Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
AP
Grískir landgönguliðar, þátttakendur í fjölþjóðlegu NATO-heræfíng-
unni „Destined Glory“, hlaupa á land á eynni Saros í Eyjahafí, nærri
landamærum Grikklands og Tyrklands, sl. föstudag. Grikkir hafa nú
dregið herlið sitt út úr æfíngunni vegna ágreinings við Tyrki.
Gnkkir draga
si g út úr heræf-
íngum
Ankara, Aþena. The Daily Telegjaph.
GRIKKIR hættu á sunnudag þátt-
töku í heræfingum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) úti fyrir
ströndum Tyrklands, eftir að hafa
lent í útistöðum við Tyrki. Heræf-
ingarnar höfðu verið taldar marka
tímamót vegna sameiginlegrar þátt-
töku Grikkja og Tyrkja, sem löngum
hafa eldað grátt silfur, en nú er ótt-
ast að þíða, sem verið hefur í sam-
skiptum ríkjanna undanfarið ár, sé á
enda.
Grikkir óskuðu á laugardag eftir
því að heræfingunum yrði aflýst eft-
ir að tyrkneskar herþotur flugu í
veg fyrir grískar þotur á æfingu.
Tyrkir fullyrtu að grísku vélamar
hefðu brotið reglur með þvi að fljúga
yfir grísku eyna Limni, sem hefur
verið lýst hlutlaust svæði. Varnar-
málaráðherra Grikklands, Akis
Tsohatzopoulos, sakaði Tyrki hins
vegar um að brjóta á rétti Grikkja til
að fljúga yfir eigið landsvæði. „Slík
hegðun er óþekkt af hálfu ríkis sem
heldur heræfingar á vegum NATO
NATO
og er algjörlega óréttmæt. Það var
okkur ómögulegt að halda heræfíng-
unum áfram og því var tekin ákvörð-
un um að binda enda á þátttöku
Grikkja," sagði Tsohatzopoulos.
The Daily Telegraph hafði eftir
háttsettum tyrkneskum stjórnarer-
indreka í gær að Grikkir hefðu vís-
vitandi efnt til deilnanna um helg-
ina, til að draga úr möguleikum á því
að Tyrkjum verði veitt innganga í
Evrópusambandið. Framkvæmda-
stjórn ESB mun í næsta mánuði
kunngera skilyrði, sem tyrknesk
stjórnvöld verða að uppfylla áður en
viðræður geta hafist um fulla aðild
þeirra að sambandinu. Víst þykir að
Tyrkjum verði gert að ná sáttum við
Grikki í deilu þeirra um Eyjahafið
og Kýpur.
Dregið hafði úr spennu í sam-
skiptum Tyrkja og Grikkja eftir að
jarðskjálfar riðu yfii’ bæði löndin í
ágúst og september á síðasta ári og
báðar þjóðirnar sendu björgunarlið
á vettvang.
Mikil ólga í Perú vegna
heimkomu Montesinos
Reiður Perúbúi heldur á mótmælaspjaldi með mynd
af Vladimiro Montesino, fv. leyniþjónustustjdra Perú.
Yfir myndina er skrifað „morðingi**.
Stjórnin krefst
þess að hann fái
sakaruppgjöf
Lima. Reuters, AFP.
VLADIMIRO Montesinos, fyrrver-
andi yfirmaður leyniþjónustu Perú,
sneri aftur til heimalandsins í gær
eftir að stjórnvöld í Panama höfðu
neitað að veita honum hæli. Heim-
koma hans olli mikilli spennu í
stjórnmálum Perú og búist er við að
hún magnist á
næstu dögum því
stjórn landsins
hefur sett það sem
skilyrði fyrir kosn-
ingum, sem hún
hafði lofað, að
Montesinos og yf-
irmönnum hersins
verði veitt sakar-
uppgjöf. Francisco
Tudela, varaforseti
landsins, tilkynnti
að hann hefði sagt af sér vegna
þessarar afstöðu stjórnarinnar.
Flugvél Montesinos lenti á flug-
velli í Pisco, um 250 km sunnan við
Lima, fimm klukkustundum eftir að
hún fór frá Guayaquil í Ekvador þar
sem hún tók eldsneyti. Flugvélin
lagði af stað frá Panama á sunnu-
dagskvöld.
Embættismaður á flugvellinum í
Pisco sagði að vélin hefði lent þar til
að taka eldsneyti en kvaðst ekki vita
hvert hún ætti að fara. Sjúkrabíl var
lagt við hlið flugvélarinnar en Mont-
esinos fór ekki út úr henni. Óstað-
festar fréttir hermdu að flugvélinni
hefði verið meinað að lenda á aðal-
herflugvellinum í Lima.
Götumótmæli
boðuð í Lima
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
voru æfir yfir heimkomu njósnafor-
ingjans fyrrverandi og sögðu hana
grafa undan tilraunum til að koma á
sáttum í landinu. Jorge Del Castilla,
einn af forystumönnum flokksins
APRA, sagði að stjórnarandstaðan
hygðist efna til götumótmæla í
Lima.
Montesinos var bandamaður AJ-
bertos Fujimoris forseta og mjög
áhrifamikill í hernum þar til hann
flúði til Panama 23. september.
Hann hafði þá verið staðinn að því
að múta stjórnarandstöðuþing-
mönnum í því skyni að tryggja
flokki forsetans meirihluta á þing-
inu. Þegar mútumálið komst í há-
mæli tilkynnti Fujimori að hann
hygðist boða til kosninga og láta af
embætti í júlí, fjórum árum áður en
kjörtímabili hans lyki.
Stjórnvöld í Bandaríkjum og
mörgum ríkjum Rómönsku Amer-
íku höfðu beitt sér fyrir því að
Montesinos fengi hæli í Panama þar
sem óttast var að her Perú myndi
ella taka völdin í sínar
hendur.
Stjórn Perú gaf út
yfirlýsingu á sunnu-
dagskvöld þar sem
hún krafðist þess að
embættismönnum og
yfirmönnum hersins
yrði veitt sakarupp-
gjöf vegna mannrétt-
indabrota sem framin
voru í baráttunni gegn
eiturlyfjasmygli.
Stjórnarandstaðan
segir að meginmark-
mið sakaruppgjafar-
innar sé að vernda
Montesinos, sem hefur
meðal annars verið
sakaður um að hafa
fyrirskipað pyntingar
og heimilað morð þeg-
ar hann stjórnaði
leyniþjónustunni.
„Ég sem ekki við
glæpamenn"
Alejandro Toledo,
helsti leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, sagði
að stjórnin væri að
reyna að þvinga
stj ómarandstöðu-
flokkana til að fallast á
að veita Montesinos
friðhelgi og krafðist þess að Fuj-
imori léti strax af embætti. „Ég sem
ekki við glæpamenn," sagði hann.
Fujimori hefur verið við völd í tíu
ár og var endurkjörinn til fimm ára í
forsetakosningum í maí. Stjórnar-
andstaðan neitaði að taka þátt í
kosningunum og sakaði Fujimori
um að hafa undirbúið kosningasvik
til að halda völdunum.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
segja að krafa stjórnarinnar um
sakaruppgjöfina geti orðið til þess
að ekki verði af kosningunum.
„Perú þarf á sáttum að halda en þær
geta ekki orðið með þessum hætti,“
sagði Toledo. „Yfirmenn hersins
geta ekki haldið Perú í gíslingu og
menn geta ekki fallist á samninga-
viðræður með byssu að höfðinu."
Francisco
Tudela
Madeleine Albright, utannldsráðherra Bandaríkjaiina, í sögulegri heimsókn í Norður-Kóreu
Fær hlýlegar mót-
tökur í Pyongyang
AP
Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Kim Jong-
il, leiðtogi Norður-Kóreu, skála fyrir fund þeirra í Pyongyang í gær.
Pyongyang. Reutors, AP, AFP.
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, fékk hlý-
legar móttökur þegar hún hóf sögu-
legar viðræður við Kim Jong-il,
leiðtoga Norður-Kóreu, í Pyong-
yang í gær. Bandarískh- embættis-
menn sögðu að viðræðurnar hefðu
verið mjög ítarlegar og gagnlegar.
„Nei, afstaða okkar er mjög yfir-
veguð,“ sagði Albright við blaða-
mann sem benti á að Bandaríkja-
stjóm hefur verið gagnrýnd fyrir að
fara of geyst í það að bæta samskipt-
in við Norður-Kóreu. „Við förum
ekki hraðar en skynsamlegt er í
nafni bandarískra hagsmuna," bætti
ráðherrann við.
Kim tók hlýlega á móti Albright
áður en þau hófu viðræðumar sem
stóðu í þrjár klukkustundir og mun
lengur en gert hafði verið ráð fyrir.
„Ég er svo sannarlega mjög ánægð-
ur,“ sagði hann og bætti við að þetta
væri í fyrsta sinn sem hann ræddi
við bandarískan ráðherra.
Kim ákvað á síðustu stundu að
taka við hlutverki gestgjafa í kvöld-
verðarboði til heiðurs Albright í
gærkvöldi í stað Jos Myong-roks,
varaformanns vamarmálaráðs
Norður-Kóreustjómar og hæst
setta embættismanns landsins sem
farið hefur í heimsókn til Bandaríkj-
anna. Kim þakkaði Albright fyrir að
gera ráðstafanir til þess að Jo gæti
rætt við Bill Clinton forseta þegar
hann var í Bandaríkjunum nýlega.
„Engar deilur komu upp og allt
gekk mjög vel iyrir sig,“ sagði Kim
um heimsókn Jos.
Kann að mæla með því að
Clinton heimsæki N-Kóreu
Viðræðumar við Albright em lið-
ur í tilraunum kommúnistastjómar
Norður-Kóreu til að binda enda á
einangrun landsins. Kim hefur einn-
ig rætt við leiðtoga Kína, Rússlands
og Suður-Kóreu á síðustu tólf mán-
uðum.
Ekki er búist við því að Albright
undirriti samninga í heimsókninni
sem stendur í tvo daga. Bandarískir
embættismenn sögðu að Albright
hygðist meta hversu mikil alvara
væri á bak við þá viðleitni Kims
Jong-ils að bæta samskiptin við
Bandaríkin og bandamenn þeirra í
Austur-Asíu. Ef hún kæmist að
þeirri niðurstöðu að hugur fylgdi
máli myndi hún mæla með því að
Clinton færi í heimsókn til Norður-
Kóreu áður en hann lætur af emb-
ættií janúar.
Bandaríkjastjóm vill draga úr
spennu á Kóreuskaga þar sem
bandarískir og suður-kóreskir her-
menn börðust við norður-kóreskar
og kínverskar hersveitir í Kóreu-
stríðinu sem lauk án formlegs friðar-
samnings árið 1953. Bandaríska
stjómin vill einnig fá Norður-Kóreu-
menn til þess að falla frá áformum
sínum um smíði langdrægra eld-
flauga og hætta sölu á eldflaugum til
íransogSýrlands.
Bandarískir embættismenn telja
að stjómvöld í Norður-Kóreu líti svo
á að eftir margra ára matvælaskort
og efnahagshnignun sé samvinna við
Vesturlönd besta leiðin til að tryggja
hagsæld í landinu án þess að þau
missi völdin líkt og kommúnista-
stjórnimar í Austur-Evrópu.
Dansaði við börnin
Albright hefur einkum hug á að
kynna sér nánar tilboð Kims Jong-
ils um að falla frá eldflaugaáætlun-
inni gegn því að Norður-Kóreumenn
fái aðstoð við að skjóta á loft eld-
flaugum með gervihnetti. Kim
kynnti þetta tilboð þegar hann
ræddi við Vladímír Pútín Rússlands-
forseta fyrr á árinu. Bandarílqa-
menn tóku tilboðinu með nokkurri
tortryggni í íyrstu en sýna því nú
meiri áhuga.
Albright og Kim ræddust við í
stóm herbergi í byggingu við gisti-
heimili þar sem utanríkisráðherrann
dvelur. Albright sat við hlið fjögurra
bandarískra sérfræðinga í málefn-
um Norður-Kóreu og Kim sat gegnt
henni með þremur ráðgjöfum.
Þegar þau gengu inn í herbergið
spurði Kim Albright hvort hún væri
ánægð með heimsóknina. „Ég dans-
aði við bömin og er mjög ánægð,“
sagði utanríkisráðherrann sem
heimsótti bamaheimili fyrr um dag-
inn og líkti eftir hreyfingum bama
sem dönsuðu fyrir hana kóreska
þjóðdansa.
Áður en viðræðumar hófust skoð-
aði Albright einnig grafhýsi föður
Kims, Kims Il-surigs, „leiðtogans
mikla“ sem lést árið 1994. Albright
fór ekki varhluta af dýrkuninni á
Kim Il-sung því hvárvetna blöstu við
myndir af honum á attglýsingaskilt-
um og byggingum á leið utanríkis-
ráðherrans frá flugvellinúm til mið-
borgar Pyongyang.
Daginn áður fóra Chi Haotian,
varnarmálaráðherra Kína, og full-
trúar kínverska hersins í heimsókn
til Norður-Kóreu til að taka þátt í
hátíðarhöldum í tilefni þess að hálf
öld er liðin frá íyrstu átökum kín-
verskra hermanna óg hersveita
Sameinuðu þjóðanna undir stjóm
Bandaríkjamanna í Kóreustríðinu.
Talið er að allt að 900.000 Kínveijar
hafi fallið í stríðinu.