Morgunblaðið - 19.10.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 19.10.2000, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ Ýmsar áherslubreytingar í Nýkaupi íKringlunni Búið að setja upp fisk- o g áleggsborð NÝKAUP í Kringlunni hefur ver- ið að taka breytingum undanfarna daga. Arni Ingvarsson, kaupmað- ur í Nýkaupi, segir að þegar sé búið að gera ýmsar áherslubreyt- ingar en að á næstu vikum muni verslunin taka enn frekari breyt- ingum. „Búið er að setja upp fiskborð í versluninni og þar getur fólk keypt hefðbundinn ferskan fisk en líka nýjungar eins og til dæmis ferskan túnfisk og nílarkarfa. Þá verðum við líka með úrval til- búinna fiskrétta og yfirumsjón með fiskborðinu verður í höndum reyndrar húsmóður, Laufeyjar Stefánsdóttur.“ Árni segir að nú verði lögð áhersla á að bjóða viðskiptavinum upp á fyrsta flokks álegg sem verður selt eftir vikt. „Við bjóðum tólf til fjórtán tegundir af áleggi með þessum hætti og nokkrar tegundirnar eru sérlagaðar fyrir okkur. Meðal tegunda eru hvít- lauksspægipylsa, hráskinka, man- dolíuskinka og nokkrar mismun- andi útfærslur af kalkúnaáleggi. í sælkeraborði okkar verður auk áleggsins hægt að kaupa ótal tegundir osta eftir vikt og fá danskt smurbrauð sem er fram- reitt að hætti Bjarkar Óskarsdótt- ur sem er lærð smurbrauðsjómfrú frá Danmörku.“ 25 tegundir af hunangi Ámi telur að á undanförnum vikum hafi bæst í vöruval Ný- kaups 600-700 vörutegundir en aðallega er um að ræða sælkera- vörur eins og framandi krydd, sultur, te, hunang og kaffi. Arni bendir á að úrvalið af hunangi sé til dæmis orðið mjög gott, nú geti viðskiptavinir valið um einar 25 mismunandi tegundir. Annar eins fjöldi af nýjum vörum er væntan- legur á næstu vikum. Morgunblaðið/Jim Smart Ámi Ingvarsson, kaupmaður í Nýkaupi, segir að búið sé að setja upp fiskborð í Nýkaupi og stækka lgötborðið. Morgunblaðið/Golli Farið er að selja álegg eftir vigt í Nýkaupi. Heitur matur hefur um árin verið á boðstólum í Nýkaupi en nú stendur til að breyta aðeins til þar. „Matreiðslumeistarinn Þor- lákur Helgason mun nú taka við yfirumsjón með heitum mat í Nýkaupi. Allur matur verður eld- aður á staðnum og boðið upp á nýjungar í réttum. Tvær tegundir af ungnautakjöti Þá hefur kjötborðið verið stækkað til muna og úrvalið aukið af kjöti. Kristján Hallur Leifs- son, kjötiðnaðarmeistari hjá Nýkaupi, mun framvegis fara sjálfur til birgja og velja það kjöt sem selt er í kjötborði Nýkaups til að tryggja gæði. Þá fékk Nýkaup tvo danska kjötmeistara til liðs við sig íyrir skömmu sem kenndu starfsfólki ýmsar nýjungar í skurði á kjöti og meðferð þess. Fyrirhugað er að gera meira af því að fá til landsins erlent fagfólk til að þjálfa starfsfólk og kynna nýj- ungar. Ami segir að nú verði einnig borðið upp á tvenns konar ung- nautakjöt. Hægt verður að velja milli hefðbundins íslensks ung- nautakjöts og kjöts sem er af er- lendu holdanautakyni eins og ang- us-, limosine- og gallowaykyni sem ræktað er af íslenskum naut- gripabændum. Framboð af þessu kjöti verður takmarkað fyrst um sinn þar sem framboð er lítið. Um helgar verður boðið upp á ráðgjöf við matreiðslu og meðferð matvæla og Árni segir að það sé einn liður í að auka þjónustu við viðskiptavini verslunarinnar. Leikföng í súkkulaðieggjum hafa valdið alvarlegum slysum Vaxandi stuðningur við að banna eggin Morgunblaðið/Júlíus VAXANDI stuðningur er við það innan Evrópusambandsins að banna svonefnd Kinder-súkku- laðiegg sem innihalda leikföng, en þau hafa valdið alvarlegum slysum. Meðal þeirra sem berj- ast fyrir banni eru breskir þing- menn á Evrópuþinginu og neyt- endasamtök í Danmörku og Svíþjóð. Á Norðurlöndunum einum seljast árlega um 40 milljónir eggja. ítalska íyrirtækið Fer- rero, sem framleiðir súkkulaði- eggin, hefur barist hart gegn banni. Sérfræðingur í öryggi bama hjá sænsku neytendasamtökunum, segir í samtali við blaðið Syd- svenska Dagbladet, að Ferrero hafi nóga peninga, og geti því haft lög- fræðinga í fullu starfi við að hrinda þá sem vilja takmarka sölu á eggj- unum. Andstæðingar Kinder-eggjanna telja að banna eigi að setja leikföng í mat, en slíkt bann er þegar í gildi í Bandaríkjunum. Philipp White- head, þingmaður Verkamanna- flokksins á Evrópuþinginu, fundaði í vikunni með framkvæmdastjórn ESB um málið. Með honum var móðir barns sem lést eftir að það hafði gleypt leikfang úr Kinder- eggi- Talsmaður Ferrero á Norður- löndum segir að þegar hafi mikið verið gert til að bæta öryggið, með- al annars séu nú aðvaranir á eggj- unum skýrari en áður, og hylkin með leikföngunum séu stærri, til þess að erfiðara sé fyrir böm að gleypa þau. Þarf skýrar reglur um leikföng í matvörum „Ástæðan fyrir því að ekki er unnt að banna eggin að svo stöddu er sú að leikföngin em í plasthylki inni í egginu sem ungböm eiga ekki að ná að opna án aðstoðar," segir Fjólá Guðjónsdóttir hjá markaðs- gæsludeild Löggildingarstofu. Hún segir að merkingum sé full- nægt en eftir standi að inni í egginu sé hylki með smáhlutum sem geta reynst varasamir ungum börnum. „Um þessar mundir er unnið að málinu innan Evrópusambandsins. Það er nauðsynlegt að setja skýrar reglur um leikföng og smáhluti sem fylgja með matvöra, sérstaklega ef markaðssetningin beinist að böm- um.“ Að sögn Fjólu era ekki fyrirliggj- andi upplýsingar hjá Löggild- ingarstofu um að slys hafi orðið af völdum Kinder-eggja hérlendis. Engin áform um að hætta sölu hér á landi Samkvæmt upplýsingum frá heildversluninni Nathan & Olsen, sem er umboðsaðli Kinder-súkku- laðieggja á Islandi, hefur ekki verið rætt um að hætta sölu á eggjunum hér á landi. íslenski umboðsaðilinn kaupir eggin frá verksmiðju í Belg- íu í gegnum umboð í Danmörku. Smári Ólafsson, markaðsstjóri Nathans & Olsen, sagðist ekki hafa heyrt af þessu máli þegar haft var samband við hann í gær. Hann sagðist ekki vita til þess að íslensk böm hafi hlotið skaða af neyslu eggjanna. NIVEA hreinsiklútar fyrir nútímakonur ^ Andlitsfarða- og augnfarðahreinsir í einu bréfi <4 SOFT CLEANSING WIPES Remoue Make-up, Purify, Skin Tonie ln One Step fOR FACE, NECK AND EYÍ5 MIOKA/BLODE RENCÖRINCSSERVETTER PEHMEITA PUHOISTUSUINO|A DAIIY CLtANSING Ofnæmisprófað • Fljótlegt og handhægt • Án alkahóls Frískandi • Hentar öllum húðgerðum NIVEA Sofl Cleansing Wipes hreinsa andlitsfarða á svipstundu NIVEA hreinsiklútarnir eru fljótleg og þægileg lausn fyrir kröfuharðar konur. Mjúkir og frískandi klútar sem hreinsa farða og húðina um leið. Prófaðu NIVEA Soft Cleansing Wipes. Hugsaðu vel um andlitið á styttri tíma. VISAGE

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.