann var kominn í einnar sjó- mílu hæð og bað þá um að fara hring og koma aftur. Ekki er vitað hver ástæða þessa var,“ sagði Ali. „Hann fór hring [...] og u.þ.b. eina sjómílu frá lendingu hvarf vélin af ratsjá.“ AIi sagði ennfremur að öll sam- skipti áhafnar vélarinnar við flug- turn hefðu verið eðlileg, þ.á m. tónn- inn í rödd flugstjórans. Enn ætti eftir að komast að því hvers vegna hann hefði farið fram á að fara hring og koma aftur. Blaðið Bahrain Tribune hafði eftir ónafngreindum AP heimildamönnum að flugstjórinn hefði nálgast flugbrautina á miklum hraða og hefði flugumferðarstjórnin beðið hann að fara hring og draga úr hraðanum. Þá kom fram í máli Alis á frétta- mannafundinum að „á þessari stundu“ væri ekki talið að mistök flugmanna væru orsök slyssins. Hann bar líka til baka fréttir bar- einskra flugmálayfirvalda um að vélin hefði verið í þriðju aðflugstil- raun þegar hún fórst og sagði ein- ungis eina tilraun hafa verið gerða áður en vélin steyptist í hafið. Ali bar einnig til baka fréttir um að eldur hefði komið upp í hreyfli vélarinnar. Airbus A320 er tveggja hreyfla og eru mótorarnir fram- leiddir af bandaríska fyrirtækinu General Electric og franska ríkis- fyrirtækinu SNECMA. Engar vís- bendingar hefðu komið fram um að eldur hefði kviknað í öðrum hreyfl- inum eins og sjónarvottar hefðu borið um. Dýpi á þeim stað sem vélin lenti í sjónum er um þrír metrar og í gær héldu kafarar frá Barein og banda- ríska flotanum áfram að leita að braki úr vélinni. Fulltrúar banda- ríska samgönguöryggisráðsins, NTSB, og franskir rannsóknar- menn eru komnir til Barein til að að- stoða við opinbera rannsókn á slys- inu, en hún hefst formlega í dag. Auk þeirra er fulltrúi frá framleið- anda vélarinnar, evrópsku flugvéla- samsteypunni Airbus Industrie, kominn til Barein vegna rannsókn- arinnar. Sameiningarhugmyndir Baraks „síðasta hálmstráið“ ísraelskir fréttaskýrendur segja forsætis- ráðherrann róa lífróður til þess að bjarga ríkisstjórn sinni frá falli, og leiðtogar hinna flokkanna hafa ekki sýnt hugmyndum Baraks um þjóðstjórn neinn áhuga. HÁTT í tveir þriðju ísraela eru þeirrar skoðunar að Ehud Barak forsætisráðherra hafi ekki góða stjórn á málefnum ríkisins, sam- kvæmt niðurstöðum skoðanakönn- unar sem ísraelskir fjölmiðlar greindu frá í gær. Var könnunin unnin af Dahaf-stofnuninni, og leiddi hún í ljós að 64% aðspurðra voru sammála þeirri fullyrðingu að stjórn Baraks væri „léleg“, en 33% voru ósammála fullyrðingunni. Aftur á móti kvaðst meirihluti vera hlynntur þeim stjórnarfars- umbótum sem Barak hefur nýlega lagt til og fela meðal annars í sér samþykkt stjómarskrár þar sem kveðið er á um aukin réttindi kvenna, afnám sérréttinda strang- trúaðra gyðinga, t.d. undanþágu þeirra frá herskyldu, og skipulag skóla í samræmi við ríkisskólana. Þá vill hann að borgaraleg hjónabönd verði leyfð og trú- málaráðuneytinu verði lokað. Blað- ið Jerusalem Post hefur eftir hon- um í gær að fyrirætlanir hans séu ekki andstæðar trúnni og að hann muni ekki gera neitt nema „með viðræðum." Hann muni þó ekki láta viðgangast að viðræður við flokka trúaðra leiði til þess að allt sigli í strand. Sextíu og fjórir af hundraði lýstu sig hlynnta áform- um Baraks um samfélagsumbætur. Óvinsælli en Netanyahu En forsætisráðherrann er enn ekki eins vinsæll og forveri hans af hægri vængnum, Benjamin Netan- yahu, og segjast aðeins 43% myndu kjósa Barak ef efnt yrði til kosn- inga nú, en 47% myndu kjósa Net- anyahu. í ísrael er forsætisráð- herra kosinn sérstaklega í al- mennri atkvæðagreiðslu. Flokkar strangtrúaðra, t.d. Shas-flokkurinn, hafa eindregið hafnað tillögum Baraks um „ver- aldlega byltingu" og hafa forystu- menn trúaðra sagt að Barak vilji útrýma þætti trúarinnar í ísra- elsku samfélagi. Ríkisstjóm Baraks hefur ekki lengur meirihluta á þinginu, en í kjölfar þess að friðarviðræður hans við Yasser Arafat, leiðtoga Palest- ínumanna, fóru út um þúfur í Bandaríkjunum í síðasta mánuði sögðu fjölmargir þingmenn sig úr stjórninni, þ. á m. yfirgaf Shas- flokkur strangtrúaðra stjómina. Var Barak legið á hálsi fyrir að hafa gefið of mikið eftir í viðræðun- um við Arafat. í biðilsbuxurnar ísraelskir fréttaskýrendur segja að Barak hafi í vikunni tekið fyrsta eiginlega skrefið í átt að myndun þjóðstjórnar, er hann biðlaði til Likud-bandalagsins um að það gangi til stjómarsamstarfs innan fárra vikna ef friðarviðræður við Palestínumenn sigla endanlega í strand. Kemur þetta fram í blaðinu Ha’aretz í gær. í útvarpsviðtölum sagði Barak að félagar í Likud væm „gott fólk“ og hrósaði í hástert leiðtoga flokks- ins, Ariel Sharon, og gaf í skyn að hann gæti gegnt embætti utanrík- isráðherra í þjóðstjórninni. Sagði Barak m.a. að „aðdáun" sín á Shar- AP Ehud Barak mætir ásamt ráð- herrum sínum til vikulegs rík- isstjómarfundar. on væri „ekkert leyndarmál." En Sharon sagði í viðtali við Ha’aretz að ef hann gengi til liðs við stjórn- ina - sem hann hygðist alls ekki gera - myndi David Levy verða ut- anríkisráðherra. Levy gegndi reyndar því em- bætti í stjórn Baraks, en hann var einn þeirra sem sögðu skilið við stjómina í kjölfar friðarfundarins í Bandaríkjunum. Barak sagði að hann vildi koma á „borgaralegri stefnu" ásamt Lik- ud, Meretz-flokknum, Shinui- flokknum og Miðjuflokknum. „Við eram á sama báti,“ sagði Barak, „og ég er viss um að Sharon er líka að hugleiða þetta alvarlega vegna þess að þetta er alvarlegt mál.“ En hvatningarorð Baraks til sameiningar hlutu yfirleitt dræmar undirtektir, að sögn fréttaskýr- anda Ha’aretz, og er litið á orð for- sætisráðherrans sem örvænt- ingarfulla tilraun - síðasta hálmstráið áður en boðað verði til kosninga. Sharon hafi sagt að hann hafi engan vilja til að starfa með Barak vegna þess að forsætisráðherrann hafi gefið of mikið eftir í viðræðun- um við Palestínumenn, einkum hvað varðar Jerúsalem. Heimildarmenn innan Likud segja auk þess, að jafnvel þótt Sharon vildi ganga til liðs við Bar- ak myndi það reynast honum erf- itt, því ólíklegt sé að miðstjóm flokksins myndi samþykkja slíkt í ljósi þess hve veik pólitísk staða Baraks er. Þá megi Sharon ekki láta í það skína innan flokksins að hann standi í vegi fyrir endurkomu Netanyahus, sem njóti mikils stuðnings í miðstjóminni. Á ljörur við Meretz í yfirlýsingu frá forsætisráð- herraembættinu segir að Meretz- flokkurinn sé „náttúralegur félagi" Verkamannaflokks Baraks og að forsætisráðherrann sé sannfærður um að Meretz verði fyrstur flokka til að koma til samstarfs þegar stjórnin verði stækkuð. En við- brögðin hjá Meretz vora fráleitt já- kvæð, að sögn Ha’aretz. Sagði leið- togi flokksins, Yossi Sarid, að flokkur sinn myndi aldrei taka þátt í stjórn með aðild Likud eða ann- arra hægriflokka. Stjórnmálamenn sem ekki era nafngreindir era hafðir fyrir því í Ha’aretz að hvað svo sem komi út úr tilraunum Baraks til að bjarga stjórn sinni með því að mynda þjóðstjórn, kunni þessar tilraunir að gera út um alla möguleika á frið- arsamningum við Palestínumenn einmitt núna þegar þær era á hvað viðkvæmustu stigi. En aðrir túlka aðgerðir forsætisráðherrans aftur á móti sem svo að hann sé að senda Arafat óbein skilaboð um að ef hann sýni ekki meiri sveigjanleika kunni hann að tapa því sem hefur þó áunnist. Íg Fylgi Schröders eykst GERHARD Schröder, kanslari Þýskalands, kom afar vel út í skoðanakönnun þar sem svar- endur vora spurðir um álit sitt á helstu stjómmálaflokkum Þýskalands. Samstarfsmenn Schröders í rfldsstjórninni þóttu enn fremur koma óvenju vel út í könnuninni. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur Jafnaðar- mannaflokkur Schröders aukið fylgi sitt um 2% frá því síðasta könnun var gerð og fylgi sam- starfsflokks Jafnaðarmanna, Græningjaflokksins, hefur auk- ist um 1%. Kristilegir demókratar, sem era í stjómarandstöðu og misstu fylgi eftir að fregnir af fjármálamisferli Helmuts Kohls, fyrram kanslara, komust í hámæli, urðu hins vegar á ný fyrir nokkra fylgistapi og standa í 36%. Kwasniewski sigurviss ALLS tilkynntu þrettán fram- bjóðendur þátttöku sína í kom- andi forsetakosningum í Pól- landi í gær. Núverandi forseti, Alexander Kwasniewski, sem talinn er líklegur til að bera sig- ur úr býtum, lét kosningastjórn nöfn 1,7 milljón stuðnings- manna í té í gær en frambjóð- endur þurftu að sýna fram á stuðning 100.000 manna a.m.k. Kwasniewski mun þurfa að kljást við marga frambjóðendur sem teljast á miðju eða vinstri væng stjómmála. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur Kwasniewski um 65% fylgis kjósenda. Trúboði myrtur BANDARÍSKUR trúboðs- prestur, John Kaiser, sem bú- settur var í Kenýa, fannst látinn á fimmtudag við bíl sinn og hafði hann verið myrtur með haglabyssu. Kaiser var 67 ára gamall og einn af ötulustu tals- mönnum mannréttinda í land- inu. Hafði hann meðal annars afskipti af máli sem reis vegna nauðgunarkæra sem borin var fram gegn háttsettum embætt- ismanni á skrifstofu Daniels ar- ap Mois, forseta Kenýa. Kaiser var afar umdeildur vegna gagnrýni sinnar á forset- ann og stuðningsmenn hans. Fyrr á árinu sakaði hann ráð- herra í ríkisstjórninni um að hafa æst til ættbálkaóeirða árin 1991 og 1997 og síðan hefðu ráð- herramir lagt undii’ sig jarðir sem fólk flúði af vegna ótta við ofbeldið. Stöðva vél- hjólamenn LANDAMÆRAVERÐIR hindraðu S gær tugi evrópskra vélhjólamanna í að komast til Finnlands en þar verður um helgina haldinn alþjóðlegur samfagnaður liðsmanna Hell’s Angels-vélhj ólasamtakanna. Talsmenn lögreglu sögðu í gær að eingöngu því fólki sem væri á sakaskrá hefði verið meinaður aðgangur en Finnar hafa miklar áhyggjur af því að átök meðal vélhjólagengja kunni að brjót- ast út í tengslum við fagnaðinn. t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.