Morgunblaðið - 24.10.2000, Page 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 43
+
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
JAFNVÆGIAÐ SKAPAST
GÓÐÆRI undanfarinna ára hef-
ur verið meira en góðæri. Um-
svifín í viðskipta- og atvinnu-
lífí hafa verið í algjörum toppi. Hagur
almennings hefur batnað í samræmi
við það. Nú er ýmislegt, sem bendir
til þess, að viðskiptalífið sé að hægja
á sér. í því felst ekki, að við blasi nýr
samdráttur heldur miklu fremur, að
líkur séu á því að eðlilegt ástand
skapist á næstu mánuðum. Sú þróun
er af hinu góða. Það kann ekki góðri
lukku að stýra, að neyzluæðið haldi
áfram eins og verið hefur síðustu ár-
in.
Ymsar vísbendingar má sjá um að
viðskiptalífið sé að hægja á sér.
Hækkandi olíuverð á þar mikinn hlut
að máli. Rekstur nokkurra grundvall-
aratvinnugreina er þyngri en áður
vegna hækkunar á olíuverði. Þar má
nefna bæði sjávarútveg og samgöng-
ur. Það er augljóst, að sjávarútvegs-
fyrirtækin og samgöngufyrirtækin
verða fyrir ákveðnu áfalli í rekstri
sínum vegna hækkunar olíuverðs.
Vaxtahækkunin, sem Seðlabankinn
hefur beitt til þess að slá á þensluna,
er líka að byrja að segja til sín. Þegar
vextir fyrirtækja af yfirdráttarlánum
eru farnir að nálgast 20% og jafnvel
komnir yfír það mark fer það að segja
til sín í rekstrinum. Vextir almennt
hafa hækkað verulega og þess mun
smátt og smátt sjá stað í afkomu fyr-
irtækja og heimila.
Verulega hefur dregið úr bílainn-
flutningi síðustu mánuði. Sala á nýj-
um bílum hefur verið gífurlega mikil
nokkur undanfarin ár. Hún hefur
endurspeglað þann hápunkt góðæris-
ins, sem við höfum náð. Það er ekkert
við það að athuga, að eitthvað dragi
úr bílainnflutningi. Þvert á móti er
það eðlilegt og æskilegt.
Framan af ári hækkuðu fasteignir
stöðugt í verði og hver eign seldist
nánast samstundis. Það hefur líka
dregið úr þessari miklu sölu og stöð-
ugum hækkunum á fasteignum. Það
er líka vísbending um að efnahags-
ástandið er að ná meira jafnvægi en
verið hefur.
Hlutabréf hafa haldið áfram að
lækka. Þau hafa lækkað frá verði,
sem að flestra mati var alltof hátt
framan af þessu ári. Verð hlutabréf-
anna nú er mun nær eðlilegu verð-
mati á fyrirtækjunum. Að því leyti er
verðlækkun á hlutabréfum síðari
hluta ársins eðlileg og vísbending um
aukið jafnvægi í efnahagslífinu.
Allt er þetta heilbrigð þróun, sem
bendir til þess að efnahags- og at-
vinnulíf landsmanna sé að ná jafn-
vægi og þess vegna væri rangt að
túlka þessa þróun sem merki um sam-
drátt í efnahagslífinu. Svo er ekki.
Sama þróun á sér stað í nálægum
löndum. Alþjóðlegir hlutabréfamark-
aðir hafa lækkað verulega á þessu ári.
Þannig hefur Dow Jones-vísitalan
lækkað um 17% á árinu. Hlutabréfa-
markaðir í Evrópu hafa lækkað um
21% og í Japan um 25%. Hækkun ol-
íuverðs hefur haft sín áhrif beggja
vegna Atlantshafsins og ljóst að
áframhaldandi óvissa um þróun mála
milli ísraela og Palestínumanna mun
hafa neikvæð áhrif á efnahagslíf
Vesturlanda. Trú manna á hinar nýju
atvinnugreinar, svo sem netfyrirtæk-
in, hefur beðið ákveðinn hnekki og
líklegt að mörg þeirra muni leggja
upp laupana á næstu mánuðum og
misserum. Erlendir bankar eru byrj-
aðir að draga úr lánveitingum og
hækka vexti. Þegar á heildina er litið
er framvinda mála í Evrópu og
Bandaríkjunum mjög svipuð og hér.
Efnahagslífið er að hægja á sér en
það gerist frá hápunkti hagvaxtarins
og þess vegna engin raunveruleg
hætta á ferðum, þótt eitthvað dragi
úr þeim öra vexti.
Líkurnar á því, að framvinda efna-
hagsmála verði í samræmi við ofan-
greint eru miklar. Þess vegna er
skynsamlegt fyrir bæði fyrirtæki og
heimili að taka mið af þessari þróun.
Það er betra að draga úr kostnaði áð-
ur en í óefni er komið. Minnkandi um-
svif gera það að verkum, að það verð-
ur nauðsynlegt að draga úr
útgjöldum. Fyrirtæki og einstakling-
ar geta ekki leyft sér jafnmikið á
næstu misserum og þessir aðilar hafa
getað á nokkrum síðustu árum.
Líkurnar á því að olíuverð lækki á
næstunni eru ekki miklar. Bæði er
það svo að veturinn er að ganga í garð
á norðurhveli jarðar, sem þýðir
aukna eftirspurn eftir olíu, en jafn-
framt er ljóst, að áframhaldandi órói
og átök í Miðausturlöndum leiðir til
þess að olíuverð mun haldast hátt
þangað til veruleg breyting verður.
Þess vegna eiga fyrirtæki ekki að
gera sér vonir um lækkun olíuverðs
heldur ganga út frá því í áætlunum
sínum, að það verði hátt enn um
skeið.
Olíuverðið kemur beint fram í út-
gjöldum heimilanna vegna mikillar
bifreiðaeignar. En jafnframt er lík-
legt að það komi óbeint fram vegna
þess, að samgöngufyrirtækin telji sig
ekki eiga annarra kosta völ en hækka
verð á þjónustu sinni. Islendingar
hafa vanizt tiltölulega lágum far-
gjöldum á milli landa undanfarin ár.
Hversu lengi geta Flugleiðir haldið
núverandi verði í ljósi stóraukiþs
eldsneytiskostnaðar?
Það er nánast sama hvert litið er.
Alls staðar eru vísbendingarnar hin-
ar sömu, að við höfum þegar náð há-
punkti góðærisins og nú sé komið að
því að aðlagast breyttum aðstæðum,
sem fela í sér blómlegt atvinnu- og
efnahagslíf en ekki þau gífurlegu um-
svif, sem einkennt hafa síðustu ár.
Mikill uppgangur undanfarinna
ára hefur skilið eftir sig þjóðfélag,
sem er gjörbreytt frá því, sem var í
upphafi þessa áratugar. Atvinnuveg-
irnir byggja á traustum grunni og
velsæld er mikil. Fjölbreytni atvinnu-
lífsins hefur stóraukizt og afkoma
okkar íslendinga byggist á breiðari
grunni en nokkru sinni fyrr.
Þess vegna eigum við ekki að
harma það, að eitthvað hægi á þeim
öra vexti, sem hér hefur verið undan-
farin ár heldur fagna því, að okkur
gefst nú tækifæri til að treysta þann
árangur, sem við höfum náð og hefur
leitt til þess, að íslenska þjóðin, 275
þúsund manns, er nú ein ríkasta þjóð
í heimi. Það er mikil breyting frá því
sem var á fyrsta einum og hálfum ára-
tug lýðveldisins, þegar ráðamenn
þjóðarinnar þurftu nánast að ganga á
milli sendimanna erlendra ríkja með
hattinn í hendinni til þess að halda
lýðveldinu á floti.
✓
Af ríflega 8 milljarða króna framkvæmdafé frá árinu 1978 hefur HI varið 5,6 milljörðum króna til nýbygginga, þar af nærri 1.800 milljónum í Læknagarð
Happdrættispeningar
duga ekki lengur
Náttúrufræðahús Háskóla íslands er
síðasta byggingin í 20 ára áætlun skólans
sem miðuð er við skilgreindar þarfír. Páll
Skúlason rektor vill að í framtíðinni verði
reist fjölnota hús og hefur þar m.a. í huga
Háskólatorg. Björn Jóhann Björnsson
ræddi við forráðamenn skólans um
húsnæðismálin, m.a. Náttúrufræðahúsið
og fjármögnun bygginga og kynnti sér
hvernig framkvæmdafé skólans hefur
verið varið síðastliðna tvo áratugi.
Þar kennir ýmissa grasa.
millj.kr
1800 -
Ráðstöfun nýbyggingarfjár HÍ1978-1999
á verðlagi ársins 1999 í millj. kr.
.
20
Áætlun 2000-2001
274/
_
11 I
Lækna- Náttúru- Oddi Verk- Háskóla-Umsjón Hagi Þjóóar- Tækni- Nýi- Hjóna-
garður fræði- iogllfræði- bíó og v/Hofs- bók- garður Garður garðar
hús hús önnur valla- hlaða/
______ _____ I og II___________verk gölu tölvunet________________________
—
■. v.j«sí ■ - .
........
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Náttúrufræðahús Háskóla Islands í Vatnsmýrinni. Gæti kostað 1.600 milljónir króna þegar upp verður staðið.
Ráðstöfun framkvæmdafjár Hl árin 1978-2001
á verðlagi ársins 1999 í millj. kr.
700 millj. kr. ____________
600
500 .
~~~
m■
200
100
0
— ri
“ □
n
■ . m ii l 1
j Tækjakaup
E Húsgögn og búnaður
M Nýbyggingar
l Viðhald fasteigna
I II I I I I I I I I I I I I I I I I
19781979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001
* Áætlun tyrir irín 2000 og 2001 _______________________________
700 millj. kr.
Helstu framlög til framkvæmda HÍ1978 - 2001
á verðlagi ársins 1999 í millj. kr.
■ Annað, m.a. sala eigna
M Framlag rikissjóðs
[□ lin HHÍ
[□ Framlag Happdrættis HÍ
1978197919801981 1982
•Ajetlontyrirárin 2000 09 2001
HÚSNÆÐISMÁL Háskóla
íslands eru í brennidepli
um þessar mundir vegna
Náttúrufræðahússins í
Vatnsmýrinni. Sú bygging hefur tek-
ið lengri tíma en ætlað var, einkum
vegna fjárskorts Háskólans til
nýframkvæmda. Byggingar Háskól-
ans hafa frá árinu 1934 verið fjár-
magnaðar af Happdrætti Háskóla
íslands en það fé dugar ekki lengur
bæði til nýbygginga og viðhalds.
Þannig hefur fjármagn til viðhalds
aukist jafnt og þétt á seinni árum. Af
þeim sökum eru forráðamenn Há-
skólans farnir að íhuga aðrar leiðir
til fjármögnunar, m.a. í samstarfi við
einkaaðila og með framlagi úr ríkis-
sjóði.
Nemendum við Háskóla íslands
hefur fjölgað verulega á síðustu ár-
um og eru í dag í kringum 6.700.
Fyrir um 10 árum voru þeir helmingi
færri. Samfara því hefur þörf á hús-
næði aukist og víða er bæði nemend-
um og kennurum þröngur stakkur
skorinn hvað aðstöðu varðar. Ekki er
aðeins beðið eftir því að Náttúru-
fræðahúsið klárist, sem leysa á að
hluta húsnæðisvanda líf- og jarð-
fræði og Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar. Einnig er ókláruð
bygging sunnan við Verkfræðihús
Háskólans við Suðurgötu, VR-III,
viðbótarbyggingar er þörf við Odda
vegna aukins fjölda nemenda í fé-
lagsvísindum og viðskipta- og hag-
fræðigreinum og sömuleiðis er þörf á
stækkun á húsi Endurmenntunar-
stofnunar vegna fjölgunar nemenda.
Ótalinn er Læknagarður við Hring-
braut, eða Tanngarður, en sú bygg-
ing er ókláruð frá því í kringum 1980.
Áætlanir voru uppi um fleiri bygg-
ingar á þeim stað, einkum til norðurs
og austurs, sem tengja átti
Landspítalanum eftir að Hring-
brautin myndi færast suður fyrir
Læknagarð. Loks er talin brýn þörf
á að gera við Eirberg, gamla Hjúkr-
unarskólann.
Háskólatorg og
Lífvísindagarður
Hugmyndir hafa einnig verið uppi
innan Háskólans um byggingu Líf-
vísindagarðs og svonefnds Háskóla-
torgs, sem yrði nokkurs konar
menningarsmiðstöð skólans. Stað-
setning þessara bygginga er
óákveðin en líklegt að hún verði í
námunda við aðalbyggingu Háskól-
ans eða í Vatnsmýrinni.
í samtali við Morgunblaðið um
byggingarmál skólans og fjármögn-
un þeirra segir Páll Skúlason rektor
að forgangsverkefnið sé að klára
Náttúrufræðahúsið. Það sé þjóð-
hagslega mikilvægt. Ljúka þurfi
byggingunni á næstu 2-3 árum.
Um Háskólatorgið segir Páll að
það þurfi ekki að vera ein bygging,
heldur miðstöð háskólasamfélagsins
sem yrði lifandi vettvangur fyrir alls
konar þjónustu og menningarstarf-
semi, þangað sem allir starfsmenn
skólans og nemendur ættu erindi á
degi hverjum.
„Miðstöð sem þessa hefur skort í
háskólasamfélaginu. Þetta er ekki
ný hugmynd og hefur oft verið til
umræðu. Það er ljóst að til þess að
gera þennan draum að veruleika þá
þurfum við að fá fé annars staðar frá,
og horfum við aðallega til einkaaðila í
því sambandi. Við þurfum að fá til
liðs við okkur þá fjárfesta sem sjá
sér hag í því að gera þetta með okk-
ur. Vonandi verður þessi bygging að
veruleika innan fárra ára,“ segir Páll
en talið er að fyrsti áfangi Háskóla-
torgs gæti orðið 3 til 4 þúsund fer-
metrar að flatarmáli og kostað 450 til
600 milljónir króna.
Sem dæmi um starfsemi sem Há-
skólatorg er ætlað að hýsa er þjón-
usta við nemendur og starfsfólk, s.s.
nemendaskrá, námsráðgjöf og
starfsmannaskrifstofa, verslun og
þjónusta, veitingarekstur, aðstaða
til heilsuræktar, funda- og sýninga-
aðstaða og starfsaðstaða fyrir
kennara og nemendur í framhalds-
námi. Þá kæmi einnig til greina að
hluti Háskólatorgs verði helgaður
íslenskri tungu og menningu.
„Við höfum verið að skoða skipu-
lagsmál á háskólalóðinni og starfs-
hópar hafa verið að störfum undan-
farin ár. Byggingar sem þessar
yrðu reistar í samvinnu við Félags-
stofnun stúdenta og einkaaðila,"
segir Páll.
Auk Háskólatorgs og Náttúru-
fræðahúss er ætlunin að rísi svo-
nefndur Lífvísindagarður. Þar yrði
t.d. matvælafræði til húsa og að-
staða til rannsókna í tengdum
greinum. Að sögn Páls stendur
einnig til að eiga samstarf við
einkaaðila um þá byggingu. Lífvís-
indagarður kæmi væntanlega
sunnan við Náttúrufræðahúsið,
yrði allt að 5 þúsund fermetrar að
flatarmáli og kostaði um 600 til 750
milljónir króna.
Byltingíþróun
háskólastigsins
Páll leggur áherslu á að allt sé
þetta á hugmyndastigi. Engar
ákvarðanir hafi verið teknar.
„Háskólasvæðið er afar mikil-
vægt og dýrmætt, ekki bara fyrir
háskólafólkið heldur einnig fyrir
Reykjavík og landið í heild sinni.
Eðlilega er þetta eftirsóknarvert
svæði. Miklu skiptir að allt sé hér
vel gert og menningarlegt, ekki síst
vegna staðsetningarinnar. Aðal-
byggingin hefur skipt miklu máli
fyrir borgina og svipmót þessa
svæðis," segir Páll.
Rektor bendir á að aukin hús-
næðisþörf sé fyrst og fremst til-
komin vegna fleiri nemenda, ekki
síst í framhaldsnámi. Á örfáum ár-
um hafi nemendum í framhalds-
námi fjölgað úr nokkrum tugum
upp í um 500 manns. Háskólinn
þurfi að skapa þessum nemendum
viðunandi aðstöðu til að geta unnið
sín verkefni. Þeir þurfi að hafa
starfsaðstöðu.
„Þeir þurfa að geta unnið á
staðnum. Þeir eru virkir þátttak-
endur í rannsóknarstarfsemi og
það gengur ekki að þeir vinni sína
vinnu heima hjá sér eða einhvers
staðar úti í bæ. Þetta er stórt for-
gangsverkefni og mætti til dæmis
leysa í tengslum við Háskólatorgið
eða Lífvísindagarðinn,“ segir Páll.
Rektor segir að í raun sé bylting
að eiga sér stað í þróun háskóla-
stigsins, bylting sem sé af tvennum
toga. Annars vegar stóraukið fram-
haldsnám, sem fólk vill fara í hér á
landi og tengjast íslenskum veru-
leika, og hins vegar aukin þörf á
endurmenntun, sem Páll segir að sé
að færast inn í deildir skólans og
miðist ekki eingöngu við Endur-
menntunarstofnun HÍ. Sem dæmi
sé þetta vaxandi í lögfræðinni og
viðskiptafræðinni.
„Fólk sem er að endurmennta sig
gerir kröfur um meiri þjónustu,
betri aðbúnað og þægilegra um-
hverfi. Háskólinn verður að geta
mætt óskum þessara nýju „við-
skiptavina“,“ segir Páll ennfremur.
Sóknarfæri í auknu
samstarfí við fyrirtæki
Varðandi fjármögnunarleiðir
liggur ljóst fyrir, eins og kom fram í
upphafi, að framlög Happdrættis
Háskólans duga ekki lengur bæði
til nýbygginga og viðhalds þeirra
eldri. Páll telur happdrættið alls
ekki vera úrelta fjármögnunarleið.
Henni beri að halda áfram, enda
hafi happdrættið skilað miklu fjár-
magni til skólans og skipt gríðar-
legu máli iyrir uppbyggingu hans í
gegnum tíðina.
„Við höfum verið að skoða öll
okkar húsnæðismál með faglegum
hætti, reiknað út þarfir allra deilda
og greina og kortlagt nákvæmlega
hvernig við nýtum húsnæðið við
kennslu og rannsóknir. Þarfirnar
eru breytilegar frá einum tíma til
annars. Allt stefnir þetta að því að
hagræða og nýta húsnæðið á eins
markvissan hátt og hægt er. Þegar
skólinn er í þetta örum vexti reyn-
um við að gjömýta allt. Um leið og
+
viðbótarhúsnæði fæst er það um-
svifalaust fullnýtt. Á þessum
granni erum við að spá í okkar
þarfir á næstu árum. Það helst í
hendur við fjölgun nemenda, bæði í
grunn- og framhaldsnámi. Við
semjum við ríkið um ákveðnar
greiðslur vegna kennslu og rann-
sókna. Akveðinn húsnæðiskostnað-
ur er þar reiknaður á hvern nem-
anda. Ríkið og íslenska þjóðin eru í
raun grundvallarviðskiptavinur
skólans, ef þannig má að orði kom-
ast. Ríkið greiðir fyrir rekstur Há-
skólans og ég sé enga breytingu
fyrirsjáanlega á því í meginatrið-
um. Háskólahappdrættið höfum við
haft til að reisa hús og viðhalda
þeim. Þama höfum við tekjur sem
líta má á sem frjáls framlög al-
mennings. Háskólinn verður að
njóta þess að hann aflar þessara
tekna. Síðan þurfum við að semja
við ríkið um hvað það lætur okkur
hafa mikið til viðbótar," segir Páll.
Að mati rektors eru þrjár megin-
leiðir í fjármögnun fyrir byggingar
Háskólans. í fyrsta lagi sé það
Happdrættið, í öðru lagi ríkissjóður
og í þriðja lagi samstarfsaðilar
skólans, s.s. fyrirtæki í atvinnu-
rekstri sem vilja taka þátt í upp-
byggingu Háskólans. Síðastnefnda
leiðin er að mati Páls sú sem gefur
mestu möguleikana í framtíðinni.
Þar séu sóknarfærin, enda hafi
skólinn aukið samstarf við fyrir-
tæki á síðari árum. Páll segir að
fyrirtækin verði að sjá augljósan
hag af samstarfi við skólann.
Páll bendir um leið á að Háskóli
íslands hafi að miklu leyti byggst
upp að frumkvæði háskólamanna
sjálfra.
„Þetta er óvanalegt. Mér er ekki
kunnugt um neinn háskóla í heim-
inum sem hefur heimild til að reka
happdrætti, sem fjármagnar bygg-
ingar. Síðan hefur Háskólinn stofn-
að nokkur fyrirtæki, meðal annars
Háskólabíó. Ákveðin frumkvæðis-
og fyrirtækjahugsun hefur alltaf
einkennt rekstur Háskólans. Mér
finnst þetta jákvætt, að háskóla-
menn reyni að bjarga sér sjálfir. En
þetta breytir ekki þeirri grundvall-
arstaðreynd að Háskólinn er eign
þjóðarinnar. Þjóðin stendur undir
rekstri hans í öllum megindrátt-
um, “ segir Páll.
Auk þeirra fjármögnunarleiða
sem hér hafa verið nefndar hefur
Háskóli íslands nýlega fengið 62
milljónir króna frá Reykjavíkur-
borg, vegna sölu lóðar í Vatnsmýr-
inni undir höfuðstöðvar Islenskrar
erfðagreiningar. Samkvæmt samn-
ingi ákváðu borgaryfirvöld að láta
helming söluandvirðis lóðarinnar
renna til Háskólans. Þá fékk Há-
skólinn um 100 milljónir króna við
sölu Reykjavíkurapóteks í fyrra.
Náttúrufræðahúsið síðasti
áfanginn í 20 ára áætlun
Brynjólfur Sigurðsson, formaður
bygginganefndar Háskólans, segir
í samtali við Morgunblaðið að á ár-
unum 1976 til ’78 hafi verið gerð
áætlun um hvaða þarfir fyrir hús-
næði yrðu brýnastar. Áætlunin hafi
verið endurskoðuð í gegnum tíðina,
í stórum dráttum hafi henni verið
fylgt og þannig sé Náttúrufræða-
húsið síðasti áfanginn í þeirri áætl-
un. Þá hafi verið reiknað með líf-
fræðikennslu í húsinu en til
viðbótar hafi komið jarðfræðin og
Norræna eldfjallastöðin.
„Síðan kemur þessi stóra spreng-
ing í kringum íslenska erfðagrein-
ingu, með auknum möguleikum á
atvinnu, sem eykur eftirspurn og
áhuga nemenda fyrir þessari grein.
Sem betur fer vorum við þá komnir
af stað með Náttúrufræðahúsið,“
segir Brynjólfur en vonir Háskóla-
manna standa til þess að húsið
verði tekið í notkun eftir þrjú ár.
Nýjar höfuðstöðvar íslenskrar
erfðagreiningar verða í Vatnsmýr-
inni. Margir kostir eru taldir felast
í nálægð þessara húsa á svæðinu,
með tilliti til rannsóknaraðstöðu og
fleira.
Lengi býr að fyrstu gerð
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir að Náttúrufræðahúsið myndi
kosta um 1.200 milljónir króna. Nú
stefnir í að heildarkostnaður gæti
numið um 1.600 milljónum. Að-
spurður hvað valdi þessari aukn-
ingu segir Brynjólfur að langt sé
um liðið frá fyrstu áætlanagerð fyr-
ir um 4 árum. Margt hafi breyst á
þeim tíma, meiri þensla á bygging-
armarkaði og stórauknar kröfur
um tæknibúnað. Hve mikið húsið
muni kosta fari mjög eftir því hve
miklu af tæknibúnaði verði komið
þar fyrir. í húsinu verði margar
rannsóknastofur og flokkist það
sem hátæknihús.
„Menn mega ekki gleyma því að
Háskóli íslands er stór. Við erum
með 6.700 nemendur og einhvers
staðar þarf þetta fólk að vera.
Þrengslin hafa verið gífurlega mikil
og stjórnvöld hafa ekki viljað hlusta
á að einhver vandkvæði væru á því
að koma fólkinu hérna fyrir. í hús-
næði Háskólans er kennt frá átta á
morgnana til sjö á kvöldin. Yfirleitt
er hvergi hægt að komast í stofu
með hóp ef t.d. kennari verður veik-
ur. Kennarinn hefur ekki tækifæri
á að gefa aukatíma. Svona hefur
þetta verið lengi. Ég spyr hvort það
sé t.d. eðlilegt að kenna í einum
hópi 500 til 600 manns. Mér finnst
að alveg ótrúlega mikið hafi náðst
út úr því litla fjármagni sem Há-
skólinn hefur haft úr að spila, til að
halda húsunum við og sjá fyrir hús-
næði undir starfsemina," segir
Brynjólfur.
Hvort byggt hafi verið „of flott“ í
Vatnsmýrinni segir Brynjólfur að
alltaf megi deila um form hússins.
Vissulega geri gluggaverkið á norð-
urhliðinni húsið sérstakt. Það gegni
hins vegar veigamiklu hlutverki í
innra fyrirkomulagi og nýtingu
dagsbirtu á vinnusvæðinu. Ánnað í
húsinu sé frekar hefðbundið, s.s.
steypuvirkið.
„Eg hef nú ekki staðið að bygg-
ingarmálum hjá Háskólanum nema
í þrjátíu ár. Mín reynsla er sú að
lengi býr að fyrstu gerð, eins og
stundum er sagt. Þeim mun betur
sem vandað er til húss í upphafi þá
er viðhaldið alla jafnan léttara.
Húsin standast betur og sem dæmi
nefni ég að Oddi, sem reyndar kost-
aði ekki mikið, hefur þurft á litlu
viðhaldi að halda í gegnum tíðina.
Okkur er umhugað um að fá vandað
verk út úr Náttúrufræðahúsinu. Sé
kastað til höndunum er erfitt að
laga slíka hluti síðar,“ segir Brynj-
ólfur.
Náttúrufræðahúsið á
8 þúsund fermetrum
Fyrsta skóflustunga að Náttúru-
fræðahúsinu var tekin í janúar árið
1996. Húsið er tæpir 8 þúsund fer-
metrar að flatarmáli og þar á að
fara fram kennsla í líffræði, jarð-
vísindum og landafræði, auk að-
stöðu til rannsókna og framhalds-
náms í þessum greinum. Þá verður
Norræna eldfjallastöðin þar til
húsa, sem hefur verið á hrakhólum
undanfarin ár. Náttúrufræðahús-
inu er ætlað að leysa húsnæðis-
vanda þessara greina, en kennslan í
dag fer fram á nokkrum stöðum í
borginni, sumum fjarri háskólalóð-
inni eins og við Grensásveg, þar
sem líffræðin er. Alls eru um 500
nemendur í dag í þessum greinum,
þar af um 260 í líffræði.
í íyrsta áfanga verksins var skipt
um jarðveg í grunni hússins, sem
fylltur var með hrauni sem undir-
lag byggingarinnar. Sú fram-
kvæmd kostaði tæpar 40 milljónir
króna, en átti að kosta 52 milljónir
samkvæmt kostnaðaráætlun Há-
skólans. í 2. áfanga átti að steypa
húsið og fullklára að utan, í síðasta
lagi fyrir 1. mars á þessu ári. Ár-
mannsfell átti lægsta tilboð í 2.
áfanga, eða 7 milljónum yfir áætlun
Háskólans sem var upp á 530 millj-
ónir króna, en vegna ýmissa auka-
verka hefur kostnaður aukist.
Eftir að Armannsfell sameinað-
ist íslenskum aðalverktökum tók
síðarnefndi verktakinn við fram-
kvæmdinni, og vinnur nú hörðum
höndum að því að fullklára verkið
fyrir 1. desember nk. Útboð á inn-
réttingum hefur ekki farið fram.
Sé miðað við að Náttúrufræða-
húsið kosti á endanum 1.600 millj-
ónir króna, og stærð upp á 8 þús-
und fermetra kostar hver fermetri í
húsinu um 200 þúsund krónur. Til
samanburðar má geta þess að hver
fermetri í byggingu Háskólans í
Reykjavík, áður Viðskiptaháskól-
ans, sem reist var á svipuðum tíma
og framkvæmdir við Náttúru-
fræðahúsið hófust, kostaði nærri
helmingi minna, eða um 110 þúsund
krónur.
Rúmir 8 milljarðar
frá árinu 1978
Þegar tölur um framkvæmdafé
Háskólans eru skoðaðar aftur til
ársins 1978 sést að 8,4 miHjarðar
króna hafa verið til ráðstöfunar í
framkvæmdir. Þar af er framlag
Happdrættis Háskólans um 7,5
milljarðar, um 600 mUljónir hafa
komið frá rQdssjóði, miðað við verð-
lag ársins 1999, og önnur framlög,
einkum sala eigna, hefur skilað 330
milljónum króna.
Framlag Happdrættisins hefur á
þessu árabili verið mismikið, hæst
var það á árunum 1987-88, þegar
Happaþrennan kom til sögunnar, á
bilinu 600-700 mUljónir króna
hvort ár, en síðustu ár hefur það
verið á bUinu 300-400 milljónir.
Þess ber einnig að geta að árið 1994
var fyrsta heila árið sem Gullnáma
Happdrættis Háskólans starfaði.
Vegna framkvæmda við Náttúru-
fræðahúsið þurfti Happdrættið að
taka 250 milljóna króna lán á ár-
unum 1998-99, og áætlun fyrir árin
2000-2001 gerir ráð fyrir 325 mUlj-
ónum hvort ár.
Framlög ríkisins til fram-
kvæmda HÍ hafa verið mismun-
andi, allt frá því að vera engin upp í
um 100 milljónir króna á ári. Til
skýringa við meðfylgjandi súlurit
skal þess getið að á árinu 1998
greiddi rQdssjóður 25 mUljóna
króna bætur vegna bruna í VR II
húsinu og í fyrra greiddi ríkissjóður
43 milljónir króna upp í kaupverð á
AtvinnudeUdarhúsi Háskólans. Þá
veitti ríkissjóður framlag til
Náttúrufræðahússins á árunum
1996-1998 vegna Norrænu eld-
fjallamiðstöðvarinnar.
Skipting framkvæmdafjár er
þannig að ríflega 60% hefur farið í
nýbyggingar, eða um 5,5 miiljarðar
króna. Tæplega 1.800 milljónir hafa
farið tU viðhalds, um 1 miHjarður í
tækjakaup og 325 milljónir í hús-
gögn og annan búnað. Alls gerir
þetta um 8,6 milljarðar króna frá
árinu 1978, miðað við verðlag ársins
1999. Munurinn, um 200 milljónir
króna, miðað við framkvæmdaféð
sem hefur verið tU ráðstöfunar,
felst m.a. í lánsfé sem skólinn hefur
aflað sér.
Kostnaður vegna viðhalds hefur
hægt og bítandi aukist hin síðari ár.
Mestur var hann á árunum 1995-96
þegar hann fór í tæpar 170 milljónir
á ári. Lengst af á níunda áratugn-
um var árlegur viðhaldskostnaður
30-60 milljónir króna.
Langmest í Læknagarð
Eins og áður sagði hafa um 5,5
milljarðar farið í nýbyggingar hjá
Háskólanum frá árinu 1978. Þar af
hefur Læknagarður, einnig kallað-
ur Tanngarður, verið frekastur til
fjárins. Tæplega 1.800 milljónum
króna hefur verið varið í bygging-
una frá árinu 1978, miðað við verð-
lag ársins 1999. Ékkert ár hefur
faUið úr allt tímabilið, minnst 6
milljónir í fyrra en mest 424 mUlj-
ónir árið 1982. Tuttugu milljónir
eru ætlaðar til viðhalds í húsinu í ár
en ekkert á næsta ári, sem yrði
fyrsta árið í sögu hússins. Gallar
hafa komið í ljós í húsinu og m.a.
varð það fyrir skemmdum í jarð-
skjálfta fyrir nokkrum árum.
Nefna má að auki að ríkissjóður
veitti sérstök framlög til bygging-
arinnar á árunum 1983 til 1984.
Aðspurður hvort Læknagarður
hafi ekki reynst Háskólanum
óþægur ljár í þúfu segir Páll svo
vera. Alltaf hafi þurft að leggja
fjármagn til hússins og enn væri
það ekki fuUklárað. PáU bendir þó á
að bygging hússins hafi ekki verið á
vegum Háskólans, heldur sérstakr-
ar stjómar sem stjómvöld skipuðu.
„Þegar húsið var hannað upp úr
1970 hafa menn greinUega hugsað
allt of stórt, miðað við aðstæður.
Einnig voru önnur viðmið í gildi á
þessum tíma, sem gerir það að
verkum að byggingin er kostnaðar-
samari en þær sem verið er að reisa
í dag,“ segir Páll.
Næst á eftir kemur Náttúru-.
fræðahúsið, sem er tæknilega full-
komnasta hús Háskólans, með 630
mUljóna kostnað það sem af er, og
samkvæmt áætlunum fyrir 2000 og
2001 gæti sá kostnaður farið í rúm-
ar 900 mUljónir.
Eins og komið hefur fram áður
gæti Náttúrufræðahúsið farið í
l. 600 milljónir þegar yfir lýkur á
næstu árum. Það er þó háð því
hvemig húsið verður innréttað og
útbúið í einstökum atriðum, að sögn
Páls. Kostnaður við aðrar bygging-
ar sést nánar á meðfylgjandi súlu-
riti.
Páll gerir ráð fyrir að Náttúm-
fræðahúsið sé það síðasta á vegum
skólans sem nákvæmlega er ætlað
fýrir skilgreindar þarfir. Húsið hafi
fyrst verið áformað fyrir 20 ámm
en þarfimar endurskUgreindar
þegar hönnun þess hófst fyrir 6 ár-
um.
„Hús sem reist verða á háskóla-
lóðinni í framtíðinni þurfa að geta
nýst tU ólíkra þarfa, eftir því hvað
hentar á hverjum tíma. Við þurfum
meiri sveigjanleika tíl að mæta
ófyrirséðum aðstæðum. I dag er
eríiðara en áður að sjá fyrir hverjar
þarfimar verða í framtíðinni. Áhugi
fólks á tUteknum greinum breytist
og kennsluaðferðir em að breytast,*
tíl dæmis með tilkomu fartölvunn-
ar. Ekkert skólahúsnæði í landinu,
mér vitanlega, er hannað miðað við
að nemendur séu með fartölvur sín-
ar í gangi í kennslustundum eða
hvar sem er innan skólans. Við
hönnun okkar húsnæðis þurfum við
m. a. að hafa þetta í huga,“ segir
Páll.
' I