Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Vitundarvakning - átaksverkefni til að auka almenna
þekkingu á vélindabakflæði
Samvinna sérfræðinga
mikilvæg í forvörnum
Slitgigt í mjöðm
fímm sinnum
algengari hér
en í Danmörku
SAMVINNA lækna
innan ólíkra sérgreina
er mikilvægur liður í
átaki Vitundarvakn-
ingar 2000 á vegum
Félags sérfræðinga í
meltingarsjúkdómum
(FSM), til að auka al-
menna vitneskju um
vélindabakflæði og tel-
ur Ásgeir Theodórs,
sérfræðingur í melt-
ingarsjúkdómum og
formaður stýrihóps
verkefnisins, að sam-
vinna af þessu tagi við
fræðslu og forvarnir
muni fara vaxandi í
framtíðinni.
Ásgeir segir að heilbrigðisstarfs-
fólk finni mjög fyrir því að vitneskja
og áhugi fólks um heilbrigðismál
hafi aukist og því spyrji það gjarnan
fleiri og nákvæmari spurninga um
sjúkdóma og heilsufar sitt. Hann
segist telja það jákvæða þróun að
fólk hafi svo greiðan aðgang að upp-
lýsingum um heilbrigðismál, sem sé
fyrst og fremst tilkomið vegna nets-
ins og annarra upplýsingamiðla og
segir hann að starfsfólk í heilbrigð-
isgeiranum verði að bregðast við
þessum breyttu aðstæðum með því
að vera tilbúið að ræða við sjúklinga
og bæta við þá þekkingu sem sjúkl-
ingamir hafi aflað sér, með sinni
eigin þekkingu og reynslu. Einnig
verði heilbrigðisstarfsfólk að vera
tilbúið að fræða almenning um
þekktar forvarnir gegn sjúkdómum.
Meðferð við bakflæði
verður skilvirkari
Ásgeir segir að í átaksverkefninu
um vélindabakflæði hafi sýnt sig
mjög greinilega hversu mikilvæg
samvinna sérfræðinga sé. í fræðslu-
ráði FSM vegna átaksins sitja, auk
sérfræðinga í meltingarsjúkdómum,
fulltrúar heimilislækna, skurð-
lækna, barnameltingarsérfræðinga
og hjúkrunarfræðinga.
Fræðsluráðið hefur meðal annars
sett saman bæklinga, bæði fyrir al-
menning og fagfólk, þættir verða
sýndir í sjónvarpi og greinar munu
birtast í blöðum. Ásgeir segir að í
greinum þessum verði bakflæði
skoðað út frá ýmsum hliðum og í
samvinnu sérfræðinga. Til dæmis
verði fjallað sérstaklega um bak-
flæði og meðgöngu, bakflæði og
glerungseyðingu og bakflæði og
asma. „Fræðsla er það mikilvæg-
asta í öllum forvörnum og við sett-
um okkur það markmið í upphafi að
ná breiðri samstöðu um einn boð-
skap varðandi vélindabakflæði.
Ekki bara varðandi fræðsluna held-
ur einnig um hvernig eigi að taka á
rannsóknum og meðferð þegar fólk
leitar til okkar,“ segir Ásgeir.
Hann segist telja af-
ar mikilvægt að sér-
fræðingar beri saman
bækur sínar á þennan
hátt til að upplýsingar
sem sjúklingar fái séu
sem skýrastar og seg-
ist hann tvímælalaust
vænta þess að eftir
þessa vinnu verði með-
ferð við vélindabak-
flæði skilvirkari. Hann
segist einnig hafa trú á
því að fólk muni taka
sér slík vinnubrögð til
fyrirmyndar innan
Ásgeir annarra greina læknis-
Theodórs fræðinnar.
„Við teljum jafn-
framt að fræðsla af þessu tagi eigi
erindi inn í skólana, til dæmis í
námsefni um lífsleikni," segir Ás-
geir.
Ásgeir segir að í átaki þessu sé
jafnframt mikilvægt að kanna hver
raunverulegur árangur af slíku
átaki sé. Félag evrópskra melt-
ingarsérfræðinga hafi mikinn áhuga
á því að sjá hver árangur átaksins
verði hér á landi og að vonandi verði
tekið mið af þeim árangri í skipu-
lagningu sambærilegra átaka í öðr-
um Evrópulöndum.
Ásgeir segir að árangur átaksins
verði mældur mjög vandlega. Könn-
un á þekkingu fólks á bakflæði, or-
sökum þess og einkennum, var gerð
áður en átakið fór af stað og verður
sú könnun endurtekin að átakinu
loknu. Hann segist telja afar mikil-
vægt að árangurinn verði mældur á
þennan hátt til hagsbóta fyrir næsta
átak sem fer af stað eftir áramót og
beinist gegn krabbameini í ristli og
endaþarmi og einnig fyrir aðra sem
kynnu að vilja nýta sér reynslu þess.
Fornar lýsingar á ein-
kennum vélindabakflæðis
BAKFLÆÐI í vélinda virðist ekki
alveg nýtt af nálinni, en í forn-
bókmenntum má sjá lýsingar sem
minna á einkenni vélindabakflæðis.
Dæmi um slíka lýsingu er að finna
í Þorgils sögu og Hafliða þar sem
segir frá veislunni á Reykhólum.
Þar er goðanum Þórði Þorvaldssyni
Kjartanssonar úr Vatnsfirði lýst á
eftirfarandi hátt. „Þórður var ekki
mikill drykkjumaður, nokkuð van-
gæft um fæðsluna sem oft kann að
verða þeim, er vanheilsu kenna, því
maðurinn var á efra aldri og var þó
enn hraustur. Hann kenndi nokkuð
innanmeins og var því ekki mjög
matheill og nokkuð vandblæst að
eta slátur því að hann blés svo af
sem hann hefði vélindisgang og
varð þá nokkuð andrammur."
I veislunni hófst þá kveðskapur
um andremmu. Kemur meðal ann-
ars fram Ijót vísa um að allur þing-
heimur „tók af nef með fíngrum“
þegar hann blés og endar með að
Þórður gengur úr veislunni.
SLITGIGT í mjöðm-
um er allt að fimm
sinnum algengari hér á
landi en í Danmörku
og Suður-Svíþjóð þar
sem sambærilegar
rannsóknir hafa farið
fram. Þetta er meðal
niðurstaðna í doktors-
ritgerð Þorvaldar
Ingvarssonar læknis
sem hann ver við Há-
skólann í Lundi í dag,
fimmtudag.
Doktorsritgerð Þor-
valdar fjallar um al-
gengi og , arfgengi
slitgigtar í Islending-
um en hún var unnin í
samvinnu við Islenska erfðagrein-
ingu. I niðurstöðum ritgerðarinnar
segir að íslendingar hafi lengi gert
sér grein fyrir að sjúkdómurinn erf-
ist. Þorvaldur segir rannsóknir sín-
ar styrkja mjög þá skoðun að slit-
gigt í mjöðmum sé erfður
sjúkdómur, a.m.k. að hluta og hvetji
til áframhaldandi leitar að meingen-
um slitgigtar.
Litningur 16 inniheldur
meingen
Þorvaldur kannaði arfgengi slit-
gigtar í mjöðmum með því að bera
saman erfðafræðiupplýsingar úr Is-
lendingabók ÍE og upplýsingar um
þá sem höfðu gengist undir gervi-
liðaaðgerð í mjöðm á árunum 1972-
1996.1 Ijós kom að arfgengi slitgigt-
ar er mjög mikið.
Börn þeii-ra sem þjást af slitgigt
eru í þrefalt meiri hættu á að fá
sjúkdóminn en aðrir. Jafnframt er
mikill fjöldi einstaklinga úr sömu
fjölskyldu með gervilið
í mjöðmum. Þá kom í
Ijós að slitgigtarsjúkl-
ingar eiga miklu færri
sameiginlega forfeður
og að slitgigtarfjöl-
skyldur eru miklu
skyldari innbyrðis en
samanburðarhópurinn.
í ritgerðinni segir að
nýjar aðferðir geri það
nú mögulegt að kemba
allt erfðamengi manns-
ins í leit að erfðavísum
og meingenum sem
hafa áhrif á eða geta
Þorvaldur orsakað slitgigt og
Ingvarsson aðra sjúkdóma. „I Ijós
kom erfðavísir stórrar
íslenskrar fjölskyldu með erfða
slitgigt í mjöðmum. í ljós kom
erfðavísir á litningi 16 sem er talinn
innihalda meingen sem getur orsak-
að slitgigt í mjöðmum og stendur
leit að meingeninu nú yfir.“
Helmingi fleiri aðgerðir
vegna slitgigtar hér á landi
Algengi slitgigtar var skoðað með
því að skoða ristilmyndir af um
1.500 íslendingum en á ristilmynd-
um sjást mjaðmaliðir vel. Rann-
sóknin sýnir fram á að slitgigt er allt
að fimm sinnum algengari á íslandi
en í Suður-Svíþjóð og Danmörku.
Rannsókn Þorvaldar tók einnig til
fjölda gerviliðaaðgerða sem gerðar
voru vegna frumslitgigtar í mjöðm-
um á árunum 1982-1996. Þegar tillit
hafði verið tekið til mismunandi ald-
urssamsetningar þjóðanna kom i
ljós að á íslandi voru gerðar um
50% fleiri gerviliðaaðgerðir en í Sví-
þjóð.
Siv Friðleifsdóttir umhverfísráðherra segir Norðurskautsráðið eflast
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra á fundi Norðurskautsráðsins í Alaska.
„Umhverfísmálin áhyggjuefni44
Morgunblaðið/Eyjólfur Guðmundsson
Rjúpur leita
verndar
varnarliðs
ÞESSI rjúpnahópur spókaði sig um
í friði og ró við skrifstofubyggingu
Islenskra aðalverktaka á Keflavík-
urflugvelli í gær eins og þær væru
vissar um öryggi sitt fyrir veiði-
mönnum á varnarsvæði bandaríska
hersins á Keflavíkurflugvelli.
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra segir starfsemi norður-
skautsráðsins afar mikilvæga og
telur samstöðu vera um það innan
ráðsins að hún verði stórefld á
næstu árum. Siv sat nýlega tveggja
daga fund ráðsins í Barrow í Alaska
en ráðið er samstarfsvettvangur
Norðurlandanna, Bandaríkjanna,
Kanada og Rússlands. Það var
stofnað árið 1996 og beinist starf-
semin einkum að umhverfismálum
og sjálfbærri þróun á norðurslóð-
um.
„Ég held að það sé tilfinning
flestra, sem að samstarfinu koma,
að norðurskautssvæðið hafi
gleymst hingað til,“ segir Siv í sam-
tali við Morgunblaðið. Bendir hún á
að svæðið sé víðfeðmt, þar búi á
heildina litið fáir og að náttúran þar
sé viðkvæm. Öflugar stofnanir hafi
hins vegar ekki komið að málefnum
svæðisins og pólitískt samstarf um
málefni þess hafi verið lítið hingað
til.
Siv leggur á hinn bóginn áherslu
á að mikil þörf sé á auknu samstarfi
þeirra landa sem koma að ráðinu
ekki síst á sviði umhverfismála.
„Menn hafa ti! að mynda miklar
áhyggjur af söfnun þrávirkra líf-
rænna efna á norðurslóðum en þau
berast aðallega frá löndunum í
suðri." Kvaðst Siv hafa á fundi
ráðsins lagt mikla áherslu á að náð
verði sem fyrst samkomulagi meðal
þjóða heims um að dregið verði úr
notkun þrávirkra lífrænna efna.
Þau efni má m.a. finna í skordýra-
eitri og eru þau mikið notuð í þró-
unarríkjunum. Slíkur samningur er
að sögn Sivjar í burðarliðnum og er
vonast til að samkomulag náist á
fundi í Suður-Afríku á næstunni.
Unnið að þremur verkefnum
í umhverfísmálum
Siv segir að samstaða sé um það
innan ráðsins að koma á traustum
vísindalegum grunni um stöðu um-
hverfismála á norðurslóðum. Það
geti auðveldað löndunum að ná póli-
tískri samstöðu um málefni sem
tengjast umhverfismálum. Af þeim
sökum er á vegum ráðsins unnið að
þremur verkefnum í umhverfismál-
um. í fyrsta verkefninu er m.a.
fylgst með söfnun lífrænna þrá-
virkra efna á norðurslóðum, í öðru
verkefninu er m.a. fylgst með fjölda
tegunda dýra og plantna á svæðinu
og áhrifum umhverfisþátta þar á og
í þriðja verkefninu er m.a. fylgst
með mengun hafsins á svæðinu.
Sagði Siv í samtali við Morgun-
blaðið að rætt hefði verið um þessi
verkefni á fundi ráðsins á dögunum
og var þar m.a. ákveðið hvernig
verkefnunum skuli hagað næstu tvö
árin. Að sögn Sivjar taka öll aðild-
arlönd ráðsins þátt í störfum ráðs-
ins að miklum krafti og er skilning-
ur meðal fulltrúa þeirra á mikilvægi
þess að tekið verði á umhverfismál-
um á svæðinu.