Morgunblaðið - 26.08.2000, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 26.08.2000, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000 27 Reykj avíkurborg Morgunblaðið/Kristinn Heitar máltíðir í alla grunnskóla FRÆÐSLURÁÐ hefur samþykkt að öllum einsetnum grunnskólum í Reykjavík verði gert kleift að bjóða upp á heitar og kaldar máltíðir frá og með 1. september. „Lögð verður áhersla á að maturinn verði hollur, fjölbreyttur og lystugur og er þar gengið út frá manneldismarkmið- um um hvað almennt er talið hollt,“ segir Brynhildur Briem, lektor við Kennaraháskóla Islands, sem á sæti í vinnuhóp á veg- um Fræðslumiðstöðv- ar Reykjavíkur sem unnið hefur að þessum málum. Boðið verður upp á heitar máltíðir 2-3 daga í viku en hina dagana kaldar máltíðir. Þannig verður það að vera fyrst um sinn að sögn Brynhildar vegna þess að aðstaðan í eldhúsum skólanna er þannig að ekki er hægt að hafa heitan mat alla daga. Þetta verður valmöguleiki fyrir bömin og verður maturinn seldur á ko.stnaðaiverði. Skólamáltíðirnar verða teknar upp í áföngum, nú í haust er gert ráð fyrir að allir einsetnir gmnnskólar muni geta boðið þær í fyrsta til fjórða bekk en gert er ráð fyrir að haustið 2002 verði allir grunnskólar í Reykjavík með skólmáltíðir í þess- um bekkjum. Síðan mun þetta fær- ast upp í efri bekki eftir því sem unnt er. „Þetta er mikil fram- kvæmd sem tekur tíma að koma á en verður unnið að í skólunum fi-am eftir hausti. Síðastliðinn vetur vom heitar skólamáltíðir þegar komnar í um 15% skóla á höfuðborgarsvæð- inu svo þetta stefnir í rétta átt,“ segir Bryndhildur. Hún segir vinnuhóp hjá Fræðsluráði Reykja- víkur hafa unnið að þessu um nokk- urt skeið en nauðsynlegt hafí verið að gera úrbætur í matarmálum barna í skólum. „Skóladagurinn er að lengjast og börnin borða ekki heima í há- deginu. Flestir for- eldrar vinna lengi á daginn og fá mat í vinnunni þannig að kvöldmaturinn er víða léttur mat- ur. Þess vegna er nauðsynlegt að koma þessum máltiðum á í skólan- um og á í rauninni að vera sjálfsagt mál. Vinnandi fólk gerir samning um að fá sinn matartíma þar sem boðið er upp á mat í vinnunni eða það getur nálgast heitan mat. Skól- inn er vinnustaður barnanna þann- ig að þau eiga rétt á mat ekki síður en hinir fullorðnu. Ég held að borg- arstjórinn í Reykjavík sætti sig varla við að þurfa að fara í vinnuna með tvær þurrar samlokur á hverj- um einasta degi.“ Mikilvægt að nestið sé lystugt og hollt í MÖRGUM skólum þurfa börnin enn að koma með nesti en að sögn Brynhildar sýna kannanir að yngstu börnin séu duglegust að koma með nesti í skólann. Þegar þau eldist fari hins vegar nestis- pökkunum fækkandi af einhverj- um ástæðum. Hún segir gott ef skólarnir sjálfir setji sé vinnuregl- ur um nestistíma og að þau mál séu líka rædd í foreldrasamfélaginu. Góð næring í skólanum hefur mikil áhrif á líðan og getu bamanna í skólanum og því er mikilvægt að huga vel að nestisgerðinni. „Fyrst og fremst þarf nestið að vera lystugt svo að bömin borði það, vera í hagkvæmum umbúðum svo það geymist vel og fari vel í töskunni og vera hollt.“ Hún segir gróf brauð og bollur með áleggi vera hentug og mikilvægt sé að hafa áleggið ljölbreytt til dæmis ost, grænmeti, ávexti, skinku og kæfu. „Rætt hefur verið um að skinka og kæfa henti ekki sem álegg í nesti því þetta séu við- „HÉR erum við ekki byrjuð að bjóða upp á heitar máltíðir en verið er að skoða möguleika á því,“ segir Regína Höskuldsdóttir skólastjóri Mýrarhúsaskóla á Seltjamamesi þegar hún er spurð hvort ná- grannasveitafélög eins og Sel- tjamarnes ætli að feta í fótspor Reykjavíkur með því að bjóða upp á heitan mat í skólanum. „Skipaður hefur verið starfshópur á vegum skólans sem hefur kannað þessi mál. Við höfum verið að safna upp- lýsingum og reyna að sjá hentug- ustu leiðina." Hún segir að gerð hafí Gott er að setja grænmetisbita með í nestisboxið. kvæmar vörur sem geyma þurfí í kæli en þá er gott að nota frosið brauð sem þiðnar með álegginu á og helst þannig kalt fram eftir morgni." Hún segir að gott sé að setja ávexti og grænmeti með í nestispakkann til dæmis henti epli og bananar vel og mandarínur þegar þær séu fáanlegar. Af græn- meti má benda á gulrætur, tómata, rófubita og bút af agúrku sem pökkuð er inn í plast. í skólunum séu síðan yfírleitt seldar mjólkur- vörur og þá er um að gera að velja þær sem innihalda minnstan sykur. verið könnun meðal foreldra og komið hafi í ljós að skoðanir séu skiptar. Sumir taki vel í þessar hug- myndir en aðrir vilji sjá um nestið sjálfir. Hún segir að frumskilyrði fyrir því að skólar bjóði upp á mál- tíðir sé að viðunandi aðstaða sé fyrir hendi í skólanum tO að matast. Plássleysi hamli því að þetta verði að veruleika nú, skólinn sé yfirfullur og ekki gert ráð fyrir mötuneyti. „í augnablikinu er þetta því þannig að heimilin sjá um nestið en við seljum mjólk og skyr í skólanum og höld- um vatninu að börnunum." Skólinn er vinnu- staður barnanna þannig að þau eiga rétt á mat ekki síður en hinir fullorðnu I Mýrarhúsaskóla er ekki boðið upp á máltíðir Er verið að skoða möguleikana Heitar máltíðir í Arbæjarsköla Börnin hressari og betur upplögð til náms í ÁRBÆJARSKÓLA hefur verið boðið upp á heitan mat í hádeginu fyrir yngstu börnin síðastliðin tvö ár að sögn Þor- steins Sæberg skólastjóra. „Börnin fá hálftíma matarhlé í hádeginu þar sem boðið er upp á heitan mat í en við höf- um matráðskonu sem eldar matinn. Matseðillinn er send- ur út til foreldra mánuð fram í tímann þannig að þeir vita hvað barnið borðar hvern ein- asta dag. Þannig er hægt að forðast að barnið fái sama matinn um kvöldið.“ Hann segir um 90% foreldra nýta sér þessa þjónustu. „Þetta er alger bylting í starfinu hjá okkur. Við tökum eftir því að börnin eru hressari, betur upplögð til náms og líður gi-einilega mun betur þegar þau fá góða næringu í hádeg- inu.“ Hann segir eldri bömin ekki fá heitan mat en að stefnt verði á að það verði í boði fyrir þau með tímanum. „I augnablikinu stendur þeim annars konar fæða til boða, brauð, samlokur og þess hátt- ar. Það væri gaman ef hægt væri að bjóða þeim upp á heitan mat líka og spennandi að sjá hvaða viðtökur það fengi hjá þeim.“ Iðnbúð 1,210 Garðabæ sími 565 8060 Tvö þúsund við- skiptavinir 11-11 verslana fá send bréf í pósti Rukka matar- innkaupin frá því í fyrra UM tvö þúsund viðskiptavinir 11-11 búðanna og nokkrir við- skiptavinir Nóatúns hafa undan- fama daga verið að fá send bréf heim frá kortafyrirtækjum og Kaupási, þar sem þeim er gerð grein fyrir því að vegna mistaka hafi þeir ekki verið mkkaðir um matarinnkaup í maí árið 1999. Þeim er boðið að koma með at- hugasemdir áður en upphæðirn- ar sem um ræðir verði teknar af korti viðkomandi. Bjarki Júlíusson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Kaupáss, segir að vegna bilunar í tölvukerfi hafi um 2.000 ein- staklingar ekki verið rukkaðir og það hafi því miður ekki upp- götvast fyrr en löngu síðar. Hann segir að meirihluti við- skiptavina hafi tekið þessu vel og segir að meðalupphæðirnar sem um ræði nemi um 1.500 krónum. Nýtt Tæki gegn flugnabiti INNFLUTNINGUR og dreifíng ehf. hef- ur sett á markaðinn Zanza-Click, tæki sem vinnur á flugna- biti. I fréttatilkynn- ingu segir að tækið minnki þörfina á að klóra sér og dragi úr bólgum við flugnabit, en megi einnig nota á brunasár eftir brenninetlur. í tækinu er kristall sem gefur frá sér rafbylgjur. Setja á tækið við bitið og smella af fimm sinnum. Þannig sendir tækið frá sér rafbylgjur sem eiga að minnka kláða og særindi við bitið. Áríð- andi er að nota tækið sem fyrst eftir bit. Tækið gengur ekki fyrir rafhlöðum og það má nota á böm. Það er selt í lyfjaverslunum og Fríhöfninni í Leifstöð. Krem KOMIÐ er á mark- aðinn krem, In- tensive Moistur- izing Balm frá Stendhal. í frétta- tilkynningu frá Gasa segir að kremið sé raka- krem sem inni- haldi öragnir sem mýki húðina. Bifreiðastjórafélagið Sleipnir hefur gert kjarasamning við eftirtalin 18 fyrirtæki: Sérleyfisbíla Akureyrar hf., P. Hannesson, Bifreiðastöð Lyngáss, Hópferðabíla Bjarna og Braga, Guðmund Tyrfingsson ehf., Hópferðabíla Suðurlands, Vestfjarðaleið, Jóhannes Ellertsson ehf., Hópferðabíla Jónatans Þórissonar, Hópferðabíla Hauks Ægis, Hópferða- bíla Þórðar Jónssonar, Erlend Björnsson, Hópferðabíla Reynis Jóhannssonar, Snæland Grímsson hf., Hópferðabíla Inga Erlingssonar, Hópferðabíla Magnúsar Þórs Einarssonar, Ferðaþjónustu ÞIÞ ehf., Hópferðabíla Valgarðs Sigmarssonar og Hópferðabíla Kristgeirs Sigurgeirssonar. Birtum við hér með þá launataxta sem síðast voru gerðir og er gildandi samningur um lágmarkskjör. Síðast gildandi kjarasamningur aðila framlengist til 15. mars árið 2004 með þeim breyt- ingum og fyrirvörum sem í þessum viðbótarsamningi felst og falla þá úr gildi án sér- stakrar uppsagnar. Launataxtar Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis eru því svo hljóðandi: Mánaðarlaun Tímakaup Yfirvinna Stórhátíð Fyrsta árið: 90.560,00 532,71 911,94 1.024,51 Eftir eins árs starf: 96.899,00 570,00 975,77 1.096,22 Eftir þriggja ára starf: 103.682,00 609,89 1.044,08 1.172,96 Eftir sex ára starf: 110.940,00 652,59 1.117,16 1.255,06 Eftir níu ára starf: 118.706,00 698,27 1.195,37 1.342,92 Eftir tólf ára starf: 127.015,00 747,15 1.279,04 1.436,92 Þessir taxtar hækka um 3% hinn 1. janúar nk., 3% 1. janúar 2002, 3% 1. janúar 2003 og 3% 1. janúar 2004. Bifreiðastjórafélagið Sleipnir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.