Morgunblaðið - 24.10.2000, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aukin sykurneysla vax-
andi heilsufarsvandamál
Morgunblaðið/Kristinn
Rannsóknir sýna að sykurneysla íslendinga er meiri en góðu hófi gegnir.
Sykur, hættulaus orku-
gjafi eða skaðvaldur?
var yfírskrift málþings
sem Náttúrulækninga-
félag íslands efndi til í
síðustu viku. Kristín
Heiða Kristinsdóttir
sótti þingið og hlýddi á
erindi og pallborðsum-
ræður, þar sem sitt
sýndist hverjum um
dísætt umræðuefnið.
JÓNAS Kristjánsson ritstjóri var
fyrstur í pontu á þingi Náttúrulækn-
ingafélags íslands, sem haldið var í
liðinni viku um sykur og afleiðingar
of mikillar sykurneyslu, og ræddi
stuttlega um sykur í sögulegu sam-
hengi. Hann vék að lækninum afa
sínum og nafna sem stofnaði Nátt-
úrulækningfélagið fyrir 77 árum.
Hann var fyrstur manna til að gera
rannsóknir á heilsu manna tengdar
sykumotkun. Hann komst m.a. að
því að til væri svokölluð sykurfíkn
sem lýsti sér ekki ósvipað og áfengis-
og tóbakslöngun. í framhaldi af því
vitnaði Jónas í nýlega grein í Time
Magazine þar sem talað var um að
hjá sumu fólki hefði sykur ruglandi
áhrif á dópamín sem er boðefni í heil-
anum. Þessu til staðfestingar nefndi
hann bamaafmæli nútímans, þar
sem böm fara gjaman á „sykuríyl-
lerí“ og flestir könnuðust við þær
geðbreytingar sem geta orðið hjá
bömum við mikið sætindaát.
Sykurát barna tvöfaldast
um helgar
Anna Sigríður Ólafsdóttir næring-
arfæðingur tók næst til máls og lagði
ríka áherslu á að í erindi sínu væri
hún að tala um viðbættan sykur, svo-
nefndan hvítan sykur. Hún nefndi
þar sláandi tölur úr rannsókn frá
1990 sem sýndu m.a. að tveggja ára
gömul íslensk böm borða 32 g af við-
bættum sykri á degi hverjum. Til að
bæta gráu ofan á svart væri stað-
reyndin sú að þessar tölur tvöfölduð-
ust um helgar. Ekki sagði hún hægt
að sýna fram á að um væri að kenna
sætum mjólkurvörum eins og margir
halda, því þau böm sem væm með
hæstu sykurtölurnar í rannsókninni,
borðuðu minnst af mjólkurvörum.
Anna Sigríður sagði að sykraðir
drykkir væm aðalástæðan fyrir
þessum háu tölum, gosneysla bama
og unglinga væri alltof mikil. Auk
þess fengju þau börn sem borðuðu
mikinn sykur minna af nauðsynleg-
um næringarefnum. Hún sagði um-
deilt hvort sykur væri fitandi en
benti þó á þá staðreynd að hin skjót-
fengna orka sem fæst með sykuráti
entist því miður ekki lengi og þess
vegna yrðum við fljótt svöng aftur og
borðuðum þá meira og það getur
auðvitað leitt til þess að við fitnum.
Hún sagði að af rannsóknum væri
ljóst að sykumeysla íslendinga væri
meiri en æskilegt getur talist og við
því þyrfti að bregðast. Sykur væri
munaður sem hægt væri að leyfa sér
í hæfilegu magni. Við þyrftum aðeins
að læra að stjóma þessu því ef fæðan
er að öðra leyti næringarrík, þá væri
auðvitað allt í lagi að fá sér sykur
öðru hverju.
Hvorki trefjar né
vítamín í sykri
Jón Bragi Bjamason lífefnafræð-
ingur vitnaði í bókina Sugar Busters,
sem er eftir þrjá bandaríska lækna,
en þeir halda því fram að sykur sé
bæði eitur og fíkniefni. Eins benda
þeir á að maðurinn þurfi ekki sykur
til að lifa, því sykur er hreint efna-
samband og í því era hvorki trefjar
né vítamín. Við eram ekki bensínvél
sem þarf að setja bensín á til að hún
gangi. Við eram náttúravél sem þarf
náttúraleg efni og sykur er ekki nátt-
úrulegt efni. Stóraukin sykumeysla
á þessari öld helst í hendur við
skuggalega aukningu ýmissa sjúk-
dóma, svo sem sykursýki, offitu og
kransæðasjúkdóma. Jón Bragi sagði
að auðvelt væri að breyta neyslu-
venjum með það að markmiði að
draga úr fæðu með háan sykurstuðul
og talaði hann þar út frá eigin
reynslu. Hægt væri að láta eitt koma
í stað annars, t.d. drekka þurrt rauð-
vín frekar en bjór og sleppa kartöfl-
um en borða hýðishrísgijón í þeirra
stað og að sjálfsögðu sleppa kökum
og sælgæti. Með öðram orðum,
sleppa öllu sem er hreinn mjölvi:
hvítt hveiti, hvít hrísgijón, pasta o.fl.
En hann lagði áherslu á að engir
tveir einstaklingar væra eins, hver
og einn þyrfti að hlusta á sinn líkama
og velja þau matvæli sem henta.
Enginn ætti að skorast undan því að
taka ábyrgð á eigin heilsu.
Sykur gegn lyfseðli?
Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkran-
arfræðingur sló á létta strengi og
velti fyrir sér hvort sykur yrði leyfð-
ur nema gegn lyfseðli, ef hann kæmi
á markað í dag sem nýtt efni. En svo
fór hún út í alvarlegri sálma og vakti
athygli á því að stöðugur áróður
gegn fitu ætti stóran þátt í því hversu
matarvenjur hafa breyst mikið á
undanförnum 50 áram og ekki endi-
lega til góðs. Fólk væri því miður að
taka inn allt of mikið af kolvetnum í
stað fitunnar, t.d. með miklu pasta-
áti. Þorbjörg sagði það útbreiddan
misskilning að pasta væri hollustu-
fæði. í því sambandi benti hún á að á
síðustu þrjátíu áram hefði pastan-
eysla aukist um 115% í Bandaríkjun-
um og á sama tíma stóreykst offitu-
vandamálið. Af þessu mætti sjá að
fituneysla er ekki eini orsakavaldur
offitu. Síðan vék hún að feitum böm-
um og unglingum og taldi brýnt að
foreldrar tækju markvisst á þeim
heilbrigðisvanda. Fræða þyrfti böm-
in um skaðleg áhrif óhóflegrar syk-
umeyslu. Áríðandi væri að leggja
áherslu á lífsstílsbreytingu þar sem
mataræði skipti miklu máli og ekki
síður hreyfing. Forðast skyldi megr-
un eða annarskonar töfralausnir.
Auk þess væri málið ekki einfalt,
margir aðrir þættir kæmu þarna inn
í, t.d. sú staðreynd að böm alkóhól-
ista væra oft haldin sykurfíkn.
Að lokum benti Þorbjörg á að dep-
urð er eitt af því sem blóðsykurs-
vandi getur haft í för með sér og hún
mælti eindregið með að fólk prófaði
að breyta mataræði sínu áður en það
gripi til gleðipillunnar.
Stormasamt samband
Guðjón Sigmundsson, betur
þekktur undir nafninu „Gaui litli“,
var síðastur á mælendaskrá og sagði
sykur vera mjög viðkvæmt og pers-
ónulegt mál fyrir sig sem hann ætti
ekki auðvelt með að ræða. Hann væri
að öllum líkindum haldinn sykurfíkn
og þar af leiðandi væri samband hans
við sykur líkt og stormasamt hjóna-
band.
Hann sagðist ekki ætla að vera
með neinar yfirlýsingar um hvort
hann væri með eða á móti sykri,
hvort ætti að banna hann eða leyfa
eða hvort hann væri valdur að sjúk-
dómum og fitu. Hann ætlaði aðeins
að gefa okkur innsýn í hvernig væri
að lifa í fyrrnefndu stormasömu
hjónabandi með sykri: „Stundum
finnst mér hann mjög góður þó ég
viti að hann eigi eftir að valda mér
vandræðum. Stundum verð ég yfir
mig glaður í návist hans en stundum
veldur hann mér mikilli depurð.
Stundum elska ég hann en stundum
þoli ég hann ekki fyrir það sem hann
hefur gert mér. Stundum held ég að
ég geti án hans verið þó ég viti betur.
Hann er af markaðsmönnum settur í
gimilegar umbúðir og er boðinn til
sölu eins og ljúffengur skyndibiti
sem minnir á skyndikynni. Stundum
misnotar hann mig og stundum mis-
nota ég hann. Stundum veldur hann
mér þungum höfuðverk, slæmum út-
brotum, doða í líkamanum, blæðandi
exemi, verkjum í liðamótum, þung-
lyndi, svefntraflunum, öram hjart-
slætti; en samt á hann hug minn all-
an. Ég rökræði við hann oft á dag,
stundum hef ég betur, stundum
hann. Eftir langa fjarvera frá honum
þá sakna ég hans óskaplega og þrái
nærveru hans og þegar færi gefst þá
„dett ég í það“ með honum sem end-
ar yfirleitt í slæmum móral. En þeg-
ar á heildina er litið þá er um sykur
eins og annað, þetta er gott í hófi.“
Hann sagðist tala fyrir hönd
þeirra fjölmörgu sem hann hefði
meðhöndlað og vera sammála að syk-
ur ætti eftir að leggjast þyngst á
bömin okkar og unglingana í kom-
andi framtíð. Þess vegna yrðum við
að halda uppi forvömum og jákvæð-
um boðskap, ekki með og ekki á móti;
svo ekki fari illa.
Auk frammælenda tóku Einar
Matthíasson markaðs- og þróunar-
stjóri Mjólkursamsölunnar, Gunnar
Valtýsson læknir, Laufey Tryggva-
dóttir frá Krabbameinsfélaginu, Sól-
veig Eiríksdóttir á „Grænum kosti“
og Svava Edgarsdóttir frá Hollustu-
vemd þátt í pallborðsumræðum.
Gunnar læknir tók fram að hann
væri ekki sammála einföldun Jóns
Braga á áhrifum sykurs á heilsu okk-
ar. Margt annað kæmi þar inn í, t.d.
kyrrseta og ofát. Einnig varaði
Gunnar við öllu ofstæki í þessu máli.
Kona í salnum tók undir það og sagð-
ist alls ekki geta verið sammála því
að sykur væri eiturlyf á sama bás og
heróín, eins og komið hefði fram í
einu erindinu.
Ofneysla sykurs
alvarlegl vandamál
Einar hjá Mjólkursamsölunni fékk
á sig þó nokkra orrahríð vegna þess
hversu íslenska jógúrtin er mikið
sykruð. Hann var m.a. spurður að því
hvort ekki mætti draga úr sykrinum
og setja sykurlausu mjólkurvörarn-
ar í meira aðlaðandi umbúðir fyrir
bömin. Hann benti á að 90% af þeim
mjólkurvöram sem era á markaðn-
um væra ósykraðar og að sumar
matvöraverslanir vildu ekki taka inn
t.d. hreina jógúrt, því hún seldist
ekki nógu hratt. Hann minnti líka á
dreitil, nýja og ósykraða vöru í bam-
vænum umbúðum og sama gilti um
eina af þremur tegundum keilu.
Þorbjörg kom nánar inn á slæmar
afleiðingar áróðurs gegn fitu og
sagði að íyrir vikið vanti oft nauðsyn-
lega fítu í fæðu bama og einnig full-
orðinna. Úr salnum kom fram sú til-
laga að lækka ofurtolla á grænmeti á
kostnað sykurs og reyna með þeim
hætti að snúa við neyslumynstrinu.
Jónas ritstjóri sagðist vera búinn að
leggja það til en ekki væri á það
hlustað. Þá benti Þorbjörg á að í
Danmörku hefði verið reynt að
leggja tolla á gosdrykki í sama til-
gangi, en hagsmunaaðilar og pólitísk
öfl hefðu komið í veg fyrir fram-
kvæmdina. Nokkrir sykurfíklar í
salnum lýstu reynslu sinni og að lok-
um vora nefndar tölulegar stað-
reyndir um sykur: Á íslandi era seld-
ir 142 lítrar á mann á ári af gosi og
við borðum 14 kg á mann af sælgæti
árlega. Þetta er tvöföldun á síðast-
liðnum 25 áram. „Sykursýki tvö“ er
orðin að faraldri í Bandaríkjunum og
þar hefur orðið 30% aukning á offitu
á síðastliðnum 20 áram. Allt bendir
til að sama þróun eigi sér stað í
Evrópu. Niðurstaða málþingsins var
á þá leið að ofneysla sykurs er svo al-
varlegt vandamál að það má ekki
þegja lengur yfir því.
Kirkjuþingi lýkur
á morgun
Hugmynd
um að skipta
þinginu
í lotur
STEFNT er að því að ijúka störfum
kirkjuþings á morgun. Jón Helga-
son, forseti þingsins, tjáði Morgun-
blaðinu í gær að margar nefndir
hefðu lokið störfum við umsagnir um
mál en aðrar ættu lengra í land. Mál
sem lögð eru fram á þingfundum
fara til nefnda og síðan til lokaaf-
greiðslu þingfundar.
Meðal mála sem tókst að ljúka í
gær vora starfsreglur um biskupa-
fundi, ályktun um ábyrgðarsjóð
kirkju og um pílagrímaprest. Var
samþykkt að kanna hvort hægt væri
að fá slíkt verkefni presti sem þegar
væri í sérverkefnum og yrði það
hlutastarf. Með pílagrímapresti er
átt við prest sem skipuleggja myndi
ferðir manna um helgar slóðir.
Þá var samþykkt að vísa til forseta
kirkjuþings og kirkjuráðs hugmynd-
um um að kirkjuþingi verði skipt
þannig að fundir þess verði ekki í
einni lotu eins og nú er heldur skipt.
Sagði Jón Helgason að meta yrði
þessa hugmynd frá öllum hliðum og
sagði hann verða settar fram tillögur
um hvemig slíkt breytt fyrirkomu-
lag gæti orðið.
------*-H------
Flugslysið í
Skerjafírði
Frumskýrsla
tilbúin í
næsta mánuði
ENN er nokkuð í að Rannsókna-
nefnd flugslysa ljúki rannsókn á
flugslysinu í Skerjafirði 7. ágúst síð-
astliðinn. Fórst þá vél af gerðinni
Cessna 210 Centaurion og með henni
fjórir af sex sem í henni voru.
Þorsteinn Þorsteinsson, verk-
fræðingur hjá Rannsóknanefnd
flugslysa, tjáði Morgunblaðinu í gær
að enn væri beðið gagna frá fram-
leiðanda vélarinnar í Bandaríkjun-
um. Niðurstaða væri fengin frá Kan-
ada en þangað var eldsneytis-
búnaður meðal annars sendur til
rannsóknar og sagði Þorsteinn ekki
hafa komið fram merki um bilanir
þar. Rannsókn væri haldið áfram og
orsaka leitað en hann sagði ekki víst
að þær fyndust. Hlutar vélarinnar
væra það illa skemmdir að erfitt
gæti reynst að grafast fyiTr um þær.
Búist er við að framskýrsla verði
tilbúin í næsta mánuði og hún þá
send málsaðilum. Sagði Þorsteinn
stefnt að því að ljúka málinu fyrir
árslok.
-----------------
Konum á
kirkjuþingi
fjölgar
KONUM fjölgaði um 100% á kirkju-
þingi í gær þegar Auður Garðar-
sdóttir, formaður sóknamefndar
Dómkirkjunnar í Reykjavík, vara-
maður Þórarins Sveinssonar læknis,
tók þar sæti í fjarvera hans. Þau eru
fulltrúar Reykjavíkurprófastsdæmis
vestra.
Fyrir á kirkjuþingi er sr. Dalla
Þórðardóttir, sem situr fyrir Húna-
vatns- og Skagafjarðarprófasts-
dæmi. Alls situr 21 fulltrúi á kirkju-
þingi og er ein kona í hópi
aðalmanna. Jafnréttisnefnd kirk.j-
unnar hvatti kirkjuþing til þess við
setningu þess í síðustu viku að unnið
yrði að því að fá fleiri konur til setu á
kirkjuþingi.