Morgunblaðið - 26.08.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000 55 >
Senda ljósmyndir með tölvupósti
VÍKINGASKIPIÐ íslendingur kem-
ur í dag til Halifax í Kanada eftir að
hafa komið við í fjölmörgum höfn-
um á Nýfundnalandi. „Áhöfnin er í
miklum samskiptum við umheim-
inn, bæði síma- og töl vusambandi í
gegnum gervihnetti. Til að auð-
velda tölvusamskipti var settur upp
MarStar-hugbdnaður frá Net-
verki,“ segir í fréttatilkynningu frá
GSP almannatengslum.
Þar segir jafnframt: „Áhöfnin
hefur mikil samskipti í gegnum
tölvu skipsins og sendir meðal ann-
ars allar myndir sem teknar eru um
borð sem viðhengi með tölvupósti.
Þær myndir má meðal annars sjá á
heimasíðu leiðangursins, viking-
2000.com.“
Ungir jafnaðarmenn mót
mæla heimsókn Li Peng
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun ungra jafnaðar-
manna vegna heimsóknar Li Peng til
íslands: „Ungir jafnaðarmenn lýsa
andstöðu við því að íslensk stjóm-
völd bjóði Li Peng, forseta þjóðþings
Kína, hingað til lands í opinbera
heimsókn þar sem Li Peng var for-
sætisráðherra Kína þegar fjölda-
morðin á Torgi hins himneska friðar
voru fyrirskipuð þann 4. júní 1989.
Þar voru þúsundir mótmælenda ein-
ræðisstjórnarinnar í Kína særðir eða
drepnir þegar mótmælendur kröfð-
ust frelsis og lýðræðis á friðsamleg-
an hátt.
Með komu Li Peng til íslands
senda íslensk stjórnvöld þau skila-
boð til umheimsins að þau sætti sig
við blóðuga fortíð Li Peng. Það er
óréttlætanlegt með öllu og minnir á
ósiðleg samskipti Margareth
Thatcher við harðstjórann Pinochet
sem hafði þúsundir mannslífa á sam-
viskunni.
Ungir jafnaðarmenn skora á ís-
lenska ráðamenn að hunsa heimsókn
Li Peng og mótmæla þannig heim-
sókn manns sem ber ábyrgð á
hörmulegum fjöldamorðum. Sam-
skipti við slíka menn eru með öllu
óréttlætanleg."
Mótmæla
hugmyndum
um fjölgun
veiðifugla
FUGLAVERNDARFÉLAG ísland
hefur sent frá sér eftirfarandi álykt-
un vegna krafna Skotvís um fjölgun
veiðifugla:
„Fuglaverndarfélag íslands
leggst eindregið gegn hugmyndum
Skotveiðifélags Islands um fjölgun
veiðifugla hér á landi. Hvergi í hinum
vestræna heimi er leyft að drepa
hærra hlutfall af varpfuglafánu en
hér á landi eða nærri 40%. Frekar
ætti að hætta veiðum á sjaldgæfum
fuglum, sem standa tæpt eins og
dflaskarfi og toppskarfi. Einungis
3.200 dflaskarfspör verpa hér og
7.000 toppskarfspör, svo afar sterk
vistfræðileg rök eru því fyrir því að
hætta veiðum á þessum fuglum.
Verði veiðar á hrossagauki leyfðar er
stutt í að seilst verði lengra og farið
fram á að veiða aðra mófugla eins og
lóur, spóa eða jafnvel þresti. Flestir
þessara fugla eru veiddir einhvers
staðar erlendis. Tilfinningaleg rök
vega afar þungt í þessu máli og þjóð-
arsátt er um að vorboðana okkar
drepum við ekki.
Fuglaverndarfélagið álítur þá
röksemd skotveiðifélagsins, að
hrossagaukarnir drepist hvort sem
er algera hundalógík. Allar lífverur
deyja fyrr eða síðar og samkvæmt
því ætti að leyfa veiðar á miklu fleiri
fuglum eða jafnvel öðrum dýrum.
Einnig eru þær röksemdir afar vafa-
samar, að hefja beri hrossagauks-
veiðar, vegna þess að þeir eru skotn-
ir annars staðar eða að þeir vilji
frekar láta lífið hér á landi en erlend-
is. Æðarfuglar eru t.d. skotnir í stór-
um stfl á Norðurlöndum, stofninn er
stór og ætti því ekki að hefja æðar-
fuglaveiðar hér á landi?
Félagið leggst einnig gegn þvi, að
veiðar verði hafnar á súlu. Súluungar
eru slegnir í Vestmannaeyjum, um
10% unga þar eru drepin, og vafa-
samt hvort súlustofninn megi við
frekari afföllum af mannavöldum."
------*+*-------
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Kópavogi lýsir eftir
vitnum að umferðaróhappi er varð á
gatnamótum Nýbýlavegar og Dal-
brekku 21. ágúst sl. kl. 21.50.
Þar rákust á bifreiðar sem ekið
var um Nýbýlaveg úr gagnstæðum
áttum. Umferðarljós eru á gatna-
mótunum. Vitni vatnar að árekstrin-
um því ágreiningur mun vera um
stöðu umferðarljósa er hann átti sér
stað.
------I-H------
Opið hús í
Barnabæ
OPIÐ hús verður í dag, laugardag-
inn 26. ágúst í Leikskólanum Barna-
bæ, Hólabergi 74, frá kl. 14-16.
Leikskólinn er fyrir börn á aldrin-
um 6 mánaða til 3ja ára. Allir vel-
komnir.
NO NAME
og Professionails
/ 80 §ifi$t*itc! kr. vintiitigisrf
Þeir sem skrá sig í tísku- og Ijósmyndaförðun eða I naglaskólann
þennan dag eiga möguleika á að vinna vörupakka að verðmæti 80.000 kr.
Þeir sem áður hafa skráð sig á haustönn fara sjálfkrafa í pottinn.
Auk þess fó þeir sem skrá sig í tísku- og Ijósmyndaförðun (12 vikur),
kvikmyndaförðun (13 vikur) eða Naglaskóla Professionails og greiða
15.000 króna staðfestingargjald, 10% afslátt af skólagjaldi.
PR0FE^£#NAILÍ>
NONAME
Slmi 588 8300 • Fax 588 8500 | Bolholti 6-105 Reykjavlk | Sími 588 6525 eða 588 6526 • www.noname.is
( boði verður einstaklega litrík og skemmtileg dagskrá:
Nemendur úr leikhús- og kvikmyndaförðun sýna
m.a. sviðsförðun, latexförðun og fantasíuförðun.
Nemendur úr tísku- og Ijósmyndaförðun sýna m.a.
tímabilaförðun, tískuförðun, „smoky“ og brúðarförðun.
Boðið verður upp á fría förðun og ráðleggingar
frá nýútskrifuðum förðunarfraeðingum.
Nemendur úr Naglaskóla Professionails
sýna naglaskreytingar, litað gel á táneglur
og styrktargel fyrir herra.
Kynntir verða ýmsir valmöguleikar
í naglaásetningu.
Útskriftarmyndir nemenda verða
til sýnis ásamt vinnubókum.
Kennarar Förðunarskóla NO NAME og Naglaskóla
Professionails verða á staðnum og veita allar upplýsingar um
námið.
f