Morgunblaðið - 24.10.2000, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sex rjúpnaskytt-
ur sátu fastar
Formaður samninganefndar ríkisins um
verkfallsboðun framhaldsskólakennara
Báðir málsaðilar þurfa
að leggja meira á sig
GUNNAR Bjömsson, formaður
samninganefndar ríkisins, segir
verkfallsboðun framhaldsskóla-
kennara, sem samþykkt var með
82% greiddra atkvæða um helgina,
ekki hafa komið sér á óvart. Ef á
annað borð væri boðað til atkvæða-
greiðslu um verkfall hlyti að vera
talað fyrir slíku innan raða kennara.
Til þessa hafi verið góð þátttaka í
slíkum atkvæðagreiðslum og verk-
fallsboðun yfirleitt samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða.
Niðurstaðan nú sýndi mikla sam-
stöðu á meðal kennara.
Hafi samningar við ríkið ekki tekist
kemur verkfall framhaldsskólakenn-
ara til framkvæmda hinn 7. nóvember
næstkomandi, eftir nákvæmlega tvær
vikur. Aðspurður hvaða áhrif vérk-
fallsboðunin hefur á samningaviðræð-
umar telur Gunnar að menn þurfi að
leggja meira á sig og sitja betur við.
Það hvíldi á báðum málsaðilum. Eins
og fram hefur komið hefur samning-
anefnd ríkisins hafnað launakröfum
framhaldsskólakennara. Að sögn
Gunnars er mótkrafa ríkisins sú að
hækka dagvinnulaun kennara, sem
hluta af heildarlaunum.
„Við erum tilbúnir að ræða önnur
og ný atriði sem varða starfsemi
skóla eins og nýja aðalnámskrá,
breytta kennsluhætti og fleira í
þeim dúr og hvaða áhrif það ætti að
hafa á kjarasamninginn,“ segir
Gunnar.
Samninganefnd ríkisins átti fund
í gær með stjórnendum framhalds-
skóla en samningafundir um launa-
mál framhaldsskólakennara hafa
ekki verið síðan á föstudag. Slíkir
fundir eru fyrirhugaðir þrjá næstu
daga hjá embætti ríkissáttasemj-
ara.
BJÖRGUNARSVEITIR frá Suður-
og Vesturlandi leituðu sex rjúpna-
skyttna á laugardagskvöld og
aðfaranótt sunnudags. Rjúpnaskytt-
urnar höfðu fest jeppabifreiðir sínar
utanvegar við Hagavatn. Annar
jeppinn hafði komið hinum til hjálp-
ar og vildi þá ekki betur til en svo að
sá festist líka. Þar sem bílarnir fest-
ust er ekki farsímasamband. Menn-
irnir gátu því ekki látið vita af sér.
Rjúpnaskyttur frá
Reykjavík og Akranesi
Tveir menn frá Reykjavík höfðu
haldið til rjúpna á laugardaginn. Þeir
höfðu gert ráð fyrir því að koma til
baka um kl. 19. Faðir annars mann-
anna hafði samband við lögregluna á
Selfossi um kl. 22 en þá hafði ekkert
heyrst frá þeim. Björgunarsveitir
voru þegar látnar vita og hafinn var
undirbúningur að leit. Skömmu eftir
miðnætti hafði lögreglan á Akranesi
samband við lögregluna á Selfossi og
tilkynnti þeim um að fjórar rjúpna-
skyttur frá Akranesi hefðu ekki skil-
að sér til byggða á réttum tíma.
Mennirnir fundust um kl. 4.30 á
sunnudagsmorgun.
Rjúpnaskyttumar úr Reykjavík
höfðu fest jeppabifreið sína skömmu
eftir hádegi á laugardag. Annar
mannanna gekk upp á b'nuveg til að
leita aðstoðar. Akurnesingarnir sem
voru þar á ferð komu til aðstoðar.
Þegar þeir reyndu að draga jeppa
Reykvíkinganna tókst ekki betur til
en svo að báðir jepparnir festust,
sem fyrr segir.
Samtökin Heimili og skóli
Brottfall eykst
eftir verkföll
JÓNÍNA Bjartmarz, alþingismað-
ur og formaður Heimilis og skóla,
kveðst hafa miklar áhyggjur af
þeirri stöðu sem komin er upp í
kjaradeilu kennara og ríkisins.
„Ég hef svo sannarlega áhyggjur
af yfirvofandi verkfalli og áhrifum
þess á nemendur framhaldsskól-
anna. Það hefur sýnt sig á undan-
förnum árum að brottfall nemenda
eykst mjög af völdum verkfalla,"
segir hún.
„Ég hef aðeins minni áhyggjur
af áhrifum verkfalls á heimilin í
Jandinu, einfaldlega vegna þess að
hér er um unglinga að ræða, en
ekki börn í grunnskólum," bætti
hún við.
Jónína segir að Heimili og skóli
hafí áður lýst þeirri skoðun sinni að
bæta verði kjör kennara, svo auð-
veldara sé að manna kennarastöð-
ur og hæfir kennarar þurfi ekki að
leita í aðra vinnu, kjaranna vegna.
Hún vildi hins vegar ekki ræða
sérstaklega kröfur kennara nú.
„Samtökin eru ekki aðilar að þess-
ari kjaradeilu. Við getum aðeins
vonast eftir því að málin skýrist
sem fyrst,“ sagði Jónína.
Framhaldsskólanem-
ar styðja kennara
FRAMHALDSSKÓLANEMAR
hafa stofnað verkfallsnefnd til stuðn-
ings kjarabaráttu kennara og reyna
að koma í veg fyrir verkfall, að sögn
Hörpu Ósk Valgeirsdóttur, nemanda
við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Hún segir að mikill hugur sé í fram-
haldsskólanemum og þeir hafi þegar
skipulagt aðgerðir sem þeir ætli að
grípa til ef til verkfalls kemur til að
sýna stuðning við kennarana.
Fimm manns sitja í verkfalls-
nefndinni sem er á vegum Félags
framhaldsskólanema. Auk þess er
búið að mynda fimm manna hópa í
öllum framhaldsskólum landsins en
þeir sjá um að koma upþlýsingum til
nemenda. Einnig liggja undirskrift-
arlistar frammi í öllum framhalds-
skólum þar sem nemendum gefst
kostur á að lýsa yfir stuðningi við
kennarana og segir Harpa að undir-
skriftasöfnunin gangi mjög vel.
„Ef til verkfalls kemur verða þús-
undir nema atvinnulausir ef svo má
segja,“ segir Harpa og bendir á að
með aðgerðum framhaldsskólanema
nú séu þeir einnig að vekja athygli á
sinni hlið mála.
Verkfallsnefndin fylgist vel með
stöðu mála hjá Félagi framhalds-
skólakennara og einnig hefur hún
rætt við menntamálaráðherra, að
sögn Hörpu.
lBðp%
liUMiiliHiiftfý nqn.
Besti
ferðafélaginn
til London?
Allt sem forvitnir
ferðalangar
þurfa að vita
um London
- og meira til.
Mál og mennlnf
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Opinn fundur Sjálfstæðisflokksins
Heilbrigðisyfírvöld
ættu að líta til Hol-
lands eftir fyrirmynd
UMRÆÐAN um einkarekstur í
heilbrigðisþjónustu á Islandi er
komin miklu skemmra á veg en á
hinum Norðurlöndunum, en íslensk
heilbrigðisyfirvöld ættu samt fyrst
og fremst að líta til Hollands ef þau
ætla að svipast um eftir heilbrigðis-
kerfi þar sem farsællega hefur tek-
ist að blanda saman einkarekstri
og ríkisrekstri. Þetta kom fram í
samtali Morgunblaðsins við Guðjón
Magnússon, lækni og rektor Nor-
ræna Heilbrigðisháskólans í Gauta-
borg, en hann flutti erindi á opnum
fundi heilbrigðisnefndar Sjálfstæð-
isflokksins í gær, þar sem fjallað
var um hugmyndir um einkarekst-
ur í heilbrigðisþjónustunni.
„Ég held að það þurfi að koma af
stað umræðu á meðal almennings
til þess að fólk fái ekki ranga mynd
af því hvað fólgið er í einkavæðingu
á þessu sviði.
Ég held að menn hafi oft til-
hneigingu til að horfa alltof mikið
til amerískrar heilbrigðisþjónustu
og ýmissa þeirra vandamála sem
eru sértæk fyrir hana og gleymi því
að það er hægt að bæta verulega
okkar eigið heilbrigðiskerfi án þess
að nokkrum detti í hug að við inn-
leiðum amerískt heilbrigðiskerfi.
Við getum nýtt það besta úr
mörgum mismunandi módelum eða
kerfum. Ég myndi segja að hol-
lenska módelið sé eitthvað sem við
eigum að horfa sérstaklega á, þeir
hafa náð því að skapa þetta jafn-
ræði á meðal þegnanna þannig að
allir fá þessa lágmarksþjónustu, en
geta samtímis veitt einkavæðingu í
mjög auknum mæli og haldið niðri
kostnaði allvel hvað snertir heild-
arútgjöld og bjóða mikið valfrelsi
fyrir einstaklingana."
Þeir sem vilja ættu að geta
keypt sér aukna þjónustu
Á fundinum færði Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, prófessor við
Háskóla íslands, rök fyrir því að
einkavæða eigi hluta af heilbrigðis-
þjónustunni. Hann sagði að það
ætti fyrst og fremst að auka svigr-
úm þess kerfis sem nú væri við lýði
með því að bjóða þeim, sem væru
aflögu færir, upp á að kaupa sér
þjónustu og sleppa þannig við bið-
íista sem væru í núverandi kerfi.
Hann lagði hins vegar áherslu á
það að áfram yrði boðið upp á þá
þjónustu sem þegar væri í boði,
enda væri þjóðarsátt um það.
Sigurbjörn Sveinsson, læknir í
Heilsugæslustöðinni í Mjódd, sagð-
ist vilja fara afar varlega í allar
nýjar hugmyndir um að fólk geti
keypt sér tryggingu til að auka rétt
sinn í kerfinu.
Málfundur í
miðborginni
AUSTURVÖLLUR er fallegur á
sumrin en á haustin er hann jafnvel
enn fallegri. Á haustin breytir nátt-
úran um svip og það gerir fólkið
líka. Eldri kynslóðin kann svo sann-
arlega að meta haustið og þó að
fremur svalt sé í veðri þýðir það ekki
að það sé ekki lengur hægt að sitja á
bekknum í námunda við Jón Sig-
urðsson og spjalla svolítið. Það eina
sem þarf að gera er að klæða sig ögn
betur - renna upp í háls, setja upp
vettlinga og þá er allt klárt.
------------
Rjúpnaskytt-
ur sóttar í
Hlöðufell
TVÆR rjúpnaskyttur voru sóttar á
sunnudagskvöld af björgunarsveit-
armönnum en þær höfðu leitað
skjóls í skála við Hlöðufell.
Sprungið hafði á bíl tvímenning-
anna við Hagafell síðdegis á sunnu-
daginn. Hvorki var tjakkur né felgu-
lykill í bílnum, sem mennirnir höfðu
fengið að láni, og því gátu þeir ekki
skipt um dekk. Þeir brugðu því á það
ráð að ganga áleiðis í skála við
Hlöðufell. Þeir voru komnir að skál-
anum um kl. 20. Skammt frá skálan-
um er blettur þar sem er GSM-síma-
samband. Mennirnir létu lögreglu
vita af sér og því þurfti ekki að kalla
út björgunarsveitir til leitar. Tveir
menn úr björgunarsveitinni Ingunni
á Laugarvatni fóru þeim til aðstoðar
og fluttu þá til byggða.