Morgunblaðið - 22.10.2000, Side 14
14 SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Finninn Jonatan Johansson iðinn við kolann hjá Charlton Athletic
SÍÐAST þegar Charlton Athletic
lék í ensku úrvalsdeildinni, vet-
urinn 1998-99, gróf liðið sína
eigin gröf. Leikmennirnir sýndu
á köflum ágæt tilþrif en voru
sjálfum sér verstir. Því fór sem
fór. Stuðningsmönnunum hlýtur
því að hafa brugðið í brún í sum-
ar, skömmu eftir að úrvalsdeild-
arsætið var í höfn á ný, þegar fé-
lagið festi kaup á gömlum
líkgrafara - og borgaði fyrir
hann stórfé í þokkabót. Er hon-
um ætlað að fara fyrir sóknar-
línu liðsins.
Maðurinn heitir Jonatan
Johansson og er 25 ára gam-
all Finni. Raunar tók hann grafir
aðeins tímabundið -
Orri pán t'1 að draga fram líf-
Ormarsson ið á námsárunum.
skrífar En það er sama -
stuðningsmenn
Charlton hafa óbeit á gröfum. Vilja
halda sig ofan jarðar.
Johansson, eða Jonatan, það er
þjálla, tók líka snemma til við sína
fyrri iðju - gröftinn. Eini munurinn
er sá að nú notar hann skotskó í
stað skóflu og tuðru í stað jarð-
neskra leifa. Hann hefur, með öðr-
um orðum, verið iðinn við að grafa
tuðruna í netmöskvum andstæðing-
anna. Gert sjö mörk í níu leikjum.
Jonatan er næstdýrasti leikmað-
ur Charlton frá upphafi, kostaði
3,25 milljónir steríingspunda frá
skosku meisturunum Rangers í
sumar. Raunar getur kaupverðið
hækkað um kvartmilljón leiki
framherjinn 25 leiki fyrir Charlton
í vetur og aftur um sömu upphæð
haldi félagið sæti sínu í deildinni.
Aðeins Daninn Claus Jensen hefur
kostað meira fé, 4 milljónir frá
Bolton Wanderers í sumar.
Mikilvægt að byrja vel
Jonatan líst strax vel á sig. „Mér
hefur gengið vonum framar til
þessa. Það er mikilvægt að byrja
vel hjá nýju félagi og vinna stuðn-
ingsmennina á sitt band. Það léttir
á pressunni. Nú þarf ég bara að
halda uppteknum hætti, skora að
jafnaði, fram á vorið. Charlton hef-
ur veitt mér frábært tækifæri til að
sanna mig eftir erfitt ár í Skotlandi
í fyrra, þar sem ég var óheppinn
með meiðsli og komst síðan ekki í
liðið þegar ég hafði náð heilsu. Ég
þurfti á nýrri áskorun að halda og
held ég hafi valið rétta tímann til
að færa mig um set.“
Jonatan hefur fallið vel að leik-
stíl Charlton sem lætur vel að
liggja aftarlega og beita skyndi-
sóknum. „Hraðinn er minn helsti
AP
Jonatan Johansson (t.h.) glímir við Gareth Barry í landsleik Finna og Englendinga í Helsinki fyrir skemmstu. Finninn fríski hefur
komið enskum vamarmönnum í opna skjöldu á haustdögum.
styrkur og þar sem við reynum iðu-
lega að sækja hratt finn ég alltaf
rými til að athafna mig. Ég lít þó
engan veginn á mig sem fullnuma
leikmann - það er margt sem ég
þarf að bæta, svo sem að taka við
knettinum þegar ég sný baki í
markið. Þá þarf ég að styrkja mig.
Ég ólst upp sem útherji og dreg
mig því stundum, meðvitað eða
ómeðvitað, út í kantana sem gefur
leik mínum meiri dýpt. Samt kann
ég alltaf best við mig í fremstu víg-
línu.“
Enginn hefur fagnað mörkum
Jonatans innilegar en Alan
Curbishley, knattspyrnustjóri
Charlton. „Markaleysið varð okkur
að falli síðast þegar við vorum í úr-
valsdeildinni. Við þurfum mann
sem getur skorað á bilinu fimmtán
til átján mörk í vetur ef ekki á illa
aö fara og Jonatan verður sprækari
með hverjum leik. Við reyndum
fyrst að fá hann til liðs við okkur
fyrir tveimur árum en höfðum ekki
efni á honum. Kannski hefði hann
skipt sköpum þá? Það veitir okkur
aukið sjálfstraust að vita af manni
sem honum í framlínunni."
Curbishley kveðst hafa fylgst
grannt með Jonatan undanfarin tvö
ár og greiðlega hafi gengið að
ganga frá félagaskiptunum í sumar.
„Ég hef sjaldan þurft að hafa jafn
lítið fyrir hlutunum. Leikmaðurinn
vildi ólmur komast til okkar.“
„Charlton er vel skipulagt og
metnaðarfullt félag,“ segir Jona-
tan. „Umgjörðin er fín, leikvang-
urinn góður og æfingaaðstaðan til
eftirbreytni. Þegar ég vissi af
áhuga félagsins þurfti ég ekki að
hugsa mig um tvisvar."
Enginn grafarbragur á því.
Jonatan er ekki aðeins fljótur að
hugsa og framkvæma, hann ræður
einnig yfir tveimur góðum skotfót-
um og klárar færin sín af sjaldgæfu
öryggi. Þykir að því leyti minna á
frænda sinn, Norðmanninn Ole
Gunnar Solskjær hjá Manchester
United. Gott ef fermingarsvipurinn
er ekki fyrir hendi líka.
„Jonatan hefur verið að skora
með miklum tilþrifum,“ segir félagi
hans í framlínu Charlton, Andy
Hunt, sem sjálfur er enginn aukvisi
uppi við markið. „Hann er frábær
skytta, fljótur og flinkur og hefur
styrkt liðið verulega."
Jonatan er svokallaður Finn-
lands-Svíi, heyrir til sænskumæl-
andi minnihlutanum í Finnlandi.
Hann fæddist í Stokkhólmi 16.
ágúst 1975 og reyndi fyrir sér í
ýmsum deildum í Finnlandi áður
en eistneska félagið Flora keypti
hann. Þar vakti hann fyrst veru-
lega athygli og Walter Smith fékk
hann til Rangers árið 1997. Smith
var þó smeykur við að gefa honum
tækifæri og það var ekki fyrr en
Hollendingurinn Dick Advocaat
datt inn úr dyrunum á Ibrox 1998
að sá finnski fékk flugleyfi. Það var
Advocaat sem breytti piltinum úr
útherja í miðherja. Jonatan gerði
24 mörk í 75 leikjum fyrir Rangers.
Marga af þessum leikjum hóf hann
á varamannabekknum.
„Mér leið vel hjá Rangers. Fé-
lagið er frábært, eins áhangend-
urnir. Mig hefur aftur á móti frá
blautu barnsbeini dreymt um að
leika í Englandi og þar sem enska
deildin er mun sterkari en sú
skoska vonast ég til að bæta mig
sem leikmaður hjá Charlton," segir
pilturinn sem var forfallinn Man-
chester United-aðdáandi í æsku.
Og Jonatan tekur með sér minja-
grip, ef svo má að orði komast, frá
Skotlandi - unnustuna, Jean.
Finnar i erfiðum riðli
Jonatan hefur átt fast sæti í
finnska landsliðinu í þrjú ár. Var
meðal annars í liðinu sem hélt
jöfnu gegn Englendingum í undan-
keppni heimsmeistaramótsins í
Helsinki um daginn. „Við erum í
erfiðum riðli, með Þjóðverjum,
Englendingum og Grikkjum, þann-
ig að ekki verður hlaupið að því að
komast í lokakeppnina. Finnland
er fámenn þjóð og við höfum fyrir
vikið ekki úr sama efnivið að moða
og hinar stærri þjóðir. Á góðum
degi getum við þó staðið í hvaða liði
sem er. Það myndi samt ekki spilla
fyrir ef bestu leikmenn okkar
fengju að spreyta sig meira hjá sín-
um liðum," segir Jonatan og á þar
ugglaust fyrst og síðast við Jari
Litmanen, kunnasta knattspyrnu-
mann Finna, sem svamlar um þess-
ar mundir í saltinu hjá Barcelona á
Spáni.
Góður maður sagði að frægð
Finnlands í framandi löndum
byggðist einkum og sér í lagi á
fimm þáttum: þjóðlegu söguljóðun-
um Kalevala, allrameinabótinni
Sauna, tónskáldinu Jean Sibelius,
tækniundrinu Nokia og kappakst-
urshetjunni Mika Hákkinen. Óvíst
er að nafnið Jonatan Johansson
eigi eftir að bætast á þennan lista -
en ætli aðdáendum Charlton Athl-
etic standi ekki á sama? Bara að
hann skori fyrir þá mörkin.