Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 8

Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Athugasemd frá Landssambandi í'slenzkra útvegsmanna " Hafa ekki misnotað tegundatilfærslur MORGUNBLAÐINU hefur borizt Sj/WARÚTv/EGS RÁÐuNríno -AA- '2. ------AA Dýri gengur orðið laus, Davíð. Það má hvorki orðið brottkasta né tegundatilfæra. Maður dæmdur fyrir lfkamsárás Afleiðingar vinnuslyss taldar til málsbóta RÚMLEGA þrítugur karlmaður hefur verið daemdur í Héraðsdómi Suðurlands í 15 mánaða fangelsi fyr- ir stórfellda líkamsárás á eiginkonu sína. Maðurinn þarf þó ekki að sitja af sér nema þrjá mánuði haldi hann almennt skilorð. Við ákvörðun refs- ingarinnar var tekið tillit til þess að maðurinn varð fyrir alvarlegum höf- uðáverka í slysi um ári fyrir atburð- inn. Áverkarnir breyttu, að mati sér- fræðinga, skaplagi mannsins mjög og gerðu hann hömlulausari en gengur og gerist. Stakk með hnífí Ríkissaksóknari gaf sl. vor út ákæru á hendur manninum fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa í fyrrasumar slegið eiginkonu sína í andlitið í sumarhúsi í Vík í Mýrdal þannig að hún féll í gólfið og eftir það haldið áfram að láta höggin dynja á andliti hennar og líkama og því næst stungið hana ítrekað með hnífi í andlit og líkama. Konan slasaðist mikið. Hún nef- brotnaði, bólgnaði í andliti og fékk um 2 cm langan skurð í gegnum efri vör hægra megin, grunna skurði á hægri augabrún og um 5 cm djúpt skurðsár á hægri framhandlegg. Maðurinn hvorki játaði né neitaði sakargiftum hjá lögreglu og fyrir dómi. Þó bar hann fyrir dómi að er konan hlaut áverkana hafi þau verið ein, ásamt tveimur litlum telpum, í húsinu. Dómnum þótti framburður konunnar, vitna og að hluta til hins ákærða auk rannsóknargagna sanna að maðurinn hefði gerst sekur um árásina. Þrátt fyrir að ákærði hafi verið úr- skurðaður sakhæfur komst dómari að þeirri niðurstöðu að ætla mætti að vegna vinnuslyss er hann varð fyrir 1998 hafi hann verið hömlu- lausari en gengur og gerist um aðra menn. Yrði að telja að ákærði hafi unnið verkið í ákafri geðshræringu. Eftir deilur við konuna hafi ákærði misst stjóm á sér, ráðist á konuna og gripið hníf sem var innan seilingar. Upplýst þótti hins vegar að strax eftir að bráði af ákærða hafi hann iðrast verksins og kallað ítrekað eft- ir hjálp og leitast þannig við að koma í veg fyrir skaðlegar afleiðingar af verkinu. Hins vegar var ekki fallist á það með verjanda að virða bæri ákærða það til hagsbóta að hann var undir áhrifum áfengis og hugsanlega einhverra lyfja. Auk fangelsisdómsins var maður- inn dæmdur til að greiða fórnar- lambi sínu 500.000 krónur í miska- bætur og 90.000 krónur vegna lögmannskostnaðar svo og allan sak- arkostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 180.000 krón- ur. Kröfu konunnar um þjáninga- bætur var hins vegar vísað frá dómi. Lágmúla 8 • S(mT 530 2800 www.ormsson.ls Enn með smokka innvortis MAÐURINN sem á sunnudaginn reyndi að smygla e-töflum til lands- ins með því að gleypa smokka var enn á Landspítalanum í Fossvogi í gær. Röntgenmyndir sýndu að ekki höfðu allir smokkarnir gengið niður en maðurinn gleypti um 80 smokka sem taldir eru innihalda um 800- 1000 e-töflur. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en verður á Landspítalanum uns allir smokkarnir hafa gengið niður. Fíkni- efnadeild lögreglunnar í Reykjavík fer með rannsókn málsins. AUÐARverðlaunin veitt í dag Virkjum kraft kvenna IDAG verða veitt AUÐARverðlaunin á ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hóteli og hefst klukkan 13.00. AUÐ- ARverðlaunin eru hluti af verkefninu: AUÐUR í krafti kvenna sem er fjöl- þætt verkefni sem hefur að markmiði að auka þátt- töku kvenna í atvinnu- sköpun. Dr. Guðrún Pét- ursdóttir er stjórnarfor- maður verkefnisins. Hún var spurð hvað haft væri að leiðarljósi við veitingu verðlaunanna? „Markmið þessara verð- launa er að hvetja konur með því að beina kastljós- inu að konum sem hafa sýnt sérstakt frumkvæði í starfi sínu. Frumkvæðið getur verið af ýmsu tagi. Það get- ur verið fólgið í að skapa eigin fyrirtæki, hrinda hugmynd í framkvæmd - en það getur líka verið fólgið í að hvetja aðra í kringum sig. I mínum huga er það þó alltaf tengt sköpun, hvort sem hún er huglæg eða hlutbundin.“ -Hvers konar verkefni er: A UÐ UR í krafti kvenna ? „Ég sit í stjórn Nýsköpunar- sjóð atvinnulífsins. Þegar sjóður- inn hafði starfað í tvö ár var ljóst svo ekki varð um villst að afar fá- ar konur sóttu um þátttöku sjóðs- ins í verkefnum sem þær vildu koma áleiðis. Þar sem að konur hér á landi eru vel menntaðar og eru helmingur þjóðarinnar þá hlýtur það að vera áhyggjuefni þeirra sem vilja að stuðla að auknum hagvexti og bættum kjörum hér á landi að sá kraftur sem í konum býr skuli ekki vera virkjaður til hins ýtrasta í þessu skyni. Þær geta skapað svo miklu meira í kringum sig. Þess vegna ákvað Nýsköpunarsjóður að leggja sitt af mörkum til þess að breyta þessu. Mér var falið að koma með hugmyndir. Ég fékk til liðs við mig Guðfinnu Bjarnadótt- ur, rektor Háskólans í Reykjavík, og hún lagði til að við fengjum með okkur unga samstarfskonu hennar, Höllu Tómasdóttur, sem var nýráðinn endurmenntunar- stjóri fyrrnefnds skóla.“ - Hvernig voru hugmyndirnar? „Við vorum allar sammála um það frá upphafi að lykilatriði væri að auka sjálfstraust kvenna svo þær treystu sér til að virkja þann kraft sem í þeim býr til að stofna fyrirtæki og hefja atvinnurekst- ur. Grunnur að sjálfstrausti er til- finningin um að maður ráði við verkefnin og lykill að þeirri til- finningu að maður hafi hlotið nauðsynlega menntun og þjálfun til þess að takast að við það. Þess vegna ákváðum við að uppistaðan í okkar vef yrðu námskeið um fjármál og fyrirtækjarekstur fyr- ir konur. Mjög margar konur líta ekki á sig sem fjármálaverur, þær fela öðrum ef þær geta að hugsa um fjármál - jafnvel fjármál heimilisins, og finnst þær vera á hálum ís þegar talið __________ berst að vaxtakjörum, skuldabréfum, hluta- bréfum, vali á lífeyris- sjóði og svo framvegis. ________ Við vildum bjóða þess- um konum stutt námskeið sem haldin eru á kvöldin og svipta þar með dulúðinni af þessum hluta heimsins. Það er enginn galdur að rata í hinum almennu hugtökum fjármálaheimsins.11 - Eru þessi námskeið vel sótt? „Já, þau eru gríðarlega vel sótt. Frá upphafi hefur verið langur biðlisti. Við erum að halda sjötta námskeiðið núna og það er ekki Guðrún Pétursdóttir ► Guðrún Pétursdóttir fæddist í París 1950. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1970, prófi í sálar- fræði frá Háskóla íslands, meist- araprófi í lífeðlisfræði frá Oxford University og doktors- prófi í taugalífeðlisfræði frá læknadeild Óslóarháskóla. Hún hefur starfað við kennslu og rannsóknir hjá Háskóla íslands og er nú dósent í frumulíffræði og fósturfræði við námsbraut í hjúkrunarfræði og síðan 1995 forstöðumaður Sjávarútvegs- stofnunar Háskóla Islands. Mað- ur hennar er Ólafur Hannibals- son blaðamaður og eiga þau tvær dætur. Lykilatriði að auka sjálfs- traust kvenna nema ár síðan við lögðum fram fyrstu grunnhugmyndir að AUÐI í krafti kvenna, og áttum alveg eftir að fá samstarfsaðila.“ - Og hverja fenguð þið? „Stjórn Nýsköpunarsjóðs varð starx mjög hrifin af þeim hug- myndum sem við lögðum fram og fól okkur að finna góða samstarfs- aðila til að standa að verkefninu. Við fórum í allar stórar fjármála- stofnanirnar og stærstu fyrirtæk- in og kynntum verkefnin fyrir yf- irmönnum þeirra og þetta var stórkostlega skemmtilegt. Þeir tóku hugmyndunum beinlínis fagnandi því allir voru þeir með konur að störfum í fyrirtækjum sínum sem þeir vildu sjá vaxa og taka á sig meiri ábyrgð, en þær höfðu afþakkað. Síðan völdum við úr hópi þessara aðila auk Ný- sköpunarsjóðs, íslandsbanka FBA, Deloitte&Touche og Morg- unblaðið. Háskólanum í Reykja- vík var falið að annast fram- kvæmd verkefnisins." - Er fleira eruð þið með? „FrumkvöðlaAUÐUR er okkar stærsta námskeið, sem við bjóð- um tvisvar á ári. Það stendur í sextán vikur og er ætlað konum sem hafa hug á að stofna fyrir- tæki. Fyrsta námskeiðið var hald- ið í vor og annað námskeiðið er nú vel á veg komið. Það þarf að hvetja konur frá blautu barns- beini í þessum efnum, þess vegna ________ ákváðum við að beina líka sjónum að litlum stúlkum. Við stóðum að deginum: Dæturnar með í vinnuna, í vor. Þá var fólk og fyrirtæki hvött til að kynna litlum stúlkum fjölbreytni atvinnulífsins með því að bjóða þær velkomnar á vinnu- staði þennan dag. Þetta var mjög vel heppnað. Við stóðum fyrir sumarbúðunum FramtíðarAUÐ- UR, fyrir ungar stúlkur sem eru um það bil að velja sér námsbraut í framhaldsskóla og einnig höfum við leitt saman konur í stjórnun- arstöðum í LeiðtogaAUÐI.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.