Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBE R 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
f
Vinnuverndarvikan 2000,23.-27. október
Heilsa ein-
staklingsins
ómetanleg
Vinnuverndarvikunni 2000 var formlega
ýtt úr vör á blaðamannafundi í gær.
Vinnueftirlit ríkisins sér um framkvæmd
verkefnisins hérlendis en Vinnuverndarvikan
er sameiginlegt átak Evrópuþjóðanna.
í VINNUVERNDARVIKUNNI í
ár er lögð áhersla á að auka vitund
fólks um gildi þess að gera vinnu-
staðinn heilsusamlegri og öruggari
og er átakinu beint gegn atvinnu-
tengdum álagseinkennum í stoðkerf-
inu, vöðvum og liðum. Talið er að 70-
80% fólks finni fyrir meiri eða minni
óþægindum í bald einhvem tímann á
lífsleiðinni og er vandann að finna
hjá starfsfólki í öllum greinum at-
vinnulífsins.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra setti fundinn og þar með
átaksvikuna. Ráðherra kynnti kjör-
orð vikunnar, „Bakverkinn burt“, og
sagði vinnu vikunnar miða að því að
upplýsa og fræða fólk um heilsu-
vernd á vinnustað. Til þess að ná því
markmiði verður reynt að ná til allra
vinnustaða landsins með einum eða
öðrum hætti. í dag og á fimmtudag
verða eftirlitsmenn frá Vinnueftirlit-
inu með fræðsluátak í völdum fyrir-
tækjum. í dag fara þeir í iðnfyrir-
tæki, vélsmiðjur og trésmiðjur en á
fimmtudag í þjónustufyrirtæki, svo
sem skrifstofur og verslanir. Mikið
starf er að sögn Páls framundan í að
greina heilsufarshættur á vinnustað
og hvetja til forvama gegn þeim.
Liður í því starfi er útgáfa bæklings
um heilsuvernd á vinnustað sem
Vinnueftirlitið, ASÍ, BSRB og Sam-
tök atvinnulífsins standa að útgáfu á.
Eyjólfur Sæmundsson forstjóri
Vinnueftirlitsins sagði algengi stoð-
kerfiseinkenna, t.d. bakverks, vera
„gríðarlega umfangsmikið vanda-
mál“, sem væri stór þáttur í vinnu-
tapi bæði til lengri og skemmri tíma.
1% landsframleiðslu glatast á
ári vegna vandamála í stoðkerfi
Evrópskar rannsóknir sýna að um
þriðjungur starfsmanna finni íyrir
bakverkjum í tengslum við vinnu en
um þriðjungur óþæginda frá stoð-
kerfi er talinn tengjast vinnu. Eyjólf-
ur sagði Finna framarlega á sviði
rannsókna á atvinnusjúkdómum.
Tölur Finnanna áætla að 1% lands-
framleiðslu þjóðarinnar glatist
vegna vandamála í stoðkerfi sem
tengjast vinnu. Ekkert bendir til
þess að vandamálið sé minna hér á
landi að sögn Eyjólfs og ef þessi tala
væri umreiknuð við íslenskar að-
stæður væri talan sjö miHjarðar ís-
lenskra króna á ári og snerti hag og
heilsu tuga þúsunda Islendinga. Því
væri brýn ástæða til að vekja fólk til
umhugsunar um nauðsyn vinnu-
verndar á vinnustað, vekja athygli á
útbreiðslu vandans og orsökum og
beina athygli starfsmanna og stjóm-
enda að lausnum við vandanum.
Rannsóknir sýna að með markvissu
forvamarstarfi og öryggisstjómun
innan fyrirtækja fækki veikinda-
fjarvistum starfsmanna og gæði
vinnunnar og framleiðni fyrirtækja
eykst að ógleymdum bættum lífs-
gæðum vinnandi fólks.
Morgunblaðið/Ásdís
Páll Pétursson félagsmálaráðherra setti Vinnuverndarvikuna 2000.
Kristinn Tómasson yfirlæknfr
sagði að um 30% af langtímafjar-
vistum frá vinnu væra vegna stoð-
kerfissjúkdóma. Kristinn vitnaði til
íslenskrar athugunar Ólafar Steing-
rímsdóttur frá 1988 sem birt var í
Læknablaðinu. Þar segir að óþæg-
indi frá hálsi, herðum og mjóbaki
hefðu verið til staðar á síðustu 7 dög-
um hjá 20-30% karla og yfir 40%
kvenna. Fjarverandi frá vinnu vegna
þessara óþæginda voru um 10-20%
kvenna og 5-15% karla. Tapaðar
vinnustundir á ári væra því sam-
kvæmt þessum tölum fjölmargar á
ári hverju. Kristinn sagði nauðsyn-
legt að gera rannsóknir á stoðkerfa-
vandamálum þar sem þekkja þyrfti
vandamál til að geta fyrirbyggt þau.
Grunnur að
betra starfi
Niðurstöður rannsókna vekja at-
hygli á hvaða óþægindi eða vanheilsa
herjar á starfsmenn, hvort heldur
sem er líkamleg, andleg eða félags-
leg. Niðurstöðumar era notaðar til
að gera tillögur að úrbótum og leggja
þannig grann að betra vinnuvernd-
arstarfi, þær tengja vinnuumhverfi
og óþægindi og finna starfsmenn
sem era í sérstakri áhættu. Kristinn
sagði einnig að þar sem baksjúkdóm-
ar og önnur stoðkerfavandamál
væra oft langvinn væri vert að skoða
getu einstaklinganna til að snúa aft-
ur til vinnu eftir langtímafjarvistir
en sú geta væri afar breytileg milli
landa og háð félagslegum bótum, at-
vinnuöryggi í veikindafjarvistum og
endurhæfingarmöguleikum.
„Kostnaður vegna stoðkerfasjúk-
dóma er gríðarlegur en heilsuna er
erfitt að meta til fjár þar sem hún er
sérhverjum einstaklingi ómetanleg."
Heilsuefling
á vinnustað
Vinnueftirlitið hvetur starfsmenn
og stjómendur fyrirtækja til að taka
þátt í átakinu til að ná í sameiningu
markmiðum þess en undirbúningur
átaksins hefur staðið yfir lengi að
sögn Inghildar Einarsdóttur verk-
efnisstjóra þess. Á morgun fer fram
málþingið Bakverkinn burt - HeOsu-
vemd á vinnustað, á Grand Hóteli
þar sem málefni vikunnar verða
rædd ofan í kjölinn. En Hedsuefling
á vinnustað er samtstillt átak vinnu-
veitenda, starfsmanna og þjóðfélags-
ins sem miðar að því að bæta heilsu
og líðan vinnandi fólks. Markmiðum
heilsueflingarinnar verður náð með
því að bæta vinnuskipulag og vinnu-
umhverfi, hvetja td virkrar þátttöku
og ýta undir þroska einstaklingsins
eins og segir á heimasíðu Vinnueftir-
litsins á slóðinni: h ttp://www. ver.is/.
„Góð heilsa er ein mikilvægasta
forsendan fyrir þróun jákvæðra afla
eins og áhuga, sköpunargáfu, sam-
vinnu, vOja tO að læra og leggja sig
fram. Heilsuefling á vinnustað er því
fjárfesting til framtíðar.“
Vinnuverndarátak í skólum, í sam-
starfi við Evrópuverkefnið Heilsuefl-
ing í skólum, sem stýrt er af Land-
læknisembættinu, verður á föstudag
þar sem tölvuver verða sérstaklega
skoðuð og börnum kennt og leiðbeint
um hvemig ber að sitja við tölvu.
Liður í samkomulagi Reykjavíkur, Háskólans og Islenskrar erfðagreiningar
Háskóli íslands fær 62
milljóna króna fjárframlag
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarsljóri afhendir Páli Skúlasyni rekt-
or fjárframlag til eflingar Háskóla íslands. Sitjandi eru Hjörleifur
Kvaran borgarlögmaður og Kári Stefánsson, forstjóri fslenskrar erfða-
greiningar.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri afhenti í gær Páli
Skúlasyni, rektor Háskóla íslands,
rúmlega 62 milljóna króna fjár-
framlag, en féð er helmingur þeirr-
ar greiðslu sem Reykjavíkurborg
fékk frá íslenskri erfðagreiningu
fyrir byggingrrétt á lóð á háskóla-
svæðinu.
Fjárframlag þetta er liður í sam-
komulagi milli Háskóla íslands,
Reykjavíkurborgar og íslenskrar
erfðagreiningar, sem gert var í
febrúar síðastliðnum, um uppbygg-
ingu öflugrar vísinda- og atvinnu-
starfsemi á sviði heilbrigðisvísinda
og líftæknirannsókna á háskóla-
svæðinu. Liður í þessu samkomu-
lagi var að gerð yrði breyting á
deiliskipulagi háskólasvæðisins á
þann veg að þar yrði leyft að reisa
byggingu undir starfsemi íslenskr-
ar erfðagreiningar. Var gert ráð
fyrir því að bygging íslenskrar
erfðagreiningar yrði 10.000 fer-
metrar að stærð og að fyrirtækið
greiddi rúmlega 104 milljónir króna
fyrir byggingarréttinn. Greiðslunni
skyldi skipta í tvo jafna hluta, þar
sem helmingi yrði varið til eflingar
Háskóla íslands.
Við afhendingu styrksins sagði
Ingibjörg Sólrún að borgaryfirvöld
teldu gott samstarf við Háskóla ís-
lands afar mikilvægt. Hún benti á
að samningur Reykjavíkurborgar
Háskóla Islands og íslenskrar
erfðagreiningar væri í samræmi við
þá stefnu Reykjavíkurborgar að
styrkja höfuðborgina sem háskóla-
borg, sem og miðstöð menntunar og
þekkingar.
Hún benti jafnframt á að Reykja-
víkurborg hefði í samræmi við
þessa stefnu leitað ýmissa leiða til
að styrkja tengsl borgarinnar og
Háskólans, meðal annars með ný-
legum samningum um Borgar-
fræðasetur og jafnréttisrannsóknir.
Páll Skúlason sagði að vilji borg-
aryfirvalda til að efla Háskóla Is-
lands og rannsóknar- og vísinda-
starf á Háskólasvæðinu, hefði mikla
þýðingu fyrir Háskólann. Hann
benti á að samningur Reykjavíkur-
borgar, Háskólans og Islenskrar
erfðagreiningar væri mikilvægt
skref í þá átt að tryggja samstarf
borgarinnar, Háskólans og fyrir-
tækja. Páll sagðist eiga von á því að
samstarf Reykjavíkurborgar og
Háskólans ætti eftir að eflast enn
frekar, en nauðsynlegt væri að Há-
skólinn og borgin horfðu saman til
framtíðar, sérstaklega hvað varðaði
uppbyggingu á háskólasvæðinu.
Vilja úttekt á ástandi
eigna á helstu
skjálftasvæðum
Markmið-
ið að efla
varnir og
viðbúnað
í ÞINGSÁLYKTUNARTILLÖGU
sem lögð hefur verið fram á Al-
þingi er lagt til að Alþingi álykti
að fela ríkisstjórninni að láta fara
fram rannsókn og úttekt á ástandi
eigna á öllum helstu jarðskjálfta-
svæðum á íslandi. Tilefni tillög-
unnar eru jarðskjálftarnir öflugu %
sem urðu á Suðurlandi í sumar.
Margrét Frímannsdóttir, Sam-
fylkingu, er fyrsti flutningsmaður
tillögunnar en meðflutningsmenn
eru alls sex og koma úr Samfylk-
ingu, Framsóknarflokki og Sjálf-
stæðisflokki. Tillagan gerir ráð
fyrir að umrædd rannsókn fari
fram á næstu tíu árum og mark-
mið hennar verði að efla varnir og .:
viðbúnað gegn jarðskjálftum þar |
sem megináhersla verði lögð á að »
fyrirbyggja manntjón og draga úr fj
slysum, sem og að lágmarka
skemmdir á byggingum, tækni-
kerfum og innanstokksmunum.
Yflrumsjön
á Selfossi
Lagt er til að Rannsóknarmið-
stöð Háskóla íslands í jarð-
skjálftaverkfræði á Selfossi hafi
yfiramsjón með verkinu. Skulu
niðurstöður birtar strax að lokinni
úttekt á fyrsta svæði sem rannsak-
að verður og síðan ákveðið hvernig
staðið verði að því að bæta og
kaupa þær eignir sem teljast var-
hugaverðar með tilliti til mögulegs
tjóns af völdum jarðskjálfta.
Kostnaður við verkið skuli greið-
ast úr ríkissjóði.
„Mikilvægt er að á næstu árum
verði unnið rétt og skipulega að
undirbúningi jarðskjálftavarna,“
segir í greinargerð. „Liður í því er
að nýta þá vitneskju sem fékkst í
sumar um eðli og afleiðingar jarð-
skjálfta. Þar verður að forðast all-
ar öfgar og má hvorki stinga höfð-
inu í sandinn og vona að nú sé
þetta búið í bili og ekkert þurfi að
gera né að ganga of langt í var-
kárni og öryggiskröfum.
Jarðskjálftar á íslandi eru stað-
reynd sem nauðsynlegt er að búa
sig undir af skynsemi og af vark-
árni.“
Þing BSRB
hefst á mið-
vikudag
ÞING BSRB, hið 39. í röð-
inni, verður haldið dagana
25.-28. október nk. í Borgar-
túni 6, 4. hæð.
Þingið verður sett við há-
tíðlega athöfn miðvikudaginn
25. október kl. 13 í Bíóborg-
inni, Snorrabraut 37, og er
þingsetningin öllum opin. Að
þingsetningu lokinni kl. 15 er
boðið upp á veitingar í húsi
BSRB, Grettisigötu 89.
Framhald þingstarfa hefst
síðan kl. 17 í Borgartúni 6.
Gestafyrirlesarar á þinginu
verða Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri,
og Kristinn Tómasson, yfir-
læknir Vinnueftirlits ríkisins.
Fyrirlestur Þorsteins hefst
kl. 13.15 fimmtudaginn 26.
október og nefnist: Á lands-
byggðin sér von? Fyrirlestur
Kristins hefst kl. 13, föstu-
daginn 27. október og fjallar
hann um heilsuvernd starfs-
manna.