Morgunblaðið - 19.10.2000, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Heilbrigðisyfírvöld í Úganda reyna að hefta ebóla-faraldurinn
Skólum lokað o g
útfarir bannaðar
Guiu. AP, AFP.
YFIRVÖLD í Úganda hafa lokað
skólum og bannað útfarir á þeim
svæðum þar sem ebóla-veikin geis-
ar. Hafa um 10 ný sjúkdómstilfelli
bæst við á sólarhring síðustu daga
en tala látinna er nokkuð á reiki.
Virðist hún vera um eða innan við
4°.
Heilbrigðisyfirvöld í Úganda
gera hvað þau geta til að hefta út-
breiðslu sjúkdómsins og eru að
þjálfa fólk til að bera kennsl á
sjúklingana og einangra þá. Pað er
þó mjög erfitt vegna þess, að
fyrstu einkenni sjúkdómsins eru
lík einkennum annarra algengra
sjúkdóma á þessum slóðum. Er
sjúkdómurinn mjög banvænn en
komið hefur þó í ljós, að lífslíkur
þeirra, sem fá aðhlynningu
snemma, eru miklu betri en þeirra,
sem litla umönnun fá.
Skortur á hjúkrunargögnum há-
ir mjög starfi lækna og sjúkraliða
og sem dæmi má nefna, að þeir
verða að notast við heimatilbúnar
grímur. Af gúmmíhönskum er þó
enn nóg.
Varasamir útfararsiðir
Yfirvöld í Gulu-héraði þar sem
veikin geisar aðallega hafa lokað
skólum og útfarir hafa verið bann-
aðar. Er það vegna þess, að ýmsir
siðir, sem tengjast þeim, t.d. að
þrífa líkama hins látna, eru taldir
hafa stuðlað að smitun. Er far-
aldurinn að þessu sinni - raunar
rakinn til einnar útfarar en í fram-
haldi af hcrini lést öll fjölskylda
hins látna. Áður hafði hún þó smit-
að aðra.
Tveir sérfræðingar frá Alþjóða-
heilbrigðisstofnuninni eru Úganda-
mönnum til aðstoðar en tvenn
samtök, Alþjóða Rauði krossinn og
kaþólsk hjálparsamtök, hafa sent
burt aðra starfsmenn sína en
Úgandamenn.
Eins og fyrr segir er faraldurinn
aðallega í Gulu-héraði en sjúk-
Deilt um þátttöku í friðargæslu
Kaupraannahöfn. Morgunblaðið.
DEILT er nú um þátttöku Dana í
væntanlegri friðargæslu evrópska
varnarsamstarfsins þrátt fyrir að
allir stjórnmálaflokkarnir séu sam-
mála um ágæti þess að senda danska
hermenn til slíkra starfa. Ágreining-
urinn stendur um hvort það sé hægt.
Þegar Danir höfnuðu aðild að
evrópska myntbandalaginu lýsti
Niels Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra, því yfir að ekki kæmi til
greina að ganga til atkvæðagreiðslu
um þátttöku í varnarsamstarfi ESB
næstu árin enda hefðu nei-hreyfing-
arnar svokölluðu látið að því liggja
að þær væru andvígar því. Danir
njóta samningsbundinnar undan-
þágu frá varnarsamstarfinu.
Nú hefur sósíalíski vinstriflokkur-
inn, sem beitti sér mjög gegn evr-
unni, lýst sig reiðubúinn til þess að
ræða þátttöku Dana í hluta varnar-
samstarfsins, þ.e. friðargæslu. í
samtali við Politiken segir Villy
Sovndal, talsmaður flokksins í varn-
armálum, að ekki eigi að vísa friðar-
gæsluverkefnum á bug þótt þau
heyri undir ESB, en ekki Samein-
uðu þjóðirnar. Sakar Sovndal
stjómvöld um stífni í málinu og seg-
ir að horfa verði á málið í breiðara
samhengi.
Heimildarmaður blaðsins í utan-
ríkisráðuneytinu tekur illa í tillögu
flokksins og ítrekar að stjórnin taki
ekki þátt í að móta ákvarðanir sem
hafi áhrif á varnarstefnuna. Það
verði þjóðin að gera. Utanríkisráð-
herrann, sem hefur ekki tjáð sig um
nýjustu tillöguna, hefur hingað til
þvertekið fyrir nokkrar breytingar á
þátttökunni í varnarsamstarfinu.
i
AP
Hjúkrunarfólk á Lacor-sjúkrahúsinu í Gulu rannsakar barn sem talið er
smitað af ebóla-veikinni.
dómsins hefur líka orðið vart í
nærliggjandi héraði, Kitgum, og
einnig á stöðum í meira en 100 km
fjarlægð frá Guluborg.
Berst ekki með lofti
Ebóla-sýkin hefur komið upp
öðru hverju í Afríku frá árinu 1976
og oftast verður hún flestum sjúkl-
ingum að bana áður en þeir ná að
smita aðra. Enginn veit með vissu
hvar veiruna er að finna í annan
tíma eða hvað verður til að koma
af stað faraldri. Það eina góða við
veiruna er, að hún smitast ekki
með lofti, aðeins líkamsvessum, og
því er unnt að kveða niður faraldur
með sótthreinsun og einangrun.
Heilu fjölskyldurnar í valinn
Dæmi eru um, að sjúkdómurinn
hafi útrýmt heilu fjölskyldunum.
Beatrice Achieng hefur séð á bak
átta manns í sinni fjölskyldu og
hún segist vera orðin „dofin og til-
finningalaus. Meira að segja sorgin
er sofnuð". Það byrjaði snemma í
september þegar frænka hennar,
Ester Awete, kvartaði um lasleika
og hita. Fimm sinnum leitaði hún
sér hjálpar á sjúkrahúsinu í Gulu
en það breytti engu og ekki heldur
særingar töframannnsins í þorp-
inu.
„Uppköst og niðurgangur, höf-
uðverkur og hiti og loks fór henni
að blæða. Þá átti hún skammt ólif-
að,“ segir Beatrice. Hálfum mán-
uði síðar dó níu mánaða gamall
sonur Esterar, þá þrír aðrir í fjöl-
skyldunni og loks amma Beatricar
og tveir frændur.
Ebólafaraldurinn hefur valdið
miklum ótta meðal fólks í Úganda
og nágrannaríkjunum og haft lam-
andi áhrif á mannlífið á þeim
svæðum þar sem sóttin geisar. Það
er ekki aðeins, að skólum hafi ver-
ið lokað og útfarir bannaðar, held-
ur er fólki ráðið frá að takast í
hendur og alls ekki að deila með
sér matarílátum.
FRÓÐLEGUR
OG
SPENNAND!
BMMIÐV&RPffl
■y
J
V www.dt.dk
DR, Danmarks radío
Heimildamyndir, barnaefni ogfréttaskýringaþættir
á daginn. Framhaldsþættir og bíómyndir á kvöldin.
Kvikmyndir, skemmti- og íþróttaefni um helgar.
—- HISTORIER FRA
EN POLITISTATION
HEIMILDAM YNDAFLOKKUR
Á MIÐVIKUDÖCUM KL 18.00
Hvað gerist bak við luktar dyr
Lögreglustöðvar nr. i við
Vesturbrú? Fróðlegir þættir sem
gefa innsýn í undirheima
Kaupmannahafnar.
Lö^rei>lusö\>vT
ÆKý -• $
Til loka októbermánaðar verður nýjasta viðbót ‘
Breiðvarpsins, 6 norrænar stöðvar, lopinni
dagskrá hjá þeim sem tengdir eru breiðbandinu.
4fr
t I
* ÁÍIar þessar stöðvar eru þekktarfyrir vandað
afþreyingar-, íþrótta- og rhenningarefni og
erufrábær kosturfyrir alla þá sem vilja fylgjast
með frændum vorum á Norðurlönduhum.
Þúsundir krefjast afsagnar Estrada
Filippseyj aforseta
Tillaga um
embættissvipt-
ingu lögð fram
Manila. Reuters, AFP.
ÞINGMENN stjórnarandstöðunn-
ar á filippíska þinginu lögðu í gær
fram tillögu um, að Joseph Estr-
ada, forseti Filippseyja, yrði svipt-
ur embætti. Voru þar bornar á
hann ýmsar sakir, meðal annars að
hafa þegið hundruð milljóna kr. í
mútur. Ottast er, að þetta mál hafi
slæm áhrif á ástandið í efnahags-
lífinu, sem er slæmt fyrir, og skipti
landsmönnum í tvær andstæðar
fylkingar.
Stjórnarflokkarnir og stuðnings-
menn Estrada hafa mikinn meiri-
hluta á þingi en í fulltrúadeildinni
sitja 218 menn og 22 í öldunga-
deildinni. Undir tillöguna skrifuðu
42 þingmenn, 36 stjórnarandstöðu-
þingmenn og sex þingmenn, sem
stutt hafa stjórnina. Það má því
heita öruggt, að hún nái ekki fram
að ganga.
Þótt tillögunni verði að lokum
vísað frá, gerist það líklega ekki
fyrr en eftir nokkrar vikur,
kannski mánuði, og í millitíðinni
gæti efnahagsástandið versnað
enn og hitnað betur undir Estrada.
Hann reynir þó að bera sig vel en
haft er eftir ráðgjöfum hans, að
hann sé mjög áhyggjufullur.
„Valdatími fjöldans"
Um 15.000 manns efndu til mót-
mæla í fjármálahverfi Manila-
borgar í gær til að krefjast afsagn-
ar Estrada og var þar fólk úr öllu
hinu pólitíska litrófi og fulltrúar
borgaralegra samtaka og kirkjufé-
laga. Ymsir frammámenn í land-
Reuters
Mótmælendur við styttuna af
Benigno Aquino.
inu, til dæmis Corazon Aquino og
Fidel Ramos, fyrrverandi forsetar,
og Jaime Sin kardináli, hafa skor-
að á Estrada að segja af sér og
viðskipta- og atvinnulífið í landinu
er sama sinnis. Estrada nýtur hins
vegar mikils stuðnings meðal al-
mennings, sem flykkti sér um
þennan fyrrverandi kvikmynda-
leikara og glaumgosa í kosningun-
um 1998. Á fundi með stuðnings-
mönnum sínum í fyrradag sagði
hann, að andstæðingar sínir hefðu
ráðið nógu lengi en nú væri „runn-
inn upp valdatími fjöldans".
Óheilbrigt
líferni
orsök
Flóaveiki
París. AFP.
ÓHEILBRIGT líferni og vandamál
sem fylgja því að hefja borgaralegt líf
að lokinni herþjónustu eru orsök
sjúkdóma sem hrjáð hafa fyrrum
hermenn í Persaflóastríðinu. Flóa-
veikin svokallaða tengist að mati vís-
indamanna ekki því, að hermennimir
hefðu komist í snertingu við eitur-
efni. Þetta kemur fram í niðurstöðum
breskrar rannsóknar sem birtust í
bresku vísindariti í gær.
Það voru vísindamenn rannsókn-
arstöðvar sjúkdóma Persaflóastríðs-
ins sem sendu spurningalista út til
breskra uppgjafahermanna og
spurðust fyrir um andlega og líkam-
lega hreysti þeirra, fjölskyldumál,
reykingar og drykkju.
Vísindamennimir komust að því að
lægra settir hermenn voru miklu lík-
legritilaðveraviðlélegaheilsuenyf- :
irmenn þeirra. Skýring þessa felst
einkum í mismunandi lífstíl. Yfir-
menn í hemum lifa almennt heil-
brigðara lífi en undh-menn þeirra,
eru betur menntaðir og búa við betri
aðstæður.
Sjúkdómseinkenni sem hafa sér-
staklega verið sett í samhengi við
herþjónustu í Persaflóastríðinu em
síþreyta, svimi, minnistap, svefn-
leysi. Yfir 100.000 breskir, kanadískir j
og bandarískir hemenn hafa kvartað
yfir þessum einkennum. Hingað til
hafa vísindamenn ekki verið á eitt
sáttir um skýringu einkennanna en
m.a. bent á bólusetningu, móteitur
gegn eiturgasi og eiturefnavopn ír-
aka sem hugsanlega orsök.
Sumir vísindamenn hafa hins veg-
ar sagt sjúkdóminn ekki til. Þeir hafa
haldið því fram að slæm heilsa upp-
gjafahermanna sé ekkert nýtt fyrir-
þæri, munurinn sé eingöngu sá, að nú
sé henni veitt meiri athygli en áður \
fyrr.