Morgunblaðið - 26.08.2000, Page 30

Morgunblaðið - 26.08.2000, Page 30
30 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ i meðferd Börn Sagt frá höfuðbeina- og spjaldhryggs- jöfnun. Astmi tengdur við aukna neyslu ruslfæðis. mm g Bót á psoriasis kann að vera innan seilingar The New York Times Syndicate. SKJÓT og full bót á psoriasis og skjallbletti kann að vera innan seil- ingar fyrir þær milljónir manna sem þjást af þessum kvillum. Um er að ræða nýtt tæld, svonefndan „eximer- leysi,“ sem bæði nær skjótum árangri og virðist ekki hafa neinar aukaverk- anir vegna þess að það ræðst einungis gegn skemmdri húð, að því er vísinda- menn segja. Með tækinu er beitt útfjólubláum B-geislum, og geta þeir eytt ein- kennum sjúkdómanna á aðeins broti af þeim tíma sem þarf við beitingu eldri aðferða með útfjólubláum geisl- um, að því er læknar segja. Þá er hættan á húðkrabba mun minni, en hún var erfiður fylgifiskur eldri að- ferða. Psoriasis (einnig nefndur sóri á ís- lensku) er ólæknandi og veldur því að húðfrumur fjölga sér mun hraðar en eðlilegt er og myndast þykkar skellur á andliti, hnjám, olnbogum, höndum og fótum sjúídinga. Alls þjást um 1-2 prósent jarðarbúa af sjúkdómnum. Skjallblettur lýsir sér í því að allur litur hverfur úr húðinni á ákveðnum stöðum, oftast mjög áberandi stöðum eins og í kringum augu, munn og á höndum. Segja sérfræðingar þetta geta haft mjög alvarleg sálræn áhrif og einnig eykst hættan á húðkrabba á þeim stöðum þar sem litefni hverfa úr húðinni. Tilfelli skjallbletts eru um það bil jafntíð og tilfelli psoriasis, nema á Indlandi þar sem um átta Associated Press Leysitækni verður sífellt meira áberandi innan læknavísindanna. prósent íbúa þjást af sjúkdómnum. Hvorki psoriasis né skjallblettur er smitandi, en ekki er vitað hvað veldur þessum sjúkdómum. Eldri aðferðir við meðhöndlun psoriasis fela í sér að sjúklingar þurfa að standa í litlum klefa þar sem annaðhvort útfjólublá- um A- eða B-geislum er beint að þeim. Segja sérfræðingar að nauð- synlegt hafi verið að meðhöndla sjúkl- ing allt að 30 sinnum til þess að halda einkennum niðri í nokkra mánuði. Við tilraunir með nýju aðferðina, sem gerðar voru á 13 psoriasis-sjúkl- ingum, kom í ljós að ef sterkum geisla írá eximer-leysinum var beint að húð- skellu hvai'f hún samstundis og að fjórum mánuðum liðnum hafði hún ekki komið aftur. Greint var frá nið- urstöðum tilraunarinnar í Archives of Dermatology. Byltingar að vænta í annarri tilraun, sem gerð var með nýja tækið, var notaður veikari geisli, en árangurinn var hinn sami. Dr. James M. Spencer, fi-amkvæmda- stjóri húðskurðlækninga við Mt. Sin- ai-læknamiðstöðina í New York, greindi frá niðurstöðunum á fundi Bandarísku húðsjúkdómalækna- akademíunnar. „Þetta er mjög spenn- andi,“ sagði Spencer. Hætturnar við eldri aðferðir hafi að mestu verið úti- lokaðar. Útfjólublátt ljós veldur hrukkum og húðkrabba, segir Spencer, en þar eð hægt er að halda á nýja tækinu er hægt að beina því ein- ungis að þeim stöðum á líkamanum sem þörf sé á. Dr. Steve Feldman, aðstoðarpró- fessor í húðsjúkdómafræði við lækna- deild Wake Forest-háskóla, tekur undir það að nýja tækið sé spennandi, en bendir jafnframt á að það sé bara ein af mörgum, nýjum leiðum sem psoriasis-sjúklingum gefist nú á með- ferð. „Það má vænta algerrar bylting- ar í meðferð á psoriasis,“ segir hann. Tenglar Samtök psoriasis- og exemsjúkl- inga á fslandi'.www.psoriasis.is/ Astmi tengdur ruslfæði The Daily Telegraph. AUKIN neysla ruslfæðis og til- búinna rétta sem seldir eru í stórmörkuðum hefur verið bendluð við mikla fjölgun astma- tilfella í börnum á Vesturlönd- um. Slíkum tilfellum hefur fjölg- að svo mjög á undanliðnum áratugum að sérfræðingar ræða nú um „faraldur". Nýjasta vísbendingin um skað- semi þess mataræðis sem rutt hefur sér til rúms meðal barna á Vesturlöndum berst frá Aber- deen-háskóla. Vísindamenn þar könnuðu tíðni astmatilfella í börnum í Sádi-Arabíu í samstarfi við lækna þar syðra. Þykir hún hafa leitt í Ijós skýr og ótvíræð tengsl á milli astma í börnum og mataræðis þar sem lítið fer fyrir fersku grænmeti, vítamínum og steinefnum. Hópur visindamanna undir stjórn Anthony Seaton bar sam- an mataræði og heilsufar 100 barna með astma eða öndunar- erfiðleika og 200 barna sem eng- in merki sýndu um sjúkdóminn. Greint er frá niðurstöðunum í nýjasta hefti tímaritsins Thorax og kemur þar fram að fjöl- skyldusaga og lélegt mataræði tengist sjúkdómnum. Þau börn sem neyttu minnst af grænmeti, mjólk, E-vítamíni og steinefnum reyndust þrisvar sinnum líklegri um er mörgum áhyggjuefni. til að þjást af astma og „blæstri“. I rannsókninni kom fram að fjölskyldustærð breytti engu í þessu efni né heldur önnur veik- indi, fjárhagsleg afkoma eða reykingar foreldra. Um þetta sagði Anthony Sea- ton: „Með aukinni velmegun í Sádi-Arabíu siðustu 30 árin hef- ur vestrænt mataræði gerst al- gengara. Nú liggja fyrir sönnun- argögn í þá veru að mataræði sé mikilvægur þáttur í því hvort einstaklingur sem tilheyrir erfðafræðilegum áhættuhópi fær astma.“ Og prófessorinn bætti við: „Mataræði á meðgöngu get- ur verið sérlega mikilvægt til að mynda vörn gegn ofnæmi, þar sem það getur haft áhrif á þróun ónæmiskerfis fóstursins.“ Tenglar Um astma í börnum: www.net- doktor.is/Sjukdomar/Efni/ Astmi_i_bornum.htm Tímaritið Thorax: http:// thorax.bmjjournals.com/ Hvað er melatonin ? MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Spurning: Melatonin er víða selt, t.d. í Bandaríkjunum, sem nátt- úrulegt hjálparmeðal við svefn- leysi og til að jafna dægursveiflur líkamans, t.d. á ferðalögum. Einn- ig var talið að það kynni að draga úr streitu og ynni gegn krabba- meini. Fróðlegt væri að fá frekari upplýsingar um melatonin og áhrif þess, kosti, galla, aukaverkanir. Er ráðlegt að taka það á ferðalög- um og sem hjálp við tímabundnu svefnleysi? Er óhætt að taka það að staðaldri, t.d. fyrir þá sem vinna á síbreytilegum vöktum? Hvers vegna er það ekki selt hér á landi? Svar: Melatonin er efni sem myndast í heilakönglinum (pineal gland), sem er staðsettur nálægt miðju heilans. Efni þetta hefur verið þekkt lengi (í meira en 40 ár) en lítið er vitað með vissu um þýð- ingu þess í líkamanum. Mun meira af melatonini losnar út í blóðið að nóttu en degi og hafa sumir túlkað þetta svo að efnið taki þátt í að stjórna dægursveiflum líkamans. Það einkennir mjög rannsóknir á þessu lyfi að mismunandi rann- sóknarhópar fá iðulega ólíkar nið- urstöður. I sumum tilvikum hengja menn sig í niðurstöður ein- hverrar rannsóknar þar sem út- koman var mjög jákvæð fyrir nota- gildi melatonins, jafnvel þótt aðrir hafi ekki fundið það sama eða feng- ið þveröfuga útkomu. Sumt af því sem haldið er fram um melatonin byggist á frásögnum eintaklinga af áhrifum eða bata, sem þeir telja sig hafa fengið, en slíkar frásagnir hafa því miður ekkert vísindalegt gildi, heldur þarf skipulagða rannsókn á stórum hópi fólks. Hvorki er með þessu verið að vefengja slíkar frá- sagnir né gera lítið úr þeim á nokk- um hátt en þær duga ekki til að dregnar séu víðtækar ályktanir. Við skulum líta á dæmi um rök- semdafærsluna. Oft er talað um að magn melatonins í blóði minnki með aldrinum og með því að gefa efnið megi hægja á öldrun. Þessu til stuðnings er vitnað í dýratilraun- ir þar sem meðalaldur dýranna hækkaði um 20-25% ef þeim var gefið melatonin. Á þessu eru nokkr- ir gallar: Þó að flestir hafi fundið minnkað magn melatonins með hækkandi aldri er ekki þar með sagt að uppbótarmeðferð með melatonini dragi úr öldrunar- einkennum; sjaldan er talað um hinar dýratilraunimar þar sem meðalaldur hækkaði eldd eða jafn- Óþekkt áhrif vel lækkaði. Því er haldið fram að melatonin örvi kynhvöt og bæti kynlíf fólks en ekki er vitað til þess að slíkt hafi verið rannsakað hjá mönnum og reyndar hefur sést rýmun kynkirtla hjá tilraunadýr- um sem fengu lyfið. Einnig hafa sumir gert mikið úr því að melaton- in sé andoxunar-efni en aftur vantr ar á því rannsóknir hvort þessi eig- inleiki gagnist líkamanum á einhvem hátt. Á einu sviði eru niðurstöður rannsókna nokkuð sannfærandi, en það er varðandi notagildi melatonins við svefntruflunum sem stafa af ferðalögum yfir mörg tímabelti, vaktavinnu eða háum aldri. Margt bendir til að sumt gamalt fólk sem þjáist af svefn- truflunum geti haft gagn af því að taka melatonin sem svefnlyf, en gamalt fólk þolir venjuleg svefnlyf oft illa. Þegar melatonin er gefið sem lyf hefur þó reynst erfitt að finna hæfílega skammta. Skammtar hafa oftast verið á bilinu 0,1 til 200 mg en algengast er að gefin séu 1-3 mg í senn. Talsvert af rann- sóknum á melatonini em í gangi og stöðugt eykst vitneskja okkar um hugsanlega kosti þess og galla. Þeir sem stunda slíkar rannsóknir kvarta þó undan erfiðleikum við að fjármagna rannsóknirnar og bera þar einkum við áhugaleysi lyfja- fyrirtækja. Lyfjafyrirtækin hafa takmarkaðan áhuga vegna þess að melatonin er ódýrt efni sem ekki er hægt að fá einkarétt á, frekar en önnur efni sem myndast í líkamanum og gróðavon er því lítil. Hversu hættulegt er þetta lyf og hvaða áhættu er fólk að taka? Svo virðist sem bráð eituráhrif melatonins séu lítil, taka má mjög stóra skammta án þess að hætta sé á ferðum. Þetta gildir þó ekki endilega alltaf, t.d. hafa sést fóst- urskemmdir hjá dýram og ættu konur alls ekki að nota lyfið á með- göngutíma. Sömuleiðis er lítið sem ekkert vitað um áhrif melatonins á vöxt og þroska barna og unglinga, fólk sem tekur önnur lyf og fólk með sjúkdóma þar sem ónæm- iskerfið er of virkt (ofnæmi, sjálfs- ofnæmissjúkdómar, o.fl.). Um hugsanlega eiturverkun við lang- tímanotkun er einfaldlega sáralítið vitað. Vonandi á eftir að koma í Ijós að melatonin sé gagnlegt lyf með sem fæstum aukaverkunum. Stað- an er einfaldlega sú að við vitum ekki enn við hverju við ættum að nota lyfið og ekki heldur hvaða skammta við ættum að nota. Eina undantekningin er að nota má melatonin, stundum með góðum árangri, sem svefnlyf hjá öldraðum eins og áður er sagt. I Banda- ríkjunum er melatonin flokkað sem fæðubótarefni en í Evrópu, Kanada og víðar sem lyf. Melatonin er ekki á markaði í Evrópu vegna þess að enginn hefur sótt um að fá að setja það á markað sem lyf. Á NETINU: Nálgast má skrif Magnúsar Jóhannssonar um læknisfræðileg efni á heimasíðu hans á Netinu. Slóðin er: http:// www.hi.is/~magjoh/ • Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dög- um milli klukkan 10 og 17 f síma 5691100 og bréfum eða símbréf- um merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir- spurnir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hotmail.com. f, I 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.