Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 23
MORGUNBLAi :
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 23
____* ____
VIÐSKIPÍÍ
Tilboð OM í fullu gildi
Ósló. Morgunblaöið.
TILBOÐ sænska fyrirtækisins OM
Gruppen, sem rekur Kauphöllina í
Stokkhólmi, í Kauphöllina í Lond-
on (LSE) er enn I fullu gildi, þrátt
fyrir niðurstöðu aukahluthafafund-
ar LSE í síðustu viku. Þar var felld
tillaga um að fella brott ákvæði í
samþykktum LSE um að enginn
einn hluthafi megi eiga meira en
4,9% hlutafjár í fyrirtækinu. 53,3%
fundarmanna greiddi atkvæði gegn
breytingum á samþykktum en
46,7% jgreiddu breytingunni at-
kvæði. I tilkynningu frá LSE segir
Don Cruickshank, stjórnarformað-
ur, að OM þarfnist því samþykkis
handhafa yfir 75% hlutafjár í LSE
til að yfirtakan heppnist, en það er
hlutfallið sem þarf til að breyta
samþykktum fyrirtækisins. Nið-
urstaða atkvæðagreiðslunnar á
hluthafafundinum staðfesti þá
skoðun stjórnar LSE að kauphöllin
sé _ekki til sölu.
í tilkynningu frá OM er bent á
að til að breyta samþykktum LSE
þurfi samþykki 75% fundarmanna
en ekki 75% hluthafa, eins og
Cruickshank staðhæfir í tilkynn-
ingu LSE. Stjórn LSE er sökuð
um að hringsnúast í afstöðu sinni
til kauphallarrekstrar þar sem hún
geti ekki gert upp við sig hvort
samstarf eða samruni við aðrar
kauphallir sé ákjósanlegra en
óbreytt ástand. í tilkynningunni er
áréttað að nýjasta tilboð OM sé í
fullu gildi og hluthafar LSE hvattir
til að taka afstöðu til þeirra
tveggja möguleika sem boðið er
upp á sem greiðslu fyrir hlutabréf í
LSE: 1,4 hluti í OM fyrir hvern
hlut í LSE sem metinn er á rúm 35
pund, eða 20 punda greiðslu auk
0,5 hluta í OM fyrir hvern hlut í
LSE. Hluthafarnir eru hvattir til
að nýta þetta tækifæri til að breyta
LSE í kauphöll í fremstu röð hvað
varðar tækni og stefnumótun. Þeir
hafa frest til næstkomandi föstu-
dags.
Farsímahluti af
Ericsson hugs-
anlega til sölu
Ósló. Morgunblaðið.
• HUGSANLEGTeraö reynt verði að
selja hluta sænska fjarskiptafyrir-
tækisins Ericsson, sökum útlits fyrir
lélega afkomu fyrir árið í heild, að því
erfram kemur m.a. í Dagens Nær-
ingsliv. Um er að ræða far-
símaframleiöslu fyrirtækisins. Búist
er við að sú deild fyrirtækisins verði
rekin meötapi upp á sem samsvarar
tæpum 140 milljörðum íslenskra
krónaá þessu ári. Efaf söluveröur
gæti eitt elsta og sterkasta vöru-
merki Svíþjóöar komist í eigu er-
lendra aðila. Þeirsem nefndireru
sem hugsanlegirkaupendureða
samstarfsaðilareru Siemens, Alcatel
eða Matsushita. Motorola eða Nokia
koma síðurtil greina vegna áhrifa á
samkeppni, en tvö sfðastnefndu fyrir-
tækin hafa ásamt Ericsson 60% hlut-
deild á alheimsmarkaði fyrirfarsíma.
Kurt Hellström, forstjóri Ericsson,
staðfestir að þessi möguleiki sé nú
fyrir hendi en bendir á að enginn
kaupandi eða samstarfsaðili sé enn
sem komið ertil staðar. Hann segir
útlit fýrir að tap verði á rekstri far-
símaframleiöslunnar á næsta ári
einnig. Stjórn Ericsson hefuráður
lýst því yfir að ekki komi til greina að
selja hluta starfseminnar.
Um þessarmundirtaparEricsson
að meöaltali sem svarar 3.600 ís-
lenskum krónum á hvern seldan far-
síma. Því fleiri símar sem seldir eru,
því meira tap. Ástæðan fýrir tapinu er
m.a. hærriframleiðslukostnaðuren
hjá keppinautunum en nú er áformaö
að flytja framleiðsluna frá Banda-
ríkjunum og Svíþjóð til Asíu og Austur-
Evrópu til aö lækka kostnaðinn.
Tesco með eigin
farsímaþjónustu
• TALSMENN Tesco, stærstu
stórmarkaðskeðjunnar á Bret-
landseyjum, hafa tilkynnt aö keöjan
ætli að hefja eigin farsímaþjónustu
strax á næsta ári og þarf einungis að
greiða fyrir notkun en ekki fastagjald.
Tesco-menn ætla sér í beina sam-
keppni við stóru farsímafýrirtækin
eins og Vodafone, Orange og British
Telecom og hafa þeir lofaö að bjóða
upp á ódýrari þjónustu en þau. Tals-
menn Tesco segja að fyrirtækið hafi
náð samkomulagi við stórt Ijarskipta-
fyrirtæki og mun Tesco hafa tryggt
sér ótakmarkaðan aðgang að fjar-
skiptaneti þess. Ekki er vitað hversu
mikið Tesco þarf að greiða fýrir að-
ganginn en haft hefurverið eftirfram-
kvæmdastjóra Tesco að samningur-
inn sé félaginu ótrúlega hagstæöur.
Talsmenn Tesco segja að boðiö verði
upp á textaskilaboð. Farsímanot-
andinn geti þannigfengið skilaboö
um sérstök afsláttartilboð hjá Tesco
og hann mun einniggeta lesið fréttir,
skoöaö veöurspána og veröbréfa-
markaði með því aö ýta á einn
hnapp.
I síðustu viku tilkynntu stjórnendur
Sainsbury-keðjunnar að þeir myndu
hefja eigin farsímarekstur og verður
notendum tryggt lægsta mögulega
gjald á hverjum tíma: sérstakt inn-
heimtukerfi mun taka mið af verði
annarra farsímafyrirtækja og greiöa
notendur Sainsbury alltaf jafngildi
lægsta taxtans á hverjum tíma.
ISAFIRÐI - 25. okt. kl. 13-20
Bílasalan ísafjaróarflugvelli, sími 456 4712
SAUÐÁRKRÓKI - 26. okt. kl. 13-20
Bifreíðaverkstæðið Áki, Sæmundargötu 16, sfmi 453 5141
AKUREYRI - 27. okt. kl. 13-20
Bifreiðaverkst. Sig. Valdimarssonar, Óseyri 5a, sími 461 2960
REYÐARFIRÐI- 28. okt. kl. 13-18
Bíiasalan Fjarðarbyggó, Búðareyri 25, sími 474 1199
HÖFN, HORNAFIRÐI - 29. okt. kl. 13-18
Bílverk, Víkurbraut 4, sími 478 1990
Ingvar
Helgason
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
www.ih.is
hf.
IMISSAIM I
PATROL
á ferð um landið
Sýning á breyttum jeppum
35” - 38” - 44”
Komið og reynsluakið: