Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Opinber heimsókn Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Manitoba í Kanada
Verður sæmdur heiðurs-
doktorsnafnbót í
Winnipeg. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn
Davíð Oddsson forsætisráðherra heilsar Neil Bardal, kjörræðismanni
íslands í Manitoba, við komuna til Winnipeg í gær. Svavar Gestsson,
sendiherra og aðalræðismaður íslands í Winnipeg, er á milli þeirra.
DAVIÐ Oddsson, forsætis-
ráðherra, kom ásamt fylgdarliði í
opinbera heimsókn til Winnipeg í
Manitoba-fylki í Kanada í gær.
Næstu daga bíður hans viðamikil
dagskrá í Manitoba, sem tengist
fyrst og fremst framlagi íslands til
viðhalds menningarmála á svæð-
inu, en í fyrra samþykktu ríkis-
stjórn íslands, Eimskipafélagið og
Háskólasjóður að leggja samtals
fram 50 milljónir króna á þremur
árum til þess að tryggja aðra
kennarastöðu við íslenskudeild
Manitoba-háskóla og kosta endur-
bætur á íslenska bókasafninu í há-
skólanum. Auk þess styrktu ís-
lenska ríkið og Eimskip byggingu
menningarmiðstöðvar á Gimli með
framlagi upp á um 11 milljónir
króna, en Davíð opnar hana form-
lega á laugardag. Hann verður
sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við
Manitoba-háskóla í dag og opnar
íslenska bókasafnið í nýjum húsa-
kynnum á morgun.
Árdegis í dag hittir Davíð Gary
Doer, forsætisráðherra Manitoba,
en síðdegis verður hann sæmdur
heiðursdoktorsnafnbótí lögfræði
við Manitoba-háskóla. Á morgun
opnar hann íslenska bókasafnið við
Manitoba-háskóla í nýjum og bætt-
um húsakynnum en á laugardag
verður fjölbreytt dagskrá á Gimli
við Winnipeg-vatn. Þar leggur
RÚMLEGA tvítugur Reykvíkingur
var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í
Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir
peningafals. Ef maðurinn heldur
skilorð í þrjú ár fellur refsing niður.
Ákæra vegna málsins var gefin út á
hendur tveimur mönnum en ekki
tókst að birta samverkamanni hins
dæmda fyrirkall. Hann mun vera
við nám á Spáni. Ákærða var jafn-
framt gert að sæta upptöku á tölvu-
prentara og tveimur tölvudiskl-
ingum þar sem vistuð er mynd af
5.000 króna seðli, á annan mynd af
framhlið seðilsins og á hinn mynd
af bakhlið hans. Ennfremur var
ákærða gert að greiða allan sakar-
kostnað, þ.m.t. 50.000 króna máls-
varnarlaun verjanda síns.
Falsaði vegna
fjárhagsvandræða
Mönnunum var gefið að sök að
hafa í sameiningu falsað um fjöru-
tíu 5.000 króna peningaseðla í því
skyni að koma þeim í umferð sem
ósviknum gjaldeyri, en ákærðu not-
uðu síðan sjö falsaða 5.000 króna
seðla í viðskiptum í verslunum í
Davíð blómsveig að landnáms-
steininum á Willow Point eða Víð-
irnesi, sem er skammt fyrir sunnan
Gimli, afhjúpar skjöld til minning-
ar um landnám Islendinga á svæð-
inu fyrir 125 árum og opnar form-
lega tvær stofnanir á Gimli.
Annars vegar menningarmiðstöð
Reykjavík og Hafnarfirði í desem-
bermánuði sl. Ákærði játaði brot
sitt skýlaust fyrir dómi, en hann
viðurkenndi að hafa prentað út allt
að 100 seðla en þar af hefðu um það
bil 40-50 seðlar verið nógu sann-
færandi að hans mati til þess að
unnt væri að koma þeim í umferð.
Brotið komst hins vegar upp þegar
nota átti sjöunda seðilinn. Ákærði
bar því við að hafa leiðst út í þetta
brot af sjálfsbjargarviðleitni. Hann
hefði verið í fjárhagsvandræðum og
ekki séð aðra leið út úr þeirri stöðu
en að falsa peninga.
Rauf skilorð
I desember 1997 var ákærði
dæmdur í 45 daga varðhald, skil-
orðsbundið í 3 ár, fyrir minni háttar
líkamsárás. Með peningafölsuninni
rauf hann skilorð þess dóms. Voru
því bæði málin tekin til meðferðar
og dæmt í þeim í einu lagi. Dómara
þótti hæfileg refsing vera fangelsi í
12 mánuði en fullnustu refsingar-
innar var frestað og fellur hún nið-
ur eftir þrjú ár haldi ákærði al-
mennt skilorð.
við vatnið, The Waterfront Centre,
og hins vegar safn íslenskrar
menningararfleifðar í Vesturheimi
í sömu byggingu. Auk þess opnar
hann formlega enskan vestur-
faravef Ríkisútvarpsins, en á
sunnudag verður m.a. farið um
Nýja Island.
EINS hreyfils flugvél hlekktist á
við lendingu í sandfjöru í Fljótavík
í friðlandi Hornstranda hinn 8.
október sl. Nokkru áður en vélin
nam staðar sökk nefhjól hennar
nokkuð í gljúpan sand með þeim
afleiðingum að skrúfa hennar rakst
til jarðar. Við það bognaði annað
skrúfublaðið. Að auki rakst vinstri
vængur vélarinnar í sandinn.
Örn Ingólfsson, flugstjóri vélar-
innar segir flugvélina hafa verið á
„skokkhraða" þegar óhappið varð
og því afar lítil hætta á ferðum.
Tveir voru í vélinni auk Arnar. Þar
sem ekki var hægt að fljúga vélinni
frá Fljótavík var hringt eftir báti
sem kom og sótti þá félaga.
Tveimur dögum síðar fór Örn
dag
Davíð hafði stutta viðkomu í
Minneapolis í Bandaríkjunum á
leið sinni til Winnipejg, en þar hafði
hann móttöku fyrir íslcndinga bú-
setta á svæðinu og viðskiptavini ís-
lenskra fyrirtækja.
Hátíðarhöld í Kanada til að
minnast 1000 ára landnáms Islend-
inga í Vesturheimi hófust með
formlegum hætti í Ottawa, höfuð-
borg Kanada, 6. apríl sl., en þá af-
henti Davíð forsætisráðherra Kan-
ada m.a. gjöf til Kanada frá
íslensku þjóðinni. Síðan hafa verið
um 200 viðburðir vítt og breytt um
landið, sem Svavar Gestsson, sendi-
herra og aðalræðismaður Islands í
Winnipeg, og Guðrún Ágústsdóttir,
eiginkona hans, hafa skipulagt og
komið að með einum eða öðrum
hætti. Þessum hátíðarhöldum lýk-
ur í Manitoba um helgina, en dag-
ana 26. til 28. október verður hald-
in ráðstefna í Manitoba-háskóla og
er um að ræða samstarfsverkefni
skólans og Háskóla íslands.
Með Davíð í för eru Ástríður
Thorarensen, eiginkona hans, Guð-
jón Guðmundsson, annar varafor-
seti Alþingis, og Guðný Jóna Ólafs-
dóttir, eiginkona hans, og
Skarphéðinn Steinarsson, skrif-
stofustjóri forsætisráðuneytisins.
Svavar Gestsson og Guðrún
Ágústsdóttir, eiginkona hans, eru
einnig í íslensku sendinefndinni.
aftur til Fljótavíkur ásamt flug-
virkja sem skipti um skrúfu á vél-
inni. Eftir ítarlega skoðun á væng
hennar komu í ljós skemmdir í
vængbita. Vélinni var því ekki flog-
ið til ísafjarðar eins og til stóð. Örn
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að vélin yrði líklega fiutt með
báti til ísafjarðar til viðgerðar.
Hann líkir ástandi flugvélarinnar
við bíl með brotið drifskaft. Flug-
vélin sé í raun afar lítið skemmd.
Örn hefur lent um 30 sinnum í
sandfjörunni í sumar. Umrædd
ferð átti að verða sú síðasta í ár en
ætlunin var að ganga frá sumar-
bústöðum og símstöð í Fljótavík.
„Það eru ekki allar ferðir til fjár,“
sagði Örn.
Umhverfís- og
heilbrigðisnefnd
Aðföng
kærð vegna
brots á
sölubanni
UMHVERFIS- og heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur hefur sam-
þykkt tillögu Heilbrigðiseftir-
lits Reykjavíkur að kæra
Aðföng hf., innflutningsfyrii'-
tæki Baugs, fyrir ítrekuð brot
gegn sölubanni Heilbrigðiseft-
irlitsins á vanmerktum úða-
brúsum.
3. maí 1999 var Aðföngum
veittur frestur til 3. nóvember
1999 til að merkja á viðeigandi
hátt vanmerkta úðabrúsa, hár-
lakk og hárfroðu af gerðinni
Exclusive og hárlakk af gerð-
inni Vital Care. Umræddar
snyrtivörur standast ekki
ákvæði reglugerðar nr. 236 frá
1990, og nr. 77 frá 1999, um
flokkun, merkingu og meðferð
eiturefna, hættulegra efna og
vörutegunda sem innihalda þau.
I nóvember í fyrra var gefinn
lokafrestur til úrbóta því fyrir-
tækið hafði ekki farið að kröfum
heilbrigðiseftirlitsins. Sá frest-
ur rann út í lok janúar og var
sett sölubann á vanmerkta
brúsa. Þrátt fyrir það voru þeir
enn til sölu í verslunum í febr-
úar og aftur í júní sl. Segir í
bréfi heilbrigðiseftirlitsins að
um ítrekuð brot sé að ræða og
því er farið fram á leyfi til að
kæra Aðföng vegna málsins.
Það leyfi var veitt á fundi nefnd-
arinnar og er sú kæra nú í und-
irbúningi.
Tímabundin
stöðvun
trygginga-
sölu FIB
SALA bifreiðatrygginga hjá
FÍB tryggingu er orðin mun
meiri í ár en áætlanir gerðu
ráð fyrir og er fjöldi trygginga-
taka kominn í það hámark sem
samið var um við Lloyd’s í
London fyrir árið 2000. Vegna
þessa hefur FÍB trygging
tímabundið hætt að taka við
nýjum umsóknum um bifreiða-
tryggingar, en það var ljóst
þegar í haustbyrjun að auka
þyi-fti við þann kvóta sem feng-
ist hafði hjá Lloyd’s. Samn-
ingaviðræður um aukninguna
hafa staðið yfir og hafa tekið
lengri tíma en ætlað var. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu í gær.
Halldór Sigurðsson, vá-
tryggingamiðlari hjá FÍB,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að stöðvunin myndi að-
eins vara næstu daga og að
hún hefði engin áhrif á núver-
andi tryggingataka né endur-
nýjun trygginga þeirra.
Falsaði 5.000 króna seðla
Dæmdur í árs skil-
orðsbundið fangelsi
Flugvélin er enn í Fljótavík en beðið færis að flytja hana til Isafjarðar.
Hlekktist á í Fljótavík
Sérblöð í dag
mmma
apiao
aðsíns
Sérblað um viðskiþti/atvinnulíf
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir blað frá
Jack & Jones.
Blaðinu verður
dreift á suðvest-
urhorninu.
4SM
íþrmr
Bjarki fékk gult fyrir fögnuð / B1
Enn tapar KA að Hlíðarenda / B 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is