Morgunblaðið - 24.10.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 37
Hús á hreyfíngu
GUNNAR Harðarson
skáld og heitnspek-
ingur sendi nýverið
frá sér ijóðabók sem
ber nafnið Húsgan-
gar, undirtitill Götu-
myndir. Bókin geymir
ljóðaflokk sem á ytra
borði fjallar um götur
og hús í Reykjavík.
Þetta er þriðja ljóða-
bók Gunnars en hann
hefur áður sent frá
sér Frásögur sem út
kom árið 1982, og
Smára og götusöngva
árið 1988. Þá er
Gunnar kunnur fyrir
skrif sín um margvís-
leg málefni í tfmaritum.
Ljóðin í nýju bókinni eru ort á
síðastliðnum tíu árum og þau
ferðast óhindrað um hús og um-
hverfi höfuðborgarinnar og skoða
hlutina jafnt að utan sem innan.
Við lestur bókarinnar öðlast ýmis-
legt gamalkunnugt nýja merkingu
og húsin meira að segja göngulag;
þó ekki samræmt og fornt eins og
annað skáld orti um á sinni tíð.
Við fylgjumst með húsi á gangi
frá Vesturgötunni í humátt á eftir
fyrrverandi nágranna sinum,
Benedikt Gröndal, upp í Þingholt.
Tildrög þessa ferðalags eru þau
að húsið rumskar af svefni eftir
aldarlangan svefn sumarnótt eina
og sér að við svo búið má ekki
standa. Fleiri hús hugsa sér til
hreyfings, frá Hofsvallagötunni
lötra verkamannabústaðirnir
hægum skrefum niður að Bræðra-
borgarstíg þar sem bakaríið starf-
ar ekki lengur og umsvifin hafa
minnkað til muna, fátt ber þar til
tíðinda á götunum kenndum við
Ás og Hof, gleymdar
minningar upp-
flosnaðra bænda að
norðan. Kunnir borg-
arar koma við sögu;
þannig les Hannes
Árnason fyrir um
Schelling í Austur-
stræti 4 á árunum
1872 til 1874, gengur
um gólfin flibba-
klæddur og utan við
sig í húsi sem enn
stendur. Þar var
Prestaskólinn til
húsa og 1990, árið
sem ljóðið er ort, er
þarna tískuverslun
með afgreiðslumönn-
um sem eru hálfvegis utan við sig
eins og Hannes forðum en ef til
vill af annarri og ólíkri ástæðu.
En í dag hýsir þetta hús allt
aðra starfsemi: „Þetta er ágætt
dæmi um það hversu hlutirnir eru
fljótir að breytast. Ljóðið var ekki
fyrr ort en búðinni var lokað og
önnur starfsemi hófst í húsinu,"
segir Gunnar. „Ein megin-
hugmyndin í bókinni er sú að ljá
götum og húsum borgarinnar mál
með því að teikna myndir af þeim
eins og listamaður sem rissar í
blokk. En þegar rnaður notar orð
til að teikna með ratar auðvitað
ýmislegt. fleira á pappírinn en
ytra byrðið.“
Á ljóðunum er glettnisbragur,
þau eru kátleg og býsna fjörleg á
köflum eins og ljóðið um Hrogn-
kelsatíð ber með sér. „Það er nú
ekki erfitt að koma auga á svolít-
ið spaugilegar andstæður, bæði í
mannlífinu sjálfu og milli nútíma
og sögu, í þessari borg. Það end-
urspeglast í flestum, en þó reynd-
ar ekki öllum, þessum húsgöng-
um. Ljóðin standa líka býsna
nærri prósa með tilvísunum og
speglunum úr bæjarlífinu og lág-
værum en áleitnum undirtónum
um fyrnd og forgengileika, sem
heimur ljóðanna virðist þó sigrast
á að lokum. í húsunum og á göt-
unum býr þrátt fyrir allt órofin
saga.
„Það er með Reykjavík eins og
svo marga aðra staði hér á landi
að sagan er svo að segja við hvert
fótmál ef maður bara hefur fyrir
því að gefa henni gaum. Hitt er
svo annað mál hvað gert er við
hana. Umræðan um landnáms-
bæinn undir bflastæðinu sýnir
ágætlega hvað um er að ræða. En
þannig er um svo margt og
kannski á það bara að vera þann-
ig-“
Svo er þarna Ijóðið Hús við Eir-
íksgötu sem bregður upp nærfær-
inni mynd af kunnu og ástsælu
skáldi. Það er nánast eins og lesa-
ndinn sé staddur með þér í hús-
inu, opni með þér dyrnar og haldi
inn í húsið og ljóðið.
„Ég kom þangað ásamt föður
minum fyrir rúmum aldarfjórð-
ungi og fékk áritaðar bækur. Ég
rakst svo á þær við flutninga fyrir
tveimur árum og varð þá hugsað
til þessarar heimsóknar. Lýsingin
er nú bara eins og hún spratt upp
úr minninu."
Þekktum borgurum bregður
fyrir í Ijóðunum. Skáldum, heim-
spekingum og listamönnum. En
alþýðan og saltfiskurinn á þarna
líka stóran hlut að máli. Hinn óbr-
otni maður lifir sínu lífi í húsun-
um við göturnar eins og stór-
mennin.
„Já, mér finnast ummerkin um
hversdagsstritið ekki síður um-
hugsunarverð. Þau má til dæmis
ráða af nöfnum eins og naust og
kot: Ánanaust, Hákot. Heiti bók-
arinnar, Húsgangar, ber þessa
hlið raunar líka með sér, en orðið
getur bæði þýtt förumaður og
vi'sa sem gengur milli manna. Þar
að auki eru þetta, eins og þú
nefndir, prósakennd Ijóð og ætl-
unin að minnsta kosti sú að fara
nálægt hverdagslegu máli eins og
við á um lauslega rissaðar götu-
myndir - hvernig svo sem til hef-
ur tekist.“
pp úr garðinum vaxa
skrúðmikil trén eins og
kvæði Engir þrestir
samt á greinum, enginn
söngur í húsinu þarna bjó einu
sinni skáld sem orti um söngfugla
kvæði jafnsmágerð og reyniber og
var þó sjálfur hávaxinn líkt og ösp-
in og grár fyrir hærum Og ef kom-
ið var til hans í heimsókn var ekki
til stofunnar vísað heldur í lítið
herbergi með skrifborði og bókum
þar sem skáldið bauð upp á filters-
lausar sígarettur og hóstaði svo
undir tók í brjóstkassanum
íklæddur rauðum kvöldsloppi og
átti ráðskonu til að bera fram kaffi
og með því handa gestum Og um-
ræðan snerist um liti og um línur
og tóna og myndir hvernig mál-
verkið fangaði birtuna þessa sum-
arnótt sem hrjúfrar sig yfir lyng-
móann og lækinn á kyrri heiðinni.
Myndir. Og málverk úr orðum -
Hauströkkrið horfið. Lauf og
stjörnur í garðinum. Engir þrestir,
enginn söngur.
(Úr Húsgöngum,Götumynd-
um)
Gunnar Harðarson
Háskóla-
tónleikar í
Norræna
húsinu
FYRSTU háskólatónleikar vetrar-
ins verða í Norræna húsinu á morg-
un, miðvikudag, kl. 12.30.
Þá leikur Orn Magnússon tvö verk
eftir Wolfgang Amadeus Mozart,
sónötu í f- dúr, K.332, og rondó í d-
dúr, tyrkneska rondóið.
Þau verk sem flutt verða eru með-
al þekktustu píanóverka Mozarts og
hafa verið leikin í rúm 200 ár á tón-
leikum og í heimahúsum af leikum
og lærðum.
Árið 1778 var Mozart í París. Þá
um sumarið samdi hann þrjár sónöt-
ur; K.331 í a-dúr með tilbrigðum og
hinu þekkta tyrkneska rondói, þá í f-
dúr K.332 sem leikin verður og b-dúr
sónötu K.333. Um sumarið fregnaði
tónskáldið lát móður sinnar; jafn-
framt hafði hann orðið fyrir von-
brigðum með Parísardvölina. Hvort
sem það er ástæðan eða ekki, þykir
tónmál þessara þriggja sónata pers-
ónulegra en þeirra píanóverka sem
hann samdi áður.
Rondóformið var meðal höfuð-
forma klassíska tímans og var í mikl-
um metum hjá Mozart. Tvö rondó
standa sér (þ.e. ekki sem hlutar af
sónötum) á verkalista hans. Þetta
eru rondó í a-moll K.511 frá 1787 og
rondó í d-dúr K.485 frá 1786 sem hér
heyrist. Það er samið fyrir nemanda
tónskáldsins.
Örn Magnússon hefur komið fram
á fjölda tónleika og leikið inn á
geislaplötur bæði sem einleikari og í
kammertónlist.
Tónleikarnir taka um það bil hálfa
klukkustund.
Tónlist fyrir alla í grunn-
skólum víðs vegar um land
TÓNLIST fyrir alla hefur staðið íyr-
ir tónleikahaldi í grunnskólum víðs
vegar um landið frá árinu 1992.
Takmark verkefnisins, sem er
samstarfsverkefni menntamálaráðu-
neytisins og sveitarfélaganna, hefur
verið að standa fyrir skólatónleikum
sniðnum að þörfum barna í flutningi
fremstu tónlistarmanna.
Á dagskránni í lok október og
byrjun nóvember flytja þeir Egill Ól-
afsson og Tríó Björns Thoroddsen
dagskrána Heimsreisu Höllu fyrir
skólaböm á Suðurnesjum. Dagskrá-
in er byggð á íslenska þjóðlaginu,
„Ljósið kemur langt og mjótt“. Þeir
félagar taka þjóðlagið með sér í ferð
um heiminn og bregða því í músíka-
lskan búning sem hæfir hverju landi
og tíma. Viðkomustaðir lagsins eru
ýmist í Evrópu barrokktímans eða
hjá bandarískum röppurum nútím-
ans, og allt þar á milli. Er nemend-
um, sem leika á hljóðfæri, gefinn
kostur á að taka þátt í tónleikunum
og spila með, en nótur hafa verið
sendar í skólana til undirbúnings.
Einnig taka aðrir nemendur þátt í
flutningnum með klappi og söng.
Flautuleikararnir Guðrún Birgis-
dóttir og Martial Nardeau og gítar-
leikarinn Pétur Jónasson munu leika
dagskrána Tvær flautur og gítar í
Árnessýslu (að Árborg undanskil-
inni) aðra vikuna í nóvember. Efnis-
skráin spannar í heild helstu tímabil
tónlistarsögunnar, frá evrópskri
endurreisnar-tónlist til norrænnar
tónlistar og íslenskrar jazztónlistar.
Lögð er áhersla á að kynna hljóðfær-
in í öllum sínum fjölbreytileik (alt-,
pikkoló-, barokk- og þverflautur,
klassískan jazz og þjóðlaga-gítar).
Jafnframt því að skemmta börn-
unum og fræða þau um tónlist, hafa
listamennimir leitast við að fá þau til
liðs við sig og hafa nemendur víða
undirbúið sig til að taka þátt í flutn-
ingi þriggja laga með tónlistarmönn-
unum.
Að lokum munu Orville J. Pennant
og félagar heimsækja eldri árgang-
ana í Hafnarfirði og flytja þeim dag-
skána Ómur Afríku í lok október og
byrjun nóvember. Dagskráin kynnir
nemendum tónlistarhefð og tilgang
tónlistar í Afríku.
Mikil umræða hefur veríð um auglýsingamál að undanförnu og
auglýsingamarkaðurínn erað taka miklum breytingum sem munu
hafa mikiláhrifá öll vinnubrögð hvað varðar auglýsingabirtingar
auglýsenda. Þess vegna heldur SAU - samtök auglýsenda
kynningarfund á Grand Hóteli.
Enginn aðgangseyrir