Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 48

Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ 48 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 UMRÆÐAN Endurítrekuð fyrirspurn til dómsmálaráðherra í Morgunblaðinu hinn 10. maí sl. bar undirrituð fram ítrek- aða fyrirspurn til dómsmálaráðherra þess efnis hvort hún hygðist beita sér fyrir rannsókn á starfsemi nektardansstaðanna og hvaða aðilar erlend- ir og innlendir græddu 5á hugsanlegu vændi tengdu þessari starf- semi. Engin viðbrögð hafa komið frá dóms- málaráðherra og því er fyrirspurnin enn ítrek- uð með nokkrum skýr- ingum. Forsögu málsins má Rannveig Jónsdóttir rekja til fyrri hluta október árið 1999 þegar ráðstefnan Konur og lýðræði var haldin í Reykjavík að tilstuðlan rík- isstjórnar Islands. Þar vakti mesta athygli umræðan um hina hættu- legu og niðurlægjandi verslun með manneskjur sem sendar eru í gróða- skyni á milli landa til starfa við klám og vændi. Um svipað leyti fór hópur jvkvenna í vettvangskönnun á nektar- dansstaðina sjö í Reykjavík, en sá fyrsti var opnaður í ársbyrjun 1995. Hinn 10. nóvember var forsætisráð- herra síðan afhent bréf undirritað af 28 konum, þar sem lýst var því sem fyrir augu bar á nektardans- stöðunum og hvatt til rannsóknar og aðgerða gegn hugsanlegum lög- brotum tengdum þessum stöðum. Afrit voru send ráðherrum, þing- mönnum og fjölmiðlum, sem gerðu bréfi þessu ítarleg skil. Tvær okkar fóru með bréfið í 'Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg þar sem forsætisráðherra tók ljúf- mannlega á móti okkur ásamt þá- verandi aðstoðarmanni sínum. Ráð- herrann las bréfið í okkar viðurvist. Við bentum á að mikil vinna hefði verið lögð í þetta erindi og kvaðst ráðherrann sjá það og sagðist mundu koma því í hendur réttra að- ila. Ekki hefur staðið á viðbrögðum félagsmálaráðherra og samgöngu- ráðherra sem hafa látið þessi mál til sín taka með breytingum á lögum og reglugerðum. Því undrumst við þögn dómsmálaráð- herra, ekki síst vegna þess að á sínum tíma benti starfsmaður í stjórnarráðinu okkur á að réttast væri að af- henda dómsmálaráð- herra bréf með slíku erindi. í ofangreindu bréfi okkar kvennanna frá 10. nóvember 1999 stendur m.a.: „Eftir að hafa farið í vettvangskönnun á nektardansstaðina fá- um við ekki séð að sú starfsemi sem þar fer fram hafí öll stoð í lögum. í Almenn- um hegningarlögum, 206. gr., stend- ur: „Hver sem stundar vændi sér til framfærslu skal sæta fangelsi allt að 2 árum. Hver sem hefur atvinnu eða viðurværi sitt af lauslæti ann- arra skal sæta fangelsi allt að 4 ár- um ... Hver sem stuðlar að því með ginningum, hvatningum eða milli- göngu að aðrir hafi holdlegt sam- ræði eða önnur kynferðismök gegn greiðslu eða gerir sér lauslæti ann- arra að tekjulind, svo sem með út- leigu húsnæðis eða öðru, skal sæta fangelsi allt að 4 árum en sektum eða fangelsi allt að 1 ári ef málsbæt- ur eru.“ Hvers vegna hefur iögreglan ekki fyrir löngu fengið heimildir, fyrir- mæli og fjármagn til þess að kanna ofan í kjölinn starfsemi nektardans- staðanna? Lögreglan hefur með af- gerandi hætti sýnt hvers hún getur verið megnug í glímunni við eitur- lyfjavandann, þegar mannskapur og fjármagn er sett í baráttuna." I sama bréfi minntum við einnig á að árið 1985 öðlaðist gildi á íslandi samningur Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum. I sjöttu grein þessa samn- ings segir: „Aðildarríkin skulu gera allar við- eigandi ráðstafanir, þ. á m. með lagasetningu, til að hamla gegn hvers konar verslun með konur og gróðastarfsemi tengdri vændi kvenna." Vegna þess að dómsmálaráðherra Vetrarlitirnir í HARD CANDY eru ævintýri líkastir Komdu 03 sjáðu ♦♦♦ TOP SHOP Lækjargötu, Libia Mjódd, Snyrtivörudeildir Hagkaups Kringlunni, Smáratorgi, Skeifunni og Akureyri, Gallery Föröun, Keflavík. Nektardans Ég leyfi mér að skora á hæstvirtan dómsmála- ráðherra, segir Rann- veig Jónsdóttir, að svara margítrekuðum fyrirspurnum varðandi rannsókn á starfsemi nektardansstaðanna. hefur enn ekki svarað þeirri ítrek- uðu fyrirspurn sem birtist í Morg- unblaðinu hinn 10. maí sl. er hún nú endurítrekuð. En á fundi Jafnréttis- ráðs um mansal og kynlífsþrælkun 8. febrúar hafði ráðherra svarað að- spurð að svo vildi til að hún hefði gert ráðstafanir til þess að farið yrði af stað með sérstaka skoðun á þess- um málum innan skamms. Þar sem engin viðbrögð höfðu enn borist í lok maí við ítrekaðri fyr- irspurninni hringdi undirrituð í dómsmálaráðuneytið og bað um netfang ráðherrans. Ritara ráð- herra var netfangið fast í hendi en hún sagði spyrjanda að skrifa sér og mundi hún láta bréfið berast til réttra aðila. Hinn 31. maí sl. sendi undirrituð því ritara ráðherrans bréf í tölvu- pósti þar sem óskað var svara við fyrirspurn um rannsókn á starfsemi nektardansstaða og hugsanlegu vændi, tengdu þeirri starfsemi. Hinn 5. júní barst svar frá lög- fræðingi í ráðuneytinu þar sem m.a. segir orðrétt: „Dómsmálaráðuneytið hafði sam- band við fyrirtækið „Rannsóknir og greining ehf.“ og óskaði eftir skýrslu um vændi hérlendis. I sam- ráði við ráðuneytið hefur R&G verið að móta tillögur að rannsókninni/ rannsóknarsniði. Endanleg út- færsla mun væntanlega liggja fyrir í næstu viku.“ Sama dag skrifaði undirrituð aft- ur lögfræðingi ráðuneytisins og sagði m.a.: „Mér þætti vænt um að fá aðeins nánari útskýringar á efni bréfsins. Þú segir að dómsmálaráðuneytið hafi haft samband við fyrirtækið „Rannsóknir og greiningu ehf.“ og óskað eftir skýrslu um vændi hér- lendis. Þýðir þetta að umrætt fyrirtæki eigi að annast rannsóknina? Þú segir einnig að endanleg út- færsla að tillögum/rannsóknarsniði muni væntanlega liggja fyrir í næstu viku. Má ég (og aðrir sem láta sig málið varða) þá eiga von á svari fljótlega á síðum Morgunblaðsins við ítrekaðri fyrirspurn minni í Morgunblaðinu 10. maí sl.?“ Hinn 9. júní barst eftirfarandi svar frá lögfræðingnum: „Ef drögin, sem fyrirtækið mun leggja fram, verða í samræmi við það sem ráðherra hafði hugsað sér, mun fyrirtækinu væntanlega verða falið að ráðast í þessa rannsókn. Þú munt að sjálfsögðu fá svar við fyrir- spurn þinni en ég skal ekki segja um það, hvort þegar í næstu viku verði orðið tímabært að gefa slíkt svar.“ Nú er farið að síga á seinni hluta októbermánaðar og enn er beðið eftir svari dómsmálaráðherra. Á mínum vinnustað er almenn regla að svara öllum spurningum eftir bestu getu og því leyfi ég mér að skora á hæstvirtan dómsmálaráð- herra að svara margítrekuðum fyr- irspurnum varðandi rannsókn á starfsemi nektardansstaðanna og hvaða aðilar erlendir og innlendir græði á hugsanlegu vændi tengdu þessari starfsemi. Höfundur er framhaldsskóla■ kennari. Leikritið um „sátt við þjóðina“ UMGERÐIN var hæfilega upphafin og viðeigandi þennan föstudagsmorgun í Ráð- herrabústaðnum. Fjöl- miðlafólkið var mætt og eftirvæntingin mikil. Auðlindanefnd var að skila forsætisráðherra skýrslu sinni. Slíkur stórviðburður var brýnt myndefni í sjónvörpum landsmanna. Jóhannes afhenti Davíð skýrslu nefndar- innar. Og „replikkur" ráðherrans voru æði- miklu rismeiri en inn- koma Bubba kóngs hér fyrr á tíð. Þar voru uppi stór orð um ágæti skýrsl- unnar og hún jafnvel talin söguleg. Ekki síst var það talið skýrslunni til ágætis, að hún var samhljóða. Hér hlutu raunveruleg stórtíðindi að vera Kvótinn Það er rík ástæða, segir Jón Sigurðsson, til að vera vansæll yfír veigamiklum þáttum í greiningum auðlinda- nefndarinnar. á ferðum og óblandinn fognuður hlaut að hríslast um brjóst hvers þess manns sem vildi viðunandi sættir í samfélaginu um auðlindamál. Sá fögnuður kann að hafa dvínað hjá einhverjum strax síðdegis sama dag, þegar fyrirvaralaust hófst annar þáttur leikritsins. Innan fjögurra stunda frá afhendingu skýrslunnar hafði stjóm LÍÚ ekki aðeins lesið hana heldur líka ályktað um hana. Ekki verður á þá logið hjá LÍÚ hversu hraðlæsir þeir eru og fljótir að hugsa. LÍÚ menn buðu fram af höfð- ingsskap sínum að taka að sér með samningum löggjafarvaldið í þessum efnum, sem og heilmikið af stjómsýslunni, gegn því að greiða eitthvert lítilræði af auðlindaleigu þegar þeir kynnu að hafa efni á því. Tilboðið var gert með þeim yndislega fyrirvara, að sjómenn skyldu greiða sinn hlut af gjaldinu en væntanlega án áhrifa eins og endranær. Yfirlætið yfir algeru forræði samtakanna á þessum málum hjá ríkjandi stjóm- völdum skein af allri þessari gerð. Og einhveijum kann að hafa verið skemmt þegar Mbl. þótti þessi leik- brögð LÍÚ sæta tíðindum. Að því kom, að téð greinargerð auð- lindanefndar var lesin fyrir mig sem þetta skrifa. Mér brá strax. Yfirlýs- ingamar um einingu nefndarinnar voru skrök. Inni í skýrslunni eru einn og tveir nefndarmenn til skiptis að gera ágreining um grundvallaratriði. Þeir skrifa undir skýrsluna í lokin án fyrirvara af því að ágreiningurinn kemur skýrt fram í texta nefndar- álitsins. Svo er því logið að almenningi, sem ekki les, að skýrslan sé einhuga og mikilvægt innlegg í þjóðarsátt um þetta mMsverða mál. En hremming- amar áttu eftir að verða fleiri. Nefndin gerir númer úr þeirri sjálf- gefnu niðurstöðu, að það, sem almenn- ingur í landinu á, sé þjóðareign og rík- ið hafi ráðstöfunarrétt á þeirri eign. Þetta vill nefndin binda í stjómarskrá og banna varanlega ráðstöfun á slík- um eignum. Þess háttar ákvæði í stjómarskrá væri í raun jafnónýtt og það hefur verið í gildandi fiskveiði- stjómarlögum. Nefndin vill jafnframt, að öllum auðlindum, nema fiskstofn- um í hafinu, sé ráðstafað með útboðum eftir venjulegum markaðsleiðum. Ekki verða fundnar neinar röksemdir í skýrslunni um það hvers vegna sjáv- arútvegurinn á í þessu tilliti að vera ,jafnari en aðrir“ svo vitnað sé til frægrar sögu George Orwells. í svo ítarlegri skýrslu um gjald- töku fyrir auðlindir í almannaeign, þykir mér undarlegt að finna ekkert um þá einu gjaldtöku af þessu tagi sem verið hefur í náma- lögum allar götur frá því á þriðja áratug ald- arinnar og var á sínum tíma innheimt af námi Hekluvikurs, hvað svo sem síðar hefur orðið. Síðast þegar ég hnýst- ist í þetta var gjaldið hlutfallslega svo hátt við útflutning vikursins, að greiða ætti 4-5 millj- arða af sjávarauðlind- unum. Það er rík ástæða til að vera vansæll yfir veigamiklum þáttum í greiningum auðlindanefnd- arinnar á vandamálunum sem varða fiskveiðistjórn. Af þeim höfuðágöllum hennar, sem ég hef greint og skrifað mikið um, er í rauninni aðeins drepið á tvo. Brottkastið er rætt með afar lufsulegum hætti. Þar er það lagt að jöfnu þegar menn fyrr á árum voru að fleygja skítfiski eins og tindabykkju eða smáfiski sem ekkert verðmæti gat haft og það sem nú gerist þegar menn neyðast til að fleygja 5-7 kílóa þorski af því að hann borgar ekki kvótaleiguna þegar í land er komið. Hitt atriðið varðar byggðaröskun. Þar er staðhæft af hálfu nefndarinn- ar, að kvótakerfið hafi engin áhrif haft þar á. Þessi staðhæfing gengur þvert gegn bestu rannsókn sem gerð hefur verið í þessum efnum, rann- sókn dr. Stefáns Ólafssonar að til- hlutan Byggðastofnunar. Þar er nið- urstaðan, að kvótasala úr byggð- arlögum sé stór áhrifavaldur um brottflutning fólks. Það er ekki ýkja trúverðugt þegar auðlindanefnd gef- ur yfirlýsingar þvert ofan í slíkar rannsóknir. Aðrir ágallar kvótakerfisins og kvótaframsalsins eru ekki til umræðu í skýrslunni, s.s. yfirburðasamkeppn- isstaða stóru útgerðanna til kvóta- kaupa, samkeppnisforskot fiskvinnsl- unnar sem útgerðimar eiga og geta ákveðið sér hráefnisverð í samkeppni við fiskvinnslu án útgerðar sem kaupa þurfa hráefnið á markaði á allt að tvöföldu verði og keppa síðan á sömu afurðamörkuðum. Heldur er ekki fengist um lokun fyrir nýliðun í útgerð og hvemig það veldur því að ijarar undan sjómannaskólum eða hvemig fiskveiðistjómarkerfið veld- ur beinlínis drjúgum hluta af taum- lausri skuldasöfnun útgerðarfyrir- tækja. Það er jafnvel gefið í skyn, að árangur hafi verið af fiskveiðistjórn- inni til að stækka fiskstofna. Þarna er augum lokað íyrir óþægilegum stað- reyndum en þess í stað tekur nefndin þátt í leikritinu sem á að varða leiðina til að festa kerfið í sessi nánast óbreytt til frambúðar. Það mun koma á daginn þegar síðasti þáttur leikrits- ins verður settur á svið með niður- stöðum „sátta“nefndarinnar ein- hvem tíma á næsta ári. Svo mikil var depran, sem á mig sótti eftir þessar athuganir, að mér varð á að setja saman vísu, hvorki verri né betri en vænta má af svo óvönum vísnasmið: Þjóðareign = þjóðargjöf Þjóðinn’ er órótt og forystumennimir finna það/ Fallegt af þeim að vilja hugga og sef ’ana, svo auðlindanefnd var óðara beitt til að kynnaað, eignin sé fólksins þótt löngu sé búið að gef ’ana. Að lokum komst ég að niðurstöðu um hvemig á því stendur, að ríkis- stjórnin getur farið sínu fram í þessu máli þvert ofan í 75 % þjóðarinnar án þess að glata fylgi. Ástæðan er sú, að meginhluti þess fylgis, sem ríkis- stjórnin nýtur, er meðal þess fólks sem ekki fylgist með neinu sem máli skiptir í þessu samfélagi. Rökin fyrir þessari staðhæfingu er efni í allt aðra grein. Höfundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri. Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.