Morgunblaðið - 22.10.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBOK
SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000 51
BRIDS
Vmsjón Ouðmiimlnr l’áll
Arnarson
ÞÚ ert í suður og stelst
til að opna á 15-17
punkta grandi með 14
punkta og þrjár tíur. Það
voru mistök, því makker
þinn er bjartsýnismaður
og linnir ekki látum fyrr
en í sex gröndum:
Norður
A D7
v g5
♦ 41073
4* AD653
Suður
* ÁG10
y Á1043
* KD6
* 1072
Sagnir makkers eru
ekki prenthæfar, en þú
þakkar fyrir blindan og
ert svo sem alls ekki
vondaufur eftir útspilið,
sem er spaðanía. Þú set-
ur drottninguna og veiðir
kónginn. Góð byrjun.
Næst spilarðu laufi að
blindum, færð gosann úr
vestrinu, svínar drottn-
ingunni og austur tekur
með kóng. Og spilar
spaða. Þú prófar lauftíu,
en því miður, vestur
hendir spaða. Þegar þú
tekur þriðja spaðaslag-
inn hendir austur hjarta.
Hvernig á að vinna úr
þessu?
Margt er vitað um
skiptinguna. Vestur hef-
ur byrjað með sexlit í
spaða og einspil í laufi.
Þú átt ellefu slagi ef tíg-
ullinn gefur fjóra, en það
er óráðlegt að spila upp á
3-3-legu, því þá er vest-
ur með skiptinguna 6-3-
3-1 og valdar þar með
hjartað. Þú verður að
gefa þér að vestur eigi
fjóra tígla:
Norður
* D7
¥ £5
* 41073
* AD653
Austur
* K2
¥ D9862
* 84
* K984
Vestur
♦ 986543
¥ G7
♦ G952
♦ G
Suður
* ÁG10
¥ Á1043
* KD6
* 1072
Eina vonin á tólfta
slagnum er þvingun á
austur í hjarta og laufi.
Þú tekur tígulhjónin og
svínar tígultíu. Tígulás-
inn afgreiðir svo austur,
sem getur ekki bæði
valdað laufið og haldið í
þriðja hjartað.
„Alltaf á borðinu?“
spyr makker, sem hafði
ekki fylgst nákvæmlega
nieð spilamennskunni.
Arnað heilla
r A ÁRA afmæli. í dag,
t) vl sunnudaginn 22.
október, er fimmtug Mar-
grét A. Frederiksen, Lækj-
arþjalla 32, Kópavogi. Hún
tekur á móti vinum og ætt-
ingjum í KR-heimiIinu,
Frostaskjóli, kl. 15-17 í dag.
n A ÁRA afmæli. Á
I vl morgun, mánudag-
inn 23. október, verður sjö-
tug Þórdís Kristinsdóttir,
yallarbraut 3, Hafnarfirði.
Á afmælisdaginn opnar hún
sína fyrstu myndhstarsýn-
ingu og tekur þá á móti vin-
um og vandamönnum í Gall-
eríi Jörð, Reykjavíkurvegi
66, Hafnarfirði, milU kl. 18
og20.
AA ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 22.
október, verður níræður
Baldur Garðar Johnsen,
læknir, búsettur á Skjóli.
Hann er að heiman í dag.
SKAK
Vmsjón Ilnlgi Áss
Grétarsson
Svartnr á leik.
Staðan kom upp á milli
stórmeistaranna Stuart
Conquest (2529) og Tiger
Hillarp-Persson (2549) á 3.
alþjóðlega mótinu í Þórs-
höfn, Færeyjum, sem lauk
fyrir skömmu. Báðir þessir
stórmeistarar ættu að vera
íslenskum skákáhuga-
mönnum að góðu kunnir
enda hafa þeir komið hing-
að til lands oft og mörgum
sinnum. Báðir eru þeir
kunnir fyrir að víla ekki
fyrir sér að lenda í snörp-
um átökum og ber skákin
það með sér. 21...g5!! 22.
Bxg5 22. Be3 hefði ekki
heldur bjargað miklu
vegna svipaðs framhalds
og í skákinni. 22...Df3! 23.
Hgl Bxc3! 24. Dxc3 Ddl+
25. Kg2 Dxd5+! og hvítur
gafst upp enda dettur
maður fyrir borð eftir t.d.
26. fá Dxg5. Skákin tefldist
í heild sinni: 1. d4 Rf6 2. c4
c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6 5. b6
d6 6. Rc3g6 7. e4 Bg78.a4
Dxb6 9. a5 Db4 10. Ha4
Db7 11. Rf3 0-0 12. Rd2 e6
13. Rc4 exd5 14. exd5 Bg4
15. Be2 Bxe2 16. Kxe2
De7+ 17. Kfl Rbd718. Bf4
Re8 19. De2 DÍ6 20. Dd2
Hb8 21. g4 og nú er staðan
komin upp á stöðumynd-
SJOÐABROT
HAUSTVISA
Land kólnar. Lind fólnar.
Lund viknar. Grund bliknar.
Svell frjósa. Fjöll lýsast.
Fley brotna. Hey þrotna.
Dug hættir. Dag styttir.
Drótt svengist. Nótt lengist.
Sól þrýtur. Sál þreytist.
Sær rýkur. Snær fýkur.
Páll Ólafsson.
ORÐABÓKIN
Með köflum
í veðurlýsingum heyrist
oft ofangreint orðasam-
band. f RÚV 8. okt. var
t.d. talað um súld með
köflum. Eins var talað um,
að skýjað væri með köflum
í sömu lýsingu. Ekki verð-
ur sagt, að þetta sé rangt
orðalag, en það er of notað
að mínum dómi og jafnvel
ekki nógu skýrt. Eg ætla,
að hér sé oftast átt við hið
sama eða svipað og þegar
talað er um rigningu eða
súld öðru hverju, við og við
eða af og til. í seinna dæm-
inu er ekki fráleitt að sjá
fyrir sér himininn skýjað-
an með köflum og svo
heiðríkjubletti á milii.
Ekki alls fyrir löngu lét
Baldur Pálmason til sín
heyra í MbL, þar sem hann
taldi orðalagið af og til
með öllu óþarft í máli okk-
ar. Benti hann á, að þetta
væri beinlínis tekið
óbreytt að láni úr dönsku.
Taldi hann, að íslenzku-
legra mál væri að tala um,
að rigning eða sólskin yrði
við og við eða öðru hverju.
Eg er honum sammála um
þetta. Enda þótt við höf-
um þegið margt úr
dönsku, á meðan við lutum
yfirráðum Dana, er óþarft
að halda tungutaki þeirra,
þegar við höfum annað
eldra og oftast miklu betra
orðalag í máli okkar. Ofan-
greint orðalag hefur áður
borið á góma í pistlum
mínum, en ekki sakar að
endurtaka það sem og ým-
islegt annað orðafar í von
um, að einhverjir taki eftir
og helzt taki til greina,
þegar þeir þurfa á að
halda í ræðu eða riti. -
J.AJ.
STJÖRNUSPA
cftir Frances llrake
HRÚTUR
Afmælisbam dagsins: Þú ert
góður hlustandi og því er
fólk fúst að segja þér öll sín
leyndarmál. Gættu þín vel.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Verkefnin hrannast upp svo
þér finnst þú ekki sjá fram úr
hlutunum. Temdu þér skipu-
lagningu og taktu ekki meira
að þér en þú ert maður til.
Naut
(20. april - 20. maO í*t
Það er allt í lagi að taka smá-
áhættu, þegar aðstæður eru
hagstæðar. En mundu að í
raun er lífið fyrst og fremst
vinna og aftur vinna.
Tvíburar
(21.maí-20.júní)
Láttu aðfinnslur annarra
ekki draga þig niður. Hertu
upp hugann , öll él birtir upp
um síðir og þá stendur þú
með pálmann í höndunum.
Krdbbi
(21. júní-22. júlí) ^fflfc
Það getur verið tilbreyting í
því að kynnast fólki utan þess
hrings, sem þú venjulega um-
gengst. En mundu að ekki
eru allir viðhlæjendur vinir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Það er ekkert að því að sýna
aðhaldssemi, Slíkt er bara
hygginna manna háttur en
telst engin níska. Gefðu ekki
nema þú sért aflögufær.
Mejja
(23. ágúst - 22. sept.) (BSL
Taktu þér tíma til þess að
meta stöðu þína og kanna
hvort þú ert á réttri leið.
Hlutirnir eru stöðugt að
breytast og því er endurmat
skynsamlegt.
Vog rrx
(23.sept.-22.okt.)
Gættu þess að ganga ekki of
langt í tilraunum til að skara
eld að eigin köku. Það setur
þig í slæmt ljós og þú missir
trúnað fylgismanna þinna.
Sþorðdreki ™
(23. okt. - 21. nóv.) MK
Góðverkin átt þú að vinna í
kyrrþey. Það er oflátungs-
háttur að berja sér á bijóst og
auglýsa gjafir sínar og fólk
fær skömm á þeim sem það
gera.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) AO
Það eru einhverjir í hópi sam-
starfsmanna þinna sem vilja
mikið til vinna að leggja stein
í götu þína. Láttu þá ekki
komast upp með neitt múður.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4K
Gefðu þér tíma til þess að
rannsaka málin áður en þú
hleypur með þau í aðra. Þú
kemur engu áleiðis nema með
vönduðum undirbúningi í hví-
vetna.
Vatnsberi .
(20. jan. -18. febr.) QÉs
Nú er upplagt tækifæri til
þess að hefjast handa við
verk, sem þú hefúr lengi látið
þig dreyma um. Mundu bara
að halda þig við upphaflega
áætlun.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars) IW>
Nú getur þú ekki lengur skot-
ið því á frest að taka ákvörð-
un í viðkvæmu einkamáli.
Vertu bara sjálfum þér trúr
og tillitssamur; þá fer allt vel.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
fyrir einstaklinga, hópa og fyrirtæki
frá 16 nóv.-21.des.
fimmtudaga/östudaga,
laugardaga og sunnudaga
Pantanir í s. 586 8300 - 566 6456,
fax 566 7403
TVÖ
námskeiö í
heimasíðu-
í Ntv skólunum bjóðum við annars vegar upp á 120
stunda kvöldnámskeið sem byijar 4. nóv. n.k. og hins
vegar upp á 78 stunda síðdegisnámskeið
sem byijar 7. nóv n.k.
Meðal efnis sem kennt verður er:
Hönnun og myndvinnsla í
Freehand 8 & Photoshop 5
HTML Forritun
Heimasíðugerð í Frontpage
Hreyfímyndir í Flash 4
Upplýsingar og innritun í símum
555 4980 og 544 4500
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Sími: 555 4980 - Fax: 555 4981
HKÖasmára 9- 200 Kópavogi - Slmi: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasfða: www.ntv.is