Morgunblaðið - 22.10.2000, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÆSKILEGT AÐ SEM
FLESTIR FATLAÐIR
nemendurgeti stundað nám í heimaskóla
LÖG og reglur um grunnskóla og
reglugerðir um sérkennslu undir-
strika jafnan rétt til náms í heima-
skóla og að nám skuli sniðið að þörf-
um hvers og eins nemanda. Hvernig
stendur þá á því að foreldrar fatlaðra
bama þurfa að leggja á sig mikið erf-
iði við að koma bömunum í heima-
skóla, eins og kemur fram í viðtölum
við þennan hóp? Spurningin var lögð
fyrir Arthur Morthens forstöðumann
þjónustusviðs Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkurborgai'.
„Ég vil taka það fram í upphafi að
ísland er með færri nemendur í sér-
skólum en aðrar Evrópuþjóðir eða
0,4% nemenda. Í Reykjavík em
15.000 nemendur í almennum gmnn-
skólum. Nemendur sem fá sér-
kennslu í Reykjavík em 20% þessa
hóps eða 2.400 nemendur. Þar af em
165 nemendur í sérskólum og 200
nemendur með fatlanir og mikla
sérkennsluþörf.
Hvað varðar faglegt skólastarf em
aðstæður misjafnar. Það fer eftir við-
horfum og menningu innan hvers
skóla hve tilbúnir skólastjómendur
era að taka við fötluðum nemendum.
í nokkmm skólum í Reykjavík hefur
verið unnið afar gott starf með fotl-
uðum nemendum. Ég vil benda á
Foldaskóla sem fékk sérstaka viður-
kenningu Þroskahjálpar á síðast-
liðnu ári fyrir vinnu með einhverfum
nemendum innan skólans. Sérdeiid í
Hlíðaskóla, sem starfað hefur lengi,
hefur einnig skilað góðum árangri og
sama á við um fleiri skóla.
Fjármagnið bundið
við sérskólana
Fjárhagslega hliðin er þó nokkuð
veikari því fjármagn til fatlaðra
gmnnskólanemenda hefur fram tii
þessa fyrst og fremst verið bundið
við sérskólana. Ef foreldri velur
heimaskóla fyrir fatlað barn sitt
verður málið snúnara og greiðslur
kostnaðar verða þrengri en það hefur
áhrif á viðhorf skólastjómenda til
þess hvort þeir ákveða að taka fötluð
böm inn í skólann.
I Reykjavík búum við við þann
vanda að menntuðum sérkennuram
með þekkingu og færni á sviði fatl-
aðra bama hefur fækkað á undan-
fömum ámm. Þetta er áhyggjuefni
ogþarfaðskoða.“
Ér einhver sérstök skýring á
þessu?
„Sjálfsagt em ástæðumar margar
eins og minna framboð á sérkennslu-
menntun fyrir þennan hóp. Þá er
meira framboð á framhaldsmenntun
nú en áður og hefur sérkennsla ekki
sama aðdráttarafl og áður.
En það er ljóst að ef stefna löggjaf-
ans er ekki skýr verður staða for-
eldra veikari, þ.e. háðari túlkunum
einstakra embættismanna og skóla-
stjómenda. Jafnræðisreglan verður
veikari fyrir bragðið. Það er því með
öliu óviðunandi að leikreglumar séu
ekki skýrar," segir Arthur.
Betur má ef duga skal
Foreldrar fatlaðra bama á grann-
skólaaldri töluðu um í rannsókninni
að það skorti skipulega og heildstæða
upplýsingaþjónustu íyrir fötluð böm
og fjölskyldur þeirra. Hvernig má
bæta úr því?
„Þessi gagnrýni á um margt rétt á
sér. Þó er rétt að geta þess að sam-
starf Fræðslumiðstöðvar Reykjavík-
ur og Greiningarstöðvar ríkisins hef-
ur styrkst á undanfömum ámm.
Betur má ef duga skal. Við hittum
forsvarsmenn Greiningarstöðvarinn-
ar reglulega og fömm yfir málefni
einstakra barna sem þurfa á ráðgjöf
og aðstoð að halda. Hins vegar er ég
þeirrar skoðunar að ráðgjafar Grein-
ingarstöðvar og ráðgjafar Fræðslu-
miðstöðvar mættu hittast oftar til að
ræða um málefni einstakra bama og
hvaða þjónusta hentar best í hveiju
tilviki.
Við þyrftum einnig að taka það
upp hvort þessir aðilar gætu gefið út
sameiginlegan upplýsingabækling
fyiir foreldra."
I rannsókninni kemur fram gagn-
rýni á að svo virðist sem það sé í
höndum skólastjóra í gmnnskólun-
um hvort fatlað bama fær inni í
heimaskólanum - hvað er um þetta
að segja?
„Skólastjórar eiga ekki frekar en
aðrir að hafa alræðisvald í þessum
efnum. Þeim er ætlað að vinna eftir
lögum, reglugerðum og samþykktum
sem skólanefndir gera. Samráð
skólastjóra, sérfræðinga skóla og
foreldra skiptir hér öllu máli og
þannig em hlutimir framkvæmdir í
reynd.“
Fagleg þjónusta í íslenskum
sérskólum með því besta
sem gerist
Þarf ekki einmitt skýra stefnu um
skyldur skóla við fötluð böm?
„Það era þegar til ákveðnar vinnu-
reglur hvað það varðar. En það verð-
ur að hafa í huga að oft er tilboð hins
almenna skóla háð fjárhagsramma
skólaumdæmisins og hann getur ver-
ið býsna þröngur.
Ráðgjöf við foreldra fatlaðra bama
í Reykjavík gæti verið betri en þar er
starfið einnig háð fjárveitingum. Hér
þyrftu fleiri að starfa að þessum mál-
um en það má geta þess að kennslu-
ráðgjafar Fræðslumiðstöðvarinnar
em aðeins tveir en þeir halda utan
um sérkennslu 2.500 nemenda, 18
Arthur Morthens, forstöðumað-
ur þjónustusviðs Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur.
sérdeilda og alla sérskóla hér á landi
ásamt ráðgjöf við foreldra fatlaðra
bama í Reykjavík.“
Skortir ekki einnig samræmdar
viðmiðanir um skyldur sveitarfélaga
og skóla?
„Það er ljóst að samræmdar við-
miðunarreglur skortir tilfinnanlega.
Grannskólalög og reglugerðir era
fremur óljósar eins og þegar hefur-
verið vikið að. í sumum tilvikum
hentar sérskóli betur fyrir nemendur
með mikla fötlun. Þar er fagleg þekk-
ing og þjónusta með því besta sem
þekkist. I öðram tilvikum hentar bet-
ur úrræði í almennum skóla, þá sér-
staklega ef þar er fyrir hendi fagleg
þekking og góður stuðningur."
Þurfum að byggja upp
þjónustu við fatlaða inni í
grunnskólunum
Það kemur líka íram í niðurstöðum
rannsóknarinnar að foreldrar telja
sig standa frammi fyrir afarkostum
þegar kemur að vali á námsúrræðum
fyrir þennan hóp barna. Stendur til
að fjölga úrræðum, þ.e. gera þjónust-
una við þennan hóp bama fjölbreytt-
ari?
„Mér finnst of sterkt til orða tekið
að tala um afarkosti og alhæfa út frá
því. Staðreyndin er sú að í mörgum
tilvikum er mjög vel búið að fötluðum
einstaklingum í almenna grunnskól-
anum þar sem hann nýtur vemlegs
stuðnings. Hitt er svo annað mál að
þjónustan við fatlaða nemendur hef-
ur í gegnum tíðina verið byggð upp í
kringum sérskólana og þar er í flest-
um tilvikum betri þjónusta enn sem
komið er.
Það sem við stöndum frammi fyrir
nú er að byggja upp þjónustu innan
gmnnskólanna sem stendur jafnfæt-
SÍÐAN árið 1974 hefur Hlíðaskóli
tekið á móti fötluðum börnum í al-
mennt gmnnskólanám og hefur
þessi þjónusta verið veitt á lands-
vísu.
Þar hafa verið í námi böm með
misjafna líkamlega fötlun og hefur
skólinn haft fasta fjárveitingu ár-
lega til sérdeildarinnar.
„Við höfum verið með sérdeild
innan skólans fyrir hreyfihömluð
böm sem nú er verið að leggja niður
því bömunum er ætlað að fara í sína
heimaskóla. Við emm einnig með
málörvunardeild fyrir börn úr
Reykjavík sem hafa fulla heyrn en
hafa einhvers konar talerfiðleika.
Aætlað er að bömin komi sem yngst
í þessa deild og verði í skólanum í
þrjú ár en fari síðan í sína heima-
skóla. Við erum með talkennara og
sérkennara sem veita bömunum
geysilega góða kennslu og hefur
námið reynst vel,“ segir Ami Magn-
ússon, skólastjóri Hlíðaskóla, þegar
hann er spurður um starfsemi sér-
deildar fyrir fatlaða í skólanum.
„í haust tókum við inn í skólann
einhverfan nemanda og er vel staðið
að því máli af hálfu fræðsluyfirvalda
en hann hefur með sér stuðnings-
fulltrúa í 75% starfi.“
Ami segir að þegar fötluðu börn-
in hafi verið flest í skólanum hafi
þau verið rúmlega tuttugu að tölu
en séu nú fimm.
„Markmiðið með deildinni er
blöndun, bæði námslega og félags-
lega, og hefur deildin ekki síður
reynst vel fyrir aðra nemendur
skólans. Það er gefandi að kynnast
aðstæðum þessara bama. Auðvitað
hafa komið upp vandamál, jafnvel
tæknileg líka, en þegar á heildina er
litið hefur þetta starf reynst árang-
ursríkt. Ég er því meðmæltur að
Árni Magnússon,
skólastjóri Hlíðaskóla.
það séu starfandi sérdeildir innan
grunnskólanna."
Hvað þarf til svo hægt sé að þjóna
fötluðum börnum vel í heimaskóla?
„Ef á að vera eitthvert vit í sér-
deildunum þarf starfsfólkið að vera
sérmenntað en það virðist vera mik-
il skortur á slíkum starfskrafti. Sem
betur fer höfum við ekki þurft að
vísa fötluðum nemanda í skólahverf-
is því sem er í boði í sérskólunum þá
bæði hvað varðar faglega þætti og
hliðarþjónustu eins og sjúkraþjálfun,
iðjuþjálfun, talkennslu og aðra þætti
sem hafa fram til þessa verið sterkari
í sérskólunum.
Þarf að íjölga úrræðum
I Reykjavík em nú 21 sérdeild en
þar af era 4 deildir fyrir fatlaða; 2
fyrir einhverfa, ein íyrir hreyfihaml-
aða og ein fyrir sem þá sem eiga við
málörðugleika að etja og ein sérdeild
fyrir blinda. Rétt er einnig að geta
þess 1 þessu sambandi að við emm nú
að hefja uppbyggingu tvíburaskóla
heyrnarlausra og heymarskertra og
Hlíðaskóla í Reykjavík.
Það kann að vera að úrræðum
megi íjölga en þau mál em í skoðun
hjá okkur og hafa vaknað spumingar
eins og hvort við eigum að byggja
upp sérúrræði innan hvers heima-
skóla. Mín skoðun er sú að æskilegt
sé að sem allra flestir fatlaðir nem-
endur geti stundað nám í heimaskóla
þannig að þeir séu í sínu umhverfi
með sínum leikfélögum, en í öðram
tilvikum er fötlunin þannig að þjón-
ustan verður betri í sérskóla."
Samkvæmt rannsókninni virðist
sem margir foreldrar fatlaðra bama
upplifi reynsluna af því að að fá inni
fyrir böm sín í heimaskóla sem mjög
sársaukafulla - er það eðlilegt?
„Nei, það er ekki eðlilegt í velferð-
arþjóðfélagi eins og er á íslandi að
fólk þurfi að berjast með kjafti og
klóm til að koma fötluðum börnum
sínum inn í almenna gmnnskólann.
Það þarf að styrkja alla ráðgjöf til
foreldra og samhæfa ráðgjafarþjón-
ustuna og koma í veg fyrir að for-
eldum sé stöðugt hafnað í þessari
baráttu við kerfið."
Línurnar skýrari eftir 1-2 ár
Hvenær má búast við heildstæðri
stefnu í málefnum fatlaðra gmnn-
skólabama?
„Fræðsluráð Reykjavíkur sam-
þykkti fyrir hálfum mánuði að setja á
laggimar pólitíska nefnd sem á að
vinna að stefnumörkun í þessum mál-
um í samvinnu við embættismenn og
sérfræðinga. Ég vonast til að við fá-
um niðurstöður fljótlega, að minnsta
kosti hvað varðar Reykjavík.
Við höfum ekki eins og í nágranna-
löndunum fengið neina dóma í þess-
um efnum til að styðjast við. Við höf-
um heldur ekki fengið úrskurð frá
menntamálaráðuneytinu hvað varðar
rétt fatlaðra barna til skólagöngu í al-
mennum gmnnskólum. Þannig að við
emm að ferðast um á gráu svæði Að-
alatriðið í mínum huga er að við get-
um byggt upp margbreytileg tilboð
og að hægt sé að veita einstaklings-
þjónustu í almenna gmnnskólanum,
sérdeild og sérskóla.
Við emm einnig að skoða sérskól-
ana og athuga með hvaða hætti er
best að meta þá þjónustu í framtíð-
inni.
Við reiknum með að á næstu 1-2
áram verði komnar skýrari línur
hvað þennan þátt varðar. Hvort
ráðuneytið tekur upp lögin og gerir
þau afdráttarlausari og skýrari verð-
ur að koma í ljós.“
inu frá vegna þess eða af öðmm
ástæðum.
Að mínu mati þurfa einnig að
koma til ákveðnar starfsreglur milli
foreldra og skóla. Mín reynsla er sú
að það era ekki öll fötluð börn sem
eiga jafn mikið erindi inn í almenn-
an skóla og þurfa skólayfirvöld að
hafa einhvert viðmið til að styðjast
við þegar kemur til slíkra álitamála.
Það sem er þó brýnast er að
fræðsluyfirvöld marki skýra stefnu í
þessum málum. Skólastjórar, kenn-
arar og foreldrar þurfa að knýja á
um að slík stefnumörkun fari fram.
Við verðum einnig að gera okkur
grein fyrir því að ef við ætlum að
hafa alla nemendur með sérþarfir í
grannskólum almennt er það mun
kostnaðarsamara á hvern einstakl-
ing en nám í sérskólum. Það er
spuming hvernig menn vilja ráð-
stafa fjármununum.“
Hlíðaskóli hefur þegar hafið sam-
starf við Vesturhlíðarskóla, skóla
heyrnarlausra. „Við rekum þar nú
heilsdagsskóla fyrir yngstu nem-
enduma í báðum skólunum. í fram-
tíðinni er ráðgert að skólarnir verði
sameinaðir vegna fækkunar nem-
enda í Vesturhlíðarskóla,“ segir
Árni.
Gunnar Gíslason, deildar-
stjúri Skóladeildar Akur-
eyrar.
VANDAMÁL
að fá sérhœft
starfsfólk
„AÐSTÆÐUR til að taka við
fötluðum bömum í gmnnskóla
Akureyrar era að sjálfsögðu
misjafnar," segir Gunnar
Gíslason, deildarstjóri Skóla-
deildar Akureyrar.
„Stefnan hefur verið sú að
fötluð börn eigi rétt á að
ganga í heimaskóla en það
skal tekið fram að það hefur
kannski ekki verið hægt að
bjóða upp á sambærilega þjón-
ustu í heimaskóla og sérdeild
vegna skorts á sérmenntuðu
starfsfólki. í nokkur ár hefur
starfað sérdeild fyrir fjölfötluð
börn við Giljaskóla og önnur
sérdeild við Síðuskóla fyrir
einhverf börn sem hefur verið
starfrækt á annað ár. Fram til
þessa hefur það verið val for-
eldra hvort þeir senda börnin í
sérdeild eða í sinn heimaskóla,
það á þó einkum við um ein-
hverfu börnin.
Sú þjónusta hefur einnig
verið í boði að fötluð börn geta
verið í vistun í grunnskólanum
eða í tengslum við hann eftir
að skóladegi lýkur.
Megin vandamálið hjá okk-
ur hefur verið að hafa aðgang
að nægilega mörgum sér-
menntuðum starfsmönnum til
að sinna bömunum en mark-
mið okkar hefur verið að veita
eins góða þjónustu og hægt er
miðað við aðstæður á hverjum
tíma.“
Hafið þið getað komið til
móts við fátíðar fatlanir sem
krefjast mjög sérhæfðrar
kennslu og þjónustu?
„Við erum núna að fást við
margar tegundir fötlunar í al-
menna grannskólunum. Lund-
arskóli hefur þjónustað mjög
fatlaðan dreng alla hans skóla-
göngu en hann er nú í áttunda
bekk. Skólinn hlaut gullverð-
laun Helios sem veitt er af
Evrópubandalaginu fyrir
þetta starf.
Eins og áður er getið höfum
við getað mannað stöður sér-
menntaðs starfsfólks en það
hefur gengið betur að ráða
fólk til starfa í sérdeildirnar.
Hér er ekki starfandi sér-
deild fyrir heymarlaus eða
heymarskert börn og hafa þau
þurft að sækja skóla fyrir
sunnan tímabundið. Þau hafa
svo komið til baka og sótt nám
í sínum heimaskóla. Nú er til
umræðu að koma á sérdeild
við Lundarskóla fyrir heyrn-
arlaus og heyrnarskert börn.
Það gæti þó verið háð því
hvort sérhæft starfsfólk fæst
við skólann.
Það liggur fyrir hjá skóla-
nefnd Akureyrarbæjar að end-
urskoða þjónusta við fötluð
börn á grunnskólaaldri með
það að markmiði að finna leið-
ir til að bæta þjónustuna við
þessi böm en það er alltaf
spurning hvaða leiðir era fær-
ar hverju sinni.
Við höfum enga sérskóla
hér á Akureyri og verðum því
að leysa þessi mál inni í heima-
skólunum eins og hægt er.“