Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 13
FRÉTTIR
Alþjóðleg herferð Amnesty International gegn pyntingum
Dauðsföll vegna pynt-
inga í yfír 80 löndum
Ljósmynd/Andrée Kaiser, Sipa Press
í skýrslu Amnesty má meðal annars sjá myndir af konum sem lentu í skipulögðum nauðgunum af hálfu serb-
neskra hermanna í Bosníu. Konurnar leyfðu inyndatökur af sér svo að „heimurinn fengi að vita hið sanna“ um
stríðið í Bosníu.
ALÞJÓÐLEGRI herferð mann-
réttindasamtakanna Amnesty Int-
ernational gegn pyntingum var
hrundið af stað í gær og einnig er
komin út ítarleg skýrsla samtak-
anna um stöðu pyntinga í heimin-
um. Skýrslan er byggð á upplýs-
ingum sem Amnesty International
hefur aflað á undanförnum þremur
árum og þar kemur meðal annars
fram að í rúmlega 80 þjóðlöndum
hafa orðið dauðsföll vegna pyntinga
á síðustu þremur árum.
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Islandsdeildar
Amnesty International, segir að
þrátt fyrir þá staðreynd að 119 ríki
séu aðilar að alþjóðlegum sáttmála
Sameinuðu þjóðanna gegn pynting-
um, séu pyntingar ennþá viðvar-
andi vandamál og að þær viðgang-
ist út um allan heim.
„I þessari skýrslu kemur fram að
pyntingar eru ekki endilega bundn-
ar við ríki þar sem er einhverskon-
ar einræðisstjórn eða alræðis-
stjórn, pyntingar eiga sér stað í
mjög mörgum lýðræðisríkjum. Við
höfum heimildir um pyntingar í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Austur-
ríki, Frakklandi, Sviss, Spáni,
Portúgal og fleiri Evrópulöndum,"
segir Jóhanna.
Flestir sem sæta pyntingum
eru fólk í jaðarhópum
Hún bendir á að í skýrslunni komi
fram að pólitískir fangar séu ekki
endilega í meirihluta meðalþeiiTa
sem verði fyrir pyntingum nú.
„Flestir sem sæta pyntingum í
dag er fólk sem er í jaðarhópum.
Til dæmis fátækt fólk og útigangs-
börn sem fá enga vernd af hálfu yf-
irvalda og eru ofsótt af þeim.
Hommar og lesbíur, kynskiptingar
og klæðskiptingar verða einnig
mikið fyrir ofbeldi af hálfu lögreglu
og hers víða um heim,“ segir Jó-
hanna.
Hún segir að í Evrópulöndum
séu það gjarnan innflytjendur eða
flóttamenn sem verði fyrir pynting-
um, það er að segja fólk sem er af
öðrum litarhætti en flestir innan
samfélagsins.
„Þeir hópar sem eru veikastir
fyrir í samfélaginu eru í mestri
hættu. Þetta er fólk sem á lítinn
aðgang að stjórnvöldum og
fjölmiðlum og á erfitt með að verja
sig. I skýrslunni kemur einnig fram
að mismunun og fordómar eru vatn
á myllu þeirra sem beita pynting-
um. Um leið og búið er að skil-
greina hóp sem minna virði eða
ómennskari en aðra hópa innan
samfélagsins er hætta á því að
meðhöndlun á einstaklingum innan
hópsins verði eftir því. Fólk sem
tilheyrir félags- og þjóðernishópum
sem eiga undir högg að sækja inn-
an samfélagsins er þannig í miklu
meiri hættu á því að verða fórnar-
lömb pyntinga en aðrir.“
Konur og börn í mestri
hættu í innanlandsátökum
Jóhanna segir að í skýrslunni
komi fram upplýsingar um að á síð-
ustu þremur árum hafí slæm með-
ferð af hálfu yfirvalda átt sér stað í
að minnsta kosti 150 þjóðlöndum
og í 80 löndum hafi fólk látist af
völdum pyntinga. Einnig hafi inn-
anlandsátök orðið algengari á und-
anförnum árum og segir hún að í
slíkum átökum séu konur og börn í
mestri hættu á því að verða fyrir
pyntingum.
„í mörgum tilfellum þegar þjóð-
ernishópar eru að berjast fyrir
sjálfstæði sínu eru börn tekin og
pyntuð því þau eru tákn um fram-
tíð þessa hóps. Konur verða fyrir
nauðgunum og eru nauðganir í
raun og veru orðnar vopn í stríðs-
átökum,“ segir Jóhanna.
Hún bendir á að konur séu einn-
ig mjög víða fórnarlömb pyntinga í
einkalífi sínu og að það sé háalvar-
legt vandamál hversu algengt það
sé að yfirvöld horfi framhjá heimil-
isofbeldi.
„Konur eru hýddar, grýttar, það
er skvett á þær sýru, þeim er
nauðgað og þær eru drepnar víða
um heim. Það er mjög erfitt að eiga
við brot sem eiga sér stað í einka-
lífi fólks, en Amnesty tekur upp
mál þar sem yfirvöld líta framhjá
staðreyndum því þá eru yfirvöld
orðin samsek,“ segir Jóhanna.
Hægt að skrá þátttöku sína á
Netinu og senda tölvupóst
Jóhanna segir að hér á landi
verði leitað samstarfs við ýmis
samtök, til dæmis kvennasamtök
og samtök homma og lesbía á Is-
landi.
Hún segist hvetja allt fólk til að
leggja samtökunum lið í herferð-
inni.
„Það eru ýmsar leiðir til að að-
stoða okkur. Við þurfum á fjár-
magni að halda og eins þurfum við
fleiri virka félaga til að taka þátt í
starfi okkar, skrifa bréf og hjálpa
okkur við að þrýsta á yfirvöld um
heim allan,“ segir Jóhanna.
Einnig er hægt að skrá þátttöku
sína í herferðinni á www.stoptor-
ture.org. Þeir sem það gera fá
sendar upplýsingar um einstök mál
og tilbúin bréf sem má framsenda.
Huld Magnúsdóttir formaður ís-
landsdeildar Amnesty Internation-
al segir að þetta sé í fyrsta sinn
sem tölvupóstur sé notaður á þenn-
an hátt í átaki á vegum samtak-
anna, en með því að nýta tölvu-
tæknina verði án efa hægt að fá
fleiri til að leggja þeim lið. Hún
bendir jafnframt á mikilvægi þess
að bréfaskriftum verði haldið
áfram af sama krafti, enda séu
mörg þeirra landa þar sem ástand-
ið er hvað verst, lítið eða ekkert
tölvuvædd. Hvað Vesturlönd varð-
ar segist hún telja að tölvupóstur
geti vissulega haft mikil áhrif, sér-
staklega ef hann er sendur í mjög
miklu magni. Hún segist samt sem
áður halda að hann komi seint í
stað sendibréfa, því þau fái jafnan
fomilegri meðferð. Hún brýnir þó
mikilvægi þess að notaðar séu
margar og fjölbreyttar aðferðir við
að beita yfirvöld þrýstingi, en í
hverju tilfelli fyrir sig verði bæði
að hafa í huga að aðferðimar eigi
við og að þær séu sem árangurs-
ríkastar.
Aukið álag á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu með auknum fólksflutningum
Of margir íbúar á
hvern heimilislækni
MEÐ auknum fólksflutningum til
höfuðborgarsvæðisins hefur álag á
heilsugæslustöðvar í Reykjavík,
Kópavogi, Seltjarnarnesi og í Mos-
fellsbæ aukist en þar era nú mun
fleiri íbúar á hvern heimilislækni en
æskilegt þykir.
„A þessu svæði búa um 145.000
manns og þar eru nú um 1.800
manns á hvem heimilislækni, þá eru
meðtaldir sjálfstætt starfandi heim-
ilislæknar en það hefur gjarnan ver-
ið miðað við að það sé ekki æskilegt
að það séu fleiri en 1500 manns á
hvern heimilislækni,“ segir Guð-
mundur Einarsson forstjóri heilsu-
gæslunnar í Reykjavík.
„Við eram ekki ánægð með þetta
ástand. Okkur tekst ekki að byggja
heilsugæsluna upp nógu hratt til að
sinna þeirri fjölgun íbúa sem orðið
hefur í borginni því ekki hefur tekist
að útvega fé til þess.“
Guðmundur segir það einnig valda
erfiðleikum að kjör heilsugæslu-
lækna séu úrskurðuð af kjaranefnd
þar sem þeim eru ákveðin hámarks-
kjör. Þetta sé erfið staða því vilji sé
fyrir því kaupa meiri vinnu af heimil-
islæknum en heimilt er.
Bið eftir því að fá heimilislækni
Hann segir stöðuna á mörgum
heilsugæslustöðvum vera án vand-
ræða en að sumar þeirra eigi erfitt
með að sinna þeirri eftirspurn sem
sé um þjónustu þeirra. Til dæmis
hafi þurft að seinka stækkun heilsu-
gæslustöðvarinnar í Grafarvogi og
enn sé beðið eftii' því að hægt verði
að byggja stöð í Voga-Heimahverfí.
Eins sé staðan sumstaðar sú að fólk
þurfi að bíða eftir því að verða skráð
hjá ákveðnum heimilislækni en hann
tekur jafnframt fram að engum sé
neitað um læknisþjónustu á heilsu-
gæslustöðvunum. Stöðvarnar veiti
öllum þjónustu sem séu á svæði
þeirra og segir hann að sé um bráða-
tilfelli að ræða fái fólk þjónustu
strax.
Guðmundur segir að ástæða þess
að fólk komist ekki að hjá heimilis-
lækni strax sé gjarnan sú að þeir
sem flytji frá hverfinu haldi áfram að
sækja heilsugæslustöðina í gamla
hverfinu sínu. „Við höfum verið að
finna leiðir til að vinna úr þessu, ann-
aðhvort með því að fá þá sem sækja
stöðina úr öðram hverfum að snúa
sér að sínum hverfisstöðvum eða að
gera stöðvunum kleift að taka við
fleiram," segir Guðmundur.
Veldur auknum kostnaði
annars staðar
Guðmundur segist hins vegar ekki
hafa áhyggjur af því að staða þessi
eigi eftir að versna.
„Það hefur verið bætt við töluvert
af læknum núna. Það er góður skiln-
ingur í ráðuneytinu á þörfinni fyrir
uppbyggingu heilsugæslunnar. Því
þegar við getum ekki sinnt þjónust-
unni eins og við þyrftum veldur það
auknum kostnaði annars staðar í
heilbrigðiskei-finu. Fólk hefur yfir-
leitt úrræði til að ná til læknis þegai-
það þarf þess, það fer þá til sérfræð-
inga eða á bráðadeildir en það er
kostnaðarsamari þjónusta. Það leiðir
því til spamaðar í heilbrigðiskerfinu
að heilsugæslan geti sinnt sínu hlut-
verki, “ segir Guðmundur.
Ónóg nýliðun hjá sérfræðing-
um í heimilislækningum
Þórir B. Kolbeinsson, formaður
félags íslenskra heimilslækna, segir
að heimilslæknar hafi margsinnis
bent á að uppbygging heilsugæsl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu hafi
setið á hakanum en fjöldi heilsu-
gæslu- og heimilislækna þar sé mun
minni en hann ætti að vera miðað við
íbúafjölda.
„Við stöndum líka frammi fyrir því
að það hefur verið ónóg nýliðun hjá
sérfræðingum í heimilislækningum
en það er veralegt vandamál,“ segir
Þórir og bætir því við að erfitt sé að
finna eina skýringu þessu en að vin-
sældir greina sveiflist gjarnan á
þennan hátt. Hann segist telja að
æskilegt væri að kynna störf heilsu-
gæslulækna betur fyrr í læknanám-
inu. Einnig segir hann að gjarnan sé
rætt um að launakjör heimilislækna
séu lakari en annarra sérfræði-
menntaðra lækna.
Verkefni hafa verið flutt til
heilsugæslunnar
Þórir segist hafa orðið var við að
heimilislæknar á höfuðborgarsvæð-
inu tali um að gífurlegt álag sé á
heilsugæslustöðvunum og að það fari
vaxandi. Það sé bæði vegna þess að
íbúum og öldraðum fjölgar og einnig
vegna þess að verið sé að flytja verk-
efni frá sjúkrahúsunum til heilsu-
gæslustöðvanna.
,Aherslurnar í heilbrigðiskerfinu
era að breytast. Það er reynt að
sinna þeim sem hægt er í heimahús-
um og það fólk kemur þá meira inn á
borð hjá heilsugæslustöðvunum."
Þórir segir að þegar verkefni séu
flutt til heilsugæslunnar verði einnig
að huga að því að flytja þangað aukið
fjármagn og mannskap.
„Við heimilislæknar teljum að það
hafi ekki verið hugsað nógu vel fýrir
þeim þætti þegar verkefni hafa verið
ílutt af sjúkrahúsunum og hefur ver-
ið rætt um að það þurfi að skipu-
leggja þetta mun betur,“ segir Þórir.