Morgunblaðið - 24.10.2000, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Púls“
MYNDLIST
Listasafn Kópavogs
G e r ð a r s a f n
MYNDVERK Á PAPPÍR
VALGERÐUR
HAUKSDÓTTIR
Opið alla daga frá 11-17.
Lokað mánudaga.
Til 29. október. Aðgangur
300 krónur í allt húsið.
ÞAÐ hefur verið mikið skrið á
grafíklistakonunni Valgerði Hauks-
dóttur síðan hún kom heim frá námi
í Bandaríkjunum 1983, með meist-
aragráðu frá virtum listaháskóla í
Illinois í farteskinu. Ári seinna var
hún farin að kenna við MHÍ og hefur
kennt þar nær óslitið síðan auk þess
að sinna gestakennarastörfum við
ýmsar kennslustofnanir ytra, þó að-
allega í Bandaríkjunum. Þá hefur
hún haldið tug einkasýninga þaraf
svo til helming erlendis. Allt þetta er
samviskusamlega tíundað í sýning-
arskrá, og er dugnaður og ná-
kvæmni íslenzkra grafíklistakvenna
er lýtur að samantekt ferlisskrár
með ólOdndum.
Valgerður hefur leitast við að
brydda upp á ýmsum nýjungum í
faginu bæði hvað þrykktækni og
hliðaráherslur snertir, jafnvel hljóð,
fylgist þannig vel með framúr-
stefnulegum viðhorfum úti í heimi.
En þrátt fyrir allar þessar áherslur
til hliðar heldur hún tryggð við
grunnþætti grafíktækninnar og hef-
ur ekki róið á önnur mið í myndlist
eins og svo margir aðrir menntaðir í
faginu. Og þrátt fyrir að öll verkin
33 á sýningunni í Gerðarsafni séu
myndverk í blandaðri tækni á papp-
ír, er hugsunin að baki út í fingur-
góma grafísk, jafnvel svo sláandi
grafísk að við liggur að um sjón-
blekkingu sé ræða, helst í þá veru að
skoðandinn álítur sig í fyrstu standa
frammi fyrir myndum í aðskiljanleg-
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Tvær myndir í flokknum, Vænting, blönduð tækni á pappír.
ustu þrykktækni. Myndverkin eru í
þeim mæli svo yfirmáta rík af stíg-
andi í svart-hvítu og grátónum að
þau gætu allt eins verið hugmyndir
að fjölföldun í grafíktækni og dettur
mér í hug að steinþrykkið væri hér
kjörinn vettvangur. A ég hér við sí-
gilda steinþrykkið eins og t.d. Per
Kirkeby og fleiri núlistamenn hafa
unnið í því á undangengnum áratug-
um.
Aðdáunarvert hve vel og fag-
mannlega Valgerður stendur að
verki í þessum stóru aflöngu renn-
ingum sínum sem hafa yfir sér
Helgarferðir til Færeyja
Nú í vetur býðst einstakt tækifæri tii helgarferða til
frænda okkar í Færeyjum.
Á fösttidags- og mánudagskvöldum flýgur þota færeyska
flugfélagsins Atlantic Airways milli Reykjavíkur og Vága-
flugvallar í Færeyjum og er flugtíminn ekki nema rúm
klukkustund.
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar býður nú helgar-
pakka á frábæru verði til Færeyja í haust og í vetur frá 01.
október til 26. mars.
Verð frá krónum 26.840,- Innifalið er flug, flugvallaskat-
tar, gisting í þrjár nætur, frá föstudegi til mánudags, og
morgunverður. Sérstakur afsláttur fyrir hópa, 20 manns
eða fleiri.
Einnig er tilvalið að leigja sér bíl meðan á dvöl stendur því
vegir eru góðir í Færeyjum og liggja víða. Bílaleigubíll í 3
daga kostarfrá 14.000,- krónum og eru þá innífaldar tryg-
gingar, virðisaukaskattur og ótakmarkaður akstur.
Leitið nánari upplýsinga hjá utnalandsdeild okkar.
Einnig á heimasíðu okkar: www.gjtravel.is
<3
Ferðaskrifstofa
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR BHF.
Borgartúni 34, síml 511 1515
sterkan svip af hst austursins, eink-
um fyrir lögunina og blæbrigðarík-
dóminn. Engin er það áfellisdómur
og ekki sé ég betur en að listakonan
hafi ekki í annan tíma náð að höndla
innri lífæðar myndflatarins á jafn-
sannfærandi og eftirtektarverðan
hátt. Um afar fínleg, fáguð og næm
vinnubrögð að ræða, fjölþættan
galdur hrynjandi og forma sem flétt-
ast í ljóðréttum skipulögðum leik um
allan myndflötinn sem líkja má þó á
stundum við óformlega kalligrafíu.
Nöfnin á myndverkunum gefa svo
vísbendingar um hugleiðingarnar að
baki myndferlinu: Upphaf/ Fellur
fræ/ Vænting/ Til jarðar/ Lífstil-
brigði/ Eftirspil/ Umbreyting/
Kyrrð. Og eins og segir í skrá; „sam-
anstendur sýningin af 8 myndröðum
sem saman mynda eina heild. Verkin
fjalla um hrynjandi og samspil ólíkra
þátta tilverunnar og gagnsæi henn-
ar, um hin fíngerðu mörk milli lífs og
dauða, milh efnis og andefnis og um
fegurðina í hinni eilífu hringrás...“
Hér eru á ferð myndljóð sem eru
auganu það sama og safaríkt bundið
mál huganum, þar sem einfaldleiki
og orðkynngi eru burðarásar fram-
setningarinnar.
Bragi Asgeirsson
Kjördæmavika
þingmanna í Reykjavík
„Endur-
vinnsla“ á
háu plani
TONLIST
Hallgrímskirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Sigurður Flosason saxófónleikari
og Gunnar Gunnarsson organisti
léku eigin útsetningar á íslenskum
og erlendum sálmalögum.
Laugardag kl. 17.
HVERNIG lifir gömul tónlist af?
Hvað er það sem fær gamlan lagstúf
til að standast tímans tönn svo vel að
hann höfðar jafnt til okkar nú og til
fólks fyrir öldum síðan? Góð lög lifa;
það vitum við. En það virðist ekki
vera nóg; annars kynnum við eflaust
mun fleiri lög en við gerum. „Endur-
vinnsla“ er nýtt lausnarorð sem sam-
tímanum. I tónlistinni hefur endur-
vinnsla verið iðkuð frá alda öðli, og
fleytt gömlum lögum frá einni kyn-
slóð til annarrar. Frægasti endur-
vinnslumaður tónlistarsögunnar er
Jóhann Sebastian Bach sem tók
hvern sálminn af öðrum eftir
gleymda höfunda, og gaf þeim nýtt
líf í nýjum útsetningum og fann þeim
nýjan samastað í verkum sínum. Góð
lög lifa, því þau halda áfram að höfða
til kynslóðanna, og þau halda áfram
að höfða til þeirra sem vilja búa þeim
samastað með sinni kynslóð. Sigurð-
ur Flosason saxófónleikari og Gunn-
ar Gunnarsson organisti hafa tekist
á við það ögrandi verkefni að búa
kunnum sálmalögum nýjan búning
fyrir hljóðfæri sín. Margir þeirra
sálma eru gamlir; og hafa lifað af ald-
irnar á þann hátt sem að framan er
lýst; - sumir eru öllum kunnir en eru
eftir tónskáld sem varla verður mun-
að eftir, og lúta því um margt sömu
lögmálum og elstu sálmarnir.
Nokkrir þeirra sálma sem þeir hafa
tekist á við eru nýjir og nýlegir og
eru eftir kunnustu sálmaskáld okkar
tíma. Aðferð þeirra Sigurðar og
Gunnars er ekki svo frábrugðin að-
ferðum Bachs þegar grannt er skoð-
að, þótt þrjár aldir skilji að. Spuninn
er kjarni aðferða beggja. Forleikir,
fantasíur, prelúdíur og kanontil-
brigði Bachs byggð á gömlum sálma-
lögum eru spunaverk síns tíma. Að-
ferðir Sigurðar og Gunnars eru þó
frjálslegri að nútíma sið. Saxófónn
Guðmundur Hallvarðsson
8. þingmaður Reykvíkinga ertil viðtals
í kjördæmaviku þingmanna:
Frá þriðjudegi 24.október
til föstudags 27. október,
daglega frá kl. 14:00 til 16:00
Fastir vikulegir viðtalstímar eftir það
á fimmtudögum frá kl. 8:30 til 10:00
Viðtölin eru í Blöndahlshúsi að
Kirkjustræti 8b. Sími 5 630 900
netfang: ghallv@althingi.is
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
og orgel eru heldur ekki svo óskyld
hljóðfæri þótt aldir skilji þau að í al-
dri. Þau eru bæði knúin lofti og bæði
eru öflug spunahljóðfæri; orgelið í
kirkjutónlistinni og saxófónninn í
djassinum.
Saxófónninn og orgelið hljóma
gríðarvel saman. Þau eru sem sköp-
uð hvort fyrir annað. Orgelið er nátt-
úrulega gríðarlegur hljóðabelgur og
getur brugðið sér í allra hljóðfæra
líki ef því er að skipta. Saxófónninn
hefur líka breitt litróf blæbrigða, en
á annan hátt. Utsetningar Sigurðar
Flosasonar og Gunnars Gunnarsson-
ar nýta það besta í hvoru hljóðfæri
fyrir sig, og útkoman er mjög áhrifa-
mikil.
Það er erfitt að lýsa stemmning-
unni á tónleikum þeirra í Hallgríms-
kirkju á laugardaginn. Þetta var
andakt þar sem fegurð tónlistarinn-
ar lyfti hug og sál í hæðir. Þetta var
upplifun á einhverju nýju og spenn-
andi en samt svo sterk tenging við
aldagamla fortíð. Sálmurinn forni,
Nú kemur heimsins hjálparráð var
fyrstur á efnisskránni, fallegur og
ákaflega vel útsettur. Sálmurinn Nú
legg ég augun aftur fékk nýja vídd í
rismiklum spunaþætti. Þetta var
hreint frábær útsetning og snilldar-
lega leikin. Það er ekki ólíklegt að
þessi fallegi sálmur eigi eftir að njóta
mikilla vinsælda í þessum búningi og
að svona á hann örugglega eftir að
hljóma oft í kirkjum landsins gefi
þeir félagar á annað borð færi á út-
setningunni. Þú æskuskari á íslands
strönd, var settur út í fjörlegum
valstakti og tók sig afar vel út í þeim
búningi. Eitt albesta verkið á tón-
leikunum var útfærslan á sálmi
Þorkels Sigurbjömssonar, Til þín
drottinn hnatta og heima, hljómar
bæn um frið. Þar var raddaval or-
gelsins nýtt til fullnustu til að skapa
þau ragnarrök sem falleg friðarbæn
Páls Kolka sprettur úr. Stór kadensa
fyrir altsaxinn var tilkomumikil eins
og verkið allt og flutningurinn í heild
sinni. „Brúðkaupssteypa" var út-
setning á brúðkaupssálmi sem sung-
inn er við lagið Sjá morgunstjaman
blikar blíð. I upphafi var vitnað beint
í brúðkaupsmars Mendelsshohns úr
Draumi á Jónsmessunótt, en einnig
stirndi á brúðkaupsmars Wagners í
steypuhrærivélinni sem tók við eftir
innhanginn. Smám saman braust út,
- Eia, eia, - faðir, faðir, og sálmurinn
tekur á sig sinn kunnuglegan svip.
Þetta var virkilega flott gert með
sannkölluðum virtúósabrag eins og í
brúðkaupum sæmir. Ég kveiki á
kertum mínum, er einn af fallegustu
sálmum okkar; saminn af Guðrúnu
Böðvarsdóttur, systur Bjarna Böðv-
arssonar. Þeir Sigurður og Gunnar
fóm ákaflega fallega með sálminn og
með fullri virðingu fvrir textanum
sem heitir raunar A föstudaginn
langa. Fleira gott gat að heyra á
þessum sérstöku tónleikum. Smekk-
vísi og skilningur á tónlistinni ein-
kenndi útsetningar Sigurðar Flosa-
sonar og Gunnars Gunnarssonar.
Spunaelementið gefur sálmunum
sannarlega nýja vídd, en þar var þó
engu ofaukið, né virtist nokkru
ábótavant. Þetta nýmeti tengdist
fortíðinni hvað sterkast í sálminum
Jesús Kristur lifsins ljómi, þar sem
Gunnar notaði knimmhornsrödd or-
gelsins til að endurvekja forneskju
lagsins og langa bassatóna, - svok-
allaðan pedalpunkt til að undirstrika
rödd krúmmhornsins og fornan blæ.
Saxófónkadensa Sigurðar var mögn-
uð. Ég spái mörgum þessara mis-
þekktu sálmalaga endurnýjaðri vel-
gengni og miklum vinsældum í frá-
bærri endurvinnslu Sigurðar Flosa-
sonar og Gunnars Gunnarssonar.
Bergþóra Jónsdóttir