Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Bíll frá Klæðningu hf. hlaðinn með olíu til undirlags slitlags á Út-
nesvegi. Stapafell í baksýn.
Vegagerð
undir Jökli
Hellissandi - Umtalsverðar vega-
framkvæmdir hafa verið í gangi undir
Jökli í sumar. Vinnuvélafyrirtækið
Stafnafell ehf. er nú þessa dagana að
Ijúka við og skila af sér verkinu.
Reyndar er eftir að ganga frá veg-
köntum og síðari umferð klæðningar
verður lögð að vori.
Á Útnesvegi var endurbyggt og
lögð klæðning, kafli frá Amarstapa
yfír Hellnahraun og vestur fyrir
Laugarvatn, rúmlega 3 km. Þar í
beinu framhaldi var svo vegurinn
styrktur og hækkaður á 1,7 km kafla
og nær sú vegagerð vestur að Dag-
verðará. Á Útnesvegi, austan Stapa-
fells, þar sem erfiðleikar hafa verið
vegna snjóa var vegurinn hækkaður
upp við enda klæðningarkaflans sem
þar er. Lögð var klæðning á bílastæð-
ið ofan við höfnina á Amarstapa.
Þá hefur vegurinn að byggðinni á
Hellnum frá Útnesvegi niður á Gróu-
hól allur verið endurbyggður og lagð-
ur klæðningu og gert gott bílastæði á
Gróuhól. A Laugarholtinu þar sem
ganga er styst að náttúmvættinu
Bárðalaug var gert bílastæði. Vegur-
inn heim að Hellnakirkju að Brekku-
bæ og Skjaldatröð hefur einnig verið
byggður upp og sett á hann klæðning
svo og lögð klæðning á bílastæðið við
Hellnakirkju. Lögð var klæðning á
veginn að minnismerki Guðríðar
Þorbjamardóttur á Laugarbrekku
og á sama hátt gengið frá bílastæðinu
þar. Vegagerð þessi gerir Hellna-
byggðina enn ánægjulegri heim að
sækja en áður. Þegar gengið hefur
verið frá köntum og umhverfi vegar-
ins verður aðkoman að þessari fallegu
byggð komin í það horf sem sæmir
því tignarlega umhverfi sem þar er.
Samgöngubótin með nýjum og betri
veg kemur svo sem uppbót öllum til
ánægju á náttúravænt umhverfi.
Nemendur grunnskólans kynntu sögu nokkurra húsa á Flateyri með miklum tilþrifum í félagsheimili staðarins.
f \ , i 'ýV.V'í' nm ■b Wf m:i%
f'W 1 i ■ '-W • Rp^ J
Morgunblaðið/Högni Sigurþórsson
Saga bæjarins á Flateyri var kynnt í máli og myndum á sýningunni og
gerðu börnin meðal annars líkan að nokkrum húsum.
Þemadagar í
Grunnskóla
• •
Onundar-
fjarðar
Flateyri - Nýlega stóð yfir þema-
vika í Grunnskóla Önundarfjarðar
þar sem nokkur af elstu húsum
Flateyrar voru gerð að sérstöku
rannsóknarefni. Skiptust nemend-
ur skólans í þrjá hópa og tók hver
hópur fyrir eitt hús, skoðaði það í
krók og kring og kynnti sér sögu
þess.
Afraksturinn var síðan sýndur
foreldrum og öðrum áhugasömum
Flateyringum í félagsheimili stað-
arins á lokadegi þemavikunnar.
Hafði fróðleikurinn þá tekið á sig
hinar margvíslegustu myndir svo
sem sjá mátti í leikriti, myndasýn-
ingu, hljóðleik og líkanagerð nem-
endanna. Allt gert af mikilli innlif-
un svo hin hundrað ára saga
húsanna varð ljóslifandi fyrir aug-
um áhorfendanna.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ferðamalafulltrúar á
Islandi stofna félag
Vestmannaeyjum - Ferðamálafull-
trúar á íslandi og forstöðumenn upp-
lýsingastöðva hafa stofnað með sér
félag sem vettvang fyrir samstarf,
faglega umræðu og fræðslu. Ferða-
málafulltrúar hafa hist reglulega und-
anfarin ár til að ráða ráðum sínum,
auk þess sem forsvarsmönnum stofn-
ana og samtaka í ferðaþjónustu hafa
tekið þátt í samstarfi innan ferða-
þjónustunnar hérlendis og erlendis.
Á stofnfundi var samþykkt að
sækja um aðild að félagi ferðamála-
fulltrúa í Evrópu (EUTO-European
Torist Officer). Með formlegri stofii-
un félags verður með skilvirkari
hætti unnið að því að ná fram þeim
markmiðum sem samráð ferðamála-
fulltrúa hefur stefnt að. Á stofnfundi
vora samþykkt lög þar sem kveðið er
á um hlutverk félagsins og markmið
þess era:
Að vinna að eflingu starfshæfni fé-
lagsmanna með því að vera þátttak-
andi í þróunarstarfi í ferðaþjónustu
sem í gangi er í landinu hverju sinni
sem og á alþjóðlegum vettvangi; að
vera ráðgefandi til félagsmanna um
starfsmenntun, endurmenntun og
ýmis þróunarmál er auðgað gætu
starfsleikni ferðamálafulltrúa; að
vinna að eflingu samstarfs ferðamála-
fulltrúa við stofnanir og samtök innan
ferðaþjónustunnar; að halda saman
upplýsingum um ferðamálafulltrúa
sem starfa á íslandi, starfsvettvangi
þeirra og starfsskipan; að vera upp-
lýsingabanki fyrir starfandi férða-
málafulltrúa gagnvart verklýsingum,
vinnuskipulagi og öðru því er snertir
starfsskipunarmál og að vinna í nánu
samstarfi við ferðamálafulltrúa ann-
ars staðar í heiminum til að styrkja
tengsl, þekkingu og hæfni félags-
manna.
Félag ferðamálafulltrúa á íslandi
(FFÍ) var stofnað formlega 12. októ-
ber í framhaldi af reglulegum sam-
ráðsfundi ferðamálafulltrúa sem að
þessu sinni var haldinn í Vestmanna-
eyjum. Á stofnfundi vora kosin í
stjóm þau Aurora G. Friðriksdóttir,
ferðamálafulltrúi í Vestmannaeyjum,
Ásborg Amþórsdóttir, ferðamálafull-
trúi uppsveita Ámessýslu, og Jón
Halldór Jónsson, ferðamálafulltrúi
Hafnarfjarðar.
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Bændurnir á Ölkeldu II í Staðarsveit, Jón Svavar Þórðarson og Kristján
Þórðarson, við hluta sekkjanna sem geyma uppskeru sumarsins.
Góður árangur af
byggrækt í Snæfellsbæ
Hellnum - Þriðja árið í röð hafa
nokkrir bændur í sunnanverðum
Snæfellsbæ stundað byggrækt. Þeir
Kristján og Svavar Þórðarsynir,
sem búa félagsbúi á Ölkeldu II í
Staðarsveit, hafa stundað byggrækt
í tvö ár og sáðu í ár tveimur mis-
munandi byggtegundum í 4 hektara
Iands og var uppskeran hátt f 20
tonn eða um 5 tonn á hektara.
Þeir hafa gert tilraun með tvö af-
brigði af byggi við ræktun sína og er
annað 6 raða (gefur til kynna hversu
mörg kom eru á hveiju axi) erlent
afbrigði og hitt 2 raða íslenskt af-
brigði sem hefur verið framræktað
og kynbætt í Sviþjóð og sýnir góðan
afrakstur. Framræktaða íslenska af-
brigðið er fljótþroskaðra, virðist
þola betur veðrið og stendur m.a.
betur af sér norðanáttina á haustin,
en hún á það til að bijóta kornið nið-
ur.
Þau Guðjón Jóhannesson og Guð-
ný Jakobsdóttir í Syðri-Knarrar-
tungu í Breiðuvik hafa ræktað bygg
f þijú ár. Ræktun gekk vel fyrsta ár-
ið og náðist öll uppskeran í hús. í
fyrra misstu þau hins vegar um
helming af uppskerunni í rok, en
komöxin brotnuðu og féllu á jörð-
ina. í sumar gekk ræktunin vel og
náðist mestur hluti inn. Guðjón og
Guðný hafa verið með 6 raða af-
brigði, en hyggjast prófa íslenska af-
brigðið næsta ár vegna þess hversu
vel það þolir veður. í sumar sáðu
þau í 4 og % hektara lands og náðu
inn um 15 tonnum. Uppskeran er ná-
Iægt því að vera sambærileg því sem
gerist á hinum Norðurlöndunum, en
þar fæst þroskaðra bygg þar sem
sumrin eru lengpi. Hér á landi næst
oftast ekki sama þroskastig og er-
lendis og er byggið því blautara þeg-
ar það er skorið. Byggið rækta þess-
ir bændur aðallega sem fóðurbæti
fyrir kýr en þeir reka stór ipjólkur-
bú og hefúr þessi fslensk ræktaði
fóðurbætir skilað þeim árangri að
efnahlutföll í mjólkinni eru betri.
Greitt er eftir fitu- og prótíhhlutfalli
og prótúúð er verðmeira en það
eykst við þennan fóðurbæti.