Morgunblaðið - 22.10.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
243. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
A
Leiðtogafundur araba fordæmir árásir Israela
Þúsundir fylgdu til grafar í gær Palestínumönnunum sem létust í átökum á föstudag.
Sagðir stefna frið-
arviðleitni í voða
Fyrrverandi liðþjálfí í bandaríska
hernum í heilögu stríði
Tók þátt í skipu-
lagningu sjálfs-
morðsárásar
New York, Washington. AP, Reuters.
FYRRVERANDI liðþjálfi í banda-
ríska hernum, Ali Mohamed, hefur
játað að hafa tekið þátt í skipulagn-
ingu sjálfsmorðsárása á bandarísku
sendiráðin í Kenýa og Tanzaníu sem
urðu 224 manns að bana fyrir tveim-
ur árum. Mohammed, sem er
egypskur að uppruna, sagði fyrir
dómstóli, að hann hefði slegist í lið
með hryðjuverkamanninum Osama
bin Laden og fleirum í heilögu stríði
gegn Bandaríkjamönnum. Hann er
sá fyrsti sem játar sig sekan af þeim
sautján sem hafa verið ákærðir í
Bandaríkjunum fyrir aðild að
sprengingunum. Atta af þessum
sautján fara huldu höfði, þar á með-
al Bin Laden, sem er sádí-arabískur
að uppruna en býr í Afganistan, að
því er talið er. Hann er meðal þeirra
sem bandarísk stjórnvöld gruna um
að standi að baki árásinni á tundur-
spillinn USS Cole á dögunum.
Mohamed, sem er bandarískur
ríkisborgari, sagðist hafa verið þátt-
takandi í „heilögu stríði“ sem hefði
það að markmiði að hreinsa Mið-
Austurlönd af vestrænum áhrifum.
Mohamed var liðsmaður bandaríska
hersins frá 1986-1989 og hafði þá
m.a. þann starfa að fræða banda-
ríska sérsveitarmenn um menningu
múslima. Mohamed segist hafa
fengið fyrirmæli frá Bin Laden 1993
um að skoða hugsanleg skotmörk í
Nairobi í Kenýa. Bin Laden hafl síð-
an valið bandaríska sendiráðið og
hafi verið litið á tilræðið sem hefnd
vegna íhlutunar Bandaríkjanna í
Sómalíu.
Kaíró, Khan Yunis, Nablus, SÞ. AP.AFP.
FUNDUR leiðtoga Arababanda-
lagsins, í Kairó í Egyptalandi, hófst
í gærmorgun með ávarpi forseta
Egyptalands, Hosni Mubaraks,
sem ávítti Israelsstjórn harðlega og
sagði hana hafa stefnt friðarumleit-
unum ísraela og Palestínumanna í
voða með ,,skeytingarleysi og árás-
argirni.“ A föstudag fór samkomu-
lag Israela og Palestínumanna um
vopnahlé út um þúfur og sagði for-
sætisráðherra ísrael, Ehud Barak,
að ísraelar biðu niðurstöðu fundar-
ins. Ef leiðtogar araba stöðvuðu
ekki ofbeldi á Vesturbakkanum og
Gaza-svæðinu myndu ísraelar taka
sér hlé frá friðarumleitunum.
Takmörkuðum refsiað-
gerðum beitt
Þrátt fyrir kaldar kveðjur leið-
toganna í garð ísrael er talið að
Egyptum og öðrum hófsömum
arabaríkjum muni takast að fá það í
gegn að niðurstaða fundarins verði
sú að takmörkuðum refsiaðgerðum
verði beitt gegn ísrael með þeim
rökum að enginn annar kostur sé í
stöðunni en áframhaldandi friðar-
umleitanir.
í ræðu sinni sagði Mubarak ísra-
el hafa brugðist trausti með morð-
um á saklausum börnum. Hann fór
fram á að ísraelsstjórn sýndi það í
verki að hún vildi friðsamlega sam-
búð við araba. Mubarak, Yasser
Arafat, leiðtogi Palestínumanna, og
aðrir leiðtogar og fulltrúar 22 aðild-
arlanda Arababandalagsins segja
Israel bera ábyrgð á átökunum
undanfarið sem kostað hafa rúm-
lega 120 manns lífíð.
Forseti Líbanon, Emile Lahoud,
varaði við hörðum viðbrögðum í
ríkjum araba ef leiðtogarnir stæðu
ekki saman gegn ísrael. Arafat lét
þau ummæli falla að aðgerðir ísra-
ela á helgum stöðum gætu valdið
„trúarstríði" með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum. „Okkar þjóð stendur
nú frammi fyrir fjöldamorði."
Ezzat Brahim, næstæðsti maður
íraka, kallaði eftir heilögu stríði
gegn ísrael til að frelsa hernumin
lönd araba. Krónprins Sádí-Arabíu,
Abdullah bin Abdul Aziz, lagði til að
settur yrði á laggirnar sjóður til
styrktar Palestínumönnum. Aðal-
ritari Arababandalagsins, Esmat
Abdel Meguid, sagði kominn tíma
til að „endurmeta friðarferlið."
Háttsettur arabískur embættis-
maður sagði fréttamanni AFP að
drög að ályktun, sem utanríksráð-
herrar arabaríkjanna sömdu fyrir
fundinn, yrðu e.t.v. milduð, í ljósi
yfírlýsinga ísraelsstjórnar. í álykt-
uninni er þess krafist af ríkjum,
sem ekki hafa skrifað undir friðar-
samkomulag við ísrael en hafa
samskipti við ríkið, að slíta öllum
samskiptum og samvinnu.
Áframhald varð á átökum ísraela
og Palestínumanna á Vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu í gær. Pal-
estínskur unglingur lést í átökum
við ísraelskar hersveitir á Gaza-
svæðinu í gærmorgun og nær fjöru-
tíu særðust, þar af einn alvarlega.
Tugir þúsunda Palestínumanna
fylgdu fórnarlömbum óeirðanna í
Nablus á Vesturbakkanum á föstu-
dag til grafar. Margir syrgjendur
báru arabíska fána og hvöttu til
þess að leiðtogafundurinn í Kairó
styddi málstað Palestínumanna.
Einnig kom til fjölmennra mót-
mæla gegn ísraelsstjórn í mörgum
helstu borgum arabaríkja í gær.
Ályktun allsherjarþings
fordæmir Israel
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti á föstudag að for-
dæma valdbeitingu ísraelska hers-
ins gegn Palestínumönnum og
hvatti til vopnahlés. Bandaríkin og
ísrael greiddu atkvæði gegn álykt-
uninni. 92 lönd greiddu atkvæði
með ályktuninni. 46 sátu hjá, þar á
meðal öll Norðurlöndin sem að sögn
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðherra höfðu samráð sín á milli.
■ Saga sem tengir /22
Reuters
Norskur köfunarpallur sem hefur verið komið fyrir þar sem Kúrsk sökk.
Bj örgunaraðger ðir
við Kúrsk hafnar
MORGUNBLAÐK) 22. OKTÓBER 2000
5 690900 090000
EIN STEFNA ÍORÐI
onnur i verki
10
Eyða í danskri
og íslenskri
bókmenntasögu
28
HAGNAÐURI
AFMÆLISMÁNUÐI
heimtingu líkanna," sagði talsmaður
rússneska hersins, Igor Dygalo.
Hann sagði undirbúninginn geta
tekið marga daga. Dygalo sagði mik-
ilvægast að huga vel að öryggi kaf-
aranna.
Hagstæð veðurskilyrði og mæl-
ingar á geislavirkni í kringum opið á
kafbátnum eiga að tryggja öryggi
kafaranna að sögn Interfax.
Veðurfræðingar hafa spáð versn-
andi veðri á þessum slóðum í næstu
viku og gæti það hindrað björgunar-
störf, líkt og hingað til.
Kjamorkukafbáturinn Kúrsk
sökk 12. ágúst og eru ástæður slyss-
ins enn ókunnar. 118 rússneskir sjó-
liðar voru um borð. Undirbúningur
björgunaraðgerðanna hefur staðið
yfir í rúman mánuð.
Moskvu. AP. AFP.
AÐGERÐIR eru hafnar til að ná lík-
um rússesku sjóliðanna sem fórust
er kjarnorkukafbáturinn Kúrsk
sökk í ágústmánuði. Talsmaður
Norðurflota Rússa, Vladimir Navr-
otski, sagði að fjórir rússneskir kaf-
arar og tveir norskir ynnu að því að
klippa í sundur brynvörn kafbátsins
við björgunarhlera hans. „Þetta er
lokastig undirbúningsins að endur-
SUNNUDAGUR