Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hugsanleg sala Vífilfells ehf.
Samningur Carlsberg
og Orkla eina ástæðan
ENGIN ákvörðun hefur enn verið
tekin varðandi hugsanlega sölu á
Vífilfelli ehf., eftir því sem Mar-
grethe Skov, forstöðumaður upp-
lýsingamála hjá Carlsberg-fyrir-
tækinu í Danmörku, segir.
Samningaviðræður standa yfir
milli Carlsberg og Coca-Cola
Company í Bandaríkjunum um
skiptingu á Coca-Cola Nordic
Beverages A/S (CCNB), sem
Carlsberg á 51% í en Coca-Cola
Company 49%. CCNB er eigandi
Vífilfells. Skov segir að vonast sé
til að niðurstöður úr samningavið-
ræðum fyrirtækjanna liggi fyrir í
nóvember næstkomandi, og að þá
verði ljóst hvaða ákvörðun verði
tekin varðandi Vífilfell.
Að sögn Margrethe er ástæðan
fyrir samningaviðræðum fyrir-
tækjanna um skiptingu á CCNB sú
að Carlsberg og norska bjórfyrir-
tækið Orkla tóku ákvörðun í júní
NAMSAÐSTOO
f stærðfræði og öörum raungreinum.
Ath! Bókin um Tölvustærðfræði er komin.
Sórstakt kynningarverð fyrir nemendur TS.
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf.
Brautarholti 4, sími 551 5593
Getur\hfer se#fi er
t mist inn í
Ivukerfið
Ef fleiri en tveimur spurningum er svarað játandi
þarf fyrirtækið þitt að auka tölvuöryggi.
Geta starfsmenn afritað
trúnaðargögn á dískling eða
sent í tölvupósti?
■I Já ■■ nei
Hefur kerfisstjóri
tölvunetsins ótakmarkaðan
lesaðgang að öllum
gögnum?
■■ Já ■■ nei
Geta starfsmenn tekið á
móti og sent í tölvupósti allar
tegundir af skjölum?
■■ Já ■■ nei
Er tölvukerfið ekki með
sívirka vírusathugun?
■■ Já ■■ nei
Er tölvupóstur ekki vírus-
athugaður (inn/út)?
«■ Já wm .
Hafa starfsmenn óheftan
sðgang að ínternetinu9
■■ Já ■■ nei
Hafa notendur möguleika á
að eyða trúnaðargögnum
eða afrita þau?
Hafa notendur möguleika á
að setja upp ný forrit af diski
eða af netinu?
■■ Já ■■ nei
Eru erfiðleikar með að
tryggja leynd á
notendanöfnum og
lykiloröum?
Er hver notandi með fleiri en
eitt lykilorð sem þarf að nota
í tölvukerfinu?
■IJá ■■ nei
Eru notendur að vinna í
tölvukerfinu frá heimili eða
öðrum stöðum?
■■ Já ■■ nei
Á eftir að framkvæma
öryggisúttekt á tölvukerfinu?
■■ Já ■■ nei
L
Rittækni
TOLVUOHYÖOI & MUOBÚNABARLAUBNIB
Skipholti 50d 105 Reykjavfk
sfmi 561 5040 fax 511 2289 www.rittaekni.is
síðastliðnum að stofna
nýtt fyrirtæki, Carls-
berg Breweries. Carls-
berg mun eiga 60% í
hinu nýja fyrirtæki en
Orkla 40%. Orkla er í
samstarfi við Pepsi-
Cola-fyrirtækið í Noregi
og Svíþjóð. Hún segir að
það fari ekki saman að
hið nýja fyrirtæki eigi
hagsmuna að gæta varð-
andi bæði Coca-Cola og
Pepsi-Cola á sömu mark-
aðssvæðum.
„Samningur Carlsberg
og Orkla snýst fyrst og
fremst um framleiðslu
og sölu á bjór,“ segir
Margrethe. „Við hjá
Carlsberg lítum á bjór-
inn sem meginfram-
leiðsluvöru fyrirtækis-
ins. Gosdrykkir fylgja
með þar sem þeir styðja
meginframleiðsluna,
annars ekki, því bjórinn
er aðalatriðið.“ Mar-
grethe segir að Orkla hafi sterka
stöðu í Svíþjóð, Rússlandi, Úkraínu
og á Balkanskaga, og því sé sam-
vinna fyrirtækjanna tveggja gott
tækifæri til nýrrar sóknar fyrir
Carlsberg. Sameiginlegir hags-
munir Carlsberg og Orkla á
bjórmarkaði sé því meginástæðan
fyrir þeim samningaviðræðum sem
Carlsberg og Coca-Cola Company
eiga nú í, með þeim möguleika að
Vífilfell verði hugsanlega selt.
Coca-Cola-fyrirtækin í Banda-
ríkjunum eru tvö, annars vegar
Coca-Cola Company, sem framleið-
ir m.a. þykknið sem notað er í
framleiðslu á Coca-Cola-drykkn-
um, og hins vegar Coca-Cola Ent-
erprises, sem sér um átöppun,
dreifingu og sölu á drykkjarvörum.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að verðið á þykkninu hafi
hækkað nokkuð á undanförnum
misserum. Það hafi hins vegar ekk-
ert með hugsanlega sölu á Vífilfelli
að gera. Þar komi einungis til
samningur Carlsberg og Orkla um
stofnun nýs fyrirtækis, eins og
Margrethe Skov segir.
Samningur um framleióslurétt
hefði verið endurnýjaður
Vífilfell ehf. hefur verið með
samning við Coca-Cola Company
um einkarétt á afurðum þess á Is-
landi frá árinu 1941. Pétur Björns-
son tók við stjórn fyrirtækisins af
föður sínum, Birni Ólafssyni, árið
1973, en komst að samkomulagi við
Coca-Cola Nordic Beverages í nóv-
ember 1998 um sölu á fyrirtækinu.
Á blaðamannafundi við það tæki-
færi sagði Þorsteinn M. Jónsson,
forstjóri Vífilfells, að ekkert væri
hæft í því að Vífilfelli hefði verið
stillt upp við vegg og eigendur þess
þvingaðir til þess að selja. Samn-
ingur um framleiðsluréttinn hefði
verði endurnýjaður án nokkurra
vífilengja og svo hefði verið gert
áfram ef ekki hefði komið til samn-
inga um sölu.
Ódýr far-
símaleyfi
á Italíu
FJARSKIPTASAMSTEYPAN
Blu hefur dregið sig út úr út-
boðinu um farsímaleyfin á It-
alíu. Þar með er útboðinu í
reynd lokið því aðeins eru eftir
fimm umsækjendur um fimm
leyfi, segir í Suddeutsche Zeit-
ung.
Astæða þess að Blu hætti
þátttöku er talin vera ágreining-
ur á meðal hluthafa samsteyp-
unnar og að British Telecom
hafi ekki verið tilbúið til að auka
hlutafé sitt tU jafns við aðra hlut-
hafa svo hægt væri að halda
áfram að bjóða í leyfin, en Brit-
ish Telecom á 20% hlut í Blu.
Ljóst er að hin fyrirtækin hagn-
ast mjög á þessu ósætti og gengi
bréfa í farsímafyrirtækjum
hækkaði strax í gær.
Fyrir leyfin fékk ítalska ríkið
því ekki nema 868 milijarða ís-
lenskra króna. Það hljóta að
vera mikil vonbrigði fyrir ítölsk
stjómvöld, sem höfðu gert ráð
fyrir um 2.000 milljörðum ki’óna
í tekjur með útboðinu. Þetta er
þveröfugt við það sem átti sér
stað í útboðunum í Þýskalandi
og Bretlandi, þar sem mun
meira kom í ríkiskassann en
menn gerðu sér vonir um. Þar
fengust að meðaltali um 46.000
krónur á hvem íbúa en í útboð-
inu á Ítalíu fengust ekki nema
um 15.400 krónur á íbúa.
Útboðsreglur brotnar?
HeimUdarmaður Reuters inn-
an ítalska fjarskiptaráðuneytis-
ins sagði að ráðuneytið leiti nú
leiða til þess að afla meiri fjár og
þá líklega með því að láta fjar-
skiptaiyrirtækin fimm berjast
innbyrðis um fjögur farsíma-
leyfi. Þetta geti ráðuneytið gert
með því að sýna firam á að Blu
hafi aldrei verið nein alvara með
að taka þátt í útboðinu; þar með
hafi útboðsreglur verið brotnar
og hægt sé að hefja nýtt útboð.
Ríkisstjóm Ítalíu fundaði í gær
um máUð og má gera ráð fyrir að
þá muni liggja fyrir hvort útboð-
ið verður látið standa eða ekki.
Amerískir tilboðsdagar
Við kynnum THER-A-PEDIC, bandarískar
heilsudýnur, sem unnið hafa til margra
verðlauna íyrir hönnun og gæði.
Komdu og leggðu þig!
www.lystadun.is
VERSLUNIN
SKUTUVOGI 11
S í M I 5 6 8 - 5 5 8 8